Morgunblaðið - 13.10.2005, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 13.10.2005, Blaðsíða 3
ÆVI OG STÖRF / DAVÍÐ ODDSSON 13. OKTÓBER 2005 3 Það er ljóst að Davíð er skemmt yfir þessari upprifjun og gamlir leik- arataktar taka sig upp í frásögninni. „Svo lék ég í tveimur lagakynningum lögfræðinema í sjónvarpinu; Réttur er settur. Síðustu tilþrif mín á leiksviðinu voru í leikriti, sem ég skrifaði með þeim Hrafni [Gunnlaugssyni] og Þórarni [Eldjárn]; Ég vil auðga mitt land. Þorvarður Helgason lék í því, en leikritið gekk svo vel, að hann varð að hætta vegna prófa. Þá hljóp ég í skarðið og lék í nokkrum síðustu sýningunum í Þjóðleikhúsinu.“ – En af hverju sigraðist lögfræðin á leiklistinni? „Ég var farinn að vinna hjá leikfélaginu í hálfu starfi og varð að skrá mig í eitthvert nám. Ég skráði mig í lögfræði. Svo giftum við Ástríður [Þorsteins- dóttir Thorarensen] okkur. Og þá var maður kominn út í alvöru lífsins. En ætli ég hafi ekki séð það, að væntingar mínar um að í mér leyndist stór- leikari myndu ekki endilega rætast. Ég vann alltaf með náminu og var satt að segja ekki duglegur að sækja tíma. Arnljótur Björnsson lagaprófessor sagði eitt sinn, þegar mig bar á góma: Það er mjög djúpt á þeim manni í þessari deild. Ég var líka á fullu í Matthildarþáttunum og 1973–74 var ég þingfréttaritari Morgunblaðsins. Þá var vinstri stjórn að fara frá og blaðið pólitískt virkara en það síðar hefur orðið. Síðasta árið í lögfræðinni vann ég hjá Almenna bókafélaginu og lauk laga- náminu svo ég vitni í Tómas með einkunn sem var nógu stór en þó í mesta hófi.“ – Bubbi kóngur hefur löngum fylgt þér á bak við tjöldin. „Hann hefur alltaf verið notaður af mínum andstæðingum, sem segja ýmist að ég hafi ekkert þurft að leika hlutverkið, því í mér búi bæði einræðisherra og fól, og svo líka að ég hafi ekki vaxið út úr hlutverkinu.“ – Eitthvert sannleikskorn í því? „Ég held nú að ég sé bærilega vel innréttaður. En ég hef stöku sinnum þurft að vera harður í horn að taka eins og þeir þurfa sem bjóða fram krafta sína til starfa, þar sem þeir hafa síðasta orðið og geta ekki skotið sér á bak við nokk- urn annan. Þá þurfa menn að hafa andlegan styrk til þess að skera úr um mál og höggva á hnútinn. Ég tel mig hafa burði til þess. Menn geta svo deilt um ákvarðanirnar, en það eru auðvitað pólitísk álita- mál.“ – Gaztu tekið eitthvað með þér úr leikhúsinu? „Sú reynsla hefur komið mér til góða, á því er enginn vafi. Ég lærði að nota hátalara og skynja salinn og ekki sízt að gleyma mér. Óvanir menn eru alltaf að velta því fyrir sér, hvernig þeir taki sig út. Þeir eru ekki frjálsir af sjálfum sér. Þegar maður lifir að stórum hluta í beinni útsendingu og þá á ég ekki bara við sjónvarpið, heldur líka borgarstjórn og Alþingi, þar sem menn verða að hafa svör á reiðum höndum, þá er gott að geta haldið sínu striki og vera ekki of upptekinn af persónu sinni. Ég hef aldrei séð eftir þeim tíma sem fór í leiklist- arfræðin. En ef ekkert annað er til staðar, þá duga þau ekki ein og sér. Mér til dæmis hættir til að tala hratt og óskýrt og ef mér er bent á það, þá kann ég að laga mig. Menn sem eru málsnjallir og hafa góða framkomu þurfa ekki á slíku að halda, en ég græddi þetta á leiklistinni. Hún græddi hins vegar ekkert á mér!“ Hélt að allir væru sjálfstæðismenn – Hvernig kom pólitíkin til þín? „Afi og amma, móðurforeldrar mínir, voru bæði frekar pólitísk og tóku oftast afstöðu með sjálfstæðisflokknum. Ég hélt satt að segja að allir menn væru sjálfstæðismenn. Það var ekki fyrr en ég fór í sveit að Barkarstöðum í Svart- árdal að ég uppgötvaði að enginn sjálfstæðismaður var í dalnum og þeir höfðu ekki séð Moggann. Þetta voru óvænt sannindi fyrir mig, en þau gerðu mér gott! Í menntaskóla var ég fráhverfur pólitík. Þegar ég var kosinn inspector scholae sögðu menn að ég hefði blekkt þá til fylgis við mig; ég hefði klæðzt eins og vinstri maður, hárgreiðslan var eins og á vinstri manni og svo talaði ég eins og vinstri maður. Það er nú svo að í menntaskóla finnst fólki ekki stjórnmál vera ær og kýr lífsins, það er margt annað sem gefur lífinu gildi. En þegar kom svo að því að Með ömmu Ástu. Hinn drengurinn er frændinn Tryggvi Ólafsson. Með afa Lúðvík á Selfossi. Með ömmu Valgerði. Borgarstjórahjónin á 200 ára afmæli Reykjavíkur. Gluggað í minniskompu skáldsins með Auði Laxness. Erlendur fylgist með.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.