Lesbók Morgunblaðsins - 21.06.2003, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 21.06.2003, Blaðsíða 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 21. JÚNÍ 2003 3 LESBOK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING LISTIR 2 3 . T Ö L U B L A Ð - 7 8 . Á R G A N G U R EFNI ÓLÖF SIGURÐARDÓTTIR SÓLSTÖÐUÞULA Veltu burtu vetrarþunga vorið, vorið mitt! Leiddu mig nú eins og unga inn í draumland þitt! Minninganna töfratunga talar málið sitt, þegar mjúku, kyrru kveldin kynda á hafi sólareldinn. Starfandi hinn mikli máttur um mannheim gengur hljótt, alnáttúru æða-sláttur iðar kyrrt og rótt, enginn heyrist andardráttur, engin kemur nótt. Því að sól á svona kveldi sest á rúmstokkinn, háttar ekki, heldur vakir, hugsar um ástvin sinn. Veit, hann kemur bráðum, bráðum, bjarti morgunninn! Grípur hana snöggvast, snöggvast, snöggt í faðminn sinn, lyftir henni ofar, ofar, upp á himininn. Skilar henni í hendur dagsins, í hjartað fær hún sting: Æ, að láta langa daginn leiða sig í kring! Ganga hægt og horfa nið’r á heimsins umsnúning. Komast loks í einrúm aftur eftir sólarhring, til að þrá sinn unga unað, yndis sjónhverfing! Ólöf Sigurðardóttir frá Hlöðum (1857–1933) var eindregin kvenréttindakona og orti um kvenlega reynslu. Ljóð hennar og sögur voru gefin út í Ritsafni árið 1945. Á 17. ÖLD bjó alþýða á Norðurlöndum við kúg- un, fátækt, refsihörku og blóðtöku vegna hernaðar umfram það sem flestar þjóðir í vestanverðri Evr- ópu máttu þola. Ástandið skánaði nokkuð á 18. öld og á þeirri 19. urðu alger umskipti því þá komust Danir, Norðmenn og Svíar fram úr löndunum fyrir sunnan hvað varðar jafn- rétti, mannúðlega stjórnarhætti og frið- samlega sambúð. Höft á atvinnufrelsi voru að mestu afnumin um miðja 19. öld og tekin upp hagstjórn í anda frjálshyggju. Æ síðan hefur efnahagur fólks verið með skárra móti víðast hvar á Norðurlöndum. Við upphaf 19. aldar mátti ætla að önnur lönd ættu bjartari framtíð en kaldur útkjálki á mörkum siðmenningarinnar. Hvað varð til þess að Norðurlönd nutu velgengni umfram nágrannaríkin, Þýskaland og Rússland, eða gömul menningarsamfélög á Ítalíu, Spáni og í Portúgal? Þar átti lýðræði erfitt upp- dráttar fram eftir 20. öld og frjálslyndi og mannúð fóru halloka fyrir kommúnistum og fasistum. Á Norðurlöndum höfðu lýðræð- issinnar hins vegar tögl og hagldir alla öld- ina ef frá eru talin árin sem Danmörk og Noregur voru hernumin af Þjóðverjum og átökin í Finnlandi á fyrstu tveim áratugum hennar. Þegar við leitum skýringa á velgengni Norðurlanda hljótum við einkum að horfa til tveggja atburða á 19. öld. Hinn fyrri var þegar Noregi var sett stjórnarskrá á Eiðs- velli árið 1814. Hinn síðari árið 1849 þegar Júnístjórnarskráin tók gildi í Danmörku. Saga Norðurlanda er hluti af sögu heims- ins og vert að rifja upp að undir lok 18. aldar hrikti í valdakerfum Evrópu þegar Banda- ríkin lýstu yfir sjálfstæði og settu sér stjórn- arskrá í anda upplýsingar, lýðveldis og ein- staklingshyggju. Skömmu síðar var gerð bylting í Frakklandi þar sem veldi kóngs og aðals var brotið á bak aftur í nafni frelsis, jafnréttis og bræðralags. Upphafsmenn frönsku byltingarinnar litu á Bandaríkin sem fyrirmynd. Framvinda hennar varð samt æði ólík því sem gerðist vestan hafs. Með