Morgunblaðið - 04.01.2005, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 04.01.2005, Blaðsíða 1
Vel loðnir og hlýir Loðfeldir eru komnir í tísku á nýjan leik | Menning Fasteignir | Veltuaukningin í fyrra var 41%  Meistaraverk óþekktar- ormsins Íþróttir | Heiðar undir smásjánni hjá Charlton Handbolta- landsliðið æfir í Svíþjóð  Hrifinn af árangri Mourinho Fasteignablaðið og Íþróttir í dag SÆNSK stjórnvöld óskuðu eftir því síðdegis í gær að Íslendingar veittu frekari aðstoð við að koma slösuðum Svíum heim frá Taílandi. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra varð við þeirri beiðni. Flugvél Loftleiða Icelandic er væntanleg til Stokkhólms í kvöld frá Taílandi með 58 slasaða og sjúka Svía. Eru margir þeirra alvarlega veikir og slasaðir. Þá eru nokkrir aðstandendur hinna slösuðu með í för. Vélin mun halda aftur til Taí- lands á morgun, án viðkomu hér á landi. Sami hópur íslenskra sérfræðinga og var í fyrri ferðinni mun fara í seinni ferðina. Er þar um að ræða lækna, hjúkrunarfræðinga og björg- unarfólk. Flugvélin, sem er af gerðinni Boeing 757-200, kom til Bangkok í gær. Áætlað var að hún legði af stað til Svíþjóðar klukkan 5 í morgun að íslensk- um tíma, en þá var hádegi að staðartíma./26 Morgunblaðið/Sverrir Íslenska hjálparsveitin gengur frá borði flugvél- arinnar á flugvellinum í Bangkok í gær. Tvær ferðir til Taílands SÖFNUNARSTARF fyrir fórnarlömb flóðanna í Asíu hefur gengið vel hér á landi en hátt í 70 millj- ónir króna hafa safnast í gegnum íslensk hjálp- arsamtök að sögn talsmanna. Rauði kross Íslands hefur safnað yfir 65 milljónum króna og Hjálp- arstarf kirkjunnar hefur safnað ríflega þremur milljónum króna. Vinir Indlands hafa staðið fyrir söfnun vegna hamfaranna við Indlandshaf. UNICEF, Barna- hjálp Sameinuðu þjóðanna, tekur sömuleiðis þátt í viðamikilli neyðaraðstoð í Asíu. UNICEF telur að einn þriðji fórnarlambanna hafi verið börn og fjöldi barna hafi misst foreldra sína. Auk þess hefur Barnaheill staðið fyrir söfnunum víða um heim, en samtökin hafa unnið að því að dreifa hjálpargögnum á hamfarasvæðunum. Hátt í 70 milljónir króna hafa safnast ENN er hægt að styrkja hjálparstarfið sem á sér stað í Asíu í kjölfar flóðanna annan dag jóla. Rauði kross Íslands er með söfnunarsímann 907- 2020 og dragast 1.000 krónur af símreikningi þeirra sem hringja í númerið. Einnig má leggja fé inn á söfnunarreikninginn 1151-26-12 með kt. 530269- 2649 og með greiðslu af kreditkorti á www.red- cross.is. Hjálparstarf kirkjunnar er einnig með söfn- unarsíma en númerið er 907-2002. Þúsund krónur dragast af símreikningi viðkomandi þegar hringt er í númerið. Einnig má leggja inn fé á söfnunarreikn- inginn 1150-26-21000 með kt. 450670-0499. Enn tekið á móti framlögum SAMEINUÐU þjóðirnar hafa fengið metfjárframlög vegna hjálparstarfsins í Asíu eftir nátt- úruhamfarirnar 26. desember en erfiðlega hefur gengið að flytja hjálpargögn á hamfarasvæðin. Óttast er að liðið geti nokkrar vikur þar til hjálpargögn berist til allra sem þurfa á hjálp að halda í Aceh-héraði á indónes- ísku eyjunni Súmötru. Áætlað er að rúmar 1,8 millj- ónir manna þurfi á neyðaraðstoð að halda, þar af um milljón í Indónesíu og 700.000 á Sri Lanka. Talið er að um fimm millj- ónir manna hafi misst heimili sín í hamförunum. Vonast er til að hægt verði að koma hjálpargögnum til allra nauðstaddra íbúa Sri Lanka inn- an tveggja til þriggja daga. Hjálparstofnanir segja hins vegar að mun lengri tíma taki að flytja hjálpargögn til Aceh-hér- aðs þar sem manntjónið var mest. Líklegt er að nota þurfi þyrlur til að flytja hjálpargögn á afskekkta staði í héraðinu þar sem vegir eru enn ófærir og á flestum staðanna er ekki hægt að lenda stórum flugvélum. Hafnir eyðilögðust í flóðbylgjunum og víða er skortur