Lesbók Morgunblaðsins - 09.04.2005, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 09.04.2005, Blaðsíða 8
8 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 9. apríl 2005 Þ að er hinum, honum Borges, sem dettur í hug ýmislegt,“ skrifaði Argentínumaðurinn Jorge Luis Borges í stuttum texta sem ber yfirskriftina „Borges og ég“. Þar gerði höfundur tilraun til að greina á milli síns persónulega sjálfs – þess sem fór í gönguferðir um Buenos Aires, þótti gaman að stundaglösum, landakortum, upp- runaorðabókum og kaffibragði – og þeirrar op- inberu persónu sem sótti um prófessorsstöðu og skrifaði bókmenntir. En tilraunin var dæmd til að mistakast þar sem hinn opinberi Borges sölsaði stöðugt undir sig líf og áhugamál hins.1 Texti Borgesar leitaði á mig í ársbyrjun 1999 þegar ég skrifaði stuttan texta fyrir sýning- arskrá Bláma, málverkasýningu Einars Garibalda í Listasafni Reykjavíkur.2 Öll verkin á sýn- ingunni – stórir blámálaðir tréf- lekar – tengdust Jóhannesi S. Kjarval með einum eða öðrum hætti. Á einum þeirra var endurgerð á undirskrift listamanns- ins, á öðrum mátti lesa stutt æviágrip hans úr alfræðiriti, á þeim þriðja voru tölurnar 1885– 1972, fæðingarár og dánarár hans. Tvö verk sýndu þekktar andlitsmyndir af Kjarval, ann- ars vegar sjálfsmynd og hins vegar ljósmynd, en í báðum tilvikum skyggðu óviðkomandi form (hringur, ferningur) á sjálft andlitið. Mér virtist sem þessi og fleiri verk á sýningunni minntu á að eitt sinn hefðu verið til tveir menn, ein- staklingurinn Jóhannes og listamaðurinn Kjar- val. Ekki væri nóg með að sá síðarnefndi hefði smám saman lagt undir sig líf hins, heldur hefði Kjarval öðlast sjálfstætt líf. Hann væri orðinn að sjálfstæðu tákni eða vörumerki sem ýmsir og ólíkir aðilar taka til handargagns og ljá þá merkingu sem þeim sýnist henta hverju sinni. Af og til á þeim tíma sem liðinn er frá sýn- ingu Einars á Kjarvalsstöðum hef ég hugsað til mynda hans og hugmynda um ímynd og örlög listamannsins í samtímanum. Sú þróun sem hann fjallar um hefur haldið áfram og verður á vissan hátt öfgafyllri með hverju árinu sem líð- ur. Og að sumu leyti virðist mér Einar hafa verið forspár um þá þróun. Ég get nefnt fáein dæmi. Andlitsmyndin Andlit af rosknum manni prýddi forsíðuna á tekjublaði Frjálsrar verslunar í ágústmánuði árið 2004. Fyrir ofan það stóð með stórum stöf- um: „Tekjur 2400 Íslendinga“. Fyrir neðan var birt auglýsing frá íslensku fjármálafyrirtæki. Þetta eintak tímaritsins vakti mikla athygli þegar það kom út; auglýsingar með myndum af forsíðunni birtust í dagblöðum, auk þess sem hún hékk víða uppi í söluturnum og verslunum. Um tveggja vikna skeið leið vart sá dagur að ég horfðist ekki í augu við þennan roskna mann, með fléttaða stráhattinn á höfðinu, og velti fyrir mér hvort ástæða væri til þess að kaupa eintak og forvitnast um tekjur ýmissa nafntogaðra einstaklinga árið á undan. Mér þótti ekki síður forvitnilegt þetta stefnu- mót Frjálsrar verslunar við Kjarval. Hvernig stóð á því að andlit hans var nothæf mynd- skreyting fyrir tekjur