Íslendingaþættir Tímans - 16.03.1972, Blaðsíða 7

Íslendingaþættir Tímans - 16.03.1972, Blaðsíða 7
lagsmaður i Kaupfélagi Norður-Þing- eyinga Kópaskeri, og var þegar árið 1919 kosinn varamaður stjórnar- formanns i félagsstjórn. Mun hann hafa setið alla ársfundi Kaupfélagsins og flesta i deild sinni um rúmlega hálfrar aldar skeið, auk ótaldra st- jórnarfunda, og á i þeim félagsskap vissulega mikla sögu og gifturika, þvi ekki hefur þar, fremur en viða annars staðar, ávallt verið sigldur sléttur sjór. Hann tók við formennsku félags- stjórnar kaupfélagsins árið 1943 eftir andlát Þorsteins Þorsteinssonar hreppstj. á Daðastöðum, sem gengt hafði stjórnarforustu þar um 30 ár. Pétur gaf frá sér stjórnarformennsku kaupfélagsins árið 1964, þá hálf- áttræður og fluttist þá'til Reykjavikur á Hrafnistu, þar sem hann átti dvöl til æviloka. Arið 1956 stofnuðu KaupfélagNorður- Þingeyinga og Kaupfélag Eyfirðinga, ásamt nokkrum einstaklingum hluta félag til sildarverkunar, og reistu mannvirki til þeirrar starfsemi á Raufarhöfn og siðar á Seyðisfirði. Pétur var þar kjörinn stjórnarfor- maður, og var það til 1965, að hann var setztur um kyrrt að Hrafnistu, og hafði lagt af öll félagsmálastörf. Pétur var gleðimaður og samúðar- rikur mannvinur. Hann var viðlesinn og fróður, sérstaklega um bókmenntir, ættfræði og sögu, og sérlega ljóð- elskur. Hann var þvi jafnan auðfúsu gestur i samkvæmum og öðrum mannamótum, málsnjall og orðhagur, hvort sem var i viðtali, ræðu eða riti. Hann var oftast kjörinn samkomu- stjóri á héraðssamkomum, hér vestan heiðar, og jafnan aðalræðumaður þegar slikt var á dagskrá. Honum lék jafn létt á tungu fyndni og gamanmál, sem alvara og lifsspeki, var létt um að draga fram dæmi úr sögunni og ljóð- um skáldanna, svo sem við gat átt hverju sinni. Mál hans og framkomu á mannfundum, einkenndi jafnan drengskapur og heiðar hugsjónir, svo jafnan umkringdi hann birta og hlý- hugur samferðamanna hans, og þá eigi siður hins veikara kyns, framan af árum. Hann var hestamaður, sem kallað var, meðan þarfasti þjónninn bar enn nafn með rentu, og átti lengi góðhest, sem var honum kær, er Létt- feti nefndist, og veitti honum margar gleði og ánægjustundir, enda var það meðal mestu unaðsstunda Péturs að hleypa gæðingi sinum þar sem slétt var undir hófinn i samfylgd kunningja og vina, og var þá ekki talið skemma, ef einhver brjóstbirta var með i för. Vinir hans og samstarfmenn, i félags- málum fundu þvi eigi annað hug- þekkara honum til handa, er hann fyllti fimmta áratuginn, og Léttfeti var fallinn, en gefa honum góðhest. En þvi miður nýttist Pétri sá hestur ekki nema fá ár, þvi hann fórst af slysi. Kaupfélag Norður-Þingeyinga heiðraði Pétur, formann sinn, á tima- mótum sqxtugs- og sjötugs-aldursins, með veglegum og fágætum bóka- gjöfum, og fagurlega útskorinni bóka- hillu með þjóðlegum myndum gerðri af snillingnum Rikarði Jónssyni myndgerðarmeistara, og fékk einnig sama listamann til að greypa andlits- svip hans i gips. Sú mynd er geymd i fundarsal stjórnar kaupfélagsins á Kópaskeri og annað eintak i héraðs- skólanum á Laugum i Reykjadal S.