Morgunblaðið - 31.07.2004, Blaðsíða 17
Fararstjóri: Friðrik G. Friðriksson
frissigf@mmedia.is
Evrópurútur Úrvals Útsýnar
í Smáranum
eru flestar uppseldar,
síðustu forvöð að bóka
Evrópurúta 6. Miðevrópurúta með Friðriki G. Friðrikssyni, 7.-21. ágúst. Uppseld.
Evrópurúta 7. Vínuppskeruferð með Friðriki G. Friðrikssyni, 3.-10. okt. Sæti laus.
Sígild ferð um fegurstu vínhéruð Þýskalands með viðkomu í Elsass, Frakklandi.
Kennslustund í meðferð gæðavína og matarveisla hvert kvöld. Mikið innifalið.
Verð kr. 93 þús. í tvíbýli, aukalega 10 þús. fyrir einbýli.
Evrópurúta 8. Aðventuferð til Trier með Friðriki, 21.-28. nóv. Uppseld.
Evrópurúta 9. Aðventuferð til Trier með Friðriki, 28. nóv.-5. des. Sæti laus.
Innif.: Skoðanaferðir m.a. til Luxemborgar, 5 kvöldmáltíðir og vínsmökkun.
Verð kr. 84 þús. í tvíbýli, aukalega 11 þús. fyrir einbýli.
Sérferð til Búlgaríu með Dr. Þorleifi Friðrikssyni 14.- 20. október. Sæti laus.
Beint flug til og frá Sofíu. Ekið að Svartahafi, gist á 3ja og 4ja stjörnu hótelum
með morgunverði. Innifaldir eru 5 kvöldverðir með drykkjum, þar af einn „Gala-
dinner“. Heimsókn í Ivano klettaklaustrið og þrakýskt grafhýsi í Svesthari (UN-
ESCO) og næturheimsókn til Nessebur, eins elsta bæjar Evrópu.
Verð kr. 113.300 í tvíbýli, aukalega 7 þús. fyrir einbýli.
Göngu-Hrólfs ferð með Steinunni Harðardóttur til Mallorka 2.-9. sept. Uppseld.
Göngu-Hrólfs ferð með Steinunni til Mallorka 16.-23. sept. Sæti laus.
Ferð í hefðbundnum takti, gegnið u.þ.b. 6 tíma á dag. Nánast allt innifalið.
Verð kr. 94.500.
Sími 585 4100 • www.urvalutsyn.is
Höfuðborgin | Akureyri | Landið | Árborgarsvæðið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Það var líf og fjör á knattspyrnusvæði
bæjarins um síðustu helgi er þar fór fram
árlegt Vestfjarðamót Skeljungs í knatt-
spyrnu. Keppendur, sem voru vel á þriðja
hundrað á aldrinum fimm til fimmtán ára,
komu frá Fjölni í Reykjavík, HK í Kópa-
vogi, Ísafirði, Hólmavík, Suðureyri, Súða-
vík, Tálknafirði, og Bolungarvík. Mót þetta
er haldið ár hvert síðustu helgina fyrir
verslunarmannahelgi og hefur þátttakan
aldrei verið meiri en nú og reikna má með
að 8-900 hundruð manns hafi verið á
íþróttasvæðinu meðan mótið stóð yfir. Tek-
ið var á móti þátttakendum og gestum með
suðrænni stemmningu í Sundlaug Bolung-
arvíkur á föstudagskvöldinu en sjálft mótið
hófst á laugardagsmorguninn með skrúð-
göngu að knattspyrnusvæðinu.
Auk þess sem unga knattspyrnufólkið
atti kappi fór fram hörkukeppni þar sem
mömmur og pabbar þátttakendanna áttust
við í knattspyrnu sem úr varð hin besta
skemmtun enda á stundum beitt hinum
skrautlegustu aðferðum við að hemja
knöttinn. Í þessum leik stóðu uppi sem sig-
urvegarar HK-foreldrar frá Ísafirði.
