NT - 12.04.1985, Blaðsíða 3

NT - 12.04.1985, Blaðsíða 3
Utskr iftartón lei kar í Háskólabíói ■ Á morgun, laugardaginn 13. apríl kl. 14.30 heldur Sin- fóníuhljómsveit íslands og Tónlistarskólinn í Reykjavík útskriftartónleika í Háskóla- bíói. Fjórir nemendur Tónlist- arskólans ljúka hluta einleik- araprófs. Valgerður Andrésdóttir leikur píanókonsert í d-moll eftir J.S. Bach, Nína Margrét Grímsdóttir leikur píanókons- ert nr. 21 K 467 í C-dúr eftir W. A. Mozart, Elísabet Wa- age syngur aríur úr óperum eftir C.W. Gluck. P. Marc- cagni og W. A. Mozart og Hulda Geirlaugsdóttir leikur píanó- konsert nr. 1 í C-dúr op. 15 eftir L.v. Beethoven. Stjórn- andi á tónleikunum er Páll P. Pálsson. Miðar seldir við inn- ganginn. Hjálpartækjasýning á Hótel Loftleiðum Á Hótel Loftleiðum verður dagana 12.-16. apríl haldin fyrsta sýning sinnar tegundar á1 fslandi, hjáípartækjasýning. 28. fyrirtæki og samtök kynna þar starfsemi sína. Þar verður sýnt fjölbreytt úrval hjálpartækja fyrir hreyfihaml- aða, blinda, heyrnarlausa og þroskahefta. Flutt verða margs konar erindi, (erl. fyrirlestrar túlkaðir). Einnig verða kvik- mynda- og myndasýningar. Skemmtanir verða á laugardag og sunnudag, m.a. hjólastóla- danssýning. Aðgangur er ókeypis að öll- um atriðum. Opnunartími er: Föstudag 12. apríl kl. 16.00-22.00 laugardag 13. apríl kl. 14.00-22.00 sunnudag 14. apríl kl. 14.00-22.00 mánudag 15. apríl kl. 16.00-22.00 þriðjudag 16. apríl kl. 16.00-22.00. Verndari sýningarinnar er forseti fslands, Vigdís Finn- bogadóttir. Kvennahúsið Laugardaginn 13. apríl: Guðrún Jónsdóttir ræðir um að verða gamall í Reykjavík. Sænskir rithöfundar lesa upp úr verkum sínum í Norræna húsinu Á morgun, laugardag, lesa sænsku rithöfundarnir Kristina Lugn og Erik Beckman úr verkum sínum í Norræna hús- inu. Þau hafa lesið upp saman víða í Svíþjóð. Á dagskránni ■ Björg Þorsteinsdóttir. Stærsta höggmynda- sýning á íslandi ■ Myndhöggvarafélagið í Reykjavík opnar samsýningu á Kjarvalsstöðum kl. 14.OÓ á laugardaginn 13. apríl, og verður sýningin opin á venju- legum opnunartímum hússins. Allir myndhöggvarar á fs- landi sem eru félagsmenn í Myndhöggvarafélaginu taka þátt í þessari samsýningu. Þetta verður stærsta högg- ■ Eitt af verkum Ragnars Kjartanssonar, Selaskytta, sem verður á sýningunni á Kjarvalsstöðum, sem opnuð verður um þessa helgi og á að standa til 5. maí. Föstudagur 12. apríl 1985 3 Blað II ■ Einleikararnir á tónleikunum f.v.: Valgerður Andrésdóttir, Hulda Geirlaugsdóttir, Nína Margrét Grímsdóttir og Elísabet Waage. er bæði laust og bundið mál. Kristina Lugn og Erik Beckman eru vel þekktir rit- höfundar í Svíþjóð og hafa gefið út fjölda bóka. Beckman er auk þess þekktur gagnrýn- andi við Dagens Nyheter. Þau koma hingað til lands á vegum sænska sendiráðsins og Norr- æna hússins. Dagskráin í Norræna húsinu á morgun hefst kl. 17.00 og eru allir velkomnir. Sunnudagsferðir F.í. 1. kl. 10.30 á sunnudag stendur Ferðafélag íslands fyr- ir skíðaferð frá Stíflisdal um Kjöl að Fossá. Ekið verður í Kjósarskarð og gengið þaðan að Stíflisdal, þar sem skíða- gangan hefst. 