Morgunblaðið - 10.01.2005, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 10.01.2005, Blaðsíða 40
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MÁNUDAGUR 10. JANÚAR 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. MIKIÐ er nú spurt eftir vinnuafli og fyrirtæki í flestum greinum atvinnulífsins auglýsa eftir starfsfólki. Gissur Pétursson, forstjóri Vinnu- málastofnunar, segir að almennt séð sé ástæða til bjartsýni og ráðningarstjóri Hagvangs telur víst að eftirspurnin sé tvöfalt meiri en í fyrra. Gissur Pétursson segir að vegna umfangs- mikilla verklegra framkvæmda sé mikil eftir- spurn eftir byggingaverkamönnum og iðnaðar- mönnum hvers konar. „Það er mikið framboð af karlastörfum en vonandi hefur það þau áhrif að fleiri störf skapist í þjónustugreinum þar sem aðrir hópar, sem hafa verið fjölmennastir á at- vinnuleysisskránni, komist að. Þetta er ekki síst í þjónustustörfum, svo sem í verslun,“ segir hann. Atvinnuleysi í nóvember var 2,6% en búist er við að tölur um atvinnuleysi í desember verði kynntar í vikunni. „Ég hvet alla sem eru at- vinnulausir og í atvinnuleit að reyna fyrir sér á Kárahnjúkum, þar er mikið af lausum störfum,“ segir Gissur. Þórir Þorvarðarson, ráðningarstjóri hjá Hag- vangi, segir að fyrsta vika ársins hafi verið mjög lífleg og eftirspurnin sé örugglega tvöfalt meiri en í fyrra. Yfirleitt hafi verið rætt um að í fyrstu viku ársins ræði stjórnendur fyrirtækja við end- urskoðendur og íhugi stöðuna áður en þeir hugi að ráðningarmálum en nú fari menn miklu fyrr af stað. Þetta sé í raun framhald af haustinu sem hafi verið óvenju líflegt. „Það eru spennandi tímar framundan í atvinnulífinu, það er ekki spurning,“ segir Þórir. Ekki megi þó gleyma því að jafnhliða miklu framboði af störfum sé mikið framboð af fólki og margir svari auglýsingum. Þórir segir að at- vinnuleysi hjá ungu háskólagengnu fólki hafi verið tiltölulega áberandi, sérstaklega hjá fólki með BS-nám í viðskiptagreinum. Þetta sé ekki endilega vegna þess að eftirspurnin hafi minnk- að heldur hafi mun fleiri útskrifast en áður. „En ef þetta heldur svona áfram hlýtur að fækka í þessum hópi,“ segir hann. Á hinn bóginn hafi verið skortur á verk- og tæknifræðingum og at- vinnuástand meðal tölvumenntaðra hafi stór- batnað. Þá vanti viðskiptafræðinga með fjög- urra ára nám af endurskoðunarsviði. Mikil eftirspurn allt árið 2004 Auður Bjarnadóttir, ráðningarstjóri Mann- afls-Liðsauka, hafði í gær ekki handbærar upp- lýsingar um hvort framboð á störfum hefði auk- ist miðað við sama tíma í fyrra en framboðið væri a.m.k. ekki minna. Í raun hefði spurn eftir starfsfólki verið mikil allt síðasta ár og engar vísbendingar um að það væri að draga úr henni. Þetta ætti við um nærfellt allar tegundir starfa sem Mannafl-Liðsauki hefði í sínum skrám, s.s. sérhæfð skrifstofustörf, sérfræðistörf og stjórn- endastöður. Mikil spurn eftir vinnu- afli í flestum greinum „Spennandi tímar fram- undan í atvinnulífinu“ NORÐURÁL á Grundartanga auglýsti í gær eftir nýjum starfsmönnum vegna starfa sem verða til við stækkun álversins. Alls munu 150 störf bætast við vegna stækkunarinnar, í um helminginn verður ráðið í mars og hinn helminginn í desem- ber. Þau störf sem nú eru laus til umsóknar eru fyrir ófaglærða í ker- og steypuskála. Störfin eru sögð henta jafnt konum sem körlum og er lögð áhersla á jafnan rétt kynjanna. Um 15% af starfsmönnum álvers- ins eru konur. Störf fyrir iðnaðarmenn og tæknimenn verða auglýst síðar. Ragnar Guðmundsson, framkvæmda- stjóri stjórnunar- og fjármálasviðs Norður- áls, segir að störf hjá