Morgunblaðið - 30.01.2005, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 30.01.2005, Blaðsíða 10
10 SUNNUDAGUR 30. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ H alldór Ásgrímsson forsætisráðherra segist vera sann- færður um að sú mikla útrás sem ís- lensk fyrirtæki standi nú í eigi eftir að styrkja verulega íslenskt efnahagslíf þegar fram í sækir. Hann segir áhuga erlendra fyrirtækja á að fjárfesta í íslensku atvinnulífi mikið fagn- aðarefni, en hann sýni vel traust þeirra á ís- lensku efnahagslífi. Forsætisráðuneytið hefur í tvígang sent frá sér yfirlýsingu um Íraksmálið í þeim til- gangi að svara því sem fram hefur komið í fréttum um málið. Halldór var spurður hvers vegna þetta hefði verið gert. Reyna að draga úr trúverðugleika mínum „Ég skil það vel að það séu mismunandi skoðanir á þessu máli og ber mikla virðingu fyrir sjónarmiðum annarra, en að undan- förnu hafa allar fréttir gengið út á auka- atriði eins og hver sagði hvað hvar, hvenær hittust menn o.s.frv. Alls konar smáatriði hafa verið dregin upp á borðið í þeim til- gangi að draga úr mínum trúverðugleika og jafnvel ásaka mig og utanríkisráðherra um gróf lögbrot. Þetta hefur gengið svo langt að við höfum talið nauðsynlegt að benda á stað- reyndir máls. Það gera menn ekki nema menn telji sig knúna til þess. Ég vona að nú sé komið nóg í þeim efnum.“ Þú hefur legið undir harðri gagnrýni vegna stuðnings stjórnvalda við stríðið í Írak. Þú gagnrýnir fréttaflutning fjölmiðla en getur ríkisstjórnin ekki að einhverju leyti sjálfri sér um kennt? Yfirlýsingar stjórn- valda um málið hafa oft virst misvísindi og óskýrar. „Mér finnst þetta alltaf hafa verið skýrt. Það hefur legið fyrir að málið var rætt á til- teknum fundum í utanríkismálanefnd og það var rætt í ríkisstjórn. Það var síðan viðkom- andi ráðherra að taka ákvörðun um það. Það er þeirra hlutverk og þeirra hlutskipti. Sumir hafa haldið því fram að það væri óeðlilegt að viðkomandi ráðherrar tækju þessa ákvörðun, en það er það sem stjórn- arskráin gerir ráð fyrir og það er hvorki Al- þingis né utanríkismálanefndar að taka slíka ákvörðun heldur ráðherranna. Þetta hefur verið ljóst frá upphafi. Ég hef verið að fara yfir umræður um málið frá fyrsta degi og þetta kom skýrt fram eftir fund í utanrík- ismálanefnd 21. mars 2003 þar sem lagðar voru fram bókanir bæði meirihluta og minni- hluta. Þessar bókanir voru birtar. Ég hef farið í gegnum ummæli og viðtöl við mig. Ég sé ekki hvað hefur verið óskýrt í þeim. Hitt er svo annað mál að þarna er um ör- yggis- og varnarmál að ræða og margt af því sem gerist á vettvangi öryggis- og varnar- mála eru mál sem ríkja þarf trúnaður um og hefur alltaf gert. Þess vegna er það svo að um slík mál á að vera trúnaður í utanrík- isnefnd, en ég tel að það sem gerst hefur hafi skapað vandamál fyrir trúverðugleik nefndarinnar sem hún verður að yfirvinna. Ef nefndin telur að hún yfirvinni það vanda- mál með því að birta sínar fundargerðir þá verður hún að ákveða það, en ég held að þetta sé vandamál sem nefndin verður að takast á við. Þetta er ekki bara vandamál ríkisstjórnarflokkanna heldur nefndarinnar og Alþingis í heild sinni.“ Mikil gróska í efnahagslífinu Það hefur verið mikil þensla í efnahagslíf- inu að undanförnu og hætta á að verðbólga fari í næstu mælingu yfir vikmörk Seðla- bankans. Eru ekki miklar hættur framundan í efnahagsmálum? „Aðalatriði er það að það er mikill hag- vöxtur og gróska í efnahagslífinu. Þetta hef- ur skilað sér í mikilli verðmætasköpun og minnkandi atvinnuleysi. Það virðist vera mikil framleiðniaukning í atvinnulífinu. Þetta hefur því gengið mjög vel. Það er hins vegar rétt að það reynir mjög á þanþol efna- hagslífsins. Verðbólgan er meiri en við höf- um viljað sjá og það er rétt að hún er um þessar mundir nálægt því hámarki sem talað hefur verið um, en það er allt sem bendir til að hún muni síðan hjaðna. Þá reynir mjög mikið á ýmislegt í efnahagslífinu, t.d. gengið. Þetta er það sem fylgir mikilli grósku og vexti. Það er nokkuð sem við vissum, en mér finnst að þetta gangi mjög vel og að það já- kvæða yfirskyggi hitt. Ég hef verið í stjórnmálum í yfir þrjá ára- tugi og ef maður lítur á fyrri hluta þess tímabils þá vorum við í stöðugum efnahags- krísum. Atvinnulífið var að fara yfir um og það voru stöðugar sveiflur upp og niður. Það var mikill fjármagnsskortur, en með öllum þeim skipulagsbreytingum sem við gengum gegnum á seinni hluta þessa tímabils, bæði í sjávarútveginum, atvinnulífinu, fjármála- markaðinum og í skattamálum, hefur mynd- ast mikill sveigjanleiki í samfélaginu. Ég tel það vera á margan hátt stórkostlegt hvað þjóðfélagið þolir vel þá spennu sem núna er, ef svo má að orði komast.“ Fleiri hafa áhuga á að fjárfesta á Íslandi Þenslu í efnahagslífinu má að hluta til rekja til stóriðjuframkvæmda. Það er verið að byggja tvö álver og stærstu virkjun sem hér hefur verið byggð. Hvað sérð þú fram á að taki við þegar þessum framkvæmdum lýkur? Verður farið út í nýjar stóriðjufram- kvæmdir eða verður horft til annarra hluta? „Það er óljóst. Það liggur hins vegar fyrir að það er áhugi á að stækka álverið í Straumsvík. Það er einnig áhugi fyrir því að ráðast í byggingu álvers á Norðurlandi. Sá áhugi hefur komið fram hjá nokkrum að- ilum. Hvort af því verður er erfitt að segja til um. Það sem hefur hins vegar gerst með þessari uppbyggingu er að það eru fleiri og fleiri aðilar að fá áhuga á Íslandi sem fjár- festingarkosti. Fyrirtæki eins og Century Aluminum, Alcan, Alcoa og áður Kenneth Peterson og ýmsir fleiri aðilar sem hafa ver- ið að fjárfesta hér á landi bera Íslandi mjög góða sögu. Þeir telja að hér ríki mjög gott viðskiptaumhverfi og stöðugleiki, þar á með- al pólitískur stöðugleiki. Þetta skiptir máli. Við höfum skapað okkur þá ímynd að það séu engar líkur á kollsteypum. Þetta er for- senda fyrir því að menn séu tilbúnir að leggja fjármagn í atvinnulífið. Ég finn að þetta svið er að breikka. Við erum stoltir af Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir að við höfum á síðustu 10 árum trúlega gengið í gegnum mestu þjóðfélagsbreytingar sem Framsóknarflokkurinn hafi verið með í frá stofnun hans. Hann segist í viðtali við Egil Ólafsson sannfærður um að flokkurinn hafi styrk og mannskap til þess að takast á við verkefni framtíðarinnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.