Morgunblaðið - 14.09.2004, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 14.09.2004, Blaðsíða 17
MINNSTAÐUR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 2004 17 Kynntu þér tilboð okkar á bílaleigubílum Pantaðu AVIS bílinn áður en þú leggur af stað Það borgar sig – Hringdu til AVIS í síma 591-4000 Við erum í 170 löndum 5000 stöðum T.d. Reykjavík, London, Kaupmannahöfn, Frankfurt, Milano, Alicante ... AVIS Knarrarvogi 2 – 104 Reykjavík – Sími 591 4000 – Fax 591 4040 – Netfang avis@avis.is – Heimasíða www.avis.is Minnum á Visa afsláttinn AUSTURLAND Egilsstaðir | Á annað þúsund manns komu til Þjóðahátíðar Austfirðinga, sem haldin var sl. sunnudag. Fólk frá fjórtán þjóðlöndum kynnti þar menningu sína og gafst gestum kost- ur á að kynnast matargerð, handverki, tónlist og fleiru frá löndunum. Mælt er að hátíðin hafi heppnast vel og fólk blandað geði svo opnaði fyrir aukin samskipti. Starfsmenn frá Kárahnjúkum fjölmenntu á hátíðina á vikulegum frídegi sínum og munu hafa verið á milli 20 og 30% gesta. Þeir sem Morgunblaðið ræddi við þaðan voru ánægðir með þennan vettvang fyrir spjall og skoðanaskipti og sögðust gjarnan vilja meira af svo góðu, hvernig svo sem það væri framkvæmt. Sr. Toshiki Toma, sem var viðstaddur á þjóðahátíð og flutti þar ávarp, orti ljóðið „Fegurð í litskrúði“ í tilefni há- tíðarinnar og er það birt hér með góðfúslegu leyfi höfundar. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Austfirðingar allra landa Fegurð náttúru er jarðarbörnum móðurfaðmur og henni fæðist ekta hrjúf hlýja þjóðar – Tungur berast frá allri heimsbyggðinni og heilsast á bæjargötum á hikandi íslensku – Allra ósk að festa rætur í nýheimi Dýrmæti í hverju brjósti blómgist í litskrúði Fegurð Íslands smýgur og ljómar í sálum okkar Á sporum forfeðra reisum við framtíð – (Toshiki Toma) Í tilefni af þjóðahátíð Austfirðinga 2004 Fegurð í litskrúði Laxamýri | Grænfóður óx seint framan af sumri í Suður-Þingeyjarsýslu vegna mikilli þurrka, en nú hefur ræst úr þar sem nokkrum sinnum hefur rignt það sem af er þessum mánuði. Bændur hafa fagnað úrkomunni og grænfóðurtíminn stendur sem hæst á þeim bæjum þar sem kýr eru hafðar í káli. Á myndinni má sjá Jón Helga Jóhannsson, bónda í Víðiholti, sem nýtir vel þessa haustbeit. Hann færir rafstrenginn þrisvar á dag þannig að kýrn- ar hafa alltaf fersk kálblöð innan seilingar enda kunna þær gott að meta og mjólka mikið. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Kýr í káli Sunnan Skarðsheiðar | Viðræður um sameiningu sveitahreppanna fjögurra í Borgarfjarðarsýslu sunnan Skarðs- heiðar eru á lokastigi. Oddviti Leirár- og Melahrepps telur að umræður um framtíð Heiðarskóla að undanförnu hafi þjappað íbúunum saman Búist er við að drög að tillögu um sameiningu sveitarfélaganna og fram- tíðarsýn nýs sveitarfélags verði kynnt sveitarstjórnarmönnum í lok þessa mánaðar og í kjölfarið verði endanleg tillaga lögð fyrir íbúana í atkvæða- greiðslu. Það verður gert 20. nóvem- ber ef áætlanir ganga eftir. Sveitarfélögin fjögur eru Leirár- og