NT - 14.04.1985, Blaðsíða 14

NT - 14.04.1985, Blaðsíða 14
Sunnudagur 14. apríl 1985 14 ■ Vinnustufur myndhöggvara á Korpúlfsstöðum. Sú aðstaða sem þar er búið að koma upp hefur ómetanlegt gildi. ■ „Án titils“ Jón Gunnar Árnason, 1985, ál. ■ „Gestur“, Sverrir Ólafsson 1985, tré, stál og kopar. / ■ „Ég tel að það sé mikilvægt fvrir okkur sem myndhöggvara að vita hvar við stöndum og það er ein af ástæðunum fyrir því að við setjum nú upp þessa stóru sýningu.“ Svo fórust Ragnari Kjartanssyni myndhöggvara orð þegar við hittum hann að Kjarvalsstöðum í Reykjavík en þar verður opnuð nú um helgina viðamikil sýning á verkum tuttugu íslenskra myndhöggvara. Þegar við vorum að spjalla við Ragnar gekk mikið á að Kjarvalsstöð- um. Vörubílar komu akandi með listaverk, sem sum hver eru risastór en sýningin verður bæði inni í húsinu og fyrir utan það. í vestursal hússins var hópur myndlistarmanna að koma fyrir verkum sem þar eiga að vera. í austurenda hússins var einnig verið að setja upp sýningu, sem opnuð verður á sama tíma, en þar er Félag íslenskra myndlistarmanna á ferð- inni. Þrátt fyrir mikið annríki gefur Ragnar sér góðan tíma til að rabba. Fyrir þá sem ekki þekkja meistar- ann í sjón er hann herðabreiður og þéttur á velli. „Hann er ekki eingöngu góður myndhöggvari heldur lítur hann einnig út fyrir að vera það“, eins og einn viðmælandi okkar orðaði það. „Hann er eins og myndhöggvar- ar litu út í gamla daga.“ En við erum ekki hingað komin til að lýsa líkamsvexti Ragnars Kjartans- sonar heldur til að fræðast af honum um sýningu á íslenskum höggmynd- um. „Já, eins og ég sagði áðan þá held ég að það sé hollt fyrir okkur aö vita hvar við stöndum, við þurfum að sýna sjálfum okkur það og öðrum. En ég er ekkert skjálfandi út af þessari sýningu, það er mikill hugur í fólki og mörg verkanna lofa góðu. Okkur langar líka til að brúa Atl- antshafið, ef vel gengur með þessa sýningu, og fara með hana í ferðalag til Evrópu þó að það mál sé enn aðeins á umræðustigi. Við erum líka að styrkja okkur í sambandi við alls kyns bull um að- stöðu okkar á Korpúlfsstöðum, sem heyrst hefur af og til í fjölmiðlum. Það er óhætt að fullyrða að Reykja- víkurborg gerði myndarlega við myndhöggvara þegar við fengum inni þar og þessi sýning er meðal annars afrakstur þeirrar velvildar. Á Korpúlfsstöðum höfum við nú þegar komið okkur upp góðum verkstæðum bæði til að vinna í tré og járn. Framundan er að koma brennsluofni í gagnið og þar með er komin aðstaða að vinna úr flestum þeim efnum sem notuð eru í höggmyndir. Þó svo að sum okkar hafi sínar eigin vinnustofur þá þurfum við alltaf af og til að komast í stærra húsnæði þegar unnið er að stórum verkum og þá koma vinnustofurnar á Korpúlfs- stöðum sér ákaflega vel. Það getur enginn einn einstaklingur staðið undir rekstri á svo stóru húsnæði sem til þarf þegar byggja á myndarleg úti- verk. Þetta pláss hefur líka ómetan- lega félagslega þýðingu fyrir mynd- höggvara á íslandi sem kemur örugg- lega til með að skila sér til baka. Að sýningunni á Kjarvalsstöðum standa tuttugu myndhöggvarar sem allir eru meðlimir í Myndhöggvarafé- laginu. Þar verða til sýnis 47 skúlp- túrar úr margvíslegum efnum. Þar má sjá verk úr steinleir, gifsi, salti, striga og grágrýti svo eitthvað sé nefnt. Hér eru einnig verk unnin í tré og járn, plast og steinsteypu. Ragnar kemur víða við í frásögn sinni á meðan gengið er á milli listaverkanna. Stofnun Myndhöggv- arafélagsins árið 1972 var liður í baráttu fyrir bættri aðstöðu og viður- kenningu. Þá hafði um margra ára skeið verið mikill vöxtur í högg- myndalist hér á landi og kominn tími

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.