Mótinu lauk um kl 17 með verðlaunaaf-
hendingu og grillveislu þar sem allir þátt-
takendur voru leystir út með gjöfum. Þeir
sem stóðu að undirbúningi mótsins voru
sérstaklega ánægðir með það hversu mótið
fór vel fram þar sem háttvísi og prúð-
mennska einkenndi alla framkomu leik-
manna og gesta.
Sjóminjasafnið Ósvör dregur á hverju ári
að sér fjölda ferðamanna. Á síðasta ári
komu í safnið hátt í sex þúsund gestir og
var um þriðjungur þeirra erlendir ferða-
menn. Geir Guðmundsson, sem verið hefur
safnvörður í Ósvör frá upphafi, lét af því
starfi í sumar og við starfinu af honum tók
Finnbogi Bernódusson. Nýlega var sett
niður þjónustuhús við bílaplanið að safninu
þar sem ætlunin er að verði mótttaka gesta
og upplýsingamiðstöð fyrir ferðalanga.
Mikið hefur borið á ferðamönnum í bæn-
um og greinilegt að landinn er í auknum
mæli farinn að leggja leið sína á Vestfirði
enda gríðarlega margt að skoða og ekki
skemmir fyrir þegar veðrurguðirnir gæla
við okkur eins og undanfarnar vikur.
Úr
bæjarlífinu
BOLUNGARVÍK
EFTIR GUNNAR HALLSSON FRÉTTARITARA
Sjálfboðaliðar | Auglýst
hefur verið eftir sjálf-
boðaliðum sem vilja leggja
fram krafta sína á Menn-
ingarnótt í miðborg
Reykjavíkur laugardaginn
21. ágúst. Allir sem hafa
náð 18 ára aldri og hafa
gaman af að taka myndir,
eiga við græjur, setja upp
sýningar, vísa til vegar
eða vera almennt hjálpleg-
ir geta tekið þátt. Áhuga-
samir hafi samband við
Höfuðborgarstofu fyrir
18. ágúst í síma 590 1504
eða 590 1508.
Svínadalur | Guðmundur
Þórir Friðjónsson, 12 ára
strákur á Hóli í Svínadal,
segist vera duglegur að
hjálpa til við ýmis störf á
bænum. Hann hafði tekið
að sér að bera fúavörn á
skúr sem notaður er
undir verkfæri og annað
smálegt, þegar ljósmynd-
ara bar að garði. Hann
hefur svo að sjálfsögðu
hjálpað til í heyskapnum,
sem hann segir að hafi
gengið alveg ágætlega í
sumar.
Morgunblaðið/ÞÖK
Hjálpar til á bænum
Í Laxárvirkjun hefurverið sett upp sýningá sögu og starfsemi
stöðvarinnar. Þar má
finna vísur um starfsfólk,
m.a. Snjólaugu Sigurð-
ardóttur, sem var einka-
ritari forstjóra frá 1965
til 1994:
Stúlkan sú er staðföst og klár
í starfi sínu svo einhverju
munar,
hafandi starfað í öll þessi ár
allt frá stofnun
Landsvirkjunar!
Um Guðmund Jósefsson
sem komið hefur að bygg-
ingu á öllum virkjunum
Landsvirkjunar frá 1969,
er ort:
Hann á skilið skjall og hrós.
Skarpur lausn á vanda sér.
Glöggur maður, Gummi Jós,
getur nánast hvað sem er.
Um Rán Jónsdóttur, eina
stöðvarstjórann á land-
inu:
Nú telja menn sumir að lífið
sé lán
og leikur á suðrænni ströndu,
þegar í stöðinni stendur hún
Rán
og stjórnar þeim öllum í
Blöndu.