Íslendinga? Með hvaða hætti tengdist hann þeim fjárhagslegu upplýs- ingum sem útsendarar tímaritsins höfðu sigtað úr skattskrám sýslumannsembætta víða um land vikurnar á undan? Nærtækasta skýringin var sú að framan á Frjálsri verslun birtist eft- irmynd af hluta 2000 króna seðilsins íslenska en andlitsmyndin af Kjarval er sem kunnugt er á framhlið hans. Til að tákna tekjur Íslendinga hefði tímaritið allt eins getað birt myndina af Jóni Sigurðssyni sem er framan á 500 króna seðlinum, svo dæmi sé tekið. Í báðum tilvikum hefði táknmiðið verið íslenskur peningaseðill. Frá þessum sjónarhóli er villandi að halda því fram að andlit Kjarvals hafi verið á forsíðu Frjálsrar verslunar. Nær er að líta svo á að þar hafi birst tákn sem líkist andliti hans á tilteknu æviskeiði en hafði verið slitið úr tengslum við fyrirmynd sína, ekki bara einu sinni heldur tvisvar, og fyllt nýrri merkingu í bæði skiptin. Ráðgátan um veru Kjarvals á forsíðu Frjálsrar verslunar snýst í raun um þá ákvörð- un Seðlabanka Íslands að gera hann að efniviði á peningaseðli árið 1995. Sú ákvörðun á sér for- sögu, eins og ég hef reyndar rakið á öðrum vettvangi.3 Líkt og í flestum löndum heims skapaðist snemma sú hefð að birta andlits- myndir af fyrirfólki framan á íslenskum seðl- um. Þeirra á meðal voru Danakonungur, Jón Sigurðsson, Jón Eiríksson, Magnús Stephensen og Tryggvi Gunnarsson. Seinna bættust Ing- ólfur Arnarson, Hannes Hafstein og Einar Benediktsson í þennan hóp. Með núverandi seðlaröð, sem hafin var útgáfa á árið 1981, var hins vegar ákveðið að láta seðlana rekja menn- ingarsögu íslensku þjóðarinnar. Upphaflega var lögð mest áhersla á bókmenntir (Arn- grímur Jónsson, Guðbrandur Þorláksson og Árni Magnússon á 10, 50 og 100 krónum) en á síðari árum hafa byggingarlist (kirkja Brynj- ólfs Sveinssonar í Skálholti á 1000 krónunum), hannyrðir (útsaumur Ragnheiðar Jónsdóttur á 5000 þúsund krónunum) og málaralist (verk Kjarvals á 2000 krónunum) fengið sambæri- legan virðingarsess. Val Seðlabankans á Kjarval var því öðrum þræði yfirlýsing um gildi íslenskrar myndlistar fyrir menningarsöguna. Líkt og biskupsfrúin á 5000 krónunum er hann fulltrúi fyrir ákveðinn hóp. Í því ljósi er það ekki andlit Kjarvals sem blasir við á 2000 krónunum heldur ásjóna hins íslenska listamanns sem er orðinn arftaki land- námsmanna, konunga, biskupa, handritasafn- ara, stjórnmálaforingja, bankastjóra, athafna- skálda og hannyrðakvenna. Það breytti ekki í stórum dráttum merkingu seðilsins þótt þar væri mynd af öðrum þekktum íslenskum lista- manni, til dæmis Einari Jónssyni myndhöggv- ara eða Ásgrími Jónssyni málara. En jafnvel þótt við lítum svo á að það sé Kjarval sem birtist á 2000 krónunum er hollt að hafa í huga að sú mynd af honum sem við sjáum þar er stílfærð eftirmynd ljósmyndar sem Jón Kaldal tók af listamanninum á efri ár- um. Þeir sem hönnuðu seðilinn höfðu úr fjöl- mörgum öðrum myndum að velja, þar á meðal einstöku safni ljósmynda sem Kaldal hafði tek- ið af Kjarval á ólíkum æviskeiðum. Hægt er að fá hugmynd um þá myndaröð í annarri