nokkurri einföldun má segja að Banda- ríkjamenn hafi látið duga að bylta æðstu stjórn ríkisins án þess að umturna samfélag- inu að öðru leyti. Þarna fetuðu þeir í fótspor Englendinga sem hundrað árum fyrr höfðu stigið skref í átt til þingræðis og borg- aralegra stjórnarhátta án blóðsúthellinga. Í Frakklandi gekk byltingin miklu lengra og endaði með því að stór hluti yfirstéttarinnar var tekinn af lífi og ekki aðeins reynt að ger- breyta æðstu stigum stjórnsýslu heldur einnig samskiptum manna á vinnumarkaði og í einkalífi. Eftir flókna valdabaráttu milli ólíkra flokka byltingarmanna varð Napoléon Bonaparte einráður og hóf að breiða bylting- una út til annarra landa. Herir hans náðu stórum hluta Evrópu á sitt vald, en biðu þó að lokum ósigur. Á Vínarfundinum 1814 reyndu íhaldsöflin í Evrópu að koma álfunni aftur í fyrra horf. Meðan Bretar og Banda- ríkjamenn sömdu sig smátt og smátt að borgaralegum stjórnarháttum sveiflaðist meginland Evrópu öfganna á milli. Í þessu umróti tapaði danska krúnan Nor- egi og um stund var ekki ljóst hver réði yfir landinu. Þetta millibilsástand nýttu norskir forystumenn með ríkisstjórann Kristján Friðrik (sem síðar varð Kristján VIII. Dana- konungur) í broddi fylkingar til að koma saman á Eiðsvelli og setja landinu stjórn- arskrá. Þeir sóttu innblástur til Bandaríkj- anna og í hugsjónir frönsku byltingarinnar. Skömmu síðar varð Noregur hluti af veldi Svíakonungs. Norðmenn héldu þó sjálf- stjórn í eigin málum og Eiðsvallastjórnar- skráin frá 1814 gilti lítt breytt. Með henni varð stjórnarfar í Noregi það frjálsmannleg- asta í Evrópu, ef ekki í öllum heiminum. Norska byltingin var að því leyti ólík þeirri frönsku og lík þeirri bandarísku að hún leiddi hvorki til blóðugrar stéttabaráttu né skjótrar uppstokkunar á samfélags- háttum. Sömu sögu er að segja frá Dan- mörku. Þar var einveldið líka lagt af með friðsamlegum hætti. Lítt var hróflað við eignarrétti, embættismannastéttin var þokkalega sátt við nýja skipan og jafnrétti, frelsi og lýðræði þróuðust stig af stigi án þess að stofnunum sem tryggðu stöðugleika, réttaröryggi og viðgang mennta og menn- ingar væri kollvarpað. Á þessum tíma, við upphaf 19. aldar, efld- ust tvenns konar stjórnmálahugsjónir: frjálshyggja og þjóðernisstefna. Frjáls- hyggjan mótaðist í senn af áherslu upplýs- ingamanna á mannúð, framfarir og jafnrétti, hugmyndum frá Bandaríkjunum um tak- markað ríkisvald og stjórnarskrárfestu, og kenningum Adams Smith um að efnalegri velferð væri best borgið með atvinnufrelsi, einkaeign og litlum ríkisafskiptum. Þjóð- ernisstefnan á sér m.a. rætur í þýskri róm- antík og í þýskumælandi löndum sem herir Napoléons lögðu undir sig andæfðu margir hugsjónum frönsku byltingarinnar í nafni þjóðernisstefnu. Alla tíð síðan hafa þjóðern- issinnar á meginlandi Evrópu haft tilhneig- ingu til að vera heldur andsnúnir frelsi, jafn- rétti og bræðralagi allra manna. Um Norðurlönd gegnir öðru máli. Norsk þjóð- erniskennd var og er nátengd frelsishug- sjónunum sem ráðamenn sammæltust um á Eiðsvelli 1814. Danir kollvörpuðu einveldinu 1849 og settu Júnístjórnarskrána með hlið- sjón af þeirri norsku. Helstu höfundar henn- ar kölluðu sig „nationalliberaler“ því þeir voru (eins og Jón Sigurðsson og fleiri