Morgunblaðið - 20.10.2004, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 20.10.2004, Blaðsíða 4
CAMERON Echols, banda- rískur körfuknattleiks- maður í herbúðum úrvals- deildarliði KR, ákvað í fyrradag að hætta við að fara frá félaginu, en Echols tilkynnti stjórn félagsins sl. sunnudag að hann vildi rifta samningi sínum við félagið. Í fréttatilkynningu frá KR segir að Echols hafi séð að sér og rætt við Herbert Arn- arson, þjálfara liðsins, og stjórnarmenn. Echols verður því með KR gegn Njarðvík á fimmtudaginn er liðin eigast við í Intersportdeildinni. Echols hætti við að hætta  DAGUR Sigurðsson og lærisvein- ar hans í austurríska meistaraliðinu Bregenz lentu gegn danska liðinu AaB þegar dregið var til 3. umferðar í EHF-keppninni í handknattleik í gær. Bregenz leikur fyrri leikinn á heimavelli.  SKJERN frá Danmörku sem Aron Kristjánsson þjálfar og Ragnar Ósk- arsson leikur með mætir rússneska liðinu Dynamo Astrakhan og fer fyrri leikurinn fram í Rússlandi.  MAGDEBURG sem leikur undir stjórn Alfreðs Gíslasonar og þeir Sigfús Sigurðsson og Arnór Atlason leika með dróst gegn franska liðinu Paris Handball og fer fyrri leikurinn fram í Frakklandi.  GUÐJÓN Valur Sigurðsson og fé- lagar hans í þýska liðinu Essen mæta Redbergslid frá Svíþjóð og fer fyrri leikurinn fram á heimavelli Essen.  DYNASTYKEPPNIN, fór fram í fyrsta sinn fyrir 19 mánuðum, en það er golfkeppni á milli Asíu og Japans í anda Ryderkeppninnar sem fram fer annað hvert ár á milli Evrópu og Bandaríkjanna. Tilraunin þótti tak- ast vel og verður mótið á dagskrá á ný á stærsta golfvallasvæði Kínverja og fer mótið fram í apríl.  ASÍA vann fyrsta mótið nokkuð örugglega, 16 ½ vinningar gegn 7 ½. Bandaríska golfgoðsögnin Jack Nicklaus hannaði golfvöllinn sem heitir Mission Hills og er við borgina Shenzhen - rétt utan við landamæri Hong Kong.  JAPANIR hafa lagt hart að Shig- eki Maruyama og Hidemichi Tan- aka að taka þátt en þeir leika á PGA- mótaröðinni í Bandaríkjunum og sáu sér ekki fært að vera með í fyrstu keppninni. Hsieh Min-nan frá Taív- an er fyrirliði Asíuliðsins en Isao Aoki er fyrirliði japanska liðsins.  FRANSKI landsliðsmaðurinn David Trezeguet, sem leikur með Juventus, verður frá æfingum og keppni næstu þrjá mánuðina. Frakkinn gekkst undir skurðaðgerð á öxl í gær sem var óumflýjanleg þar sem hann hefur þrívegis farið úr axl- arlið á undanförnum misserum.  GRINDVÍKINGAR skoruðu 134 stig gegn sameiginlegu liði Hamars/ Selfoss í úrvalsdeild karla í fyrra- kvöld en samtals skoruðu liðin 245 stig. 134:111. Rúnar Birgir Gíslason fyrrum körfuknattleiksdómari segir að hæsta stigaskor í úrvalsdeildar- leik hafi verið í rimmu Hauka og Tindastóls árið 1997. Sá leikur var þríframlengdur og endaði 141:134, fyrir Hauka. Samtals 275 stig. Árið 1997 vann Keflavík lið Tindastól 149:79, eða með 70 stiga mun. FÓLK FRAMKVÆMDANEFND heims- meistaramótsins í knattspyrnu sem fram fer í Þýskalandi árið 2006 hefur hafið leit að 15.000 sjálfboðaliðum til þess að starfa á meðan keppnin fer fram. Þörf er á 1.000 sjálfboðaliðum á öllum 12 keppnisstöðunum og segir Franz Beckenbauer góð þátttaka sjálf- boðaliða sé lífsnauðsynleg fyrir mótshaldið. „Sjálfboðaliðarnir skipa það stóran þátt í skipulagi keppninnar að án þeirra getum við ekki framkvæmt mót af slíkri stærðargráðu. Markmið okkar er að bjóða alla velkomna í stærstu knattspyrnuveislu sögunnar sem stendur yfir frá 9. júní til 9. júlí árið 2006. Við höfum þörf fyrir fólk með víðtæka þekkingu og reynslu, túlka, bílstjóra og aðra sem geta hjálpað ferðamönnum og gestum á meðan keppnin stendur yfir,“ sagði Beckenbauer. Leita að 15.000 sjálfboðaliðum Í E-riðlinum verður forvitnilegt aðsjá hvernig Arsenal reiðir af gegn Panathinaikos en Englandsmeistar- arnir urðu að sætta sig við 1:1-jafn- tefli við Rosenborg á dögunum. Ars- enal er efst í riðlinum með 4 stig, PSV og Panathinaikos hafa 3 og Ros- enborg er með 1 stig. Patrick Vieira, fyrirliði