Morgunblaðið - 22.08.2005, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 22.08.2005, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2005 19 UMRÆÐAN Toshiba Satellite Pro L10-103 Verð: 109.700 kr. Toshiba skólafartölvur SKEIFUNNI 17 SÍMI: 550 4000 WWW.TAEKNIVAL.IS SAMSTARFSAÐILAR: Penninn - Akureyri - www.penninn.is / Tölvuþjónusta Vesturlands - Borgarnes - tvest@simnet.is Netheimar - Ísafjörður - www.netheimar.com / Eyjatölvur - Vestmannaeyjum - www.eyjatolvur.com Tölvuþjónusta Vals - Keflavík - tvals@mi.is / Tölvu- og tækjabúðin - Ólafsvík Martölvan - Höfn í Hornafirði - www.martolvan.is FARTÖLVUR Toshiba Qosmio F10-136 1.7Ghz Verð: 214.700 kr. Toshiba Satellite M40-133 Verð: 144.700 kr. F A B R IK A N NÝ KYNSLÓÐ viðskiptamanna, siðblindir (psychopatar: kallað í rétt- arkerfinu geðvilla), sprettur upp í viðskiptalífinu víða um heim ef marka má grein í viðskiptablaðinu „Fast Company“. Greinin heitir „Is your Boss a Psychopath?“ Þar er vitnað í 71 árs gamlan prófessor við UBC-háskólann í Van- couver í Kanada, Ro- bert Hare. Hann er þekktur glæpasálfræðingur og hefur stundað rann- sóknir á nýjum teg- undum glæpa, við- skiptaglæpum. Hare hefur unnið náið með FBI og lýsir hann for- stjórum fyrirtækja á borð við Enron og World Com, hinum dæmdu, Bern- ard Ebbers og Andrew Fastow, sem siðblindum, kaldrifjuðum ein- staklingum. „Þeim er sama um til- finningar annarra. Í þessum mönn- um finnst hvorki sektarkennd né eftirsjá. Þeir sjá ekki sársaukann sem þeir hafa valdið öðru fólki og sjá ekki að þrátt fyrir að einstaklingar missi aleiguna hafi það haft eitthvað með siðblindu þeirra sjálfra að gera.“ Siðblindir raða svo öðrum „veik- um“ einstaklingum svo sem starfs- mönnum, eiginkonum og kærustum í kringum sig. Alltaf er það fólk með lágt sjálfsmat. „Fólk á að haga sér vel og af virðingu gagnvart þeim. Leikarahæfileikar þeirra eru ein- stakir og þeir hrífa okkur með sér til þess eins að hafa okkur að leiksopp- um,“ segir Hare, þeir eru nefnilega svo geðþekkir, psychopatarnir! „Þeir setja upp grímur og laða að sér fólk eins og í dáleiðslu. Þeir eru hjartalausir tækifærissinnar sem eins og listamenn laða fram myndir sem eiga sér enga stoð í raunveru- leika heilbrigðs fólks. Þeim leiðast rútínur, þurfa stanslausa örvun og að eignast fleiri fyrirtæki, tæki og tól sem koma þeim hraðar en öllum öðrum á topp- inn. Tilgangurinn er annar en okkur virðist í fyrstu, nefnilega sá að ganga frá öðrum í leikn- um, að vinna „leikinn“. Siðblindinginn er nefni- lega ekki í viðskiptum, hann er í leik. Mesta nautnin er að ná valdi á öðru fólki oft til þess eins að svívirða það síð- ar. Það er nautn að nið- urlægja annað fólk, jafnvel þá sem þeir þykjast elska. Þeir elska ekki en þríf- ast á illskunni og hatrinu í sér.“ Hare skilgreinir nýja kynslóð manna í viðskiptaumhverfi 21. ald- arinnar. „Þeir eru snöggir, njóta al- menningshylli en búa yfir eyðandi, rótlausum, samviskulausum, siðlaus- um eiginleikum sem koma þeim áfram í viðskiptum. Lygar, bakstungur, svik, undir- ferli, kvenfyrirlitning, sjálfhverfa og illska hafa enga merkingu í þeirra hugarheimi aðra en þá að komast áfram á toppinn og eignast meira og ná lengra í viðskiptum. Þeir kaupa starfsmenn og konur og eru sam- kvæmt „Fast Company“ áhrifamiklir í því … þeir ná gríðarlegum árangri í að sannfæra hinn auðmjúka lýð um að þeir séu snillingar, að þeim sé treystandi og að þeir vinni af góð- mennsku en ekki græðgi.“ Undirlægjurnar Lögfræðingar, endurskoðendur, forstjórar sem og stjórnarformenn, stjórnir og fjölmiðlamenn leggjast undir siðblindingjana eins og auð- mjúkir þjónar. Það reynir verulega á samfélags- og siðferðisþroska þeirra sem ákveða að vinna fyrir, búa með eða giftast slíkum mönnum. Martha Stout, sálfræðingur hjá Harvard Medical School, sem rann- sakað hefur útmörk mannlegrar hegðunar, segir að það sé frísku fólki ekki tamt að trúa að til séu menn svona langt frá því sem heilbrigður maður kallar að vera „góð mann- eskja“. Að einhver geti villt svona á sér heimildir, verið svona „ill- ræmdur“ en samt verið opinberlega virtur er óhugsandi frísku fólki. Spennan og leikurinn hjá siðblind- ingjanum snýst um ánægjuna yfir því að særa og skemma fyrir