hug- sjónamenn á Norðurlöndum) í senn frjáls- hyggjumenn og þjóðernissinnar. Hjá þeim var engin andstæða milli frjálslyndis og þjóðernisstefnu. Frekar var um það að ræða að þessar stefnur bættu hvor aðra upp þar sem sú fyrrnefnda lagði áherslu á að lög- binda réttindi og frelsi og sú seinni á sam- ábyrgð manna og skyldur þeirra við sam- landa sína – enda er það gömul saga og ný að frelsið ber bestan ávöxt þar sem siðferðileg- ar skyldur eru teknar alvarlega. Í meira en tvær aldir hefur þjóðernis- stefna haft áhrif á evrópsk stjórnmál. Þar sem hún hefur lagst á sveif með foringja- dýrkun, stríðsæsingi, kynþáttahyggju eða byltingarórum hafa afleiðingarnar orðið skelfilegar. Ekki er því furða þótt stefnan hafi víða heldur illt orð á sér. Hluti af skýr- ingunni á farsæld Norðurlanda er að þar var þjóðernisstefnan þegar á fyrri hluta 19. ald- ar nátengd einstaklingshyggju og hug- sjónum um frelsi, jafnrétti og bræðralag allra manna. Í þessum löndum gátu fasistar, kommúnistar og aðrir pólitískir ógæfumenn því síður tælt fólk á sitt band með því að höfða til þjóðerniskenndar. Annar hluti af skýringunni er að á Norðurlöndum gengu byltingarnar á fyrri hluta 19. aldar ekki út í öfgar og firrur eins og víða annars staðar í Evrópu, heldur náðu stjórnarhættir í anda frjálshyggju að þróast með friðsamlegum hætti líkt og í Bretlandi og Bandaríkjunum. Segja má að Norðurlönd hafi tekið upp margt það besta úr stjórnmálahefð Eng- ilsaxa en sloppið við það sem helst hefur orð- ið þeim að fótakefli, en það hefur að minni hyggju einkum verið heimsvaldastefnan á Englandi og kynþáttahatrið sem enn spillir þjóðlífi í Bandaríkjunum. Einn af merkustu stjórnmálamönnum Norðurlanda fyrr og síðar, Orla Lehmann, sem ásamt D.G. Monrad er jafnan talinn helsti höfundur Júnístjórnarskrárinnar, spáði því að lýðræði og frjálsmannlegir stjórnarhættir („demokrati og fri forfatn- ing“) myndu gera Norðurlöndin mikil og gefa þeim þýðingu fyrir allan heiminn. Spá hans hefur þegar ræst að nokkru og við skulum vona að hún haldi áfram að rætast. NORÐUR- LÖND RABB A T L I H A R Ð A R S O N http://this.is/atli Milan Kundera vinnur nú að ritgerðasafni er nefnist Rifnu tjöldin þar sem hann veltir fyrir sér ýmsum hliðum skáldsögunnar. Birtir eru nokkrir kaflar úr bókinni og nýtt samtal Kundera og Antoine Gallimard, aðaleig- anda Gallimard-útgáfunnar, en skáldið hefur ekki veitt viðtal í langan tíma. Brynhildur Þorgeirsdóttir vakti snemma athygli fyrir persónulegan myndheim, en hún er bæði menntuð í gleri og skúlptúr, og dvaldi í mörg ár erlendis við nám og vinnu áður en hún sneri heim til Íslands fyrir rúmum tuttugu árum. Einar Falur Ingólfsson ræðir við hana um listina. Styttur bæjarins eru flestar höggmyndir af sögufrægum ein- staklingum og hafa að minnsta kosti ekki unnið á markvissan hátt með umhverfi sitt eða þátttöku áhorfenda. Ragna Sigurð- ardóttir fjallar um möguleika listar í opin- beru rými. Elísabet Jökulsdóttir birtir smásöguna Að vera Íslend- ingur er að vera Njáluhöfundur en í henni er lagt út af nýafstöðnum kosningum á þjóðlegan hátt. FORSÍÐUMYNDIN er af hluta verks Sigurðar Guðmundssonar, Fjöruverk (2002), í fjörunni við Rauðarárvík við Sæbraut í Reykjavík.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.