Morgunblaðið - 10.01.2005, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 10.01.2005, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 10. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Skógarhlíð 18, sími 595 1000 www.heimsferdir.is Heimsferðir kynna nú bein flug til Forli/Rimini og Trieste í allt sum- ar á hreint frábærum kjörum og opna þér dyrnar að töfrum Ítalíu. Tryggðu þér fargjöld frá aðeins 24.180 krónum og tryggðu þér jafnframt bestu bílaleiguverðin á Ítalíu í sumar. Munið Mastercard ferðaávísunina Ítalíuveisla Heimsferða frá kr. 24.180 í sumar Verð kr. 24.180 Flusæti með sköttum í valdar brottfarir, sjá www.heimsferdir.is Vikuleg flug í sumar JÓN Kristjánsson heilbrigðis- ráðherra hyggst á næstunni kynna í ríkisstjórn tillögu um að hönnunarsamkeppni fari fram um skipulag lóðar Land- spítala – háskólasjúkrahúss við Hringbraut. Heilbrigðisráð- herra tekur vel í hugmyndir Davíðs Oddssonar utanríkis- ráðherra um að sala Símans verði notuð til að fjármagna nýjan spítala. Hugmyndin kom fram í máli Davíðs á fundi með sjálfstæðismönnum á laugardag. „Mér finnst hugmyndin bara góð, og það eru auðvitað fordæmi fyrir því að sala ríkisfyrirtækja hafi verið notuð til þess að fjárfesta í öðrum eign- um. Það hafa nú verið samgöngumannvirki til þessa, en mér finnst hugmyndin góð, ekki síst af því að við höfum verið að undirbúa ákvarðanatöku um uppbyggingu við Hringbrautina,“ segir Jón. Nefnd um uppbyggingu LSH er nú starfandi, og lagði hún til á fyrri hluta síðasta árs að fram fari hönnunarsamkeppni um skipulag lóðarinnar við Hringbraut, og að deiliskipulagi verði lokið á næsta ári. Miðað við það gætu framkvæmdir haf- ist árið 2009 og verið lokið 2018. Jón segir að á næstunni verði tillaga um skipulag lóðarinnar rædd í ríkisstjórn, og reiknar hann með að hug- mynd um að nota sölu Símans til að fjármagna bygginguna verði rædd þar. Kostar rúma 36 milljarða „Menn sjá þörfina fyrir uppbygginguna, og ég tel að það þurfi að fara í aðgerðir vegna þessa fyrr en síðar,“ segir Jón. Hann segir þó ljóst að hér sé um langtímaverkefni að ræða, enda fram- kvæmdir upp á rúma 36 milljarða króna. Ekki sé mögulegt að fjármagna uppbyggingu af þessu tagi með hefðbundnum framlögum á fjárlögum, enda fjárfestingar í heilbrigðiskerfinu einungis um 600–700 milljónir króna á ári, þar af um 300 milljónir í LSH. „Það myndi hrökkva skammt þó ekkert verði byggt annars staðar, svo aðrar að- ferðir þurfa að koma til.“ Jón segir að fyrsti hluti uppbyggingarinnar yrði væntanlega sameining á bráðamóttökum sem nú eru bæði á LSH við Hringbraut og í Foss- vogi. „Það yrði mikið hagræði af því, og það yrði stórt skref, en það kostar um 12 milljarða króna, samkvæmt þeim áætlunum sem menn hafa skotið á.