Morgunblaðið - 13.11.2004, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 13.11.2004, Blaðsíða 3
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 2004 C 3 Innifalið í verði er: Æfingatreyja, sokkar og stuttbuxur Morgunmatur Allar nánari uplýsingar í síma 896 2386 og á heimasíðu okkar www.knattspyrnuskólinn.is Skráning er á: skraning@knattspyrnuskolinn.net 4.3.2.m.fl. karla – 3.2.mfl.kvenna Æfingar 3x í viku Þriðjudagar, Fimmtudagar og Föstudagar kl: 06.30 - 07.30. 4 vikur kosta 21.900 4.975 kr per mánuð miðað við 3 mán. greiðsludreifingu. 5.flokkur karla og 4. flokkur kvenna: Æfingar 2x í viku Mánudagar og Miðvikudagar kl: 06.30 - 07.30 4 vikur kosta 15.900 4.433 kr per mánuð miðað við 3 mán. greiðsludreifingu. Námskeið 4 vikur: 15. Nóv–10. Des. Markmannsþjálfun: Guðmundur Hreiðarsson KÖRFUKNATTLEIKSDEILD Fjölnis í Grafarvogi hefur ákveðið að áfrýja dómi dómstóls KKÍ frá því í fyrradag þar sem ákveðið var að úrslit leiks Fjölnis og Hauka í 2. umferð úrvalsdeildar karla verði felld niður og leikurinn háður á ný. Í fréttatilkynningu frá Körfuknatt- leiksdeild Fjölnis segir: „Stjórn Körfuknattleiksdeildar Fjölnis ákvað á fundi sínum í gær að áfrýja dómi dómstóls KKÍ um að úrslit í leik Fjölnis og Hauka í Intersport- deildinni 7. október sl. skuli dæmd ógild og leikurinn leikinn að nýju. Í leikreglum um körfuknattleik stendur (46.12) Dómarar hafa vald til að úrskurða varðandi þau atriði sem ekki eru sérstaklega tiltekin í þessum reglum og í annarri grein (44.2.8) Ekki er hægt að að leið- rétta mistök eftir að dómari hefur undirritað leikskýrsluna. Báðar þessar greinar standa einar og sér og eru án fyrirvara. Með dómi sín- um hunsar dómstóll KKí báðar þessar greinar og breytir úrskurði dómara leiksins, úrskurði sem við og margir aðrir teljum að hafi verið réttur en ekki rangur. Með slíkum dómi er farið inn á nýjar brautir varðandi úrslit leikja með ófyr- irsjáanlegum afleiðingum. Í öllum íþróttum hefur það viðhorf gilt að ákvarðanir dómara, réttar eða rangar, eru hluti af leiknum.“ Fjölnir áfrýjar eikur KA og Fram einkenndist hvorki af fegurð né yndisþokka enda telja margir karlmennskan njóti sín hvergi betur en í hörðum handbolta. Víst var hraustlega tekið á því í KA- heimilinu í gær eins og rifnar treyjur, sprungnar varir, bólgin nef og blóðrisa hendur bera i um. Eitilharður varnarleikur var í fyr- mi og ágætis markvarsla en KA hafði bet- á endanum og sigraði með minnsta mun, 5. æði lið léku framliggjandi vörn og því var ið um návígi og átök. Leikurinn var í járn- til að byrja með og harkan sagði fljótt til Hörður Sigþórsson gerði til dæmis heið- ga tilraun til að rífa treyjuna utan af lmari Vilhjálmssyni og varð býsna vel ngt enda glitti nokkuð vel í fölt hold gegn- allstórt gat á blárri treyju. Ekki sáu dóm- rnir ástæðu til að refsa KA-manninum fyrir rifin. Hjálmar fékk síðan ansi óblíðar mót- ur þegar hann reyndi að prjóna sig í gegn- vörn KA á 10. mínútu. Eitthvað fóru fang- gð KA-manna í skapið á kappanum og ti hann þá olnbogum sínum lítillega en þau rif féllu í grýttan jarðveg og uppskar