Morgunblaðið - 30.01.2005, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 30.01.2005, Blaðsíða 38
38 SUNNUDAGUR 30. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Skipholti 29a, 105 Reykjavík fax 530 6505 heimili@heimili. is Einar Guðmundsson, lögg. fast. Finnbogi Hilmarsson, lögg. fast. Bogi Pétursson, lögg. fast. sími 530 6500 GRENIMELUR 46 - 107 REYKJAVÍK Einstakt tækifæri til að eignast eitt glæsilegasta húsið í vesturbænum. Um er að ræða nýtt 660 fm einbýlishús á þremur hæðum auk kjallara sem afhendast á fullbú- ið að utan og að innan er hægt að fá það afhent á öllum mögulegum byggingarstig- um eftir nánara samkomulagi. Arkitekt hússins er Logi Már Einarsson. Nánari lýsing: Lyfta er í húsinu, tvöföld lofthæð í stofu ca 6,6 metrar, þjónustuíbúð, vínkjallari, stórt anddyri, 4 svefnherbergi (möguleiki á fleirum), setustofa, fjölskyldurými, ásamt ýmsu fleiru. Ofan á húsinu er um 70 fm þakgarður þar sem möguleiki er á að hafa heitan pott, innangengt í sérbúningsherbergi. Fyrir framan stofu á jarðhæð er 75 fm timbur- verönd með steyptum skjólveggjum. Eignarlóð. Allar nánari upplýsingar og teikning- ar er hægt að nálgast á skrifstofu Kletts. Ármúla 15 • sími 515 0500 fax 515 0509 www.fasteignakaup.is • fasteignakaup@fasteignakaup.is Opið hús í Álfaborgum 17 á 2. hæð til hægri. Um er að ræða 4ra herbergja, bjarta og fallega íbúð í góðu fjölbýlishúsi með sérinngangi. Stutt í skóla og þjónustu. Verið velkomin! Sigríður Birgisdóttir, sölufulltrúi Fasteignakaupa, sími 898 9925 Erna Valsdóttir, lögg. fast.-, skipa- og fyrirtækjasali. Opið hús milli kl. 14 og 16 LEIRUBAKKI 12 OPIÐ HÚS SUNNUDAGINN 30. JANÚAR FRÁ KL. 16:00-18:00 Góð 4ra herbergja íbúð á 1. hæð, þó ekki jarðhæð. Húsið er klætt að utan með viðhaldsléttri klæðningu. Sameign teppalögð og snyrtileg. Nánari lýsing: Komið er inn í snyrtilega sameign sem er teppalögð. Anddyrið er flísalagt, fataskápur er í anddyri. Eldhúsið er nokkuð rúmgott með eldri innréttingu sem er mjög snyrtileg. Korkur á gólfi. Inn af eldhúsi er stórt og gott búr sem er einnig þvottahús, tengt fyrir þvottavél og stór opnanlegur gluggi. Baðherbergið er snyrtilegt með dúk og hvítt sett. Herbergisgangur er parketlagður. Barnaherbergið er ágætlega rúmgott, plastparket á gólfi. Hjónaherbergið er mjög stórt með góðum skápum og spónaparketi á gólfi. Stofan er parketlögð og nokkuð stór. Útgengt er á suðursvalir úr stofunni. Í kjallara er stórt herbergi sem telst til 4 herbergis íbúðarinnar og getur nýst í útleigu eða sem vinnuherbergi. Gluggi er á því herbergi og er sameiginleg snyrting í kjallara. Stór og rúmgóð geymsla fylgir íbúðinni, svo og hlutdeild í sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Tröllateigur - Mosfellsbæ Nú er aðeins eitt hús eftir af stórglæsilegu raðhúsunum við Tröllateig. Húsið er á tveimur hæðum. Á neðri hæð er stofa, eldhús, eitt gott herbergi, snyrting, forstofa, stór bílskúr og geymsla. Á efri hæð er hjónaherbergi með klæðaherbergi og sér baðherbergi, tvö stór barnaherbergi, baðherbergi og stór sjónvarpsstofa. Sérlega