Vikublaðið - 29.10.1993, Blaðsíða 9
VIKUBLAÐIÐ 29. OKTOBER 1993
Meniiinjyln
9
Sá er yður gaf að hefja
helga hluti
Islensk Hómilhibók
Fornar stólrœðnr
Útgefendur dr. theol. Sigurbjöm
Einarsson, Guðrún Kvaran dr.
phil. og Gunnlaugur Ingólfsson
cand. mag.
Hið íslenska bókmenntafélag
1993. 302 bls. auk inngangs.
Síðla árs 1965 var ég staddur í
Kaupmannahöfri, og þá at-
vikaðist svo að ég stóð á götu-
horni að bíða eftir sporvagni. Eg
skiinaði auðvitað í kringum mig
þegar mér fór að leiðast biðin, og
sá þá handan götunnar ofurlitla
fornbókaverslun í kjallara. Eg gekk
þangað af rælni og spurði af-
greiðslumanninn hvort hann hefði
einhverjar íslenskar bækur eða
bækur sem hann kynni ekki skil á.
Maðurinn sagðist ekki vita til þess
að hann ætti neina íslenska bók.
Ein gömul bók væri þarna sem
kannski tengdist Islandi, en reynd-
ar væri titilblaðið á sænsku. Hann
rétti mér bók í snjáðu skinnbandi,
sem var meira að segja farið að
springa, og hjartað í mér tók kipp
þegar ég las á titilblaði: Homiliu-
Bók. Jslándska Homilier efter en
handskrift frán tolffe árhundradet
utgifha av D:r Theodor Wisén.
Lund 1872. Þarna hélt ég skyndi-
lega á einhverri mestu gersemi ís-
lenskrar bókmenntar, sjálfri Hóm-
ilíubókinni, sem hafði verið gefin
út í þetta eina sinn í aðeins 200 ein-
tökum. Maðurinn vildi fá 30 krón-
ur fyrir bókina. Eg gekk út líkt og í
vímu. Síðan hefúr þessi bók fylgt
mér og ég hef lesið hana margsinn-
is, bæði mér til ánægju og hugar-
léttis og vegna fræðastarfa.
Iyoksins gefin út á
Islandi
Nú er þessi bók loksins komin út
á Islandi í fyrsta sinn, í aðgengi-
legri útgáfu öllum almenningi, og
er ekki aðeins gleðiefhi þeim sem
til hennar þekkja og kunna að meta
hana, heldur sætir beinlínis mikl-
um tíðindum. Hómilíubókin er
elsta bók íslensk sem varðveist hef-
ur, rituð seint á 12tu öld eða um
aldamótin 1200, 102 skinnblöð,
bundin í selskinn. En efhi bókar-
innar er talið enn eldra, að minnsta
kosti að hluta til. Skrifari Hómilíu-
bókarinnar hefur því afritað eldri
texta. Enginn veit hver ritaði hana
né hverjir upphafsmenn efnis
hennar voru né
hvar hún var niður-
komin þar tif hún
var seld til Svíþjóð-
ar seint á 17du öld
og hefur síðan ver-
ið varðveitt í Kon-
unglegu Bókhlöð-
unni í Stokkhólmi,
auðkennd sem
Perg. 4to nr. 15.
Orðið hómilía er
grískt tökuorð í lat-
ínu og var til forna
algengt heiti á ræðu
kennimanns er
hann skýrði fyrir
söfnuði guðspjall
eða aðra ritningar-
texta eða trúaratriði
eða kirkjuhátíðir.