Norðuráli hafi jafnan verið eftirsótt og hann gerir ekki ráð fyrir að það verði vandamál að fá hæfa starfs- menn. Um 85% af starfsmönnum álversins eru búsett á Vesturlandi og í auglýsingu, sem birtist í Morgunblaðinu í gær, segir að æskilegt sé að umsækjendur séu búsettir þar. Ragnar segir að starfsmenn af Vest- urlandi ílengist frekar í starfi en þeir sem búa í meiri fjarlægð frá álverinu. Norðurál ætlar að ráða 150 starfsmenn VEÐUR var með eindæmum vel fallið til útivistar á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni um helgina og hvarvetna mátti sjá fólk njóta góða veðursins. Í Bláfjöllum og Skálafelli renndu nokkur þúsund manns sér í góðu færi og sagði Grétar Hallur Þórisson, forstöðumaður skíðasvæða höfuðborg- arsvæðisins, að skíðavertíðin hefði ekki farið svona vel af stað í áratug að minnsta kosti. Rífleg snjóalög gæfu fyrirheit um að góð tíð væri í vændum. Ekki þurfa allir að aka til fjalla til að stunda skíðamennsku. Kristín Hassing gekk á skíðum frá húsinu sínu við Rauðás í Árbæ og út á Rauða- vatn. „Ég fer bara beint út á skíðunum og þarf engan bíl. Þetta er æð- islegt,“ sagði hún. Kristín og dóttir hennar eru nýfluttar til landsins eftir 21 árs dvöl í Noregi, því mikla skíðagöngulandi. Reynslan leyndi sér ekki þegar Kristín renndi sér fimlega eftir frosnu vatninu. Hestamennirnir Jóhann Sigurður Ólafsson, Agnes Ýr dóttir hans og María Hjaltadóttir vinkona hennar nýttu góða veðrið til hins ýtrasta. Þau riðu Sléttuhlíðarhringinn fyrir ofan Hafnarfjörð og mátti ekki á milli sjá hvort knaparnir eða hestarnir væru ánægðari með lífið. Jóhann Sigurður Ólafsson, María Hjaltadóttir og Agnes Ýr Ólafsdóttir tóku sig vel út á Sléttuhlíðarhringnum og gæðingarnir ekki síður. Morgunblaðið/Þorkell Kristín Hassing var sporlétt á Rauðavatni enda með áralanga reynslu. Útivist stunduð af miklum þrótti Góð byrjun á skíðavertíðinni FASTEIGNASTOFA Reykjavíkur hefur fyrirskipað kerfisbundna leit að eldfimum neyðarlömpum í fast- eignum borgarinnar, þar með talið leikskólum og grunnskólum. Neyð- arlampar þessir voru innkallaðir af seljanda í október sl. þegar í ljós kom að þeir voru gallaðir og gætu valdið bruna. Skömmu eftir innköll- un kviknaði í út frá tveimur slíkum ljósum, fyrst í Borgarholtsskóla og svo í leikskólanum Sólhlíð. Þriðja til- vikið átti sér stað á Heilsuverndar- stöð Reykjavíkur og vitað er um tvö tilvik til viðbótar. Alls hafa því orðið fimm brunar hérlendis af þessum sökum. Spænski framleiðandinn Daisalux gerði prófanir á lömpunum þegar fyrirspurnir vegna galla bárust hon- um og birti niðurstöður sínar síðast- liðið sumar. Síðar á árinu var farið að innkalla lampa með ákveðnum fram- leiðslunúmerum. 100 lampar munu hafa selst hér og skiluðu 70 sér í kjöl- far innköllunarinnar. Einar H. Jónsson, tæknifræðing- ur hjá Fasteignastofu Reykjavíkur- borgar, segir það geta verið vanda- mál þegar eitt og eitt ljós hafi verið sett upp af rafverktökum án vitn- eskju Fasteignastofu, og því þurfi að fara í allar 330 fasteignir borgarinn- ar og skoða hvort þessi ljós séu ein- hvers staðar í notkun, og sé sú vinna þegar farin í gang. Fimm brun- ar vegna gallaðra neyðarljósa FIMM manna fjölskylda slapp án sjáanlegra meiðsla þegar jepplingur hennar valt á Vesturlandsvegi, sunn- an við afleggjarann að Bröttu- brekku, um kvöldmatarleytið í gær. Að sögn lögreglunnar í Borgar- nesi missti ökumaðurinn stjórn á bílnum í mikilli hálku. Bíllinn rann fyrst á hliðinni eftir veginum og hvolfdi síðan utan vegar. Fimm manna fjölskylda slapp vel ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.