Morgunblaðið - 19.02.2005, Blaðsíða 58
58 LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
SÝNINGIN Áhrifavaldar, sem nú
stendur yfir í Listasafni Reykja-
víkur, Hafnarhúsi, er fyrsta yf-
irlitssýningin á verkum breska
ljósmyndarans Brian Griffin.
Griffin, sem fæddur er árið 1948,
hefur á liðnum áratugum myndað
fyrir tímarit, auglýsingastofur og
fyrirtæki, auk þess að vinna að
persónulegum verkefnum. Ferill
Griffins er hér ekki skoðaður í
tímaröð, heldur litið til þeirra
áhrifa, einstakra listamanna eða
liststefna, sem mótað hafa þá sýn
sem birtist í verkunum.
Fyrsta stóra verkefni Griffins
eftir að hann lauk ljósmyndanámi
var að mynda fólk í viðskiptaheim-
inum. Hann hafði nýlokið við Rétt-
arhöldin eftir Kafka og upptendr-
aður af þeirri reynslu gerði hann
skrifstofuna að „kafkaískri“ leik-
mynd. Þannig hefur hann unnið
síðan. Uppljómaður af expressjón-
ismanum ákvað hann að portrett
sín segðu eitthvað um „mínar
innri tilfinningar þegar ég stæði
frammi fyrir viðfangi mínu“. Með-
al greinilegra áhrifavalda eru til
dæmis Jacques Tati og þýski mál-
arinn Casper David Friedrich. Út-
skýringar á þessum misgreinilegu
áhrifavöldum greiða leið skoðenda
að verkunum.
Annars má leiða að því líkum að
bakgrunnur Griffins í miðhéruðum
Englands, í málmiðnaði og kolum,
hafi mótað myndsýn hans öðru
fremur. Myndir Griffins eru afar
formfastar og kaldhamraðar, og
meginþorrinn svarthvítur – en
hann hefur mun betri tök á svart-
hvítri reglufestu en litmyndum.
Hann er ennfremur afar breskur
ljósmyndari, arftaki stílbrigða sem
Bill Brandt (1904–1983) mótaði og
miðlaði til samlanda sem fetuðu í
fótspor hans. Myndheimur
Brandts var svarthvítur og kontr-
astmikill, byggðist á hreinum og
klárum formum. Þannig má einnig
greina samhljóm við myndheima
yngri breskra ljósmyndara á sýn-
ingunni, við tískumyndir David
Baileys og portrett Jane Bown,
svo eitthvað sé nefnt.
Griffin er mikill formalisti og
notfærir sér það óspart með ag-
aðri leikstjórn. Hann er ekki að
fanga form úr óreiðu umhverf-
isins, eins og algengt er með ljós-
myndara sem mynda á svipaðan
hátt og hann, heldur byggir hann
upp senur kringum fyrirsæturnar.
Fyrirsæta og ljósmyndari bregða
iðulega á leik. Bestu portrettin
eru oft þau einföldustu, þar sem
lítið er um leikmuni. George Benn
er svipmikill, þar sem pípustertur
kemur nánast í stað nefsins, Sir
George Martin vefur sig inní kart-
on og það er frumlegt portrettið
af Jonnie Tupie, með fótlegginn
nánast fyrir andlitinu. Þá þekkja
tónlistarunnendur Brian May, þótt
myndað sé aftan á hárlubbann í
einfaldri mynd. Leikstjórnin verð-
ur einum of mikil í öðrum port-
rettum, eins og í mynd af leik-
aranum Michael Gambon á hvolfi
uppí sófa og í myndinni af Donald
Sutherland, þar sem stóll er á
hvolfi yfir höfði hans. Og Marg-
aret Thatcher er fryst með bygg-
ingarhjálm á höfðinu inná skrif-
stofu; hvers vegna spyr maður og
fátt verður um svör. En þetta eru
formhreinar myndir og tökin á
lýsingunni eru alltaf sterk, jafnvel
í verkum með erfiða blandaða ljós-
gjafa.
Gaman hefði verið að sjá meira
af myndum sem kalla mætti
„snapshot“; ljósmynd tekin árið
1974 af annatíma á London-brúnni
er áhrifamikil. Þarna er athygl-
isverð sería næturmynda, af ljós-
geislum í nóttinni, og hæfileiki
Griffins til að finna hluti í um-
hverfinu birtist vel í einni bestu
mynd sýningarinnar, af einskonar
beinagrind í húsarúst í Sheffield.
Þá er Íslandstenging í lítilli, við-
kvæmnislegri og kontrastmikilli
mynd af Seljalandsfossi.