2. kl. 13.00 Gengið verður frá Reynivöllum upp Kirkju- stíginn yfir Reynivallarháls að Fossá. Þetta er gömul göngu- leið. Brottför verður frá Umferð- armiðstöðinni að austanverðu. Farmiðar seldir við bíl. Frítt er fyrir börn í fylgd fullorðinna. Harmoníkusnillingur i Norræna húsinu Árið 1985 hefur sem kunn- ugt er verið lýst alþjóðaár æskunnar, auk þess sem það hefur verið valið ár tónlistar- innar í Evrópu. Af þessu tilefni mun Norræna húsið gangast •fý'rir kynningu á ungum norræn- um einleikurum í apríl, maí og júní. Fyrstu tónleikarnir í þessari tónleikaröð verða nú á sunnu- daginn 14. apríl kl. 20.30. Þá leikur norski harmoníkusnill- ingurinn Jostein Stalheim ýmis verk bæði gömul og ný. Tónleikarnir hefjast kl. 20.30 og verða miðar seldir við innganginn. myndasýning, sem hefur verið haldin á íslandi og standa verk- in bæði inni og úti við Kjar- valsstaði. Mikil vinna hefur verið að undirbúa þessa sýningu, og m.a. hefur verið gefin út mjög vönduð sýningarskrá, sem er listaverkabók, sem seld er á staðnum. Sýning í Gallerí Borg ■ Þessi helgi er síðari sýning- arhelgi hjá Valgerði Hauks- dóttur í Gallerí Borg við Aust- urvöll, en sýningin var opnuð á skírdag. Þetta er fyrsta einkasýning Valgerðar, en á sýningunni eru 33 verk; 17 grafík-verk og 16 myndir teiknaðar og unnar með blandaðri tækni á jap- anskan pappír. Sýningin er opin virka daga frá klukkan 12.00-18.00 og frá 14.00 um helgar. ■ Söknuður. Fassianos í Listasafni ASÍ ■ Sunnud. 14. apríl lýkur sýningu gríska myndlista- mannsins, Fassianos, í Lista- safni ASÍ. Á sýningunni eru 34 grafíkmyndir, 1 gvasslitamynd og 19 teikningar, þar á meðal myndskreytingar við ljóðabók gríska nóbelsskáldsins, O. Elytis. Fassianos hefur hlotið mikla viðurkenningu fyrir list sína, en auk þess að starfa að myndlist hefur hann lagt stund á ritsmíðar og skáldskap. í rúma tvo áratugi hefur Fassianos starfað í hinu alþjóð- lega listalífi Paríasar. Sýningin er hingað komin fyrir milli- göngu sænska listfræðingsins, Knut Anderssons. Flestar myndanna á sýningunni eru til sölu. Sýningin er opin virka daga kl. 14-20 og um helgar kl. 14-22: Vatnslitamyndir i anddyri Norræna hússins ■ Sunnudaginn 14. apríl opnar Torfi Jónsson sýningu á vatnslitamyndum í anddyri Norræna hússins. Torfi hefur haldið eina einkasýningu áður og einnig tekið þátt í samsýn- ingum í Hamborg, Osló og London. í tilefni af opnuninnni flytja Ingveldur Hjaltested söngkona og Jónína Gísladótt- ir píanóleikari norræn lög. Sýningin verður opnuð kl. 14.00 en tónleikarnir hefjast kl. 15.00. Sýningin verður opin dag- lega á sama tíma og Norræna húsið. Nýiistasafnið við Vatnsstíg: Sýning Rðgnu St. Ingadóttur ■ Dagana 12. til 21. apríl sýnir Ragna St. Ingadóttir í Nýlistasafninu við Vatnsstíg. Ragna lauk námi við Mynd- lista- og handíðaskóla íslands árið 1979 og hélt síðan til Danmerkur, þar sem hún stundaði nám í grafík í tvö ár. Þaðan lá leiðin til Ítalíu og var hún þar við málaranám í þrjú ár. Þetta er fyrsta einkasýning Rögnu, en hún hefur tekið þátt í samsýningum hér heima og erlendis. Verkin á sýning- unni eru unnin á þessu og síðasta ári. Björg Þorsteinsdóttir sýnir collageveric í Norræna húsinu ■ Á morgun, laugardag, kl. 14.30 opnar Björg Þorsteins- dóttir sýningu á collageverkum í Norræna húsinu. Sýningin verður opin frá kl. 14-22 dag- lega til 28. apríl. Þetta er áttunda einkasýning Bjargar, en sú fyrsta sem hún heldur hérlendis á collageverkum ein- göngu. Nýlega sýndi hún hluta þessara verka á einkasýningu í París. Myndirnar eru allar unnar á þessu og síðasta ári. Björg hefur stundað nám bæði erlendis og hérlendis. Frá árinu 1969 hefur hún tekið þátt í um 200 samsýningum hér heima og erlendis. ■ Ragna St. Ingadóttir við eitt verka sinna.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.