öðrum. Hann notar fyrirtækið sem tæki til þess að mata sjúkdóminn en hefur sjaldnast hagsmuni fyrirtækisins sjálfs í huga. Það skiptir ekkert ann- að máli en „illmennið“ í honum sjálf- um sem öskrar á spennu og við- skiptasigra. „Láttu ekki hól og smjaður þeirra virka djúpt á þig. Þeir eru að leika á þig. Þegar þeir setja á þig titil (svo sem framkvæmdastjóri, vaktstjóri, grænmetisyfirmaður, sölustjóri, fjár- málastjóri, símastjóri eða bílstjóri), láttu það ekki á þig fá, það er engin innistæða önnur en sú að þú þrælir þér út fyrir þá áfram. Ef vald þeirra gengur út yfir það sem þér finnst heilbrigt, forðaðu þér. Taktu aldrei þátt í að mata sjálfhverfu og illsku siðblindingjans. Ef þú óttast mann- inn, ekki rugla því saman við virð- ingu. Komdu í veg fyrir persónulegt heilsutjón og forðaðu þér en mundu að hann (psychopatinn) mun aldrei þola að sjá að þér líði vel, hafir þú sýnt þann styrk að yfirgefa hann eða fyrirtækið. Hann mun gera allt til þess að rústa mannorð þitt,“ segir Martha. Svona menn eru víða í viðskiptalíf- inu. Þú vinnur jafnvel fyrir þá eða ert svo óheppin að vera gift einum. Börn alkóhólista þurfa að vera sérstaklega á varðbergi því sjálfsmat þeirra er oft á tíðum brenglað. Dæmt fólk eða ólánsfólk leitar að upphefð hjá svona psychopötum vegna eigin vanmáttar. Psychopatar virka svo góðir og klárir og með því að drepa samkeppnina og stela og svíkja verða þeir oft efna- miklir. Sem dæmi um kaldrifjaðan, sið- blindan mann fyrri tíma má nefna Rockefeller sem Hare telur einn spilltasta mógúl spilltustu tíma sög- unnar. Rockefeller opinberaði sjúk- legt ástand sitt með orðunum: „God gave me my money.“ Lesandanum er látið eftir að finna orð dagsins. „Guð gaf mér peningana mína“ Jónína Benediktsdóttir fjallar um nýja tegund viðskiptamanna ’Sem dæmi um kald-rifjaðan, siðblindan mann fyrri tíma má nefna Rockefeller sem Hare telur einn spillt- asta mógúl spilltustu tíma sögunnar.‘ Jónína Benediktsdóttir Höfundur er framkvæmdastjóri FIA. Meira á mbl.is/greinar ÁKÆRUSKJAL ríkisvaldsins á hendur Baugi og Bónusfeðgum skekur nú þjóðfélags- umræðuna. Sitt sýnist hverjum um innihaldið og spennandi að sjá hvort stjórnarmenn Baugs komi til með að stýra fyrirtækinu frá Kvíabryggju eða rík- isstjórnin noti síma- gróðann til að borga feðgunum stríðs- skaðabætur. Á þessum tímapunkti er einungis ljóst að innistæður lögfræðinga munu þrútna. En á meðan Baugsmenn reyna að verja hendur sínar í kastljósi fjöl- miðlanna snúa fulltrúar ríkisvalds- ins bökum í myndavélarnar tuðandi um fráleitar samsæriskenningar sem séu ekki svaraverðar. Málið af- greitt. En fór ekki Björgólfur eldri í fangelsi fyrir það sem sumir kalla pólitískar ofsóknir? Hvarf, sneri aftur og yfirtók Ísland? Af þeirri reynslu ættu boðberar einstaklings- framtaksins að vita að vegir þess eru órannsakanlegir og bæði vonlaust og þarflaust að koma múl á fyrirbærið. Í stórum dráttum eru Baugsmenn ákærðir fyrir að moka undir sjálfa sig og stunda viðskipti án til- skilinnar vitundar. Vafalítið finnast ein- hverjir fúaleggir en þegar skógurinn er skoðaður ofan frá er gott að hafa eftirfar- andi í huga: Hvar er ódýrast að versla, er það í Bónus eða á bensínstöðvunum eða kannski í Ríkinu? Og hvar voru samráðin í fjölmiðlamálinu? Eða Íraksstríðinu? Hvar eru höfuðpaur- arnir í olíumálinu? Og hverju er fylgt í stöðuveitingum hins op- inbera? Eða lífeyrismálum? Hvorir hafa gert meira fyrir fólkið í land- inu, Bónus eða ríkisstjórnin? Ákæruatriðin eru vissulega mörg og gætu verið miklu fleiri. Svo má spyrja hvort þau séu svaraverð. En augljós lágmarkskrafa til allra stjórnenda hlýtur að vera sú að þeir viti að hagsæld og hagsmunir eru sitthvor hluturinn. Sem kusk í kvið- dómi götunnar ákæri ég og dæmi ríkisvaldið, fulltrúa þess og aftaní- ossa alla seka um að gera á þessu engan greinarmun. Það kemur í hlut annarra að dæma Jón og Jó- hannes. Hver er sekur og hver ekki? Lýður Árnason fjallar um ákærur á hendur Baugi ’En augljós lágmarks-krafa til allra stjórn- enda hlýtur að vera sú að þeir viti að hagsæld og hagsmunir eru sitt- hvor hluturinn.‘ Lýður Árnason Höfundur er heilbrigðisstarfsmaður í Önundarfirði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.