Morgunblaðið - 29.03.2005, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 29.03.2005, Blaðsíða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 29. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ Miðasala opnar kl. 15.00  J.H.H. kvikmyndir.com  SV mbl EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINSI I I Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. 16 ára.  Will Smith er Yfir 22.000 gestir!       K&F X-FM ÓÖH DV HÆTTULEGASTA GAMANMYND ÁRSINS I  Sýnd kl. 5.30 8 og 10.30. B.i. 14 ára. kl. 5.30, 8 og 10.30.  S.V. MBL.  K&F X-FM Sýnd kl. 3.30 m. Ísl tali Frábær grínmynd fyrir alla fjölskylduna r r rí f rir l fj lsk l Sýnd kl. 4 m. Ísl tali Sýnd kl. 4 og 6 m. ísl. tali Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 m. ensku tali  S.V. MBL.  K&F X-FM   Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. 14 ára. Sýnd kl. 10. B.i. 16 ára. HÆTTULEGASTA GAMANMYND ÁRSINS Sýnd kl. 4, 6 m. ísl. tali, Sýnd kl. 4, 8 og 10 m. ensku tali  K&F X-FM ÓÖH DV Sýnd kl. 5.50 WWW.BORGARBIO.IS Frábær grínmynd fyrir alla fjölskyldunar r rí f rir ll fj l l  Ó.H.T Rás 2  Ó.H.T Rás 2   Það er ekki hægt að end-urskapa augnablik. Þettaeru gömul sannindi og nýþegar kemur að því að ljósmynda krúttleg börn að gera krúttlega hluti, eða ná óborganlega fyndnum atriðum aftur á filmu. Þessi sannindi voru aðstandendum „Aldrei fór ég suður“ vel kunn og því ljóst að mikils kvíða gætti meðal þeirra um að hátíðin myndi ekki ná að uppfylla þær væntingar sem gerðar eru til endurkomu best heppnaða rokkgjörnings síðasta árs á Íslandi. Þessi spenna náði ekki ein- ungis til þeirra sem stóðu í und- irbúningnum, heldur líka bæði til listamanna og gesta hátíðarinnar. „Geta þeir slegið út hátíðina í fyrra?“ var stóra spurningin. Strax og framúrstefnupönksveitin Skátar sló sína fyrstu tóna í gamla frystiklefa Edinborgarhússins, eins af þremur menningarhúsum Ísa- fjarðarbæjar, var ljóst að augnablik- ið var ekki endurskapað, heldur end- urfætt, í nýjum líkama, annað augnablik, annar tími, önnur stemmning. Á næstu ellefu klukku- tímum stigu á svið þrjátíu sveitir, skipaðar vel á annað hundrað lista- mönnum; svið sem reist var á fiski- körum og brettum. „Þetta svið held- ur þrjátíu hljómsveitum auðveldlega uppi, svo framarlega sem þær verða ekki allar á sviðinu í einu,“ sagði smiðurinn sposkur á svip. Fagmennskan í fyrirrúmi Hátíðin er risavaxið verkefni fyrir bæ eins og Ísafjörð. Þrjátíu hljóm- sveitir þurfa gistingu, mat, far og af- þreyingu. Skipulagið er gríðarlegt, svo ekki sé talað um verkefni sviðs- stjóra og hljóðmanna, sem þurftu að tryggja að allar sveitir kæmust á svið og virtu sinn tímaramma. „Það eru tuttugu og fimm mínútur á sveit, með skiptingum. Ef þú ferð með vanstilltan gítar á svið geturðu bara gleymt þessu og leyft næstu sveit að fara upp,“ segir Páll Einarsson, hljóðmaður og sviðsstjóri. „Allir eiga að standa klárir við tröppurnar þeg- ar næsta sveit á undan leikur, því þetta þarf að ganga eins og vel smurð vél.“ Og verkefnið gekk nær undantekningarlaust eins og smurt. Hljómsveitir sem rætt var við sögðu fagmennskuna hafa ríkt í hvívetna og aðstandendur ætíð hafa staðið klára á sínu. Þá þótti þeim mikið til þess koma hvað sviðsmönnum og hljóðmönnum tókst að því er virtist áreynslulaust að skipta út sveit- unum og ná góðu „sándi“. Hljómurinn í þessu viðarhúsi er líka frábær, í senn hlýr og bjartur, og tónlistin komst gríðarvel til skila; frá argasta pönki yfir í þrælútfærða þjóðlagatónlist, frá óviðjafnanlegum samleik strengjasveitar Tónlistar- skóla Ísafjarðar og pungsvitarokk- sveitarinnar The Nine-Elevens (óskoraðra meistara hátíðarinnar ef marka má fagnaðarlæti og sviðs- framkomu) að stórkostlegum sam- söng heimasveitarinnar Appóló og karlakórsins Ernis, þar sem þéttur hópur karla bætti upp fyrir fjarveru Helga Þórs, söngvara og Idol- stjörnu, sem enn er í samnings- bundnu framkomustraffi. Þessar samkrullur voru að mati margra gesta hápunktur hátíðarinnar, enda minntu þær á blind stefnumót þar sem útkoman er algjörlega ófyr- irsjáanleg. Annar hápunktur kvöldsins var uppákoma Mugisons sjálfs, þar sem hann skipti fartölvunni út fyrir líf- rænan hljóm sveitahljómsveit- arinnar Unaðsdals, þar sem kontra- bassi, trommur og kassagítarar leika aðalhlutverkin. Fengu gestir