Morgunblaðið - 01.05.2005, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 01.05.2005, Blaðsíða 12
12 SUNNUDAGUR 1. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ ’Þetta var svo einstakt tækifæri að mérfannst ekki annað koma til greina en að þiggja starfið.‘Ásdís Halla Bragadóttir lætur senn af starfi bæj- arstjóra í Garðabæ og verður forstjóri BYKO. ’Ég skil vel að aldrei geti orðið heims-friður ef kirkjunnar fólk getur ekki unn- ið saman í kærleika.‘Rannveig Káradóttir, sóknarbarn í Garðasókn, um deilu sóknarprestsins við djákna, prest og formann og varaformann sóknarnefndar. ’Þetta krefst nýrrar hugsunar og nýrravinnubragða.‘Jóhannes M. Gunnarsson , forstjóri Landspítala – háskólasjúkrahúss, um nýja spítalabyggingu. Gert er ráð fyrir að á legudeildum hennar verði eingöngu einbýli, þar sem unnt verður að sinna öllum þörfum sjúklinganna upp að gjörgæslu. ’Eins og staðan er í dag erum við meðlangbesta liðið og sýndum það svo sann- arlega og sönnuðum í kvöld.‘Hanna Gréta Stefánsdóttir , leikmaður Hauka, sem tryggðu sér á fimmtudag Íslandsmeistaratitilinn í 1. deild kvenna í handknattleik. ’Ég hef unnið nótt og dag að því aðmynda ríkisstjórn sem á að láta verkin tala og endurspegla þjóðernislegan og trúarlegan fjölbreytileika íraska sam- félagsins.‘Ibrahim Jaafari , forsætisráðherra Íraks, er hann kunngjörði á miðvikudag að ríkisstjórn hefði loks verið mynduð þremur mánuðum eftir þingkosningar. ’Málið snýst um það að þessi ákveðnaferð tengdist ekki vinnu þeirra sem þeim eru greidd laun fyrir og tryggingagjald er greitt vegna.‘Ragna Haraldsdóttir , lögfræðingur hjá Trygg- ingastofnun ríkisins, sem hefur ekki greitt bætur til íslensku friðargæsluliðanna sem særðust í sprengju- árás í Kabúl í Afganistan í fyrrahaust, þar sem stofn- unin telur þá ekki hafa slasast í vinnuslysi heldur í frítíma sínum. Á föstudag var svo greint frá því að friðargæsluliðarnir hefðu verið tryggðir sér- staklega. ’Ég á ekki nógu stór orð til að lýsa Ter-esu og því sem hún hefur gert fyrir okk- ur. Hún hefur uppfyllt minn stærsta draum, hún hefur gefið okkur fjöl- skyldu.‘Louisa Gonzales , l íffræðileg móðir fimmbura, sem leigumóðirin Teresa Anderson ól á þriðjudag í Bandaríkjunum. Teresa hafði samið um að ganga með börnin gegn greiðslu, en þegar í ljós kom að hún bar fimmbura undir belti ákvað hún að þiggja ekki peningana vegna fjárhagsbyrðanna sem foreldrarnir standa nú frammi fyrir. ’Ef hann er reiðubúinn að ljúga að okk-ur til að fara með okkur í stríð er hann líka reiðubúinn að ljúga til að vinna kosningarnar.‘Nýjasta áróðursveggspjald breskra íhaldsmanna sem sauma nú hart að Tony Blair forsætisráðherra fyrir þingkosningarnar á fimmtudag. ’Þetta er frábært.‘Hjalti Úrsus Árnason, kraftlyftingamaður og fjög- urra barna faðir, er í fæðingarorlofi með níu mánaða gömlum syni sínum og lætur vel af. ’Mér finnst þetta vera árás á mannrétt-indastarf á Íslandi.‘Brynhildur Flóvenz , stjórnarformaður Mannrétt- indaskrifstofu Íslands, um þá niðurstöðu utanrík- isráðuneytisins að synja beiðni skrifstofunnar um styrk til reksturs hennar og verkefna. ’Við verðum að bregðast við.‘Jón Kristjánsson, heilbrigðisráðherra, vegna skýrslu sem sýnir að öryrkjum hefur fjölgað veru- lega á Íslandi á síðustu árum. ’Maður stýrir henni eins og reiðhjóli.‘Jacques Rosay , flugmaður eftir að hafa stjórnað Air- bus 380, stærstu farþegaþotu sem smíðuð hefur ver- ið, í fyrsta tilraunafluginu. Ummæli vikunnar Reuters Einn fimmburanna sem leigumóðirin Teresa Anderson ól á þriðjudag. ELSTA íþróttamót landsins fór fram um síðustu helgi. Þarna er átt við Glímukeppni Íslands þar sem keppt er um elsta verðlauna- grip landsins og líklega þann verðmætasta, Grettisbeltið. Glímuhreyfingin hefur átt í dálít- illi tilvistarkreppu á síðustu árum og iðkendum fækkað sem og áhorfendum á mótum. Glímumenn hafa hins vegar snúið vörn í sókn og nú sjást þess merki að íþróttin njóti meiri vinsælda en löngum áður og