Stuðlavirkjun
pebl@mbl.is
Akureyri | Það skemmtilegasta
sem margir krakkar gera er að
sulla í vatni, og ekki spillir fyrir
að hafa sína eigin ferju til afnota
á tjaldstæðinu á Hömrum við
Akureyri. Á Hömrum voru um
1.700 gestir á fimmtudagskvöld
og straumurinn stöðugur í allan
gærdag. Það má því búast við
því að þar verði margt um
manninn um helgina – og mikið
buslað í tjörninni. Þau Krist-
mundur frá Keflavík, Berglind
Sara frá Þorlákshöfn, Andri
Már frá Grundarfirði og Viktor
úr Kópavogi skemmtu sér hið
besta við að busla og gera væn-
anlega alla helgina.
Brugðið á leik í blíðunni
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Sullað
KRAFA um almennan íbúafund vegna fyr-
irhugaðrar sameiningar Norður-Héraðs
við Austur-Hérað og Fellahrepp var afhent
Arnóri Benediktssyni, oddvita sveita-
stjórnar Norður-Héraðs á fimmtudags-
kvöld. Undir hana rita 93 íbúar í sveitarfé-
laginu, eða um 43% kosningabærra manna.
Krafan var sú að fjallað væri um málið á
fundi sveitastjórnarinnar og ákveðið að
halda íbúafund um málið. Einnig var því
beint til sveitarstjórnarinnar að efna til al-
mennrar bindandi atkvæðagreiðslu í sveit-
arfélaginu um fyrirhugaða sameiningu í
samræmi við sveitastjórnarlög.
Þessi krafa íbúanna var rædd á fundi
sveitarstjórnarinnar í gær og lagði Arnór
Benediktsson, oddviti sveitarstjórnarinn-
ar, til að hætt yrði við aðra umræðu um
sameiningu og þess í stað tekin ákvörðun
um að halda íbúafund um málið. Breyt-
ingatillaga kom fram við þessa tillögu odd-
vitans, þar sem fram kom að krafan um
íbúafund og kosningu væri of seint fram
komin. Þar segir að búið sé að samþykkja
sameiningu í fyrstu umræðu og ekki hægt
að afturkalla þá ákvörðun með íbúaþingi
eða almennum kosningum. Þessi breyt-
ingatillaga var samþykkt, og því var sam-
einingin tekin til annarrar umræðu, og
samþykkt þar. Aðspurður segir Arnór að
hann eigi von á því að íbúafundur fari fram,
annað hvort nk. föstudag eða laugardag.
Hann sagði einnig að það kæmi honum
ekki á óvart þótt sameiningin yrði kærð til
félagsmálaráðuneytisins.
Krefjast
fundar um
sameiningu
UM 6.000 íslenskar skógarplöntur, rækt-
aðar á Hallormsstað, voru sendar með flugi
til Grænlands nýlega, en þar verða þær
gróðursettar í trjásafninu í Narsarsuaq við
Eiríksfjörð á Suður-Grænlandi.
Sendar voru um 14 tegundir, þ. á m.
fjallafura, japansgreni, fjalllerki og blá-
greni, að því er fram kemur á vef Skóg-
ræktar Íslands. Í trjásafninu í Eiríksfirði
hafa verið gerðar tilraunir með erlendar
tegundir frá norðlægum slóðum í áratugi,
en safnið verður formlega vígt 3. ágúst nk. í
tengslum við ársfund norrænu trjásafns-
nefndarinnar sem haldinn er á Grænlandi
að þessu sinni.
Plöntur til
Grænlands
♦♦♦
Markaðsdagur | Árleg-
ur markaðsdagur verður
haldinn í Laufási í Grýtu-
bakkahreppi næstkom-
andi mánudag frá kl. 14. Á
boðstólum verða ný-
uppteknir garðávextir,
kartöflur, gulrætur og kál,
einnig sulta og saft, ný-
bakað brauð og harð-
fiskur. Margs konar hand-
verk og listmunir verður
til sýnis og sölu.