Morgunblaðið - 29.01.2005, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 29.01.2005, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 2005 23 MINNSTAÐUR AKUREYRI Grýtubakkahreppur | Félagar úr björgunarsveitinni Ægi og bænd- ur í Grýtubakkahreppi fóru á trillu og gúmmíbát sjóleiðina í Keflavík í Fjörðum í vikunni og sóttu þangað fjórar kindur og tvær til viðbótar austan í Blæju- dal. Þær voru þar í sjálfheldu í helli niðri í fjöru. Þetta er orðið gott í bili Þórarinn Pétursson, bóndi í Laufási, sagði það vera ótrúlegt að finna kindur á þessum stað. Þetta var ekki fyrsta ferð bændanna en á dögunum fundu þeir átta kindur í Þorgeirsfirði og þegar þeir fóru til leitar á sunnudag fundu þeir tvö lömb á Leirdalsheiði. Þórarinn sagðist ekki vita til að fleiri kindur væru á þessu svæði. „Þetta er orðið gott í bili,“ sagði Þórarinn. Eftirlegukindur Bændur og Ægisfélagar fóru sjóleiðina í Fjörður og sóttu þangað kindur. Kindur í sjálfheldu í helli Á SÍÐASTA ári fóru 175.224 farþegar um Akureyrarflugvöll og þar af voru farþegar í millilandaflugi 2.600 talsins, samkvæmt upplýsingum Önnu D. Halldórsdóttur, deildarstjóra hjá Flugmálastjórn. Árið 2003 fóru 172.002 farþegar um völlinn og þar af 9.129 farþegar í millilandaflugi. Það ár hélt Grænlandsflug uppi áætlunarflugi milli Akureyrar og Kaupmannahafnar hluta úr árinu og nýttu 6.640 farþegar sér það flug. Árið 1999 var metár í farþega- fjölda um Akureyrarflugvöll en það ár fóru 194.404 farþegar um völlinn. Eins og fram kom í Morgunblaðinu í vikunni hafa staðið yfir viðræður við for- svarsmenn flugfélagsins Iceland Express, um möguleika á beinu flugi frá Akureyri til Evrópu og er niðurstöðu að vænta í næsta mánuði. Það er þó talin grundvall- arforsenda fyrir því að beint millilandaflug geti náð sér á strik að ráðist verði í leng- ingu flugbrautarinnar á Akureyri. Slík framkvæmd er þó ekki á samgönguáætlun en unnið er að því að koma málinu á dag- skrá. Flugöryggissvið Flugmálastjórnar hefur gefið út starfsleyfi fyrir þá fjóra milli- landaflugvelli sem eru á Íslandi og er Ak- ureyrarflugvöllur einn þeirra. Hinir eru Keflavíkurflugvöllur, Reykjavíkurflugvöll- ur og Egilsstaðaflugvöllur. Í lok síðasta árs kom til framkvæmda ný reglugerð um flugvelli þar sem kveðið er á um eftirlit flugöryggissviðs með flugvöllum landsins og að starfsemi þeirra verði vottuð með útgáfu starfsleyfis. Um síðustu áramót voru fyrstu flugvallarskírteinin og starfs- leyfin gefin út á grundvelli úttekta og eft- irlits sem flugöryggissvið framkvæmir. Rúmlega 175.000 farþegar fóru um Akureyrarflugvöll á síðasta ári Farþegum í millilandaflugi fækkaði umtalsvert milli ára MENNINGARMÁLANEFND hefur samþykkt til- lögur vinnuhóps um flugsafnið á Akureyri og að haf- ist verði handa við að fá viðurkenningu á safninu sem Flugsafni Íslands, sem annist skráningu og söfnun flugminja fyrir landið allt. Nefndin leggur til að bæjaryfirvöld bíði með frekari ákvarðanir um framlag til stækkunar safnsins þangað til þessi við- urkenning liggur fyrir. Það er niðurstaða vinnu- hópsins að uppbygging flugsafns á Akureyri byggi á skýrri stefnu og að vandlega hafi verið valdir þeir