góð teikning og mjög góður frágangur. Selst fokhelt, fullbúið að utan. Hægt að fá lengra komið. Hús fyrir fólk sem gerir kröfur. Verð 22,9 millj. Fasteignasalan Garður Símar 562 1200 og 862 3311 Kári Fanndal Guðbrandsson, - Sigrún Sigurpálsdóttir, lögg. fasteignasali. Vorum að fá í einkasölu glæsilegt mikið endurnýjað einbýlishús, kjall- ari og hæð ásamt nýlegum tvöföld- um bílskúr, alls 205 fm, á mjög góð- um stað í austurbæ Rvk. Glæsilegt nýl. eldhús, bað, gegnheilt parket, 4 svefnherbergi, stór nýleg timburver- önd með heitum potti. Möguleiki að útbúa aukaíbúð í kjallara. Nýlegur tvöfaldur fullbúinn bílskúr og hellulagt bílaplan með hita. Glæsileg eign á mjög eftirsóttum stað. Verð 39,7 millj. Eigendur sýna eignina í dag, sunnudag, frá kl. 13-15. Kambsvegur 28 - Glæsilegt einbýli. Opið hús í dag frá kl. 13 -15. Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. www.valholl.is -Opið virka daga frá kl. 9-17.30. NEMENDUR í 9. JS í Valhúsaskóla afhentu nú í vikunni Hjálparstarfi kirkjunnar tæpar 80 þúsund kónur til neyðarstarfa fyrir þá sem misstu allt í hamförunum í Asíu. Bekkurinn safnaði innan eigin raða í sjóð og bætti svo við með happdrætti sem nemendur héldu í skólanum. Krakk- arnir fengu vinninga hjá verslunar- eigendum við Laugaveginn og seldu miðann á 150 kr. Keyptu nær allir nemendur og kennarar skólans miða og náði lokaupphæð nærri 80 þús- und kr. Að sögn Önnu M.Þ. Ólafsdóttur, fræðslu- og upplýsingafulltrúa Hjálparstarfs kirkjunnar, er fátt skemmtilegra og meira hvetjandi en þegar ungt fólk lætur sig hlutina varða og gerir eitthvað í málinu. „Þessir krakkar lögðu á sig og gáfu tíma í það að verða öðrum að liði. Frábært framtak sem við starfs- fólkið á Hjálparstarfinu kunnum sannarlega að meta, enda vitum við hve hjálpin héðan skiptir miklu máli þar sem fólk hefur misst allt sitt.“ Nemendur 9. JS í Valhúsaskóla afhentu Önnu M.Þ. Ólafsdóttur, fræðslu- og upplýsingafulltrúa Hjálparstarfs kirkjunnar (þriðja frá hægri), nú í vikunni framlag til neyðaraðstoðar í Asíu. „Frábært framtak“ Nemendur í Valhúsaskóla styrkja hjálparstarf í Asíu ÞINGMENN Suðurkjördæmis sam- þykktu á fundi sínum nýlega að tryggja 20 milljónir króna til jarð- fræðirannsókna, hvort mögulegt sé að gera jarðgöng milli Vestmanna- eyja og Landeyja. Rannsóknirnar skulu fara fram sem fyrst og nið- urstöður þeirra liggi fyrir ekki síð- ar en á hausti komanda. Í rann- sóknunum skal tekið mið af áætlunum sem Birgir Jónsson, jarð- verkfræðingur frá verkfræðideild Háskóla Íslands og sænska verk- takafyrirtækið NCC, auk fyrri rannsókna sem Ármann Höskulds- son, eldfjallafræðingur, hefur gert, og þær unnar í samráði við þessa einstaklinga og aðila. Vegagerð ríkisins hefur yfirumsjón með framkvæmd rannsóknanna. Drífa Hjartardóttir 2. þingmaður Suðurkjördæmis segir 10 milljónir króna koma úr rannsóknarsjóði Vegagerðarinnar. Hún segir að á fundinum hafi verið ákveðið að þingmennirnir myndu sjá um af- ganginn síðar. 20 milljónir tryggðar til jarð- fræðirannsókna ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.