Vísir - 24.12.1962, Blaðsíða 1

Vísir - 24.12.1962, Blaðsíða 1
VISIR 52. árg. — Mánudagur 24. desember 1962. — 290 tbl. V/SIR í DAG Vísir er eina blaðið sem kemur út i dag, og er hann 32 siður að stærð. Efni blaðsins í dag er m. a. þetta: Á sjúkrahúsi um jólin, bls. 3 Jólakrossgátan, bls. 4 Jólakvikmyndir, bls. 7 Kveðja frá Schweitzer, bls. 8 Viðtal við biskup, eftir Gunnar G. Schram, bls. 9 Jólanótt, eftir séra Emil Björnsson, bls. 17 Af dagbókarblöðum sumarið 1960, eftir Hannes Pétursson, bls. 18 Grein um írskar ölkrár, eftir Axel Thorsteinson, bls. 21 Þýzkir jóla og áramótasiðir, eftir Þorstein Jósepsson, bls. 23 Myndin og sannleikurinn, eftir Kurt Zier, bls. 24 Um Vikinga og Araba, eftir Þorstein Thorarensen, bls. 26 Heillandi hörmungartími, eftir Ólaf Sigurðsson, bls. 29 Útvarpið um jólin, bls. 32 - Það virðast ætla að verða grá jól í ár, sagði Jón Eyþórsson veður- i'ræðingur, þégar Vfsir átti stutt við tal við hann í gær um jólaveðrið. Á aðfangadag mun verða vestanátt með éljum um vestanvert landið, en ekki snjókoma. Á jóladag má í fyrstu búast við hægviðri og góðu veðri, en þegar líður fram á kvöld- ið má búast við að lægð, sem var tödd á Þorláksmessu yfir Nýja- Ikotlandi á austurströnd Kanada, iri að hafa áhrif hér á landi. í gær var lægðarsvæði yfir Norð- usturlandi en hins vegar mjög mik ðið háþrýstisvæði 1050 millibarar frost. fir Norðursjónum, en lægðarsvæði þetta teygðist síðan út yfir Atlants- haf. Þessi veðurskilyrði orsökuðu vest læga og suðlæga átt yfir norðan- verðu Atlantshafi og fremur milt veður, þannig að tveggja stiga hiti var víðast á Vesturlandi og 4 stiga hiti í Vestmannaeyjum og á Eyrar- bakka. Á Svalbarða var 4 stiga hiti og er það fremur óvenjulegt á þessum tfma árs. Þótt háþrýsti- svæði væri yfir Norðursjó orsakaði það ekki mikið frost þar. í London var 1 stigs frost, i Kaupmanna- höfn 3 stig frost og í Osló 8 stiga Vísir sendir lesendum sínum nær og fjær kveöjur og árnar þeim öllum gleðilegra jóla MikiS flogið í gær AUt innanlandsflug lá niðri bæði á föstudag og laugardag sökum ó- veðurs, en í gær var mikið flogið og mun Flugfélag íslands hafa flutt þá samtals á 3. hundrað farþega, auk mikils jólavamings á ýmsar flughafnir víðs vegar Um land. Famar voru þrjár ferðir til Ak- ureyrar í gær og tvær til Horna- fjarðar. Enn fremur var flogið til Fagurhólsmýrar, ísafjarðar, Egils- staða, Húsavíkur og Þórshafnar. Hins vegar hefur gengið erfiðlega að halda uppi flugsamgöngum við Vestmannaeyjar undanfarna daga sökum rysjutíðar. Hefur ekki verið flugfært þangað frá því s.l. þriðju- dag, og var enn ófært þangað í gær. Jolin uti a Hafnarfjörður Þorgeir Ibsen skólastjóri sagði Vísi ýmislegt um skreytingarn- ar í bænum: Mjög fallegt jóla- tré, sem bærinn lét reisa, stend- ur upp á Hamrinum. Aðaltréð er á Thorsplani, gjöf frá vina- bæ Hafnarfjarðar, Fredriksberg, fallegt og myndarlegt tré. — Bamaskólinn hefur gert mjög fallegar gluggaskreytingar á tveim efri hæðunum, og er haft 1 Ijós í skólanum til að lýsa mynd irnar upp. Hús einstaklinga eru mörg ákaflega vel skreytt, sömu leiðis byggingar fyrirtækja og bæjarfélagsins. Skipin verða sennilega skreytt eins og venju- lega. Sólvangur er skemmtilega skreyttur. Stórt jólatré stendur fyrir utan og á þeirri hlið húss- ins, sem snýr niður að lækn- um, eru stórar stjörnur úr ljósa- perum. Hér hafa og verið auglýstar margar barnaskemmtanir milli jóla og nýárs, en mér er ekki kunnugt um dansleik hér, enda held eg að flestir fari til Reykja- víkur á skemmtanir. Akranes Mesta jólasala á íslandi — Það er samhljóða álit verzlunarmanna, að jólasalan hafi aldrei verið meiri en um þessi jól, sagði Sigurður Magn- ússon, formaður kaupmanna- morgun. Blaðið getur bætt því við, að sennilega sé þetta mesta jólasala, sem verið hefur á ís- landi. Sigurður sagði, að aukningin en sem næmi verðhækkunum, sem sé að um raunverulega aukningu í verzluninni hafi ver ið að ræða. Sigurður kvað kaupmenn al- samtaka Islands við Vísi í frá því í fyrra væri mun meiri mennt vera þeirrar skoðunar, að þessa miklu sölu væri hægt að þakka meiri peningaráðum al- mennings en nokkru sinni fyrr. Þá væri vöruúrval meira nú.en áður, betri vörur og meira af vörum í verzlunum en áður. Sigurður Vigfússon fréttarit- ari Vísis sagði: Hér hefur aldrei verið mikið um skreytingar, en aðallega í miðhluta bæjarins við Skólabraut og Kirkjubraut, en þetta eru aðalverzlunargöturn- ar. Sementsverksmiðjaii hefur sett upp mikla stjörnu á einr af hæstu geymunum, og sésl hún langar leiðir. Þá er gríðar lega mikið um að menn setj: upp jólatré framan við húsir, Frh. á bls. 5 NÆSTI ÚT- GÁFUDAGUi VÍSIR kemur' næst út þriðja í jólum, fimmtudaginn 27. des- ember. GRÁ JÓL j

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.