Tíminn Sunnudagsblað - 06.01.1973, Blaðsíða 12

Tíminn Sunnudagsblað - 06.01.1973, Blaðsíða 12
Eiríkur Sigurðsson: Hríslan og lækurinn minn”. „Þú gerðir vel með þvi”, sagði Jón. „Þið gamlir sveitungar minir gleymið ekki gamla vökumanninum, þó að nú sé orðið langt milli bæja. Þú býrð i Reykjavik, eins og við, er það ekki svo?” „Jú, ég hef gert það lengi”, svaraði Hrafn. „Þar er gott að vera ekki siður en heima”. „Þú segir ennþá heima”, sagði Jón gamli og tók könnuna af primusnum, en hann hafði yljað kaffi- sopa fyrir gest sinn. „Það likar mér, þegar ungir menn muna upphaf sitt. Þeir þurfa ekki siður að muna það, þegar þeir reyna að hasla sér völl á nýjum stað. Aldrei gleymi ég bænum minum, og nú helli ég i bollana upp á það, Hrafn minn góður”. „Hvað finnst þér um heiðina, Jón?”, spurði Hrafn, þegar hann hafði rennt úr bollanum. „Þú spyrð, hvað ég hugsi um heið- ina”, svaraði Jón. „Ég er aldrei einn hér. Þegar ég rölti fram með girðing- unni, sé ég kindurnar horfa á mig kyrrlátum augum, eins og þær vilji segja. — Við þekkjum þig, þú hefur gefið kynsystfum okkar á garða. — Já, ærnar þekkja þá, sem hafa verið fjár- menn öll sin manndómsár. Svo sé ég og heyri mófuglana, helsingjana, svanina, að ógleymdum hröfnunum, nöfnum þinum. Hrafnar hafa alltaf verið vinir minir, þeir hafa sjaldan kroppað augun úr minum kindum, enda fengu þeir oft góðan bita hjá mér, og ekki var konan þeim siðri. Hún skildi alla, jafnt þá, sem fljúga og þá, sem ganga. Hún var börnunum móðir, mér ástvinur og átti hjarta, sem rúm- aði ást til alls, sem lifir. Hlýjan hennar sneri út og gerði dagana góða. Þess vegna vorum við rik i fátæktinni. Henni var bros úr okkar mörgu barns- augum meira virði en eignir og ör- yggi”. „Já”, sagði Hrafn, „þú áttir fá- gæta konu, Jón, og er öllum, sem þekktu hana,gott að minnast hennar. En þú tókst nú til hendinni með þennan stóra barnahóp og enginn heyrði víl frá þér”. „Þó ekki væri”, svaraði heiðarvörð- urinn. „Þeir þurfa ekki að kvarta, sem eiga himin af hamingju yfir höfði sér. Þeim verður daglegt strit að daglegri gleði. Og ellin er þeim góð, sem eiga við enga að sakast. Lifa sáttir við sjálfa sig og umhverfið. „Nú verð ég að kveðja”, sagði Hrafn, „það liður á kvöldið og ég ætla norður i nótt. Ég lit við hjá þér, ef ég get, á suðurleið”. „Gerðu það sagði heiðarvörðurinn og rétti Hrafni höndina. „Og farðu svo sæll og rólegur norður og berðu kveðju frá gamla Jóni um leið og þú rennur gegnum fjörðinn okkar. Vorblómin anga alltaf mest, þegar kvöldið er að Þjóðin okkar á margar ljóðperlur, sem skáldin hafa gefið henni. Sumar eru um landið ogfegurðþess, áörar um strengi mannlegrar sálar. Hér verður litillega sagt frá einni þessara perlna sem sameinar þetta hvort tveggja. Skömmu eftir fermingu komst ég yf- ir Ljóðmæli Páls Ólafssonar. Ég var mjög hrifinn af þeim og lærði margt af ljóðunum. Þar á meðal kvæðið „Hrisl- an og lækurinn”,sem mér hefur alltaf þótt frábært listaverk. Að visu sá ég aðeins landslagsmyndina fyrst, er ég lærði kvæðið. Það var ekki fyrr en sið- ar, að ég kunni að meta það sem ástar- ljóð. Siðar gaf Ingi T. Lárusson, tón- skáld, þessu kvæði vængi með hinu ljúfa lagi sinu, eins og hinu fagra syst- urljóði Páls „ó, blessuð vertu sum- arsól”. Tveir