Íslendingaþættir Tímans - 15.02.1984, Blaðsíða 7
u
• 0
E2E
Bjarni Jónasson
Blöndudalshólum
Fæddur 24. febrúar 1891
Dáinn 26. janúar 1984
Bóndi, kennari og fræðimaður voru meginhlut-
verk Bjarna Jónassonar í lífinu. Hann átti starfs-
sama ævi og langa daga, því maðurinn var mesti
áhugamaður við hvert það verk sem hann tók sér
fyrir hendur. Sá sem ekur fram hjá Hólum í
Blöndudal, sér þar í sjónhending stóran hluta
ævistarfs þeirra Hólahjóna, Bjarna og Önnu, og
gamlir kunningjar minnast Ijúfra stunda hjá þeim
góðu gestgjöfum, sem þau reyndust vinum og
nágrönnum.
í Svínavatnshreppi eru æskustöðvar Bjarna, en
starfsævi sinni eyddi hann austan Blöndu, þangað
sótti hann konu sína, Önnu Sigurjónsdóttur, og
saman byggðu þau reisulega jörð í miðjum dal,
Blöndudalshóla, allt til 1960 þegar Jónas sonur
þeirra og Ásdís kona hans tóku við búskap.
Gömlu hjónin fluttu þá í litla íbúð uppi á lofti,
sem Jónas innréttaði þeim. Þaðan er fögur útsýn>
um sveitina og áin þylur síbreytilegan óð sinn
ndir árbakkanum, kyrrir tilveruna.
Bjarni tók á ungum aldri þátt í samtökum með
fleiri sýslungum sínum um útgáfu sagna og þátta
úr Húnaþingi. Áhugi Bjarna í sagnfræðinni beind-
ist einkum að rannsókn á afkomu og efnahag. Þar
sást betur en annars staðar seigla kynslóðanna,
þar voru háðar hörðustu orrustur fátækra bænda
í erfiðu árferði, ekki síst hér á Norðurlandi.
Bjarni setti heimildir sínar gjarnan fram í skýrslu-
formi. Hann var maður nákvæmninnar og rétt-
lætisins og vildi byggja niðurstöður sínar á
breiðum grunni. Hann lagði þó meiri stund á
ættfræði. Sumpart af nauðsyn vegna hagsögunnar
en í annan stað vegna áhuga samtíðar hans á þeirri
grein. Til Bjarna leituðu fjölmargir bréfleiðis eða
beint eftir fróðleik um forfeður sína. Á þeim
leiðum kom ég til Bjarna þegar ég var 10-12 ára
strandaður í frændaleit minni í Föðurtúnum. Mér
eru minnisstæðar bókaraðirnar á vesturveggnum
og í bókaherberginu á bak við, sögubækur,
ættfræðirit og handrit hans sjálfs. Mér þótti sem
hann hefði þarna safnað að sér öllum vísdómi
héraðsins og dveldi þarna sælastur manna við að
raða honum niður. Á friðarstóli sæti hann umvaf-
inn þekkingunni. Síðar opnuðust augu mín fyrir
þeirri baráttu sem fræðimaðurinn heyr daglega í
leit sinni að rannsóknaleiðum og hvernig meta
skal heimildir. Hvað á að skrá en hverju á að
sleppa? Þeir sem fræðin stunda verða að vera
baráttunnar menn þó orrustugnýrinn þaðan verði
ekki jafnhávær og af breiðgötu lífsins.
Bjarni var maður baráttu og iðjusemi eins og
verk hans bera glöggt vitni. Hann var reglusamur
og bindindissamur í þess orðs bestu merkingu.
Áhugi hans á félagsmálum var mikill og sannur.
Hann vann bændastéttinni. Hann vann hún-
vetnskri söguritun. Hann mun eins og aðrir góðir
menn búa Iengi með vinum sínum þó horfinn sé.
Fordæmi hans lifir meðan minning hans varir.
Heiðmar Jonsson
Jón Jónasson
frá Efri-Holtum
Fæddur 13. ágúst 1893
Dáinn 18. janúar 1984
Þann 28. janúar sl. var gerð frá Stóra-Dalskirkju
útför Jóns Jónassonar frá Efri-Holtum. Hann
fæddist á Rimhúsum, sonur hjónanna Jónasar
Jónassonar, bónda þar og konu hans, Þuriðar
Jónsdóttir.
Jón var um fermingaraldur er faðir hans lést.
Árið 1913 gekk Jón að eiga Guðbjörgu Jóns-
dóttur frá Dalskoti. Þau fluttu árið 1914 að
Efri-Holtum ásamt móður Jóns og systur. Þeim
Jóni og Guðbjörgu varð fjögurra barna auðið og
komust 3 til fullorðinsára. Börnin eru: Jóel, sem
lést 1974, Ágústa, búsett í Reykjavík og Þuríður
búsett í Arnarfirði.
Árið 1946 hættu Jón og Guðbjörg búskap og
flúttust til Reykjavíkur. Guðbjörg lést 1954.
ÍSLENDINGAÞÆTTIR
Jón hóf störf hjá Pípugerð Reykjavíkurborgar,
er hann fluttist suður og starfaði þar meðan heilsa
leyfði. Jón var alla tíð stakur reglumaður og
trúrækinn mjög. Jón átti við heilsuleysi að stríða
síðustu árin og var rúmfastur af þeim sökum. Vil
ég geta Ágústu, sem hugsaði um hann af stakri
umhyggju og þjónaði til hinstu stundar.
Mörgum stundum sátum við afi saman og
ræddumst við. Minnist ég samvcrustunda okkar
með söknuði. Var mér Ijúft að liðsinna afa er hann
bað mig einhvers. Ég kveð góðan vin, sem
reyndist mér alltaf vel.
Far þú í fridi.
Friður Guðs þig blessi.
Hafðu þökk fyrir alll og alll
(Vald. Bríem)
Jóhann Ólafur Kjartansson