lmar rautt spjald. A náði nú tökum á leiknum og hafði yfir í leikhléi. Framarar mættu hins vegar u sprækir til seinni hálfleiks og skoruðu ú mörk í röð en heimamenn rifu sig lausa á Þegar á leið fjaraði sóknarleikur KA að tu út en Fram sótti í sig veðrið. Staðan yttist úr 24:19 í 24:22 og í lokin munaði að- einu marki þannig að KA slapp með ekkinn. Hafþór Einarsson varði vel í marki og þeir Hörður Sigþórsson og Halldór Sig- on voru mjög drjúgir í sókninni. Aðrir u sér lítt á strik en Ragnar Njálsson sýndi t tilþrif og vörnin var sterk á köflum. Hjá m var Stefán B. Stefánsson í aðalhlutverki Jóhann Einarsson sýndi góða takta. Jú, jú, þetta var allt í bróðerni eða svona að tu leyti. Það er alltaf gaman að spila á móti mlu félögunum. Þeir taka hressilega á því en tókum líka vel á þeim,“ sagði KA-maðurinn ólfur Axelsson. „Við misstum niður for- tið og þetta var bara einbeitingarleysi. mir leikmenn fundu sig ekki nógu vel og s vegna var mikið um skiptingar en þetta ðist að lokum, sagði Ragnar S. Njálsson. KA vann í kraftaleik  ELMAR Dan Sigþórsson knatt- spyrnumaður er genginn til liðs við Víking úr KA. Elmar, sem er 22 ára gamall, átti eitt ár eftir af samningi sínum við KA en hann komst að samkomulagi við forráðamenn fé- lagsins um að fá sig lausan. Elmar kom við sögu í 14 leikjum KA-liðsins á Íslandsmótinu í sumar og skoraði 1 mark.  HEIÐAR Helguson verður fjarri góðu gamni í liði Watford í dag þeg- ar liðið mætir Sheffield United í ensku 1. deildinni. Heiðar, sem hef- ur skorað sjö mörk í síðustu sjö leikjum liðsins, tekur út eins leiks bann en hann fékk að líta sitt fimmta gula spjald í leik Watford gegn Derby um síðustu helgi.  BRYNJAR Björn Gunnarsson verður hins vegar í byrjunarliði Watford á miðjunni. Ray Lewing- ton knattspyrnustjóri liðsins segir að Brynjar hafi leikið sérlega vel fyrir Watford á leiktíðinni og hann geti hugsað sér að hvíla Brynjar eina einustu mínútu, enda hann al- gjör lykilmaður liðsins.  PETRÚNELLA Skúladóttir körfuknattleikskona sem leikið hef- ur með Grindavík hefur ákveðið að ganga til liðs við Njarðvík. VF greinir frá þessu og eins að Njarð- vík fær til sín á næstunni serb- neskan leikmann. Sá heitir Vera Janic og leikur í stöðu bakvarðar.  MICHAEL Finley, sem skorað hefur 17 stig að meðaltali fyrir NBA-liðið Dallas Mavericks í fjór- um fyrstu leikjum tímabilsins, verð- ur frá keppni vegna ökklameiðsla í allt að tvær vikur. Dan Dickau mun taka sæti Finleys í leikmannahópi liðsins. Don Nelson, þjálfari Dallas, segir hins vegar að líklega verði Finley frá í mun lengri tíma en Finley er 31 árs og hefur skorað 18,6 stig að meðaltali á ferli sínum með Dallas.  NORSKA ríkisstjórnin hefur ákveðið að styðja ekki við bakið á umsókn borgarstjórnar Tromsø um Vetrarólympíuleikana árið 2014 þar sem kostnaður norska ríkisins yrði of mikill. Tromsø gerði ráð fyrir 88 milljarða kr. styrk frá ríkisstjórn- inni en norskir fjölmiðlar telja að upphæðin hefði orðið mun hærri – eða allt að 110 milljarðar.  