“ Heilbrigðisráðherra ánægður með hugmyndir um uppbyggingu LSH Næstu skref verða rædd í ríkisstjórninni fljótlega Jón Kristjánsson „ÞETTA er bara eins og talað út úr mínu hjarta,“ segir Kristján L. Möller, þingmaður Samfylkingar- innar, um ummæli Davíðs Oddsson- ar utanríkisráðherra þess efnis að hugsanlega mætti setja andvirði sölu ríkisins á Landssímanum í byggingu nýs sjúkrahúss. Kristján minn- ir á að hann flutti þingsályktunar- tillögu á vorþingi 2004, ásamt fleiri þingmönnum Samfylkingarinn- ar, þar sem þetta er lagt til, og hann lítur á ummæli Davíðs sem stuðning við tillöguna. Ljóst sé að uppbygging nýs há- tæknisjúkrahúss sé ekki möguleg eingöngu með framlögum af fjár- lögum, og því þurfi að skapa þjóðar- átak; Landspítala fyrir Landssíma. „Peningar sem koma inn fyrir sölu Símans mega í raun ekki fara inn í rekstur ríkisins vegna þess að þetta eru peningar sem koma bara einu sinni, og þeir mega þá ekki verða til þess að þenja út ríkisbákn- ið,“ segir Kristján. „Þá er best að nota þá í svona þjóðþrifamál eins og þetta, og fleiri góð mál sem eru í þessum dúr.“ Kristján segir ekki ljóst hvort hann muni flytja tillöguna aftur á komandi þingi, mestu máli skiptir að hún hafi fengið svo kröftugan og góðan stuðning frá bæði utanrík- isráðherra og heilbrigðisráðherra. „Í mínum huga er það aðalatriðið að þessi hugmynd verði að veruleika á komandi árum.“ Fagnar stuðningi Davíðs Kristján L. Möller „VIÐ höfum séð hérna grágæs og stokkendur, hrossagauk og kannski einstaka rjúpu. Svo eru þetta spör- fuglar eins og hrafn og músarrindill og stari,“ sagði Hannes Þ. Haf- steinsson sem í gær taldi fugla á svæðinu fyrir ofan Hafnarfjörð, m.a. í Höfðaskógi, ásamt Steinari Björgvinssyni. Í gær var árlegur vetrartalning- ardagur áhugafólks um fugla- skoðun. Náttúrufræðistofnun Ís- lands skipuleggur talninguna og heldur upplýsingunum til haga. Á annað hundrað manns tóku þátt í talningunni og eru þeir sumir með margra ára reynslu, eins og Hannes sem hefur tekið þátt í fuglatalning- unni frá árinu 1982. Æfingin skapar meistarann í þessu eins og í öðru og það er óhætt að segja að Hannes sé lunkinn taln- ingarmaður. Eitt sinn sá hann stór- an hóp af snjótittlingum á flugi og hann kastaði á þá tölu með því að telja tug og tug í senn. „Svo settist hópurinn á símalínu og þá gat ég talið hvern einn og einasta fugl. Þá kom í ljós að þeir voru einum fleiri en ég hafði talið í fyrra skiptið,“ sagði hann. Færri glókollar Þegar Morgunblaðsmenn ræddu við þá Hannes og Steinar í gær höfðu þeir séð tíu tegundir, þ. á m. tvær tyrkjadúfur, sem eru flækings- fuglar og sjaldséðir að vetrarlagi, og nokkra glókolla en nokkur ár eru síðan sú tegund hóf að verpa hér á landi. Í fyrra voru taldir 110 glókollar, þar af var helmingurinn á talningarsvæði Hannesar og Stein- ars. Í gær höfðu þeir bara séð ein- staka fugl og töldu það benda til þess að fækkað hefði í stofninum. Glókollar lifa einkum á sitkalús sem er viðkvæm fyrir kulda. „Ef frostið fer í 10 eða 20 gráður þá getur lúsarstofninn alveg hrun- ið. Það getur orsakað minna æti fyrir glókollinn,“ sagði Steinar. Þar af leiðandi hefði fækkað í stofn- inum. Af þeim fuglum sem sáust í gær virtist mesta fjörið vera hjá dúf- unum og elti karlinn kerlinguna hvert sem hún fór. Var jafnvel tals- vert ágengur stundum. Á því var náttúruleg skýring. „Dúfurnar eru víst tilkippilegar allt árið öfugt við marga aðra fugla,“ sagði Steinar. Gefa fuglum Um þessar mundir þurfa fuglar að vera harðdrægir til að afla sér fæðu og vildi Steinar því hvetja fólk til að gefa fuglum fóður. Handa þröstum og störum þurfi mjúkan mat, s.s. kjöt, brauð og ávexti en frææt- urnar, s.s. snjótittlingar, kynnu vel að meta maísfræ, hveiti o.