Þannig geymir
þessi forna bók stólræður, nokkrar
fræðslugreinar og bænir. Hómilíu-
bókin hefur verið eins konar lestr-
arbók handa prestum, þeim til
stuðnings við predikanir. Ræðurn-
ar eru flestar miðaðar við kirkjuhá-
tíðir ársins, en þeim er ekki raðað í
tímaröð og fyrir kemur að tvær
ræður eru um sömu hátíð. Þannig
má nefha jóf, hvítasunnu, upp-
stigningardag, skírdag, páska,
þrettándann, kyndilmessu, allra-
heilagramessu o. fl. Þá eru útskýr-
ingar á helgi sunnudagsins, ýmsum
trúaratriðum og kirkjulegum fyrir-
bæruin svo sem á föstu, trúarjátn-
ingunni, bæninni Faðir vor. Loks
er að nefha bænir, t.d. bænir til
Krists og Maríu guðsmóður.
Hvaða erindi á þessi
bók nú?
Ég sagði hér að framan að útgáfa
þessarar bókar sætti tíðindum. Og
þá kann einhver að spyrja hvaða er-
indi þessi eldgamla skræða um úr-
elta trúarsiði eigi við okkur nú-
tímamenn.Það erindi er að mínu
viti tvöfalt.
Annar þáttur þess erindis felst í
ari gömlu bók, „og er sá íslenzkur
rithöfundur sem ekki hefur þaul-
lesið hana, litlu betur undir starf
sitt búinn en sá prestur sem enn á
ólesna fjallræðuna".
Fræðsluaðferð Hómilíubókar-
innar er einkum fólgin í táknræn-
um útskýringum hinna ýmsu fyrir-
bæra. Grípum til dæmis niður í
umfjöllun um helgi krossins (bls.
52-53): „Höfuð Krists merkir guð-
dóm hans, en fætur manndóm, því
að höfuð horfði til himins, en fætur
niður til jarðar, svo sem guðdómur
kom af himni og tók manndóm á
jörðu. Austur merkir upprisu hans,
en vesmr dauða hans, því að sól
rennur upp í austri, en sest í vestri.
Höfuð Krists horfði ausmr, en fæt-
ur vesmr, því að manndómur hans
tók dauða, en guðdómur efldi hann
til upprisu."
Málið er oft myndrænt og sýnir
hugmyndaauðgi og tilfinningu fyr-
ir myndmáli, sem oft nálgast ljóð-
ræna tjáninu. Dæmi úr umfjöllun
um uppstigningu Drottins (bls.
26): „Tvo vængi skulum vér fá oss
til heimfarar með Guði: Vér skul-
um unna honum og virða hann
Likami heitir einn, inn óœðsti htutur mannsins oq inn ysti. En sá heitir önd, er beeði er innri oq ceðri.
En sá heitir andi, er miklu er æðstur oq yöfoastur oq innstur. Likaminn er sýnilequr htutur, en öndin er
ósýnitey. Hans yróði oq kennisemi, beryiny oq itminy, sýn oy heyrn, þeir htutir attir eru af öndinni hon-
um qefnir. Oq attt tif hans er af hennar duynuðum oq aft oq hrcerinqar. En þau eru bceði eitt kyköendi
oq eru köttuð inn ytri maður. Þi/i að þótt hún sé ósýnitey oq i þeirra htuta tötu, er andteyir eru, þá er þó
hún þess eins áóita, er tikamteyt er oy munúðsamteyt, en einskis þess, er yuðdómteyt er. Inn þriðji htut-
ur heitir andi, sá er miktu yöfyastur oq innstur oy eeðstur er i manninum. Sá qefur huykócemni oy skitn-
iny, dómspekt oy minni, mát oy skynsemi, ncemteik yuðstrúar oy sjátfrceði manninum. Hann er kattað-
ur inn innri maður oq enqitt. Honum er á hendi fótyið forráð atts mannsins.
Greinarhöfundur, Njörður P.
Njarðvtk, með Hómilíubókina sem
hann keyptifyrir 30 krónur í
danskri fombókaverslun.
Mynd: Ól.Þ.
að gefa fé sín fyr Guðs sakar þurf-
öndum, en enn er æðra að vilja ekki
eiga og una við það“ (bls. 15); „Sá
á, er ástina á, en sá er hver öreigi,
er hcnnar missir“ (bls. 175).