Melahreppur, Hvalfjarðarstrandar- hreppur, Skilmannahreppur og Innri- Akraneshreppur. Þeir umlykja Akra- neskaupstað til landsins og eru verk- smiðjurnar á Grundartanga í Skil- mannahreppi og Hvalfjarðarstrandar- hreppi. Liðlega eitt hundrað íbúar eru í hverjum hreppi. Hingað til hefur ekki verið áhugi til sameiningar innbyrðis eða við Akranes. Sveitarfélögin reka saman grunn- skólann Heiðarskóla og hafa samstarf á ýmsum öðrum sviðum. Nýlega ósk- aði hreppsnefnd Skilmannahrepps eft- ir viðræðum við bæjarstjórn Akraness um rekstur grunnskóla. Það olli nokkr- um óróa í kringum Heiðarskóla. Þann- ig beittu tveir kennarar við skólann sér fyrir fundi velunnara skólans og var þar ákveðið að stofna félag til stuðn- ings Heiðarskóla. 42 komu á fundinn en það voru foreldrar, starfsmenn og aðrir velunnarar, að sögn Brynjólfs Þorvarðarsonar leiðbeinanda. Fundur- inn samþykkti að gera þá kröfu til sveitarstjórnanna að tryggja framtíð skólans og móta skýra framtíðarstefnu um áframhaldandi rekstur hans. Brynjólfur segir að sumir fundar- manna hafi talið að sameining hrepp- anna fjögurra væri forsenda þess að hægt væri að tryggja rekstur skólans. Hann segir að óvissan sem nú sé uppi hafi skapað spennu í skólanum og vald- ið nemendum og starfsfólki áhyggjum. Kvaðst hann hræddur við að þetta ástand leiddi til þess að börnin bæru minni virðingu fyrir skólanum. Í síðustu viku var einnig haldinn borgarafundur í Skilmannahreppi um þetta mál, sem boðað var til að kröfu íbúa. Þar var samþykkt að skora á hreppsnefndina að fara ekki í um- ræddar viðræður við Akurnesinga. Sigurður Sverrir Jónsson í Stóra- Lambhaga, oddviti Skilmannahrepps, segir að ágætissamstarf hafi verið við hina þrjá hreppana um rekstur Heið- arskóla í fjörutíu ár. Sú hugmynd hefði komið upp í hreppsnefnd Skilmanna- hrepps að ræða við bæjarstjórn Akra- ness um rekstur grunnskóla til þess að athuga hvort upp kæmi einhver flötur á samstarfi til að draga úr kostnaði, báðum til hagsbóta. Það ætti eftir að koma í ljós enda viðræðurnar ekki hafnar. Hann tekur fram, vegna um- ræðna um framtíð Heiðarskóla, að aldrei hafi verið ætlunin að flytja skól- ann úteftir. Þá yrði ekkert gert án samráðs við hinar sveitarstjórnirnar sem ættu aðild að byggðasamlagi um Heiðarskóla. Vilja ekki missa skólann Marteinn Njálsson í Vestri-Leirár- görðum, oddviti Leirár- og Mela- hrepps, lýsir þeirri skoðun sinni að sameining sveitarfélaganna fjögurra sé forsenda fyrir rekstri Heiðarskóla til framtíðar. Eins og staðan sé nú geti hvert einstakt sveitarfélag sagt sig úr byggðasamlaginu og þá brysti rekstr- argrundvöllurinn. „Þegar búið verður að sameina sé ég ekki annað en að við getum rekið grunnskóla með sóma enda verður þetta með tekjuhærri sveitarfélögum landsins,“ segir Mar- teinn og er trúaður á að íbúarnir muni samþykkja sameininguna. „Umræðan að undanförnu hefur þjappað fólki hér saman. Íbúarnir vilja ekki missa skól- ann,“ segir hann. Viðræður um sameiningu fjögurra hreppa sunnan Skarðsheiðar Umræður um skólann þjappa fólki saman LANDIÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.