þ.h. Fuglar taldir víða um land í árlegri vetrartalningu áhugafólks um fuglaskoðun Erfið tíð fyrir sitkalús kemur niður á glókolli Morgunblaðið/Þorkell Talningamennirnir Hannes Þ. Hafsteinsson og Steinar Björgvinsson létu ekki fugl fram hjá sér fara, en yfir hundrað manns tóku þátt í talningunni. SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA kynnti á fundi í Stykkishólmi í gærmorgun þá ákvörðun sína að skipa nefnd til þess að fjalla um sjávarútveginn og hátt gengi krónunnar. Nefndinni er ætl- að að gera úttekt á stöðu sjávarút- vegsins í ljósi þeirrar hækkun- ar sem orðið hef- ur á gengi ís- lensku krónunnar og væntinga um að gengið haldist hátt um nokkurn tíma. Nefndinni er einnig ætlað að fjalla almennt um áhrif mismun- andi hagstjórnaraðgerða á stöðu sjávarútvegsins og hvort ástæða sé fyrir stjórnvöld að bregðast með einhverjum hætti við þeirri stöðu sem atvinnugreinin verður í. For- maður nefndarinnar er Friðrik Már Baldursson en aðrir í nefnd- inni eru Loftur Ólafsson og Davíð Ólafur Ingimarsson. Nefndinni er ætlað að skila niðurstöðum sínum innan tveggja mánaða. Greinin komi að því að meta áhrif hágengis „Vandinn felst í því hvað gengi krónunnar er hátt gagnvart þeim gjaldmiðlum sem við fáum síðan greitt í fyrir okkar afurðir,“ sagði Árni M. Mathiesen sjávarútvegs- ráðherra við Morgunblaðið í gær. „Það veldur því að í krónum talið er samdráttur í tekjum útflutnings- fyrirtækjanna, þar af leiðandi minna til að greiða bæði laun og annan kostnað innanlands. Það þýðir að afkoman hjá fyrirtækj- unum og sjómönnunum sem eru upp á hlut er lakari en ella væri. Við teljum ástæðu til að fá greinina að því með okkur að skoða þetta og meta áhrifin til þess að geta gert þeim aðilum sem að ákvörðunum koma grein fyrir stöðunni.“ Hann segir að í raun deili enginn um það að ná þurfi ákveðnum markmiðum til að viðhalda stöð- ugleikanum í efnahagslífinu. Þurfi að ræða leiðir að markmiðunum m.a. við Seðlabankann og ríkis- stjórn. Árni segist ekki vilja fullyrða að í óefni stefni verði ekkert að gert. „En við þekkjum það frá fyrri tíð að hágengi hefur verið sjávarút- veginum og öðrum samkeppnis- greinum erfitt og við viljum skoða það í þeirri stöðu sem við erum í núna.“ Nefndin mun að sögn Árna kort- leggja ástandið í sjávarútveginum og koma með hugmyndir að úrbót- um, séu þær sjáanlegar í stöðunni. „Það er óskandi að það geti gerst, en við vitum það auðvitað ekki fyr- ir fram.“ Nefnd um sjávarútveg og hátt gengi krónunnar Fjalli einnig um áhrif mismunandi hagstjórnaraðgerða og hvort ástæða sé fyrir stjórnvöld að bregðast við stöðunni Árni M. Mathiesen TÖLUVERÐ ófærð var á þjóðvegi 1 milli Hvammstanga og Víðihlíðar í fyrrinótt og var björgunarsveitin Káraborg á Hvammstanga kölluð tvisvar út um nóttina til að aðstoða vegfarendur sem lentu í vandræðum. Fólki í einum bíl var hjálpað í hvorri ferð, þeirri fyrri rétt eftir kl. 2 en þeirri seinni um kl. 5 um morg- uninn, og reyndust ökumenn báðir hafa fest bíla sína í sama skaflinum. Bílarnir voru losaðir og ökumenn að- stoðaðir við að komast leiðar sinnar. Tveir festust í sama skaflinum ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.