Heimsmynd -
trúarviðhorf
Hinn þátmr þess erindis, sem
þessi forna bók á við okkur nútírna-
menn, er fólginn í því trúarvið-
horfi, sem þar birtist. Það vill
stundum gleymast að miðalda-
menning okkar var rómversk-kaþ-
ólsk. Þeir menn sem söfnuðu
eddukvæðum, rimðu Islendinga-
sögur, Smrlungu og önnur fornrit
frá gullöfd íslenskrar bókmcnntar
vom krismir menn. Og Hómilíu-
bókin birtir okkur þann trúar-
grundvöli, sem var boðaður fólki á
12m og 13du öld. Hér má nema
þann boðskap, sem hlýmr að hafa
mótað lífsviðhorf og heimsmynd
þjóðar okkar um þær inundir er rit-
öld íslensk hófst fyrir alvöru. Það
segir okkur margt um hugsunar-
hátt manna á þeim tíma. Er við les-
um íslendingasögur, sem gerast í
námunda við aldamótin 1000, þá
verðum við að muna að þær em rit-
aðar meira en 200 ámm síðar og
sýna því viðhorf 13du aldar manna.
Forvimilegast af öllu hefur mér
fundist sú mynd sem Hómilíubók-
in birtdr af innri gerð mannsins og
sýnir djúpa mystíska skynjun (sjá
rammaklausu). Þar kemur ljóslega
fram hversu fom og áleitin er sú
glíma sem maðurinn á í til að reyna '
að skilja sjálfan sig. Hómilíubókin
er því einhver allra merkasta bók
sem íslensk hugsun og íslensk
mnga hefur skapað. Þar rætist
kannski það sem segir á einum stað
í bókinni: „... og þess bið eg, að sá
er yður gaf að hefja helga hluti, sá
láti yður vel til loka leiða“ (bls. 19).
Njörður P. Njarðvík.
sjálfu málinu, tungutakinu. Eins og
áður er getið, er þetta elsta varð-
veitta bók íslensk. Hún veitir því
dýrmæta vimeskju um mngutak og
ritmál, sem er eldra stig en sjá má í
íslendingasögum eða Sturlungu.
Málfar bókarinnar er einkar vand-
að og fagurt, svo fagurt að það er
nautn að lesa hana þess eins vegna,
þótt ekki sé beinlínis hugað að efhi
og innihaldi. Fræg eru þau ummæli
Jóns Helgasonar, að óvíða flói
lindir íslensks máls tærar en í þess-
framar en sjálf oss. Hinn
er annar vængur, að hvert
vort skal unna öðm sem
sjálfu sér. Engi má hefjast
langt frá jörðunni með
einn væng. Af því skulum
vér unna bæði Guði og
mönnum." Og víða em
málsgreinar svo hnitmið-
aðar að nálgast spakmæli:
„... meiri vegur er að sýna
hin besm dæmi en eftir að
glíkja" (bls. 5). „Gott er
AUGLYSING
UM INNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RIKISSJÓÐS
Kjörskrá Garöabæjar
Kjörskrá vegna kosninga um sameiningu Garða-
bæjar og Bessastaðahrepps, sem fram eiga að fara
20. nóv. 1993, mun liggja frammi almenningi til sýn-
is á bæjarskrifstofu Garðabæjar, Sveinatungu vA/íf-
ilsstaðaveg, frá og með 27. okt. 1993.
Kjörskrá mun liggja frammi til kjördags.
Kærufrestur til bæjarstjómar vegna kjörskrár rennur
út kl. 12.00 á hádegi þann 6. nóvember 1993.
Bæjarstjórinn í Garðabæ.
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ*) Á KR. 10.000,00
1983- 2.fl. 1984- 3.fl. 1988-3.ÍI.D 5 ár 01.11.93-01.05.94 12.11.93 - 12.05.94 10.11.93 kr. 61.289,80 kr. 71.329,10 kr. 21.117,70
*) Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt
frammi nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, október 1993.
SEÐLABANKIÍSLANDS