munir sem safnið hefur sett sér að komast yfir og varðveita. Sú söfnunaráætlun kalli jafnframt á að húsnæði safnsins stækki. Vinnuhópurinn er sammála um að það sé rétt stefna að byggja safnið upp sem flugsafn Íslands og að mörg rök hnigi að því að rétt sé að staðsetja slíkt safn á Akureyri sem oft er kölluð „vagga flugs á Ís- landi“. Auk þess hafi safnið forskot á aðra sem feng- ist hafa við að safna flugminjum og sjálfsagt að nýta það safninu til framdráttar. Um leið er mikilvægt að gott samstarf náist við alla þá aðila sem áhuga hafa á varðveislu flugminja eins og raunar er tekið fram í söfnunarstefnu flugsafnsins. Það þýðir jafnframt að eðlilegt hlýtur að teljast að ríkið verði megin bakhjarl safnsins og að gerður verði samningur milli safnsins og mennta- málaráðuneytisins (og hugsanlega samgöngu- ráðuneytis) um rekstur og skráningu flugminja og flugsögu Íslands. Hópurinn leggur til að óskað verði eftir því við menntamálaráðuneytið að tekin verði yfirlýst ákvörðun um að flugsafnið á Akureyri verði form- lega Flugsafn Íslands. Réttast væri að slíkt sam- komulag næðist áður en næstu skref verða stigin – það myndi skýra hlutverk þeirra sem að stuðningi við safnið koma. Hópurinn hefur rætt um að rétt væri að láta vinna viðskiptaáætlun eða heildaráætlun um upp- byggingu safnsins og ljóst að slík vinna getur kost- að á bilinu 300–500 þúsund krónur. Verði þetta niðurstaðan er ljóst að Akureyrarbær yrði aldrei meginbakhjarl safnsins enda liggur meginskylda hjá ríkisvaldinu þegar kemur að því að skrá flug- söguna. Á hinn bóginn getur verið skynsamlegt fyrir Akureyrarbæ að styðja við uppbygginguna í því skyni að flýta henni. Ljóst er að forgangsraða þarf framkvæmdum í safnamálum á Akureyri og í Eyjafirði og það getur breytt miklu um hvar í röð- inni framkvæmdir við flugsafnið lenda ef áð- urnefnt samkomulag við ráðuneytið næst. Vinnuhópur um Flugsafnið á Akureyri Safnið fái viður- kenningu sem Flugsafn Íslands Össur og Ingibjörg | Samfylking- ardagur verður haldinn á Akureyri í dag, laugardaginn 29. janúar. Stjórn kjördæmisráðs flokksins í norðausturkjördæmi fundar þá með stjórnum Samfylkingarfélaga, stjórnum 60+ í kjördæminu, unglið- um, sveitarstjórnarmönnum og öðr- um trúnaðarmönnum flokksins. Almennur stjórnmálafundur verð- ur svo á Hótel KEA frá kl. 15.30 til 18. Frummælendur eru Össur Skarphéðinsson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Kristján L. Möller, Einar Már Sigurðarson og Lára Stefánsdóttir. Fundurinn er öllum opinn.    Morgunblaðið/Árni Sæberg Skútusiglingar | Siglingaklúbb- urinn Nökkvi efnir til fundar í dag, laugardaginn 29. janúar, á Stássinu, húnæði Greifans frá kl. 15 til 18. Flutt verða þrjú erindi um skútusiglingar. Haraldur Rögnvaldsson á Dalvík seg- ir frá siglingum við Grænland og sýn- ir myndir, Kristinn Einarsson segir frá skútusiglingum í Miðjarðarhafi og upplýsir fundarmenn um hvernig sé að eiga skútu þar um slóðir og Úlfur Hróbjartsson, ritari Siglinga- sambandsins, fjallar um skútusigl- ingar í Indlandshafi. Þá verða kynnt námskeið sem klúbburinn heldur fyr- ir fullorðna næsta sumar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.