Íslendingaþættir Tímans - 27.01.1978, Blaðsíða 4

Íslendingaþættir Tímans - 27.01.1978, Blaðsíða 4
Björg Einarsdóttir Fædd 26. ágúst 1900 Dáin 11. des. 1977 Um þær mundir, sem ævintýra- gjarnir íslendingar eru að undirbúa för til suðrænna sólarstranda til að flýja nepju og langnætti norræns vetr- ar, lagði ein af grannkonum mínum, BjörgEinarsdóttir, húsfreyja að Stapa i Hornafirði, upp i langferðina miklu, þar sem þáttaskil verða og fularfullt tjald erdregið milli lifenda og látinna. Mér kom andlátsfregn Bjargar nokkuð á óvart, þvi að þrátt fyrir háan aldur, fannst mér Björg enn vera ung að ár- um, svo vel tókst henni að varðveita hugblæ sinn frá æskuárunum. Ekki er ég alveg viss um, hvað nafn- iðBjörg táknar i málfræðilegri merk- ingu og má vafaiaust túlka þýðingu þess á fleiri en einn veg, en i minum huga minnir það jafnan á bjargið eða steindranginn, sem stendur óhaggan- legur og bifast hvergi fyrir margra alda stormbyljum, er skáldið Stephan G. Stephansson segir að standi sem hreystinnar heilaga mynd og hrein- skilni klappaða úr bergi. Líka mun nafnið tákna bjargvætt, hollvætt eða drang, en i fornnorrænni tungu mun orðið drangur vera sömu merkingar og drengur, sem merkir góðan, dreng- lundaðan mann, sem reynist vinum sinum velá örlagastundum. En hverja merkingu sem menn vilja leggja i þýð- ingu þessa konunafns, þá kunni Björg á Stapa mæta vel þeirri nafngift, sem foreldrar hennar völdu henni og stað- fest var með helgiathöfn i litlu sveita- kirkjunni i holtum af sóknarprestinum þar, og sterkan vilja hafði Björg jafn- an til að kafna ekki undir þeirri nafn- gift. Fædd var Björg að Holtum í Mýra- hreppi þann 26. ágúst árið 1900, rétt um sama leyti og Islendingar voru ný- stignir inn i bjarma nýrrar aldar, full- ir af bjartsýni og fógrum fyrirheitum, og bar Björg jafnan með sér skörp ein- kenni þeirrar kynslóðar, sem við alda- mót hefur verið kennd. Foreldrar Bjargar voru hjónin Jó- hanna Snjólfsdóttir og Einar Þorleifs- son, bæði komin af hornfirzkum bændaættum. Aður höfðu þau einhver ár búið að Stórulág f Nesjum og frá Holtum fluttu þau að Meðalfelli i Nesj- 4 um og við þann bæ voru þau og börn þeirra oftast kennd. Þegar ég nú minnist langra kynna af Björgu á Stapa, verður mér efst i huga æskuheimili hennar að Meðalfelli, þar sem hún ólst upp i glöðum og gjörvi- legum systkinahópi i skjóli mætra for- eldra, sem bjuggu börn sin út i li'fið með þvi veganesti, sem þeim entist bæði vel og lengi. Heimilið var rammislenzkt sveita heimili, þar sem iðjusemi, reglusemi og rækt við fornar erfðir var i heiðri haft. Bóndinn Einar Þorleifsson var orðlagður atgervismaður, sem vildi hvers manns vanda leysa, m.a. mun það mjög oft hafa komið f hans hlut, að veita ferðamönnum fyrirgreiðslu og fylgd yfir Hornafjarðarfljót, fyrst frá Holtum austur í Nes, og siðar frá Meðalfelli suður á Mýrar. í mjög skemmtilegu minningariti Guðmund- ar Jónssonar, sem lengi bjó að Borg- um f Hornafirði segir frá því, er hann flutti búferlum frá Hofi i öræfum að Hvammi i Lóni og rak kýrsinar alla þá löngu leið. Þá var gist hjá þeim Jó- hönnu og Einari i Holtum og hann fenginn til fylgdar með þeim sem kýrnar ráku austur yfir Hornafjarðar- fljót. Þá mun Einar hafa haft allmikil afskipti af kirkju og safnaðarlifi og i Bjarnaneskirkju var hann forsöngvari, allt þar til að orgel kom í kirkju þar og kirkjuorganisti tók við þvi starfi. Innanbæjar stjórnaði húsmóðirin mannmörgu heimili, fæddi og ól upp fjölda barna, auk þess sem gestum og gangandi var veitt af alkunnri rausn islenzkrar gestrisni. Alls fæddust þeim hjónum 13 börn og að minnsta kosti 9 komust til full- orðinsára. Það lætur þvi að likum, að vinnudagur þessara hjóna hafi ekki ávallt verið háður þeim timatakmörk- um, sem okkar samtið leitast við að lögfesta. Engu að siður áttu gömlu, is- lenzku sveitaheimilin sfnar helgi- og hátiðisstundir, þar sem friður og öryggi sat i öndvegi, hvildardagurinn var svo heilagur, að hann mátti naum- ast vanhelga með vinnu, og kirkju- göngur voru fastur liður i helgi hvildardagsins. 1 hesthúsi stóðu strið- aldir hornfirzkir gæðingar, sem gengdu þvi tviþætta hlutverki að vera þörfustu þjónar búsins við alla að- drættiá mannmörgu heimili, og yndis- auki og tómstundagaman ungra og aldinna. Tómstundirnar voru m.a. notaðar til að teygja gæðinga til gangs og að fara orlofsferðir i heimsóknir til góðra granna. Þorleifur Jónsson, fyrr- verandi alþingismaður i Hólum, getur þess i æviminningum sinum hversu gömlu Meðalfellshjónin hafi verið góð- ir og hjálpsamir nágrannar, og einn af hátiðisdögum vetrarins i Hólum hafi verið heimsókn þeirra, sem aldrei brást, en var fastur liður i lifi þeirra einu sinni á hverjum vetri. Sjálfur á ég eina æskuminningu frá þvi ég var ungur drengur að alast upp austur við Berufjörð. Þá voru þar á ferð Meðalfellshjónin á hornfirzkum gæöingum og fluttu með sér ferskan ilm átthaga minna úr Austur-Skafta- fellssýslu. Mun leið þeirra þá hafa leg- ið alla leið til Seyöisfjarðar. Þvi er frá þessu hér sagt, að þetta var snar þáttur i lífsvenjum fólks á æskuheimili Bjargar á Stapa, sem á margan hátt bar með sér höfuðbóls- brag, sem uppvaxandi kynslóð varð hollur og heillarikur skóli. A þessu heimili ólst Björg á Stapa upp og bar svipmót þess uppeldis með sér æ sið- an. A æsku og uppvaxtarárum Bjargar íslendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.