Persónulegar myndraðir Griff-
ins eru athyglisverðar. Big Tie, 13
mynda sería í anda Duane Mich-
aels þar sem bestu hæfileikar
Griffins í lýsingu, byggingu og
dramatík njóta sín vel, og myndir
af Broadgate framkvæmdunum í
City í London, þar sem Griffin
sjálfur tekur að sér hlutverk fjall-
göngumannsins í málverkum
Caspars Davids og stendur einn
andspænis hinum ofurfagra heimi;
hér nýreistum byggingum og á
himni skín bjart ljósið – flugeldur
lýsir upp byggingasvæðið.
Margar mynda Griffins hafa
birst á plötuumslögum og eru vel
kunnar. Þarna eru hvítu skórnir
hans Joe Jackson og litmyndin
„Brotinn rammi“ sem birtist á
plötu Depeche Mode árið 1982 en
það hefur oft verið valið með
bestu plötuumslögum síðustu ára-
tuga.
Það er mikið líf í upphenging-
unni. Myndirnar eru misstórar,
sumar í römmum, aðrar í kartoni
og sumum fylgja kontaktprent af
filmunum í heild sem áhugavert
getur verið að skoða.
Baugur Group gaf Listasafni
Reykjavíkur sýninguna eins og
hún lagði sig og var það afar
rausnarlegur gjörningur. Vonandi
verður framhald á því samstarfi
safns og fyrirtækis, því eitt og sér
gæti ævistarf Brian Griffins orðið
einangrað í geymslum Hafn-
arhússins þar sem lítið er um ljós-
myndir. En ef framhald verður á,
væri gaman að sjá heildarverk ís-
lenskra ljósmyndara, og fleiri er-
lendra, byggja upp öflugt safn
samtímaljósmynda innan vébanda
Listasafns Reykjavíkur.
Kaldhamraður myndheimur
MYNDLIST
Listasafn Reykjavíkur –
Hafnarhús
Brian Griffin
Til 27. febrúar.
Morgunblaðið/Jim Smart
Brian Griffin við portrett af eiginkonu sinni, Brynju Sverrisdóttur, og
sjálfsmynd á sýningunni í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi.
Einar Falur Ingólfsson
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Stóra svið
HÍBÝLI VINDANNA leikgerð Bjarna
Jónssonar eftir vesturfarasögu
Böðvars Guðmundssonar
Í kvöld kl 20 - UPPSELT
Fö 25/2 kl 20,
Lau 26/2 kl 20 - UPPSELT
Fö 4/3 kl 20 - UPPSELT, Lau 5/3 kl 20,
Su 13/3 kl 20, Fi 17/3 kl 20,
Fi 7/4 kl 20, Fö 8/4 kl 20
Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00
Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is
LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren
Su 20/2 kl 14, Su 27/2 kl 14
Su 6/3 kl 14 - AUKASÝNING
SÍÐUSTU SÝNINGAR
HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau
SÝNINGAR HALDA ÁFRAM EFTIR PÁSKA
AUSA eftir Lee Hall - Í samstarfi við LA
Í kvöld kl 20, Lau 26/2 kl 20, Su 6/3 kl 20
Ath: Miðaverð kr 1.500
AUSA -
Einstök leikhúsperla
BELGÍSKA KONGÓ e. Braga Ólafsson
Gríman fyrir besta leik í aðalhlutverki
Su 20/2 kl 20 - UPPSELT
Fi 24/2 kl 20 - UPPSELT, Fö 25/2 kl 20
Fi 3/3 kl 20, Fö 4/3 kl 20, Lau 5/3 kl 20
Fi 10/3 kl 20, Fö 11/3 kl 20, Lau 12/3 kl 20
Allra allra síðustu sýningar
AMERICAN DIPLOMACY
eftir Þorleif Örn Arnarsson
Í samstarfi við Hið lifandi leikhús
Forsýning má 21/2 kl 20 - 1.000
Forsýning þri 22/2 kl 20 - 1.000
Aðalæfing mi 23/2 kl 20 - 1.000
Frumsýning fi 24/2 kl 20 - UPPSELT
Fö 4/3 kl 20, Lau 5/3 kl 20
SAUMASTOFAN 30 ÁRUM SÍÐAR
eftir Agnar Jón Egilsson, Í samstarfi við TÓBÍAS
Fö 25/2 kl 20,
Mi 2/3 kl 20SVIK eftir Harold Pinter
Samstarf: Á SENUNNI, Sögn ehf og LA.