BRUCE Grobbelaar, hinn skraut- legi markvörður Liverpool á árum áður, var í dag ráðinn þjálfari suður- afríska knattspyrnuliðsins Umtata Bush Bucks, aðeins nokkrum vikum eftir að hafa verið rekinn úr starfi hjá Manning Rangers í S-Afríku. Grobbelaar, sem er 47 ára, tekur við starfi Þjóðverjans Clemens Wester- hof, fyrrum landsliðsþjálfara Níger- íu.  JOHN Toshack var í gær ráðinn landsliðsþjálfari Wales í knatt- spyrnu. Hann leystir af Mark Hugh- es sem tók við knattspyrnustjórn hjá Blackburn fyrir skömmu. Tosh- ack hafði betur í kapphlaupi um starfið við Dean Saunders og Frakkann Phillipe Troussier.  BRASILÍSKI framherjinn Adriano sem leikur með Inter á Ítalíu var í gær úrskurðaður í tveggja leikja bann í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu. Adriano var rekinn af velli í leik Inter gegn Val- encia í síðustu viku eftir stympingar við einn liðsmanna Valencia. Adriano missir af tveimur síðustu leikjum Inter í riðlakeppninni sem eru á móti Werder Bremen og And- erlecht.  HENNING Fritz, markvörðurinn snjalli hjá Kiel, vinstrihandar stór- skyttan Christian Zeitz, Kiel, og Markus Baur, Lemgo, geta ekki leikið með Þjóðverjum á heimsbik- armótinu í handknattleik sem hefst á þriðjudag. Allir eiga þeir við meiðsli að stríða og þarf Heiner Brand landsliðsþjálfari því að tefla fram ungu og frekar óreyndu liði í keppninni. FÓLK Það voru ekki liðnar nema þrjármínútur af leiknum þegar Darrel Lewis í liði Grindvíkinga hafði fengið þrjár villur. Halda mætti miðað við það að spil- uð væri brjáluð vörn en svo var alls ekki. Grindvíkingar eru ekki að spila neina vörn þessa dagana og voru því án Darrel Lewis það sem eftir lifði þessa leikhluta. Sauðkrækingar höfðu frumkvæðið og áhugann í leiknum en Grindavík náði þó forustu fyrir lok fyrri hálf- leiks 51:48. Leikurinn var síðan í járnum í þriðja leikhluta og allt þar til tvær mínútur voru eftir í stöðunni 91:93. Þessi nauma forusta Tinda- stólsmanna var hrifsuð af þeim í einni sviphendingu. Grindvíkingar skoruðu næstu ellefu stig raunar og sigruðu 102:95. Tindastólsmenn voru inni í leikn- um allan tímann en hópurinn hjá þeim heldur magur en þeir börðust allan tímann með þá Bethuel Fletch- er, Svavar Birgisson og Axel Kára- son sem bestu menn. Hjá Grindvíkingum gladdi Guð- laugur Eyjólfsson áhorfendur með endurkomu sinni. Bestir voru þó Darrel Lewis og Páll Axel Vilbergs- son. „Vörnin hjá okkur var arfaslök en þetta voru þó tvö stig. Töluverður munur á þessum leik miðað við aðra slaka leiki varnalega séð. Nú héldum við þó góðum anda og baráttuþreki allan tímann. Tindastólsmenn komu tilbúnir til leiksins,“ sagði Kristinn Friðriksson, þjálfari Grindvíkinga, og fyrrum þjálfari Tindastóls, við Morgunblaðið eftir leikinn. Grindvíkingar voru sterkari TINDASTÓLSMENN voru einbeittir í byrjun leiks þegar þeir heim- sóttu í Röstina. Þeir héldu forustu lengstum í leiknum en Grindvík- ingar sigu fram úr á síðustu mínútum leiksins og höfðu sigur í úr- valsdeildinni í körfuknattleik, Intersportdeildinni, 102:95. Garðar Páll Vignisson skrifar Kristinn Friðriksson Morgunblaðið/Kristinn án Þór mundsson ar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.