Mánudagsblaðið - 11.01.1982, Blaðsíða 2

Mánudagsblaðið - 11.01.1982, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGSBLAÐIÐ Mánudagur 11. janúar 1982 BRÉF TIL BLAÐSINS: Aflóga embættismenn krossaðir fyrir að mæta edrú í vinnuna Enn er hamast við að krossa Mánudagsblaðið Um leið og ég þakka fyrir hressi- legt Mánudagsblað vil ég biðja fyrir örfáar línur. Svo er mál með vexti, að þegar núverandi forseti tók við embætti var allmikið rætt um orðu- veitingar. Nýi forsetinn kvaðst vilja stilla þeim í hóf. En hvernig hefur farið síðan? An þess að hafa haldbærar tölur við hendina þá leyfi ég mér að fullyrða, að orðum er nú útbýtt í rík- ari mæli eíi áður, innanlands sem utan. Enn er hamast við að krossa aflóga embættismenn fyrir það eitt að hafa mætt ódrukknir til vinnu oftast nær eða eitthvað álíka. Raunar virðast allir fá orðu sem sækjast eftir því, svo fremi að þeir hafi ekki drep- ið mann svo vitað sé. Þegar forsetinn fór í opinbera heimsókn til Danmerkur sællar minningar var stráð þar orðum á báða bóga svo jafnvel Dönum þótti nóg um og var gert grín að þessu í dönskum blöðum á fínan hátt. Nú býst ég ekki við og veit það raunar, að það er í fæstum tilfellum sem forsetinn ákveður hver skuli hljóta orður, en gæti forseti samt ekki reynt að draga úr þessum fárán- leik sem nú viðgengst. Að öðrum kosti ætti að taka upp þá stefnu, að krossa bara þá sem hafa virkilega til þess unnið. Hinirgetakeyptséreitt- hvurt dinglum dangl á fornsölum erlendis. Skattgreiðandi. Nú er búið að halaklippa gæsluna Sem gamall varðskipsmaður get ég ekki lengur þagað yfir því hvernig farið er með Landhelgisgæsluna. Þegar við vorum að vinna þorska- stríðin við Breta var ekki sparað að tala um hve Gæslan væri mikils virði fyrir þjóðina alla. Efla þyrfti Land- helgisgæsluna og þar mætti ekkert til spara. Svo eftir að við hreinsuðum land- helgina af útlendingum, þá er Land- helgisgæslan bara sett í svelti. Nú má ekki setja nokkurn pening í reksturinn. Það eru ekki nema tvö varðskip úti í senn, einstaka sinnum þrjú. Það er eins og menn gleymi því, að ekki eru allir íslenskir sjó- menn svo löghlýðnir að þeir virði mörkin. Þótt flugvélar séu ágætar við gæslu, þá komast þær nú ekki yfir mikið svæði yfir háveturinn þegar ekki er bjart nema nokkra tíma á dag. Og ekki geta þær fundið skip í svarta þoku, eins og oft er fyrir austan. Togarasjómenn á Austfjörðum hafa sagt mér að togarar frá Rússlandi, Póllandi og fleiri löndum séu oft að veiðum innan línu fyrir austan. Stundum hafi gæsluflug- vélin staðið þá að verki en af því ekkert varðskip er til staðar þá er látið nægja að skipa togurunum úti látið nægja að skipa togurunum út fyrir. Þá er nú ekki orðin mikil reisn yfir íslensku Landhelgisgæslunni, ég segi nú ekki annað en það. Þið mættuð vel athuga þessi mál og birta góða grein um þau. Ég veit að mörgum sem nú vinna hjá Land- helgisgæslunni svíður það sárt að búið er að halaklippa þessa stofnun með því að svelta hana fjárhagslega. Menn þora bara ekki að mótmæla opinberlega af ótta við að verða reknir. Svo vona ég bara að Mánu- dagsblaðið haldi áfram að koma út sem lengst. Þetta er nefnilega ágætisblað. Sjómaður Loks fá þingmenn tækifæri til afreka Loksins hafa þingmenn okkar fundið sér verkefni sem þeir ættu að geta leyst vel af hendi. Fimm þing- menn eru sagðir á förum til Hollands og ætla að taka þar þátt í skákmóti. Þetta líst mér vel á; Á alþjóðavettvangi