ný hugsun er að ná fót- festu innan hreyfingarinnar, sem m.a. miðar að því að auka út- breiðslu íþróttarinnar og kynn- ingu. Nú hefur meira að segja verið stofnuð glímudeild í Svíþjóð sem á aðild að sænska íþrótta- sambandinu. Þá hafa verið gerðar breytingar á keppnisbúningum, í það minnsta hjá KR-ingum, sem komnir eru úr „sokkabuxunum“ sígildu, og farnir að notast við ný- tískulegri snið. Sumir hafa líka leitt hugann að því hvernig hægt sé að „markaðssetja“ glímuna með árangursríkari hætti, þannig að úr verði stórviðburður ár hvert, þar sem t.d. tveir sterkustu glímumenn landsins takast á í rækilega auglýstu einvígi, ekki ósvipað og áskorendaeinvígi um heimsmeistaratign í þungavigt í hnefaleikum. Þannig mætti hugsa sér að Ólafur Oddur Sigurðsson, HSK, sendi Pétri Eyþórssyni, KR, núverandi glímukóngi, skeyti í fjölmiðlunum þar sem hann eggjaði hann til keppni. Glíman hefur allt til að bera til að geta verið hin besta skemmtun fyrir áhorfendur. Það vantar ekki átök- in og glæsilega líkamsburði og hver glíma getur lengst orðið tveggja mínútna í Íslandsglím- unni. Í áskorendaeinvígi mætti lengja glímuna um nokkrar mín- útur. Það er ekki til þjóðlegri íþrótt en íslensk glíma. Og allt er gert til þess að halda í hefðirnar. Það hefur verið keppt á Íslandsmótinu í glímu um Grettisbeltið síðan 1906 og styrjaldarárin fimm féll keppni niður. Það var því glímt um Grettisbeltið í 95. sinn um helgina og að þessu sinni var keppnisstaðurinn Borgarleik- húsið. Fyrst stigu meyjarnar á svið og glímdu um Freyjumenið, sem keppt hefur verið um síðan árið 2000. Þar bar Sólveig Rós Jóhannsdóttir sigur úr býtum annað árið í röð. Talið var að baráttan um Grettisbeltið að þessu sinni stæði milli Péturs Eyþórssonar og Ólafs Odds Sig- urðssonar, sem eru tveir efstu menn á styrkleikalista glím- unnar. Þátttakendur í karlaglím- unni voru átta. Miklar átaka- glímur litu dagsins ljós í Borgarleikhúsinu en síðasta glíma mótsins, sem jafnframt var úrslitaglíman, var á milli Péturs og Ólafs. Hún var hörð og snörp og lauk með því að Pét- ur lagði Ólaf með glæsilegum hælkrók. Grettisbeltið er einn verðmætasti ef ekki verðmætasti verðlaunagripur í íslenskum íþróttum. Hann er úr hreinu silfri og hin langa saga gripsins gerir hann verðmætari en ella. Grettisbeltið er merkasti og sögufrægasti gripur í gjörvallri íþróttasögu Íslands og einnig sá elsti. Hefur það verið far- andgripur allt frá upphafi og vinnst aldrei til eignar. Sama ólin fylgir beltinu og var á því upphaflega. Grettisbeltið var smíðað í Reykjavík af Erlendi gullsmið Magnússyni. Það er úr silfri eins og áður sagði og er mynstur þess mjög skrautlegt. Að framan er á því kringlóttur skjöldur með andlitsmynd af Gretti fornkappa Ásmundarsyni, sem var fangbragðakappi mikill. Glímukóngur Íslands fær Grettisbeltið til vörslu í einn mánuð eftir Íslandsglímuna en að því loknu er það lokað inni í bankahólfi. Þær hugmyndir hafa heyrst að tekin verði afsteypa af beltinu sem glímukóngur þess árs hefði þá til vörslu í eitt ár en geyma upprunalega Grettisbeltið á öruggum stað, helst þar sem almenningur getur virt það fyrir sér. Sumum innan glímuhreyf- ingarinnar óar við því að svo verðmætur verðlaunagripur sé ekki betur varinn. Ekki eru þó allir á einu máli um ágæti þess- arar hugmyndar. Morgunblaðið/Sverrir Það er haldið í þjóðlegar hefðir í glímunni. Hverju móti lýkur með fánahyllingu. Það eru engin vettlingatök í íslenskri glímu. Hér hefur veröldinni greinilega verið snúið við. Grettisbeltið. Forláta gripur úr silfri, smíðaður af Erlendi Magnússyni, og fyrst keppt um það árið 1906. Glímt í bráðum 100 ár Pétur vann. Og er stórum létt að hafa varið titilinn glímukóngur Íslands. Stígið! Pétur Eyþórsson, KR, og Ólafur Oddur Sigurðsson, HSÞ, í upphafi úrslitaglímunnar. Handtak; upphaflega til að gefa til kynna að menn séu óvopnaðir. Núna tákn íþróttamennsku, í upp- hafi hverrar glímu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.