að kynnast nýjum útgáfum af I want you, Murrmurr og fleiri stykkjum drengsins og voru fagnaðarlætin mikil þegar Mugison sté á svið. Í mesta bróðerni Mikil fjölskyldustemmning ríkti á hátíðinni, börn hlupu um og nutu tónlistar sem þau hafa venjulega lít- inn aðgang að, og fólk hittist, naut tónlistar og spjallaði fyrir utan. Þá gátu gestir satt hungur sitt á staðnum með prýðisgóðri og kraft- mikilli heimalagaðri fiskisúpu auk þess sem seldar voru pylsur, gos og Frá- bær endur- fæðing Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns Rokktuddarnir í Nine Elevens slógu þungan tón. Vestfirðingar blésu í annað sinn til Rokkhátíðar alþýðunnar, Aldrei fór ég suður, um páskahelgina. Morgunblaðið/Svavar Viðar í Trabant bætir á bjór og plokkfisk. GRUFF Rhys, söngvari Super Furry Animals, tók lagið með heimasveitinni Unaðsdal, en þeir drengir sérhæfa sig í grasrótarsveitatónlist. Þar lék Gruff tónlist af einyrkjaplötu sinni, sem hann gaf út ný- lega. „Þetta er í þriðja skiptið sem ég kem til Íslands, en í fyrsta skiptið sem ég heimsæki Vestfirði,“ segir Gruff. „Ég kom í gær og fékk þennan frábæra plokkfisk hjá pabba hans Mugison. Ég er enn í menningarsjokki. Samt er ég úr bæ í Wales þar sem er engin lögregla og pöbbarnir eru opnir fram á morgun, svo mér líður eins og heima hjá mér hérna. Þar eru líka fjöllin mjög há, jafnvel hærri en hér, svo mér líður afar vel hér. Strákarnir í Unaðsdal voru líka ótrúlegir, þeir kunnu lögin mín betur en ég og fóru ótrúlega vel með þau.“ Gruff segir að heimsókn sína megi rekja til þess að þeir Mugison sátu saman yfir bjór og ákváðu að Gruff yrði að koma í heimsókn og syngja á skrýtnu tónlistarhátíðinni heima á Íslandi. „Mér skilst að mjög margar sögur af Mugison hefjist á einhvers konar bjórdrykkju,“ segir Gruff. „Ég held að allir leiki tónlist af sömu ástæðum, fólk finnur löngunina, þörfina til að skapa tónlist, sama hver bakgrunnur þess er. Mér þætti líka vænt um að koma aftur og spila ef fólkið hér vill heyra í mér aftur. Mér fannst rakarinn Villi Valli sérstaklega skemmtilegur með djassinn sinn. Svo voru Nine Elevens ótrúlegir, þeir eru stórgóð rokkhljómsveit.“ Plokkfiskur, notalegheit og menningarsjokk Morgunblaðið/Svavar Mugison og Gruff Rhys ræða málin baksviðs. DRENGIRNIR í Trabant voru kró- aðir af á bryggjunni við hlið Stráks ÍS 26. Tveir liðsmenn sveitarinnar eru nátengdir hátíðinni. Viðar gítarleikari er barnabarn Villa Valla rakara og djassista og Ragnar Kjartansson er einn af helstu hvatamönnum hátíð- arinnar og hefur starfað í undirbún- ingsnefnd hennar. „Viddi er fæddur á Ísafirði og mað- ur var alltaf að heyra einhverjar svona rokksögur af Ísafirði þar sem menn voru fullir úti í skafli,“ segir Ragnar. „Þá vorum við búnir að láta okkur dreyma mikið um að spila á Ísafirði. Ég hitti Ödda að máli og spurði hvort ekki væri hægt að halda tónleika saman á Ísafirði. Þá var hann nýbúinn að vera á fylleríi með pabba sínum, eins og margfrægt er orðið, og við komumst að því að best væri að halda hátíð.“ Vantar bara Bobby Fischer Viddi segir mikinn kraft í bænum. „Þetta er skítapleis og fólkið hérna veit það og gerir bara gott úr því með svona brjálaðri sköpun.“ Undir þetta tekur Ragnar og bætir við sögu af heimamanni sem var á leiðinni heim eftir illa lukkaða búsetu í borginni. „Þegar hann var á leiðinni inn yfir fjörðinn horfði hann út um gluggann og sagði: „Ah … Ísafjörður, besta skítapleis í heimi.“ Það er kúlið við Ísafjörð. Hann er andstæðan við svona bæi eins og Akureyri sem halda því fram að þeir séu svo menningar- legir og elegant. Góðir hlutir koma frá svona skítapleisum. Ísafjörður er eins og Detroit, Kingston og Liverpool. Ástæðan fyrir því að hátíðin er hér en ekki t.d. á Akureyri er að það kemur svo ótrúlega mikið af góðri tónlist héðan frá Vestfjörðum. Það eina sem vantar er Bobby Fischer. Villi Valli, afi Viðars, sagði þegar hann heyrði í ungu rokkböndunum: „Voðalega eru menn reiðir. Ég skil ekki af hverju Bobby Fischer er ekki í einhverri svona rokkhljómsveit.“ Það vantar bara Bobby Fischer. Fyrst hann ætl- ar ekki að tefla meira ætti hann bara að stofna pönkhljómsveit á Ísafirði.“ Viðar segir þó mögulegt að orðið „skítapleis“ misskiljist. „Það er hægt „Besta „skítapleis“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.