Eintak

Tölublað

Eintak - 14.04.1994, Blaðsíða 24

Eintak - 14.04.1994, Blaðsíða 24
Það hefur verið sagt að augun séu spegill sálarinnar, en skyldu ekki sólgleraugun sem fólk velur til að hylja sig fyrir geislum sólar og augnaráði annarra ekki líka segja ýmislegt um þeirra innri mann? Þar sem sól fer ört hækkandi og tími sólgleraugnanna fer í hönd fór eintak á stúfana og skoðaði sólgleraugnaflóruna einn bjartan síðvetrardag og fékk nokkra aðila til að velta fyrir sér hvaða skilaboð sólgleraugun bera. 1 Hilmar Örn Noriega gleraugu sem fela viðkvæma sál. Leigu- bílstjórar í stórborgum myndu hiklaust svindla á fargjaidinu á hverjum þeim sem bæri svona gleraugu. Lárus Stoltur eigandi sólgler- augna sem hann keypti á risa, risa, risa útsölu íbás númerátj- án í Kolaportinu. Steingrímur Þessi fékk gleraug- un lánuð hjá pabba sínum. Hann er búinn að vera lengi að máta þau heima hjá sér og er líklegur til þess að taka það óstinnt upp ef maður hefur eitt- hvað við þau að athuga, jafnvel gefa manni á kjaftinn. Álitsgjafar LÁRUS HALLDÓRSSON þáttagerðarmaður, sést helst með sólgleraugu þegar hann situr undir stýri. EINAR ÖRN BENEDIKTSSON, poppari, á gleraugu sem dökkna I sól, brúkar annars einungis sólsjóngler- augu. STEINGRÍMUR EYFJÖRÐ, myndlistarmaður, verður grunsamlegur þegar hann setur uþp sólgleraugu. JÓN KALDAL, blaðamaður, hefur átt sömu sólgleraugun í nokkur ár. HILMAR ÖRN HILMARSSON, tónlistar- Steingrímur Mér sýnist þessi vera með gleraugu eins og maður fékk þegar maður fór að sjá þrívíddarbíómyndina Þrettán draugar sem sýnd var hér á landi fyrir allmörgum árum. 5 Lárus Þung tvöföld stálum- gjörð, sólgleraugu sérstaklega hönnuð fyrir atvinnumorðingja. Steingrímur Það er greinilega verið að fylgjast náið með ein- hverju. Svipurinn og sólgleraug- un eru eins og lífverðir þjóð- höfðingja bera gjarnan. Og eins og þeir gæti hann allt eins verið með litla talstöð i eyranu sem ekki sést. Hann er ekki ánægð- ur með það sem hann heyrir. Einar örn I rauninni erþetta ell- efu ára stúlka úr Árbænum sem keypti sér grímu með öllu fyrir grímuballið. Jón Meitlaður svipurinn, sól- gleraugun og vel snyrt yfirvara- skeggið, þessi er örugglega mikill harðjaxl. Hann gæti verið bandarískur leyniþjónustumað- ur en er líklega íslenskur lög- regluþjónn á frívakt á leið út i sjoppu að kaupa sér nýjustu bókina um Morgan Kane. Hilmar Örn FBI gleraugu, sjást ekki nema í aðalstöðvunum í Langley og í íslenskum rútubíl- um. Einar Örn Það hafa örugglega margir minnst á þetta, en mundu að sólin skín bara ein- stöku sinnum og þá ert þú bara líkur Erni Árna. Mæli með betra sniði og minni sól. Jón Ef myndin prentast vel sést að það stendur ekki Ray- Ban á gleraugunum heldur Kay-Ban. Hann hefur sjálfsagt keypt þau á bensínstöð. Þessi maður er örugglega vörubílstjóri. Ef hann keyrir ekki vörubíl þá ekur hann annað hvort sendibíl eða vinnur á skurðgröfu. Það eru engir aðrir en atvinnubílstjórar og gröfumenn sem brúka þessa tegund af sólgleraugum. 2 Einar Örn Afsakið, en hvar er vinkona mín? Ég sé ekkert með þessum dökku gleraugum. Jón Sumir eru bara með sól- gleraugu afþvíþað á að vera töff, þessi er hálf kuldalegur og hefði frekar átt að vera skyn- samur og setja á sig trefil eins og kærastan. Hilmar örn Hann notar gleraug- un til að breiða yfir áhyggjur. Þau virka bara ekki því áhyggj- urnar eru farnar að breiðast út fyrir gleraugnasvæðið. Ef hann losar ekki um þetta þarf hann fljótlega að fá sér Yoko Ono special gleraugu. 3 Einar Örn Minn maður. Sólin skín og burt með hárið. Gler- augun lítil ístíl við hárið og hækkandi sól. Lárus Týpiskur töffari sem gengur örugglega um íjafn litl- um nærbuxum. Hilmar Örn Felugleraugu fyrir þann sem segist ekkert hafa að fela. maður, er aldrei með sólgleraugu. 24 FIMMTUDAGUR 14. APRlL 1994

x

Eintak

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.