Morgunblaðið - 07.02.2005, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 07.02.2005, Blaðsíða 12
12 MÁNUDAGUR 7. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF Canada's fastest growing franchise is now expanding into Iceland. See us at www.fibrenew.com Námskeið föstudaginn 18. febrúar fyrir þá, sem vilja læra á ISO 9000 gæðastjórnunarstaðlana. Farið er yfir megináherslur og uppbyggingu staðlanna og hvernig má beita þeim við að koma á og viðhalda gæðakerfi. Verklegar æfingar. Námskeiðið fer fram hjá Staðlaráði Íslands, Laugavegi 178, kl. 8.30-14.45. Þátttökugjald kr. 22.500. Nánari upplýsingar og skráning á vef Staðlaráðs, www.stadlar.is eða í síma 520 7150 ISO 9000 gæðastjórnunarstaðlarnir - Lykilatriði, uppbygging og notkun - Borgartún 35 • 105 Reykjavík • sími 511 4000 • fax 511 4040 • utflutningsrad@utflutningsrad.is • www.utflutningsrad.is Viðskiptasendinefnd frá Úkraínu Eftirfarandi er dagskrá fundarins sem fer fram á ensku: Hr. Jón Gunnar Zöega, Ræðismaður Úkraínu á Íslandi, setur fundinn. Mr. Kostyantyn Malovanyy, Honorary Consul of Iceland in Ukraine: Iceland-Ukraine: prospects of bilateral business cooperation Mr. Vasyl Myroshnychenko, Advisor to Honorary Consul of Iceland and Senior Account Manager, CFC Consulting Company: Ukraine: Country Profile Ms.Marina Skomorohova, Account Manager, CFC Consulting Company: Ukraine as a Business Partner Mr.Margeir Petursson, Chairman of the Board, MP Investment Bank: Experience of Doing Business in Ukraine Dr. Ludmila Rasputnaya, Chairman of the Board, Kreditprombank: Ukraine's financial market Mr. Vasyl Perepelitsa, Vice-president, OJSC Kreditprombank: Introduction to Kreditprombank Hr. Óli Rúnar Ástþórsson, hagfræðingur, Direct Investment: Erlendar fjárfestingar í Úkraínu Þann 10. febrúar næstkomandi, frá kl. 8:30 - 10:30, mun Útflutningsráð haldamorgunverðarfund á Grand Hótel í tilefni af komu viðskiptasendinefndar frá Úkraínu. Framsögumenn á fundinum fjalla um viðskiptatækifæri og samstarfsmöguleika Íslendinga og Úkraínumanna. Fyrir sendinefndinni fer aðalræðismaður Íslands í Úkraínu, Kostyantyn Malovanyy. Fundurinn er öllum opinn en óskað er eftir að fundarmenn skrái sig ekki seinna en 8. febrúar hjá Útflutningsráði, utflutningsrad@utflutningsrad.is eða í síma 511 4000.M IX A • fí t GUÐBJÖRG Matthíasdóttir, kennari í Vestmannaeyjum, var kjörin í aðalstjórn bankaráðs Landsbanka Íslands á laugardag. Kemur hún í stað Einars Bene- diktssonar forstjóra sem dró sig úr stjórninni og fór í varastjórn. Guðbjörg og fjölskylda hennar eiga stóran hlut í Tryggingamið- stöðinni, en TM á um fimm pró- senta hlut í Landsbankanum. Aðrar breytingar urðu ekki á aðalstjórninni, en í varastjórn komu nýir inn auk Einars, þau Gunnar Felixson framkvæmda- stjóri og Helga Jónsdóttir banka- fulltrúi. Komu þau í stað Sindra Sindrasonar og Þórs Kristjánsson- ar. Heimild til að auka hlutafé Aðalfundurinn samþykkti nokkr- ar tillögur á aðalfundinum. Meðal annars tillögu um að hækka heim- ild bankaráðs til að auka hlutafé úr allt að fjögur hundruð millj- ónum kr. að nafnverði í tvo millj- arða kr. að nafnverði. Á aðalfundi bankans fyrir ári var heimild bankaráðs til að auka hlutafé hækkuð upp í einn milljarð að nafnverði, en sex hundruð millj- ónir hafa verið notaðar af heimild- inni síðan þá. Eftir standa um fjögur hundruð milljónir. Í greinargerð, sem fylgdi tillög- unni á föstudag, segir að bankaráð Landsbankans telji rétt að Lands- bankinn hafi möguleika á áfram- haldandi vexti „hvort sem er með vexti innri starfsemi eða með kaupum á eignarhlutum í öðrum fjármálafyrirtækjum á Íslandi eða erlendis,“ segir í greinargerðinni. „Nauðsynlegt er að bankaráð eigi kost á að gefa út nýtt hlutafé til að stuðla að slíkum vexti. Rétt er tal- ið að auka svigrúm bankaráðs til slíkra aðgerða frá því sem nú er.“ Arður greiddur út í mars Aðalfundur bankans samþykkti einnig að greiða um 1,6 milljarða kr. í arð, af hagnaði bankans, á síðasta ári. Verður þeim arði skipt milli hluthafa í samræmi við hluta- fjáreign þeirra. „Arðgreiðsla þessi nemur um 12,75% af hagnaði og er 20% af nafnvirði hlutafjár félags- ins,“ segir í tillögunni. „Því sem eftir stendur af hagn- aði ársins 11.089,4 milljónum kr. skal ráðstafað til hækkunar á eigin fé Landsbanka Íslands hf. Arð- greiðslan skal framkvæmd með vaxtalausri greiðslu hinn 9. mars 2005,“ segir í tillögunni, sem sam- þykkt var á aðalfundi bankans á laugardag. Breytingar á bankaráði Landsbanka Íslands Guðbjörg Matthíasdóttir í stað Einars Benediktssonar Morgunblaðið/Þorkell Björgólfur Guðmundsson, stjórnarformaður Landsbanka Íslands, og Sig- urjón Þ. Árnason bankastjóri takast í hendur á aðalfundi bankans á laug- ardag. Halldór J. Kristjánsson bankastjóri fylgist með. ● Hækkanir urðu á bandarískum hlutabréfamörkuðum sl. föstudag og hafa hlutabréf í Bandaríkjunum ekki hækkað jafn mikið á einni viku frá því á síðasta ári. Hækkanirnar á föstudag koma nokkuð á óvart þar sem þær fylgja í kjölfar frétta af því að störfum hafi fjölgað minna í síðasta mánuði en ráð var fyrir gert. Sérfræðingar segja það þó sennilega vega upp á móti áhrifum þessara frétta að fjárfestar telji að þær muni draga úr vaxta- hækkunum bandaríska seðlabank- ans. Dow Jones iðnaðarvísitalan hækk- aði um 123,03 stig eða 1,2% á föstudag og var 10.716,13 stig við lokun markaða. Standard & Poor’s vísitalan hækkaði um 13,14 stig eða 1,1% og var 1.203,03 stig við lokun og samsetta Nasdaq vísitalan hækk- aði um 29,02 stig eða 1,4% og var 2.086,66 stig við lokun. Óvæntar hækkanir á bandarískum mörkuðum líka á netinu: mbl.is  Daglegt málþing þjóðarinnar Umræðan

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.