útgáf- unni af ævisögu listamannsins eftir Thor Vil- hjálmsson en þar eru birtar í tímaröð átta ljós- myndir, auk þess sem tvær til viðbótar prýða kápu bókarinnar. Þeir sem fletta ævisögunni geta fylgst með því hvernig Kjarval breytist úr ungum snyrtilegum og alvarlegum heimsborg- ara í hálfskeggjaðan útilegumann, bóhem og lífskúnstner, þar til hinn lífsreyndi öldungur með fléttaða stráhattinn stígur loks fram á sjónarsviðið. Auk þess að segja með sínum hætti ævisögu Kjarvals er myndaröðin hluti af þroskasögu ljósmyndarans Jóns Kaldals sem náði með aldrinum sífellt betri tökum á list sinni. Mér skilst að Kaldal hafi retúserað sumar þessara Kjarvalsmynda en með þeirri aðferð mátti til dæmis eyða hrukkum, láta óþæga hárlokka hverfa og ýkja skugga, en ljós og skuggar leika jafnan stórt hlutverk í portrettmyndum hans. Myndin af Kjarval með stráhattinn er örugg- lega einn hápunkturinn á ferli ljósmyndarans. Ólíkt öðrum myndrænum útfærslum hans af þessu sama viðfangsefni er listamaðurinn hér virðulegur án þess að glata alþýðleika sínum, dularfullur án þess að verka fráhrindandi, rosk- inn án þess að virðast hrumur. Skugginn af nef- inu og hattbarðinu hylur næstum því hálft and- litið, þar á meðal annað augað, og kann myndin að vekja viss hugrenningatengsl við hinn ein- eygða og alvitra Óðin. Í annan stað opinberar myndaröð Kaldals með hvaða hætti Kjarval setti sjálfan sig á svið í gegnum tíðina. Meðal leikmuna í þeim gjörn- ingi var höfuðfatið en í fjölskyldu minni hefur einmitt varðveist saga sem varpar ljósi á það. Laust eftir síðari heimsstyrjöldina kom lista- maðurinn einn eða tvo vetur vikulega í hádeg- inu í heimsókn til afa míns og ömmu á Skóla- vörðustíg 21a og snæddi mjólkurgraut. Einn laugardaginn hafði hann meðferðis nýjan hatt, svo nýjan að hann var enn í plastinu. Faðir minn, sem var á barnsaldri, hafði orð á því eftir matinn að þetta væri fínn hattur. „Finnst þér það, já?“ svaraði gesturinn, tók plastið utan af hattinum og sagði að pabbi mætti eiga það. Því næst lagði hann hattinn á eldhúsborðið, þrýsti kúfnum niður með báðum höndum, rúllaði hatt- inum síðan saman eins og sunddóti og stakk í handarkrikann. Pabbi fylgdist forviða með að- förunum og spurði málarann hvers vegna í ósköpunum hann færi svona með nýjan hatt. „Ég týndi þeim síðasta sem ég átti,“ svaraði Kjarval og kvaðst vilja tryggja að það færi ekki eins fyrir nýja hattinum. Svo vikið sé aftur að forsíðumynd Frjálsrar verslunar ætti að vera ljóst að þar birtist tákn- mynd sem er afurð endurtekins úrvals, tákn- mynd sem fjölmargir aðilar hafa haft hönd í bagga með að móta. Í fyrsta lagi skapar lista- maðurinn sjálfur ímynd sína frá degi til dags, allt lífið. Hún tekur breytingum frá einum tíma til annars, einum hatti til annars. Jón Kaldal skráir gróft yfirlit þessara breytinga en ljós- myndir hans eru um leið sjálfstæð listaverk, mótaður veruleiki. Úrval Kjarvalsmynda Kal- dals er síðan valið til birtingar í bók Thors Vil- hjálmssonar um listamanninn og ein þeirra loks valin til að prýða 2000 króna seðilinn. Sú