Tíminn Sunnudagsblað - 10.03.1973, Blaðsíða 18

Tíminn Sunnudagsblað - 10.03.1973, Blaðsíða 18
Skúm urinn Þegar maður kemur ak- andi úr Suðursveitinni og leggur á sandinn austan Jökulsár á Breiðamerkur- sandi, heilsar gunnreifur flugfugl, og nemi ferða- maðurinn staðar, til að mynda hjá sandöldunum, sem komið hafa undan jökli á þessari öld, til að hlusta á Steinþór á Hala, eða ein- hvern annan fróðan Suður- sveitung segja frá því, hvar jökullinn iá á sandinum fram undir sjó, þegar sögu- maður mundi fyrst eftir sér á þessum slóðum, getur fuglinn gerzt töluvert að- súgsmikill, einkum ef þetta er fyrri hluta sumars. Þessi fugl er skúmurinn, og þarna er mesta skúma- byggð — og kannski eina skúmabyggð á landinu. Skúmurinn er fallegur fugl á flugi, svartur undir sól og himinbláma að sjá, með hvítum flekkjum á flug- fjöðrum — skúmóttur. Mað- ur tekur strax eftir því, hve lítið hann virðist þurfa að hreyfa vængina, þegar gola er af hafi. Hann svífur hátt og langt, rennir sémjúklega, og steypir sér ef til vill allt í einu í boga niður að grand- lausum ferðamanninum, sem allra síztá sér loftárásar von. En sé myndavél á lofti og ferðamaður ekki of skjálfhendur af ótta við fugl á marga lund, til að mynda virðist hann bæði félagslyndur og einrænn. Hann heldur sig á tilteknum svæðum í sambyggð, en þó er hann dreifbýlisfugl. Líti maður yfir sandinn, rísa þúfur og hrúgöld á stangli með nokkurri bæjarleið á milli, og á kollinum situr oft- ast einn fugl, aldrei tveir nema þá ef til vill á eggtíð. Hann virðist ekki hafa getað lært margbýli af Suðursveit- ungum. Það er víst fátíð sjón flugdrekann má ná góðum myndum um þær mundir sem skúmurinn vindur sér við upp aftur úr dýfunni. Skúmurinn er undarlegur að sjá nokkra skúma saman í hóp eða á einni þúfu. En það er yndi að horfa á skúm- inn fljúga.— Ljósmyndirnar tók Gunnl. Tr. Karlsson. 234 Sunnudagsblað Timans r i

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.