á geymsluhús- næði. „Ég get aðeins líkt þessu við Evrópu eftir síðari heimsstyrj- öldina,“ sagði framkvæmdastjóri ástralskrar hjálparstofnunar og kvaðst telja að endurreisnar- starfið á hamfarasvæðunum tæki áratugi. Sameinuðu þjóðirnar hafa fengið um 1,5 milljarða dollara, sem samsvarar 92 milljörðum króna, á einni viku í fjárframlög frá ríkjum heims vegna hjálpar- starfsins á hamfarasvæðunum við Indlandshaf. Embættismenn samtakanna segja að Sameinuðu þjóðirnar hafi aldrei áður fengið svo mikið fé til hjálparstarfa. Á einni viku hafi samtökunum bor- ist álíka fjárhæð og þau fái venju- lega til umráða á heilu ári til hjálparstarfa. Auk þess hafa hjálparstofnanir á borð við Rauða krossinn fengið mikið fé frá einstaklingum og fyrirtækjum. George W. Bush Bandaríkjaforseti og tveir for- verar hans í embættinu, George Bush eldri og Bill Clinton, hvöttu í gær Bandaríkjamenn til að láta fé af hendi rakna til hjálparstofn- ana. Bush forseti fól föður sínum og Clinton að stjórna fjársöfnun í Bandaríkjunum. Börnum rænt? Embættismenn Sameinuðu þjóðanna sögðu í gær að talið væri að yfir 150.000 manns hefðu látið lífið í ellefu löndum í nátt- úruhamförunum 26. desember. Manntjónið var mest í Indónesíu þar sem a.m.k. 94.000 manns fór- ust, en óttast er að tala látinna þar fari yfir 100.000. Framkvæmdastjóri Barna- heilla í Svíþjóð, Charlotte Petri Gornitzka, varaði við því að barnaníðingar eða glæpamenn, sem selja börn til ættleiðingar eða þrælkunar, kynnu að ræna börn- um sem misstu foreldra sína í náttúruhamförunum. Hjálparstarfið gengur erfiðlega í Aceh-héraði Sameinuðu þjóðirnar fá metfjárframlög Reuters Flóttafólk í Aceh-héraði á indónesísku eyjunni Súmötru tekur við matarpökkum úr bandarískri her- þyrlu. Um 270.000 manns hafast við í flóttamannabúðum í Aceh, en miklu fleiri þurfa á hjálp að halda. Genf, Banda Aceh. AFP, AP.  Líkur á heimssamstarfi/18 FULLTRÚAR rétthafa efnis hafa lagt fram kærur til Ríkislögreglustjóra á hendur tíu einstaklingum á fimm svokölluðum tengi- punktum fyrir meint gróf brot á höfundar- réttarlögum með því að hafa fjölfaldað og gert fólki kleift að sækja á Netið umtals- verðan fjölda af tónlistarverkum, kvik- myndaverkum, sjónvarpsefni og tölvuleikj- um. Auk þess er einstaklingur kærður fyrir hlutdeild í brotum þeirra sem gera vernduð verk aðgengileg í tölvum sínum með aðstoð þeirra tengipunkta sem hann er stjórnandi á. Þessi einstaklingur er það sem kallað er stjórnandi tengipunkts. Hinir kærðu voru aðilar að eftirfarandi tengipunktum: Forgardur.no-ip.biz, Val- holl.deilir.is, Midgardur.deilir.is, zaturn- us.no-ip.biz (sem gengur einnig undir nafn- inu zaturnus.dcfolk.net) og Temphub.- gotdns.org. Telst ólögmæt fjölföldun Að sögn Hallgríms Kristinssonar, fram- kvæmdastjóra Samtaka myndrétthafa á Ís- landi (SMÁÍS), telst sú háttsemi ólögmæt fjölföldun að vista í heimildarleysi verk háð höfundarrétti í þeim tilgangi að gera þau að- gengileg öðrum, sem ekki tilheyra sama heimilishaldi. Þeir sem standa að kærunum hér á landi eru: Félag hljómplötuframleiðenda (FHF), Samband tónskálda og eigenda flutnings- réttar (STEF), Samtök myndrétthafa á Ís- landi (SMÁÍS) og Framleiðendafélagið – SÍK, en félagsmenn þessara samtaka eru rétthafar að meiri hluta þess tónlistarefnis sem gefið er út hérlendis, annast innheimtu vegna opinbers tónflutnings og hafa einka- rétt til dreifingar á yfirgnæfandi hluta þeirra kvikmynda, sjónvarpsefnis og tölvu- leikja sem eru á íslenskum markaði. Að sögn Hallgríms hafa sambærilegar kærur á síðustu dögum verið lagðar fram alls staðar á Norðurlöndum. 11 kærðir vegna brota á höfundarréttarlögum STOFNAÐ 1913 2. TBL. 93. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is ♦♦♦ ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.