mynd fær þar nýja áferð og er sett í slíkt samhengi að kápuhönnuður Frjálsrar verslunar tekur hana til handargagns fyrir tekjublaðið 2004. Spurningin er hvort þar sé nokkuð eftir af hin- um upprunalega Jóhannesi S. Kjarval, hvort nokkuð samband sé á milli mannsins sem kom í heimsókn á Skólavörðustíg 21a til að borða mjólkurgraut og peningaheims 21. aldarinnar? Einar Garibaldi vakti upp hliðstæðar spurn- ingar með endurgerð sinni á umræddri Kjar- valsmynd árið 1999 nema hvað þar fór ekki á milli mála hve gjörólíkar frummynd og eft- irmynd voru orðnar. Baktryggingin Enda þótt líta megi svo á að ýmsir íslenskir listamenn hefðu getað prýtt 2000 króna seð- ilinn, án þess að það breytti beinlínis táknrænni merkingu hans, var valið á Kjarval á ýmsan hátt viðeigandi, ekki síst í ljósi þess að hann hafði á sínum tíma ákveðnar hugmyndir um ís- lenska seðlaútgáfu. Í áðurnefndri ævisögu Kjarvals segir Thor Vilhjálmsson svo frá: „Kringum 1930 var verið að tala um erfiðleika í fjármálum samanber: nú er þröngt í búi hjá smáfuglunum. Sagan segir að Kjarval hafi ekki viljað láta sitt eftir liggja og stakk upp á því við ráðherra að bankinn gæfi út eins mikið af seðl- um og menn þyrftu. Og þeir þurfa að vera svo fallegir að þeir verði eftirsóttir erlendis, og það sé rétt að prenta nóg af þeim. Hinn svarar að það þurfi að tryggja seðla með gulli eða ein- hverju slíku þegar bankarnir gefi þá út. Þér skuluð nota íslenzkt grjót sem baktryggingu, sagði Kjarval.“4 Baktryggingin sem þeir Kjarval ræddu þarna um tengist því að mynt var fyrr á öldum vegin og metin sem málmur (gull eða silfur) og stóð verðgildi myntarinnar í beinu sambandi við gangverð efniviðarins. Seðlaútgáfa var hins vegar lengi vel tengd gullforða viðkomandi rík- is, svokölluðum gullfæti, sem jafnan var í vörslu seðlabanka. Taldist gullfótur virkur ef unnt var að leysa útgefna seðla með gulli í ákveðnu, föstu hlutfalli. Með árunum, eftir því sem hlutfall áþreifanlegs gullfótar lækkaði, jókst gildi þess sem ég hef viljað kalla tákn- rænan gullfót seðlaútgáfunnar.5 Mynd Dana- konungs á fyrstu íslensku seðlunum var til dæmis ætlað vekja traust á gjaldmiðlinum, staðfesta gildi seðlanna í viðskiptum. Undir- skriftir seðlabankastjóra á nýrri seðlum gegna svipuðu hlutverki. Hér skiptir þó ekki minna máli sá efnislegi veruleiki sem vísað var til á seðlunum, einkum á bakhliðinni. Á eldri seðlum mátti þar á meðal annars finna myndir af fjár- „Móðgunin við a Um eftirtekjur Kjarvals Á samsýningu í Nýlistasafninu í febrúar gat að líta málverk eftir Einar Garibalda af Borgarfirði eystri. Þeir sem fylgst hafa með ferli Einars síðustu ár tengja þessa mynd væntanlega röð verka þar sem fyrirmyndir eru sóttar í Íslandskort Landmælinga rík- isins. Ekki er jafnaugljóst að Einar tekur hér upp þráðinn frá eldri myndaröð sem helguð var ímynd Jóhannesar S. Kjarvals. Eftir Jón Karl Helgason tjonbarl@ hotmail.com Í leit að landslagi Úr myndaröð Einars Garibalda þar sem fyrirmyndin er bæklingur Kjarvalsstofu.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.