Morgunblaðið - 10.01.2005, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 10.01.2005, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 10. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR DAVÍÐ Oddsson, formaður Sjálf- stæðisflokksins og utanríkisráð- herra, sagði á fundi Sjálfstæðis- flokksins í Valhöll á laugardag, að það væri vissulega rétt hjá Ragnari Árna- syni hagfræðiprófessor að EES- samningnum fylgdu ákveðnir ann- markar. „En ég var þeirrar skoðunar að EES-samningurinn væri æskilegur og mjög þýðingarmikill vegna þess að hann gerði okkur fært á þeim tíma að standa utan við Evrópusambandið sem ég taldi nauðsynlegt af ýmsum ástæðum.“ Bætti Davíð því við að hann teldi að það væri meginforsenda samningsins enn þá; samningurinn tryggði okkur aðgang að innri markaðnum án þess þó að öðrum þáttum, sem við hefðum áhyggjur af, „væri illa fyrir komið“, eins og hann orðaði það. Davíð sagði þó sjálfsagt að skoða alla þessa hluti, og átti við ESS-samninginn. Þetta kom m.a. fram í máli Davíðs í umræðum að lokinni framsöguræðu sem hann hélt í upphafi fundarins. Davíð kom m.a. inn á áhyggjur Ragn- ars Árnasonar um að íslenska hag- kerfið gæti bugast undan þeim mikla hagvexti sem hér hefði ríkt. Sagði Davíð að varnaðarorð af þessu tagi væru góð og þörf. Við mættum í sjálf- umgleði okkar ekki gleyma að huga að aðvörunarmerkjum. Við yrðum að fara að með meiri gát en við kannski hefðum verið að gera. Davíð nefndi í því sambandi kjarasamninga við grunnskólakennara. Flestir hlytu að vera sammála að slík stétt yrði að búa við góð kjör. Það skipti þó máli hvern- ig við næðum slíkum markmiðum og hvort t.d. samhengi væri í „þeirri gönguferð“ eins og hann orðaði það, „við annað sem er að gerast annars staðar í landinu á meðan“. Hafa sýnt djörfung og staðfestu Hann sagði ennfremur að forystu- menn á almennum markaði hefðu sýnt mikla djörfung og staðfestu á undanförnum árum, við að klára kjarasamninga til þriggja og fjögurra ára. Slíkir samningar væru kannski mikilvægasta forsendan fyrir vel- gengni í landinu. Þess vegna mætti ekki skemma það sem þar væri gert. „Ég er auðvitað ekki að segja að slíkir samningar eigi að stjórna allri ferð allrar þjóðarinnar. En hins vegar er það svo að ef slíkir kjarasamningar eiga að tryggja almennan kaupmátt í landinu er ljóst að menn geta ekki gert hluti sem skemma slíka samn- inga.“ Ísland ekki þátttakandi í stríði Davíð ræddi einnig málefni Íraks. Hann sagði að auðvitað væri auðveld- asta leiðin fyrir okkur Íslendinga að blanda okkur ekki í óþægilega hluti og axla enga ábyrgð. Það væri á hinn bóginn langt síðan við hefðum horfið frá því, þ.e. að taka enga ábyrgð. Það hefðum við fyrst og fremst gert með inngöngu okkar í Atlantshafsbanda- lagið. „Við vissum alltaf að við myndum ekki gera stóra hluti í þeim efnum,“ sagði hann, „en við vildum ekki hafa það sem afsökun til að sitja hjá. Sama gildir með vissum hætti um Írak. Við gerum enga stóra hluti í þeim efnum en við höfum heldur ekki viljað sitja hjá. Þess vegna tókum við afstöðu – við og Danir – afstöðu með hefð- bundnum bandalagsríkjum okkar, þ.e. Bretum og Bandaríkjamönnum.“ Davíð sagði að Íslendingar hefðu tek- ið undir þau pólitísku sjónarmið, að fylgja skyldi ályktunum Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna eftir með valdi ef markmið þeirra næðist ekki fram með öðrum hætti. Það væri þó frá- leitt að tala um að Íslendingar væru þátttakendur í stríði. Íslendingar byggju við þá sérstöðu að hinir svo- kölluðu valdamenn gætu ekki sent menn á ófriðarsvæði gegn vilja þeirra. Það gerðu bara herveldi. „Á Íslandi tökum við ekki þátt í stríði og höfum engar heimildir – hvorki vald né vilja – til að senda menn til átakasvæða, sem þeir vilja ekki fara til sjálfir. Ekkert hefði breyst í þeim efnum.