er ísland „Raunar virðast allir fá orðu, sem sækjast eftir því, svo fremi að þeir hafí ekki drepið mann svo vitað sé”, segir einn bréfritari í dag. Við áttum enga mynd af íslensku fálkaorð- unni, sem forsetinn okkar veitir á báða bóga, en það er líkt með skyldum og við fundum mynd af bandarískri orðu, sem veitt var öllum þeim, sem vildu drepa sig fyrir fbðurlandið í fyrri heim- styrjöldinni, jafnt þeim sem eftir Iifðu og þeim sem féllu. Aðstandendurnir fengu slíkan grip sendan heim í stað sonarins, sem féll. orðið frægt dæmi um land sem hefur allar ytri aðstæður til að láta þegnum sínum líða vel og búa þeim öryggi, en vegna mistaka í stjórnun lands- ins beinast allir kraftar að bráða- birgðareddingum eins og nýafstaðin gengisfelling sannar best. Utlend- ingar furða sig mikið á þessu ófremdarástandi og skilja það ekki þótt maður reyni að segja þeim, að mestöll orka þingmanna fari í að halda atkvæðum saman ekki í að stjórna landinu. Með því að fara til skákkeppni erlendis fá þingmenn tækifæri til að sýna hvað í þeim býr. Þetta eru allt góðir skákmenn sem fara, Pálmi, Vimmi, Dóri Blöndal, Guðmundur G. Þórarinsson og Garðar Sig., að því manni er sagt. Ég óska þeim góðrar ferðar og skora á þá að standa sig vel þá loks þeir fá tækifæri til að „brillera“. Jóhann Pær 136 milljónir sem HHÍ greiðir vinningshöfum í ár láta margan drauminn, smáan og stóran, rætast. Hitt er ekki minna um vert að með aðstoð HH( hefur einn glæstasti draumur þjóðarinnar allrar ræst,- að gefa æsku þessa lands betri tækifæri til að afla sér menntunar. Efling Háskóla íslandser hagur allrar þjóöarinnar. Vinningaskrá: 9 @ 200.000,- 1.800.000- 9 50.000.- 450.000,- 9 — 30.000.- 270.000,- 198 — 20.000,- 3.960.Ö00,- 1.053 — 7.500 - 7.897.500,- 27.198 — 1.500,- 40.797.000.- 106.074 — 750 - 79.555.500 - 134.550 134.730.000,- 450 — 3.000- 1.350.000- 135.000 136.080 000,- HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS hefur vinninginn ÍSLENSK -Við ætlum að setja upp heilmikla sýningu í Gamla bíói, eða íslenzka óperuhúsinu lík- lega seinast í mars eða apríl. Þar koma fram Dansílokkur Jazzballettskóla Báru, hljóm- sveitin Friðryk ásamt Arna Scheving og Guðmundi Ingólfs- syni og svo Pálmi Gunnarsson, sem syngur stórt hlutverk, en hér verður um að ræða hálfgild- ings söngleik, sem einnig byggist að miklu á dansatrið- um. Svona eins og þeir gera gjarnan í Ameríku og kalla einu nafni “show“. Það er Bára Magnúsdóttir, sem segir okkur þetta er við röbbuðum við hana og Birgi Gunnlaugs- son, hljómlistarmann, sem einnig er pottur og panna í þess- um framkvæmdum, en þau Bára eru reyndar hálfsystkin. -Og efnið er frumsamið, allt saman, textar, músik, dansarnir auðvitað eftir Báru, bætir Birgir við. - Svona “show“ hefur ekki verið sett upp hér áður, þetta er ný lína á Islandi og spennandi að vita hvernig tekst. Tveggja tíma sýning, segir hann ennfremur. Brúðkaupsnðtt Og við snúum okkur að Báru: - Efnisþráðurinn er í stuttu máli sá, að nýgift hjón leggjast til hvílu á brúðkaupsnóttina, og sem þeim sígur blundur á brá fer þau að dreyma um framtíðina og margt af því, sem hún muni bera í skauti sér. Þau eru bæði þátttakendur í sama draumnum, og draumurinn eða draumarnir eru einmitt efnið, sem BÁRA MAGNÚSDÓTTTR - um árabil þekkt ballerína og kennari, en einnig fyrir samn- ingu danssýninga, sem vakið hafa mikla athygli.

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.