Su 20/2 kl 20. Su 27/2 kl 20,
HOUDINI SNÝR AFTUR
Fjölskyldusýning um páskana
Forsala aðgöngumiða hafin
SEGÐU MÉR ALLT e. Kristínu Ómarsdóttur
Í kvöld kl 20,
Lau 26/2 kl 20, Su 27/2 kl 20,
Su 6/3 kl 20, Su 13/3 kl 20
VESTURFARARNIR - NÁMSKEIÐ
Í samstarfi við Mími-símenntun
Mi 23/2 - Böðvar Guðmundsson
Innifalið: Boð á Híbýli vindanna
15:15 TÓNLEIKAR - HILDIGUNNUR HALLDÓRSDÓTTIR
SÓLÓ - KYNSLÓÐABIL FIÐLUNNAR
Í dag kl 15:15
LEIKHÚSVEISLA FYRIR HÓPA - UPPSKRIFT AÐ SKEMMTILEGU KVÖLDI
NÆRING FYRIR SÁL OG LÍKAMA - BÓKIÐ Í TÍMA
Kl 18:00 Gleðistund í forsal - veitingasalan opin
Kl 18:30 Kynnisferð um leikhúsið - kynning á verki kvöldsins
Kl 19:00 Matseðill kvöldsins Kl 20:00 Leiksýning kvöldsins
BÖRN 12 ÁRA OG YNGRI FÁ FRÍTT Í BORGARLEIKHÚSIÐ Í FYLGD FULLORÐINNA
- gildir ekki á barnasýningar!
Nýja svið, Litla svið og Þriðja hæðin
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Einleikur Eddu Björgvinsdóttur
Frumsýning fö 4/3 kl 20
Su 6/3 kl 20,
Fö 11/3 kl 20, Su 12/3 kl 20
Fö 18/3 kl 20, Lau 19/3 kl 20
Leikhúsgestir munið glæsilegan matseðil S: 568 0878
Hljómsveit
Geirmundar Valtýssonar
í kvöld
geggjað grínleikrit eftir DANIEL GUYTON
☎ 552 3000
www.loftkastalinn.is
“HREINLEGA BRILLJANT”
• Föstudag 4/3 kl 23 XFM SÝNING
Takmarkaður sýningafjöldi
Loftkastalinn ✦ Seljavegi 2 ✦ 101 Reykjavík ✦ Miðasalan er opin frá 11-18
EB DV
Frumsýning 19.feb uppselt
Mið. 23.2 nokkur sæti laus
Fös 25.2
Lau 26.2
Sun 27.2
Upplýsingar og miðapantanir
í síma 555 2222 www.hhh.is
Brotið
sýnir
eftir þórdísi Elvu ÞorvaldsdótturBachmann
Það sem getur komið fyrir ástina
SIGRÍÐUR Í VIGUR
sýnir listaverk úr mannshári í Boganum
ROSEMARIE TROCKEL
Ljósmyndir · Skúlptúrar · Teikningar
Myndbönd
BARNAÓPERAN
UNDIR DREKAVÆNG
Leikskóla- og grunnskólakennarar,
munið að bóka tímanlega!
4. sýn. 20. feb. kl. 19 – Uppselt • 5. sýn. 25. feb. kl. 20 – Uppselt
6. sýn. 27. febrúar kl. 19 – Uppselt • 7. sýn. 4. mars kl. 20 – Örfá sæti laus
8. sýn. 6. mars kl. 19 – Örfá sæti • 9. sýn.12. mars kl. 19 - Uppselt. – Síðasta sýning
AUKASÝNING: Mið. 2. mars kl. 20
AUKASÝNING: Fim. 10. mars kl. 20 í boði Vinafélags Íslensku óperunnar
Ekki er hleypt inn í salinn eftir að sýningin hefst
Tosca – Vetrarkvöld með Puccini og Verdi, í Laugarborg mið. 23. feb. kl. 20.30
Elín Ósk Óskarsdóttir, sópran, Jóhann Friðgeir Valdimarsson, tenór og Kurt Kopecky,
píanó flytja aríur og dúetta úr Toscu og öðrum óperum eftir Puccini og Verdi.
Miðasala á netinu: www. opera.is
Miðasalan er opin kl. 14-18 virka daga, kl. 13-18 lau. og sun. og fram að sýningu sýningardaga. Símasala frá kl. 10 virka daga.
4 600 200
leikfelag.is
Miðasölusími
Snjór
í Hlíðarfjalli
Óliver! Eftir Lionel Bart
Lau. 19.2 kl 20 Örfá sæti
Sun. 20.2 kl 14 aukasýn. Örfá sæti
Fös. 25.2 kl 20 Örfá sæti
Lau. 26.2 kl 20 UPPSELT
Fös. 04.3 kl 20 Örfá sæti
Lau. 05.3 kl 20 Örfá sæti
Sun. 06.3 kl 20 Örfá sæti
Ath: Ósóttar pantanir seldar daglega!