NT - 21.07.1984, Blaðsíða 1

NT - 21.07.1984, Blaðsíða 1
Hrossadeila Blöndubænda: Sýslumaður sendir lög- reglumenn á staðinn ■ „Ég var að scnda lögreglu út í dag til að kynna sér málið - þeir munu tala við viðkom- andi oddvita og kanna þetta á annan hátt,“ sagði Jón ísberg sýslumaður A-Húnavatns- sýslu, spurður hvort fregnir um að einhverjir bændur í A-Hún séu búnir að reka hross á Auðkúluheiði þrátt fýrir bann landbúnaðarráðu- neytisins, ættu við rök að styðjast. Reynist hross komin þarna fram eftir sagðist sýslu- maður leggja málið fyrir ráðuneytið. „(Yski það eftir að þau verði þá sótt munum við gera það“, sagði sýslumaður. Sigurjón Lárusson, oddviti á Tindum í Svínavatnshreppi, kvaðst ekki vita til að menn hafi rekið ennþá, enda komi sér það mál ekki lengur við. „Með ráðuneytisbanninu, sem er það vitlausasta sem hægt var að gera í stöðunni eins og hún var orðin og gerði stórbölvun, hefur þetta mál verið tekið úr höndum sveitarstjórna og þá skipti ég mér ekki nokkurn hlut af þessu. Landbúnaðar- ráðherra verður að stjórna þessu héðan af,“ sagði Sigur- jón. „Hins vegar eru nokkrar jarðir þarna inn frá þar sem svo hagar til að þær eiga land framan afréttargirðingarinnar, og menn gera það ekki að gamni sínu að sleppa yfirráða- rétti yfir sínunt eigin löndum. Bannið lendir hins vegar jafnt á þeim og það sætta menn sig ekki við. Hvað öðrum líður veit ég ekki“. Sigurjón taldi það á annan tug kílómetra sem afréttargirðingin liggur þannig í gegn um eignarlönd bænda, þannig að sú girðing verði ekki færð á stundinni. Auðkúla er ein þessara jarða. Ásbjörn bóndi Jóhannsson sagði þónokkurn hluta síns lands framan afréttargirðing- arinnar og sagðist ekki sjá hvernig það ætti að vera hægt að banna honuin og öðrum að beita sitt eigið land. „Það væri þá alveg eins hægt að banna okkur að beita hér heima við tún.“ Ekki kannaðist hann þó við að vera búinn að reka fram fyrir girðinguna, - „hvað sem maður kannski gerir seinna.“ ■ Verða það einnig örlög „Birnu“ að týna lífinu vegna fádæma hugsunarleysis gesta safnsins. Botninn á flöskunni sem „Bjöm“ steig á hefur ekki enn fundist, en líklega hefur hann mélast við átakið. Það virðist seint ætla að takast að koma í veg fyrir þá áráttu safngesta að kasta flöskum inn til dýranna, en tvívegis áður hafði bjöminn skorið sig á glerflöskum. NT-mynd: Árni Bjanu. Steig á glerbrot og drapst úr blóðeitrun Heimsmet í spjótkasti: 100 metra múrinn í molum Austur-Berlín-Reiiter ■ Austur-Þjóðverjinn Uwe Hohn fleygði spjóti 104.80 metra á móti í Austur-Berlín í gærkvöldi. Hohn verður þannig fyrsti maðurinn til að kasta spjóti meira en 100 metra. Hohn bætti eldra heimsmet, sem Bandaríkjamaðurinn Tom Petranoff átti, um 5.08 metra. Heimsmet Petranoffs var 99.72 metrar. Á sama móti setti búlgarska stúlkan Ludmilla Andonova nýtt heimsmet í hástökki kvenna, 2.07 metra. ■ Hann hefur varla gert sér grein fyrir því maðurinn sem henti tómri glerflösku í ís- bjarnargryfjuna í Sædýrasafn- inu í Hafnarfirði að flaskan ætti eftir að drepa stærsta ísbjörn í heimi. Isbjöminn „Björn“ drapst á þriðjudag vegna meiðsla sem hann hlaut þegar hann steig á glerflösku. Igerð komst í sárið og fékk Bjöm blóðeitrun sem dró hann til dauða. Björn var 15 ára og var talinn stærsti ísbjörn í dýragarði í heiminum. Starfsmenn Sædýrasafnsins tóku eftir því á sunnudaginn var að ísbjörninn var haltur. Strax var reynt að koma honum inn í hús svo hægt væri að skoða sárið. Kallað var á dýralækni, sem kom næsta dag. Læknirinn reyndi að gefa Birni súlfalyf til varnar blóðeitrun, en björninn leit ekki við matnum sem lyfin voru sett í. Ekki fékkst hann heldur til að drekka og þaðan af ....~y)|iiii"iyi'1iw'i'"iii"u,i III n. Skatturinn á miðvikudag ■ Álagningarskrár skatta verða lagðar fram í öllum skattumdæmum landsins á miðvikudag. Gestur Stein- þórsson, skattstjóri í Reykjavík, sagði í samtali viðNT að vegna ákvörðunar Alþingis i velur yrðu skrárn- ar ekki gefnar út fyrir al- menning að þessu sinni, heldur yrðu þær iátnar liggja frammi á skattstofunum í tvær vikur til skoðunar. Álagningarseðlar til allra gjaldenda í landinu voru lagðir inn á pósthús í gær, og cr miðað við að þeim hafi verið dreift til viðtakenda fyrir miðvikudag. síður til að fara inn í hús sitt. Á þriðjudag heppnaðist loks að lokka björninn inn í húsið og sást þá að hann var með svöðu- sár á vinstra afturhrammi. Var þegar í stað kallað í dýralækni, en Björn gaf upp öndina um klukkan 15 þann dag, ör- skömmu áður en læknirinn kom. Við leit í lauginni í búrinu fundust þrjár pilsnerflöskur og var ein þeirra brotin. Botn hennar fannst hvergi og þykir fullvíst að björninn hafi stigið á flöskuna og síðan tætt út úr sárinu er hann reyndi að ná brotinu úr hrammi sínum. Jón Gunnarsson, forstöðu- maður Sædýrasafnsins, sagði að björninn hefði ekki verið tryggður, enda væru tryggingar fyrir dýr í dýragorðum mjög lélegar. „Þetta er óbætanlegt tjón fyrir okkur,“ sagði Jón. Hann kvaðst ekki vita hvort safnið myndi reyna að fá annan björn í staðinn, en nú er aðeins eitt kvendýr í Sædýrasafninu. ísbjörninn var jólagjöf frá dýragarðinum í Kaupmanna- höfn og kom hann hingað fyrir 15 árum. Þá var hann aðeins lítill húnn, en var orðinn um 700-800 kg að þyngd er hann lést. Mun sjaldgæft að ísbimir nái þeirri stærð. Þess má geta að ísbjörninn hefur tvívegis áður skorist á flöskubroti. í fyrra skiptið var hent flösku niður í búrið og greip björninn hana í kjaftinn og skarst illa við það. í síðara skiptið steig hann á glerbrot líkt og nú, en þá náði björninn að pilla brotið úr sárinu. Að sögn starfsmanna safnsins hefur einnig komið fyrir að flöskum hafi verið hent inn til apanna, en engin slys hafa orðið á þeim. Stranglega er bannað að fara með flöskur inn á safnið.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.