Sunnudagsblaðið - 01.12.1957, Blaðsíða 3

Sunnudagsblaðið - 01.12.1957, Blaðsíða 3
SUNNUDAGSBLAÐIÐ 707 CEYLON er í aðeins 100 km fjar lægð frá suðausturhorni Indlands og er í lögun eins og dropi, sem er að detta af meginlandinu. Marg ar smáeyjar mynda eins konar landbrú, Adamsbrú er hún kölluð. Ságan segir að brúin sé gerð af öpum. Á máli eyjarskeggja heitir eyj- an ekki Ceylon, heldur Lanka; það er gamalt orð úr fornmálinu, sans- krít, sem talað var af frumbyggj- unum, hinum norður-indversku singhalesum, fyrir 2500 árum síð- an. Orðið Ceylon er vestur-evr- ópsk afbökun á orðinu Singhala Dvipa, sem þýðir evja singhales- anna. Ceylon er ekki mjög stór, hún er ca. 450 km á lengd og að jafn- aði um 150 km á breidd (flatarmál um það bil þrír fimmtu af flatar- máli íslands. íbúatalan er um það bil átta milljónir. Lega eyjarinnar er frá 7—10 norðlægrar breiddar og mjög hlýtt við ströndina og annars staðar, þar sem lálengt er, en upp til fjalla í 2400 metra hæð er eilíft vor. Marco Polo kom til eyjarinnar fj’rir um 700 árum og gefur henni þá einkunn, að hún sé „heimsins yndislegasta eyja“. Eyjuna byggir fólk af ólíkum kynstofnum. Talið er að eigi færri en 70 þjóða brot hafi þar blandað blóði saman, þar á meðal Alghan- istar, sem hafa' einkarétt á allri útlánastarfsemi á eynni. Márum (í rauninni afkomendur arabiskra kaupmanna), sem fyrst og fremst fást við hina arðsömu verzlun með eðalsteina, og kuravar-sígaunar, sem hafa helgað sig því star-fi að temja slöngur! Enn eru á eynni leifar frijmbyggjaniia, sem vedar heita. Þeir bua lauet iuni i íruuv ikógiuuru, vejða tueð bcga cg crv- um og eru taldir frumstæðari en nokkur annar þjóðflokkur, sem þekkist. Stærstu þjóðabrotin eru hinir áðurnefndu singhalesar, um 5 milljónir, og tamílar, um 2 mill- jónir. Singhalesar eru flestir Ccylon. Búddhatrúar, en tamilar eru hindú ar, að hálfu innfæddir menn en að hálfu innflytjendur frá Indlands- skaga. Þessir þjóðflokkar tala hvorir sína tungu og eru í flestu ólíkir mjög. Singhalesar — „ljómafólkið“, eru afkomendur norður-indversks þjóðflokks, sem lagði undir sig eyjuna fyrir 2500 ára. (í þjóðfána Ceylons er mynd af stóru 1 jóni). Singhalesar voru byggingalistar- menn miklir og má sjá þess mörg merki í hallarrústum og voldug- um vatnsgeymum. En Singhalesar nútímans eru makráðir mjög, og \'iðurkenna það gjarmm Eu þeir tiiix u ingjarnlsgir, failegir og "reindir. Þeir þurfn lítiS fyrir líf- inu að hafa því náttúran er frjó- söm mjög. T.d. gefur yaktréð af sér ávexti, sem geta orðið allt upp í 20 kíló, og herramannsmatur. Er það þá ekki kynleg tegund geð- veiki, að vera að erfiða? Aðalatvinnuvegurinn er te- og gúmmírækt, sem Englendingar innleiddu fyrir 100 árum, og sá atvinnuvegur krefst mikillar um- hyggju og nákvæmni allt árið. Englendingar hafa þjálfað tamil- ana vel til þeirra starfa, cnda eru þeir iðnir og mjög áreiðanlegir. Það er að því er virðist aðeins citt, sem tamilar og singhalesar geta sameinazt um, og það er trúin á stjörnusjána. Enginn tekur sér neitt meiriháttar starf fyrir hend- ur, svo sem að sækja um stöðu, fara í ferðalag, grafa eftir eðal- steinum eða planta rís, nema leita til stjörnuspámannsins. (Fróðir menn telja, að uppskeran myndi a.m.k. tvöfaldast, ef bændurnir gæfu minni gaum að stjörnusjánni og meiri að búnaðartækni). Dag- inn, sem ég kom til Ceylon mátti heita að íbúarnir, sem einn maður væru þátttakendur í brúðkaups- veizlu. Stjörnufræðingarnir höfðu látið það boð út ganga löngu áður, að þetta væri hinn mesti hamingju dagur, og fólk hafði mánuöum saman beðið hans til þess að ganga í það heilaga! Flestir koma til Colombo, þá er þeir koma til Ceylon í fyrsta sinn. Colombo er í rauninni eina borg- in, sem borg getur kallazt, og í- búatalan er 400 þúsund. Nafnið er dregið af fornu arabisku orði, kal- amba, og á ckkert skylt við Krist- nff'r Kolumbus, cins> r>r sumir ii^lda. .— Með íram mórgum sot- um Colcmbo 'vezi iúð icrkermilega

x

Sunnudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.