“ Davíð fjallaði einnig um skatta- lækkanir ríkisstjórnarinnar, sem lög- festar hefðu verið á Alþingi. Sagði hann að stjórnarflokkarnir hefðu náð saman um þær skattabreytingar. Jafnframt hefðu þeir náð saman um að ljúka við útfærsluna á virðisauka- skattinum. „Nýlega lýsti varaformaður Fram- sóknarflokksins (Guðni Ágústsson) því opinberlega yfir að sá flokkur hefði ekki á móti því að fara að okkar tillögum sjálfstæðismanna að fara með matarskattinn niður í sjö pró- sent. Þannig að það er ánægjulegt að samstaða er að myndast um það.“ Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og utanríkisráðherra, á fundi í Valhöll Sjálfsagt að skoða EES-samninginn Morgunblaðið/Þorkell Davíð Oddsson ræðir við fundar- menn í Valhöll á laugardag. FJÖLDI fólks þáði boð Skíðafélags Akureyrar og Skógræktarfélags Eyfirðinga um kennslu í skíðagöngu á sérstökum gönguskíðadegi í Kjarnaskógi sl. laugardag. Þátttakendur, sem voru á öllum aldri, nutu leiðsagnar Ólafs Björnssonar frá Ólafsfirði, sem gerði garðinn frægan í norrænum greinum skíðaíþróttanna á sínum tíma og er margfaldur Íslandsmeistari. Auk þess sem boðið var upp á skíðagöngukennslu, fékk fólk leið- beiningar í umhirðu skíðabúnaðar og notkun skíðaáburðar og þá var sett upp leikjabraut fyrir börnin. Stöðugt fleiri nýta sér þá aðstöðu sem boðið er upp á fyrir skíðagöngufólk í Kjarnaskógi en þar er jafn- an troðin göngubraut. Skíðagöngukennsla í Kjarnaskógi Morgunblaðið/Kristján Ólafur Björnsson, t.h., leiðbeinir fólki í skíðagöngu í Kjarnaskógi. Margrét Unnur, tveggja ára dóttir Ólafs Björnssonar, var mætt með foreldrum sínum í Kjarnaskóg en hún hefur gert svolítið af því að ganga á skíðum. Vinsælir tölvuleikir  Tuttugu vinsælustu tölvuleikirnir 2004 ásamt því áhugaverðasta sem von er á á þessu ári. ÞEGAR hálkan er mikil, eins og ver- ið hefur undanfarið, veigrar eldra fólk sér oft við að fara út og getur þar með einangrast. Dagbjört Þyrí Þorvarðardóttir, hjúkrunarforstjóri Hrafnistu, segir að það sé fyrst og fremst eldra fólk sem býr enn í eigin húsnæði sem líð- ur fyrir hálku og vetrarfærð. Þetta fólk þurfi sjálft að sækja sér mat og önnur aðföng. Þeir sem geta leiti til ættingja um aðstoð við að komast í verslanir og sækja þjónustu. „Útivera og hreyfing heldur hin- um aldraða liðugum og hraustum,“ segir Dagbjört en inniveran valdi því oft að drungi leggist yfir fólkið. Að sögn Stefaníu Björnsdóttur, sem starfar á skrifstofu Félags eldri borgara í Reykjavík, mun félagið í dag beina þeim tilmælum til Reykja- víkurborgar að sjá til þess að á sem flestum stöðum í borginni verði fært fyrir eldra fólk, þrátt fyrir hálku. Starfshópur ekki komið saman Lára Björnsdóttir félagsmálastjóri segir að forstöðumenn í félagsþjón- ustumiðstöðvum eldri borgara sem og starfsmenn í heimahjúkrun fylg- ist með að aldraðir líði ekki fyrir færðina. Hún segir boðið upp á akst- ursþjónustu, fyrst og fremst fyrir þá sem búa í heimahúsum, í félagsstarf í félagsþjónustumiðstöðvum, þar sem fólk geti keypt sér að borða og tekið þátt í tómstundastarfi. Nú sé búið að skipa starfshóp sem eigi að vinna að útfærslu frekari akstursþjónustu eldri borgara í Reykjavík. Á hópurinn að skila nið- urstöðum í mars. Helgi Seljan, sem tilnefndur var í nefndina af Félagi eldri borgara, seg- ir hópinn enn ekki hafa komið saman. Hann segir að sitt aðalstarf í hópnum verði að tryggja að fólk sem búi enn í heimahúsum, er eldra en 67 ára, eða á af einhverjum ástæðum erfitt með að hreyfa sig, fái aðgang að aksturs- þjónustu. Eldra fólk getur einangr- ast vegna hálkunnar á morgun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.