Arsenal, getur ekki leikið með sínum mönnum vegna meiðsla og Dennis Bergkamp er fjarri góðu gamni en eins og flestir vita ferðast Hollendingurinn „fljúgandi“ ekki með flugvélum. Getum lagt hvaða lið sem er að velli „Við höfum ekki náð að spila af sama styrkleika í Meistaradeildinni og í ensku úrvalsdeildinni. Því þurf- um við að breyta og gera andstæð- inga okkar hrædda þegar þeir mæta okkur,“ segir Thierry Henry, fram- herjinn frábæri í liði Arsenal. „Við getum lagt hvaða lið að velli í Evrópu sem er. Það er ekki vanda- mál fyrir okkur að skora mörk en í Evrópukeppninni þurfum við að spila meira sem ein liðsheild og verj- ast betur,“ segir Henry en lið Arsen- al hefur ekki þótt mjög sannfærandi í fyrstu tveimur leikjum sínum í keppninni á sama tíma og það hefur farið á kostum í úrvalsdeildinni. Í Þrándheimi taka margfaldir Noregsmeistarar Rosenborg á móti PSV og þar dugar Rosenborg ekkert nema sigur til að eygja möguleika á að blanda sér í toppbaráttu riðilsins. 100. Evrópuleikur Chelsea Chelsea tapaði sínum fyrsta leik á tímabilinu þegar það lá fyrir Man- chester City og spurning er hvernig sá ósigur leggst á lærisveina Jose Mourinho þegar þeir mæta CSKA Moskva á Stamford Bridge. Rúss- arnir eru með fjögur stig í H-riðl- inum og geta með sigri skotist í topp- sætið. Eiður Smári Guðjohnsen verður nær örugglega í byrjunarlið- inu en hann og Mateja Kezman eru einu framherjarnir sem Mourinho hefur völ á. Didier Drogba er meidd- ur og Adrian Mutu er búinn að mála sig út í horn af ýmsum ástæðum. Chelsea og CSKA hafa aldrei mæst áður í Evrópukeppni og leikurinn er sá fyrsti sem rússneska liðið spreytir sig á gegn ensku liði. Leikurinn á Stamford Bridge verður 100. Evr- ópuleikurinn í sögu Chelsea og þar eru taldir með leikir í Super-Cup. Chelsea er fimmta enska liðið sem nær þriggja stafa tölu hvað fjölda Evrópuleikja varðar. Liverpool á flesta, 228 talsins, Manchester Unit- ed 217 og Arsenal og Leeds 148. Sannkallaður stórleikur verður háður í Mílanó þegar AC Milan tek- ur á móti Barcelona en margir hafa spáð því að þessi tvö félög geti farið alla leið í Meistaradeildinni í ár. Lið- in eru efst og jöfn í F-riðli með 6 stig en Shakhtar Donetsk og Celtic, sem eigast við í Úkraínu, eru án stiga. Frank Rijkaard þjálfari Börsunga fær eflaust hlýjar kveðjur frá stuðn- ingsmönnum AC Milan en Rijkaard átti góðu gengi að fagna með Míl- anóliðinu, sem og Carlo Ancelotti þjálfari Milan, og var í miklum met- um hjá fylgismönnum félagsins. „Ég býst við afar spennandi leik og ég veit það fyrir víst að Rijkaard fær góðar móttökur. Ég get ekki sagt að Barcelona sé besta lið Evr- ópu í dag en svo mikið er víst að lið Börsunga er feikilega sterkt og spil- ar frábæra knattspyrnu,“ segir varnarmaðurinn sterki í liði AC Mil- an, Alessandro Costacurta. Löngu uppselt er á leikinn en völlurinn tek- ur 80.000 áhorfendur. Inter Mílanó getur farið langt með að tryggja sér farseðilinn í 16 liða úr- slitin, takist liðinu að leggja Spán- armeistara Valencia á þeirra heima- velli, Mestalla. Inter er efst með 6 stig, Werder Bremen og Valencia hafa 3 en Anderlecht, sem tekur á móti Bremen, er neðst án stiga. Reuters Clarence Seedorf, Hollandi, Andriy Shevchenko, Úkraínu, og Brasilíumaðurinn Kaká, leikmenn AC Milan, fagna eftir að þeir höfðu komið knettinum í netið í leik gegn Lazio í deildarleik á Ítalíu. Þeir taka á móti Barcelona í sannkölluðum stórleik í kvöld. Risaslagur á San Síró í Mílanó EIÐUR Smári Guðjohnsen og félagar hans í Chelsea-liðinu verða í eldlínunni í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu í kvöld en Chelsea tekur þá á móti CSKA Moskva á heimavelli sínum, Stamford Bridge. Hið „ósigrandi“ lið Arsenal mætir Panathinaikos í Grikklandi en stórleikur kvöldsins verður þó aðteljast viðureign AC Milan og Barcelona, tveggja efstu liðanna í F-riðlinum sem mætast á San Síró í Mílanó.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.