snillingar hafa lagt sam- an til að gera kvæðið „Hrisian og læk- urinn” ógleymanlegt. Margir hafa hrifizt af þessu ljóði Páls, einkum þeir, sem þekkja eitt- hvað til sögu hans, og hvernig honum var innan brjósts um það leyti, sem hann orti kvæðið. En enginn hefur opn- að það til skilnings eins vel og Benedikt Gislason frá Hofteigi i ævi- sögu Páls. Það var likt Benedikt að skilja kvæðið dýpri skilningi en aðrir hafa gert. Tilefni kvæðisins er talið, að Páll hafi riðið i glöðum hópi inn ströndina með fram Lagarfljóti áleiðis i Hall- ormsstað. Benedikt telur, að gæðingur hans i það skiptið hafi verið hesturinn Óskasteinn. Yzt i skóginum var svo áð i trjálundi. Þar blasti yrkisefnið við Páli: Ein hrisla sérstök á grasbala skammt frá læk, sem rann með ljúfum niði gegnum skóginn. Þarna sá Páll ekki aðeins fagurt landslag, heldur skáldlegt tákn um mannlega sambúð. breytast i nótt. Þau voru lika vinir hennar”. Hrafn gekk út i vorljóst kvöldið, en áður en hann steig inn i bilinn, leit hann við, þar sem Jón gamli stóð utan við skýlið sitt, beinn i baki með áttatiu ár mótuð i góðlegt og sviphreint andlit. Einhvern veginn fannst Hrafni, að vorið og heiðarvörðurinn hefðu alltaf átt samleið i blómunum. Gráar hærur og heitt hjarta, hugsaði Hrafn um leið og hann ók af staM-áttina norður. Og þó nisti hann sársauki eins og þá var ástatt fyrir honum sjálfum. Senni- lega hefur hann átt mestan þátt i að knýja kvæðið fram. Hjarta hans bund- ið við Eyjólfsstaði, en hann var kvænt- ur maður á Hallfreðarstöðum. En traust og virðing Þórunnar svo mikil, að ekki kom til mála að breyta þar neinu. 1 14 ár beið Ragnhildur á Eyjólfsstöðum eftir að Páll flutti i Hallfreðarstaði. Það hefur verið löng bið. En þá fyrst, er Páll var orðinn ekkjumaður á Hallfreðarstöðum, gátu ástardraumar þeirra rætzt. „Gott átt þú, hrisla, á grænum bala, glöðum að hlýða lækjarnið. Þið megið saman aldur ala, unnast og sjást og talast við. Þar slitur aldrei ykkar fundi, indæl þig svæfa ljóðin hans. Vekja þig æ af bliðum blundi brennandi kossar unnustans”. Þarna er brugðið upp fagurri lands- lagsmynd, en þó enn unaðslegri mynd af ást og sambúð. Hrislan unir við ljóð lækjarins. sem svæfa hana á kvöldin. Hún vaknar við þennan sama óm á morgnanna, það eru morgunkossar hennar. Unaður og fegurð lifsins eiga sér bústað i þessum trjálundi. „Svo þegar hnigur sól til fjalla, sveigir þú niður limarnar og lætur á kvöldin laufblöð falla i lækinn honum til ununar. Hvislar þá lækjar bláa buna og brosandi kys ir laufið þitt: „Þig skal ég ætið, ætið muna, ástrika, bliða hjartað mitt”. Þessi visa lýsir kvöldi elskenda. Hrislanbýður læknum góða nótt með þvi að láta laufblað falla i hann. Við sjáum það fyrir okkur skoppa niður eftir bárunum og lækinn taka á móti þvi með kvöldkossi. Hann kallar til hennar með ástarjátningu og heitir henni eilifri tryggð. SkyldTRagnhiÍdi á Eyjólfsstöðum ekki hafa þótt vænt um þennan óm lækjarins? En hún hefur eflaust manna bezt skilið ljóð Páls, svo ljóðelsk sem hún var. Siðasta visan er aðskilin frá hinum i sumum útgáfum með striki eða stjörnu. Enda dálitið frábrugðin þeim að efni. Þar er ekki sama birtan,og Flutt á bls. 22 20 Sunnudagsblað Tímans

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.