- Þing. Kaupfélagið lagði einnig nokkurt fé i sjóð, sem verja skal vöxtum af til menningarmála á félagssvæðinu, I virðingar og þakkarskyni, fyrir störf Péturs i þágu félagsins. Pétur Siggeirsson frá Oddsstöðum, er horfinn oss ,,yfir móðuna miklu” samkvæmt þvi lögmáli lifsins, ,,að allt sem lifir deyja hlýtur”, vér hljótum að sætta oss við það, þvi svo mun oss öll- um fara. Hann hafði lifað langan dag og starfsaman, þrátt fyrir skerta heilsu, sem var honum löngum fjötur um fót. Likami hans var lagður til hinztu hvilu i grafreit Raufarhafnar- sóknar þann 17. janúar s.l., við hliö eiginkonu hans, sem lézt fyrir nokkr- um árum. Fjölmenni fylgdi honum við kirkjuathöfn og til grafar, miðað við fremur fámennt umhverfi, og heiðraöi þannig sinn horfna héraðshöfðingja, svo og við veglega erfisdrykkju, aö til- hlutan barna hans og tengdabarna, að kvöldi útfarardagsins. Nú, er leiðir hafa skilizt um sinn, vil ég, ásamt fjölskyldu minni, miklar þakkir tjá minningu Péturs frænda mins, fyrir langa og einlæga vináttu og snuðrulaust gott samstarf, um málefni sveitar og héraðs, um 40 ára skeið, ásamt daglegri umgengni um 12 ára bil, er hann dvaldist, að nokkru, á heimili minu, á fyrri starfsárum sinum hjá Sildarverksmiðju rikisins á Raufarhöfn. öll þessi samvera og samstarf, var mér rikulegt, að ánægju og lærdómi, til ýmissa átta, sem aldrei verður fullþakkað. Börnum hans og öðrum vanda- mönnum, vil ég senda hlýjar samúðarkveðjur, og bið vitsmunaveru hans Guðs blessunar. Raufarhöfn 12. febrúar 1972 Hólmsteinn Helgason. Nokkur mistök urðu í birtingu Kveðjuorða Stefáns Kr. Vigfússonar um Pétur Siggeirsson i siðustu ts- lendingaþáttum. Kafli féll niður aftar- lega i greininni og fööurnafn Péturs misritaðist. Eru aðstandendur beðnir velvirðingar á þessum leiðu mistökum Kveðjuorð Þú ert horfinn kæri vinur, hef- ur kvatt kveðjunni h inztu. Ég sakna þín og syrgi.þig af heilum hug, sem einiægan. tryggan vin og drengskaparmann. Við andlátsfregn þína strsyma minningarnar fram, minningar frá 66 ára kynnum, og um langt skeið nánu samstarfi. •Þökk er mér efst i huga. Þú varst ungur og glæstur er ég sá þig fyrst. Þú varst þá innan við tvítugt, ég var 7 ára. Þú hafðir stundað nám við gagnfræðaskól- ann á Akureyri, hrifizt af eldi ung- mennafélagshreyfingarinnar, sem þá var að nema hér land, og mun í byrjun e.t.v. hvergi hafa orðið þróttmeiri en á Akureyri. Ungir menn stigu á stok'k og strengdu heit að fornum sið. Jóhannes Jósefsson og Lárus Rist, vöktu hrifningaröldu með íþróttaafrek- um sínum. Heima i héraði gerðist þú forvíigismaður og þrautryðjandi þessarar hreyfingar. Ungmennafé- lag var stofnað á heimili þinu, Oddsstöðum. Þú varst sjálfkjörinn formaður sökum margháttaðra yfirburða. Ég var á þessum fundi, þar fóru allir frá mínu heimili, enda skammt að fara. Hrifningu minni mun ég aldrei gleyma. Ég islendingaþættir 7

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.