NT - 12.05.1985, Blaðsíða 12

NT - 12.05.1985, Blaðsíða 12
-1 PÍT7 Sunnudagur 12.maí 1985 12 LkJj IVlyndl ist „Möguleikar glers eru óþrjótandi“ M Pía Rakel Sverrisdóttir: „Þó aðgleríðsé hart, hefurþað tilað bera mjúka, næstum ósýnilega hrynjandi, sem kallar á mann. Gegnsæiþess, svo og Ijósbrotið íþvískipta mig mestu.“ M Lísbet Sveinsdóttir: „ Gler heillar mig fyrir það hve tært það er. “ ■ Nú um helgina gefur að líta nýstárlega myndlistarsýningu að Kjarvalsstöðum í Reykjavík. Listamennirnir níu sem að sýningunni standa eiga það allir sammerkt að nota gler í verk'sín og mun þetta vera í fyrsta skipti sem hópur íslenskra glerlistamanna kemur fram saman með slíka sýningu. Fyrir utan það að vera úr gleri eru verkin mjög ólík hvert öðru og spegla því mismunandi vinnubrögð oe aðferðir höfunda sinna og smiða. í sýningarskrá eiga listamennirnir hver fyrir sig stuttan orðastað við Aðalstein Ingólfsson, listfræðing, þar sem þeir lýsa meðal annars þeim eiginleikum glersins sem höfða livað mest til þeirra hvers og eins. Þar segir til dæmis einn listamannanna, Pía Rakel Sveinsdóttir: „Gler höfðar til mín vegna tvíeðlis síns. Annars vegar er það tljótandi og heitt, hins vegar hart og kalt. En þó það sé hart, hefur það til að bera mjúka, næstum ósýnilega hrynjandi sem kallar á mann. Mig langar til að láta ljósið leika í glerinu, eins og sólin gerir á vatnsfleti." Leifur Breiðfjörð, annar tveggja karla í hópnum, hefur þetta að segja um það efni sem hann vinnur mest í: „Möguleikarglerseruóþrjótandi. Því lengur sem ég nota það, því betur sé ég hve óendanlega margt má gera við það.“ Þriðji listamaðurinn Sören S. Larsen hefur þetta að segja um vinnu sína með gler: „Glerlistin spannar breitt svið, allt frá formsköpun nytjahluta til stærri verkefna á sviði skreytilista og skúlptúrs. Trúnaðurinn við handverkið er mér mikilvægur, ekki síður en trúnaðurinn við lífið og náttúruna. Þaðan hef ég innblásturinn." Verkin á sýningunni eru æði ólík eins og áður segir og bera það með sér að listamennirnir koma hver úr sinni átt en þeir hafa sótt reynslu og lærdóm í glersmiðjur í Bandaríkjunum, ftalíu,Þýskalandi, Danmörku, Svíþjóð og Bretlandi svo eitthvað sé nefnt. En orð og setningar eru allt aðrar nálganir en myndir og því fengum við leyfi til að birta nokkur sýnishorn af því sem gefur að líta á þessari sýningu sem ^ðstandendurnir nefna Gler brot ’85. M Kunito Nagaoka Þessar sérkennilegu myndir eru gerðar af einum af kennurum Myndlista- og handíða- skóla íslands en sá er ættaður frá Japan og ber nafnið Kunito Nagaóka. Þær eru hluti sýningar sem Nagaoka opnar nú um helgina í Gallerí Langbrók og eru unnar með svokall- aðri litætingu. Höfundurinn sem stundaði nám bæði í Tókýó og Vestur-Berlín er stadd- ur hér á landi í annað sinn til að kenna hér tækni sína í grafík, en hann hefur unnið til fjölda verðlauna víða um heim fyrir verk sín. Hann á að baki ekki færri en tólf einkasýning- ar auk þess sem hann hefur tekið þátt í að minnsta kosti 10 samsýningum í Evrópu. Myndimar sem Nagaoka sýnir að þessu sinni líkjast margar hverjar ljósmyndum sem teknar eru úr lofti og eru unnar með litætingu eins og áður segir.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.