Sunnudagsblaðið - 29.05.1966, Blaðsíða 7
HELfiAfflLSKLAIISTIIR
Klaustur var stofnað í Flatey
á Breiðafirði 1172, á dögum
Klængs Skálholtsbiskups Þor-
steinsonar 1152 — 1176. Var þar til
vígður ábóti Ögmundur Kálfsson,
ríkur höfðingi. Bendir ýmislegt
til að Þorsteinn Gyðuson ríkur
bóndi í Flatey á síðari hluta 12.
aldar hafi átt þátt í stofnun
klausturs í eyjunni og lagt til þess
íé.
Klaustur þetta var af kanúka-
reglu Ágústínusar, kennd við heil-
agan Ágústínus kirkjuföður (d.
430). Var reglan prestaregla og
voru kanúkar kallaðir „canonici
regulares” til aðgreiningar kanúk
um höíuðkirkna.
Búningur Ágústínusarkanúka
var svartur kufl með hvitri yfir-
kápu (kórkápu). Af páfabréfi frá
1458 er svo að sjá að á Helga-
felli hafi verið sú grein Ágúst-
inusarreglu, scm kennd er við
hinn heilaga Viktor.
Móðurklaustur hennar var við
París, getur þess prófessor Jón
Jóhansesson í íslendingasögu-
sinni, en hér að framan eru upp-
lýsingar frá honum um Viktors-
rcglu á Helgafelli. Telur Jón að
Þorlákur helgi hafi verið í hinum
fræga skóla reglunnar í París og
síðan sett Viktorsreglu í Þykkva-
bæ, þegar þar var sett kanoka-
setur. Klaustrið í Flatey mun
hai'a verið helgað Maríu og Jóni
postula, en Flateyjarkirkja var
Jónskirkja postula. Klaustrið var
í Flatey til 1184, og mun enn vera
til rústir þess, en þá var það flutt
að Helgafelli í Helgafellssveit
söguríku höfuðbóli og vel í sveit
sett miðsvæðis við Breiðafjörð.
Var fyrnefndur Ögmundur ábóti
til ársins 1187, talinn hafa drukkn-
að 1189. Hann var í biskupskjöri
með Þorláki helga Þórhallsyni
eftir Klæng biskup í Skálholti,
og sýnir það álit manna
á honum. í skipunai’bréfi Ögmund-
ar ábóta frá því um 1186, eru
þessi nöfn kanoka á Helgafelli:
tyjólfur, Ólafur og Guð'mundur.
Er ekki um marga klaustursmcnn
að ræða og varla um löglega
klausturstofnun að ræða eftir
kirkjulögum og sýnir þetta sjálf-
stæði íslcnzku kirkjunnar og að
hin almennu kirkjulög voru hér
ekki að öllu í gildi. Urðu munkar
og kanúkar aldrei fjölmennir í ís-
lenzkum klaustrum, en því áhrifa
meiri hver einstakur. Hins vegar
auðgúðust klaustrin skjótt að lönd
um og lausum aurum, urðu auð-
ugustu stofnanir hérlendis, aðrar
en biskupsstólarnir.
Varð Helgafellsklaustur annað
ríkasta hérlendis og mun því hér
á eftir allmikið verða rakið jarða
kaup klaustursins til fróðleiks og.
glögvunar í hagsögu landsins.
Æsa hin auðga á Hólmlátri á Skóg-
arströnd gaf jörðina Þrándastaði
Flateyjarklaustri um 1176 að tal-
ið er. Er hennar og Þórhalls manns
hennar getið í Hvamms-iSturlu
sögu.
NæSti ábóti Helgafellsklausturs
var Þorfinnur Þorgeirsson 1187 —
1216, sonur Þorgeii's lang-
höfða Þoi’finnsonar og Margrétar
Höskuldsdóttir læknls. Er svo að
sjá að hann hafi verið prestur
suður á nesjum eftir Guðmundar
sögu góða að dæma. Þá verður
þriðji ábótinn þar Ketill 1217—20
Hermundarson frá Gilsbakka Koð-
ránsson og Hallfríður Eunólfs-
dóttir prests og skálds Ketilssonar
biskups á Hólum Þorsteinssonar,
af glæsilegum höfðingjaættum,
frændi Kára ábóta í Þingeyrum,
sytursonur hans. Ketill var kape-
lán Páls Jónssonar Skálholtsbisk-
ups (d. 1211), og er álitið eða
talið fullvíst að hann hafi skrifað
sögu Páls biskups. Ef það er rétt
má ætla að Ketill hafi verið hinn
skörulegasti klerkur og mikið
glæsimenni. Einnig er getgáta
fræðimanna að hanri hafi skrifað
Laxdælu. Eftirmaður hans í ábóta-
séetiriu var Hallur 1221—25, sonur
Gizurar lögsögumanns í Haukadál
Hallsonar. Hallur var lögsögumað-
ur og hefðarklerkur, bróðir Magn
úsar Skálholtsbiskups og Þorvalds
prests í Hruna síðan priors í Viðey
föður Gizurar jarls og mágur
Hrafns Sveinbjarnarsonar. á Eyri.
Hann varð síðar ábóti að Þykkva-
bæ í Véri, og er hans lítið getið á
Helgafelli, þó er hans getið í með-
algöngu milli mága sinna Hrafns-
ALÞýlSUBLAÐIÐ - SUNNUDAGSBUdE>