Tíminn - 30.05.1970, Blaðsíða 1
Verður sérsamningum svar-
að með hefndarráðstöfunum
TK-Reykjavík, föstudag.
0 Kjaradeilan er komin í hnút og sjálfheldu og
engin von er til þess, að nokkur aðili vilji nú
ganga fram fyrir skjöldu og leysa verkfallið
með því að hafa frumkvæði að sérsamningum,
er ganga lengra en tilboð Vinnuveitendasam-
bandsins, nema fyrir liggi nú þegar yfirlýsing
af hálfu ríkisstjórnarinnar um, að hún muni
ekki svara slíkum sérsamningum aðila, er
raunverulega leysa kjaradeiluna, með hefnd-
arráðstöfunum gegn launþegum og viðkom-
andi samningsaðilum, svo sem með gengis-
lækkun eða öðrum búsif jum, er geri sérsamn-
inga að hreinni hefndargjöf til handa laun-
þegum.
# Það vita allir um viðhorf og afstöðu ráðherra
Sjálfstæðisflokksins til þessarar kjaradeilu.
Hún hefur komið skýrt fram í Morgunblaðinu,
þar sem það hefur verið kaliað pólitískt niður-
rifsstarf að hafna tilboði atvinnurekenda, er
felur í sér, að laun verkamannaf jölskyldu eigi
að vera 13.500 krónur á mánuði.
# Hins vegar lætur Alþýðublaðið og frambjóð-
endur Alþýðuflokksins í þessum kosningum
skína í það, að viðhorf Alþýðuflokksins og
ráðherra hans sé annað og betra, því Alþýðu-
flokkurinn er þar nefndur hvorki meira né
minna en „forystuflokkur Iaunþega7/. Einn af
frambjóðendum Alþýðuflokksins lýsti því yfir
á opinberum fundi í fyrrakvöld, að nefnd í Al-
þýðuflokknum hefði nú reiknað það út, að at-
vinnuvegirnir gætu nú tekið á sig 15—18%
kauphækkanir án þess að taka neitt af því
aftur með hækkuðu verðlagi eða sköttum.
# Vegna þessa heimta launþegar nú, að ráðherr-
ar Alþýðuflokksins gefi strax í dag og refja-
laust yfirlýsingu og hátíðlegt loforð um það,
að þeir muni koma í veg fyrir það í ríkisstjórn-
inni að sérsamningum við verkalýðshreyfing-
una, er gengu lengra en Vinnuveitendasam-
bandið vill nú samþykkja, verði svarað með
hefndarráðstöfunum gegn launþegum, í formi
gengislækkunar eða annarra búsif ja eða refsi-
aðgerðum í fjármálakerfinu gegn þeim aðil-
um, sem leyfa sér að ganga lengra en Vinnu-
veitei. 'asambandið.
# Launþegar kref jast þess einnig, að verkalýðs-
leiðtogar gangi eftir því nú þegar í dag, að
ríkisstjórnin gefi slíka refjalausa yfirlýsingu
nú þegar, því án slíkrar yfirlýsingar kalla þeir
yfir launþega hættu á að kjarabætur verði
Framhald á bls. 11.
Vilja þeir lýsa því yfir, að til hefndarráðstafana muni ekki koma, ef
einhverjir aðilar ganga nú fram og leysa verkfallið með því að bjóða
betur en Vinnuveitendasambandið?
™ ____________
£ííí, /;'; f f j
pppÍll||llllllIÍl:;:i-;
Eggert G. Þorsteinsson:
— Hann var „verfcalýðsfor-
ingi“ á árinu 1961. Hann fór
þá eins og aðrir þeir, er 1
verkalýðshreyfingunni störfuðu
hinum beztu orðum um sér-
samningana, er samvinnuhreyf-
ingin gekk fram fyrir skjöldu
og hjó á verkfallshnútinn. Síð-
an tók hann sér sæti í miðstjórn
Alþýðuflokksins og samþykkti
að allar kjarabæturnar yrðu
teknar aftur með gengislækk-
Gylfi Þ. Gíslason:
— Hann réð mestu um að
allar kjarabæturnar. sem verka
lýðshreyfingunni tókst að
semja um í sérsamningunum
við samvinnuhreyfinguna 1961
voru teknar af launþegum með
hefndargengisfellingunni. Er
hann tilbúinn að lýsa því yfir,
að sérsamningum verði ekki
svarað með sama hætti nú?
Emil Jónsson:
— Hann var formaður Al-
þýðuflokksins 1961, þegar Al-
þýðuflokkurinn lét cins og nú
verkalýðsforingja sína vera f
orði einhverja skeleggustu bar-
áttumenn fyrir kauphækkunum,
en samþykkti síðan hefndar-
gengislækkun, þegar samvinnu-
hreyfingin samdi um 10%
kauphækkun til þriggja ára
með skynsamlegum vísitölu-
ákvæðum.
á Akureyri neitar sérvið-
ræðum við Vinnumálasambandið
TK—Reykjawík, föstudag.
Vinniunálasamband samvinnufé-
Iaganna hefur gert ítrekaðar til-
raunir til þess að koma á sérvið-
ræðum við Iðju, félag verksmiðju-
fólks á Akureyri, til lausnar kjara-
dcilunni. Fyrst var fario fram á
slíkar sérviðræður til lausnar
kjaradeilunni á fimmtudag í fyrri
viku eða 21. maí. Þessi beiðni
var ítrekuð nú i vikunni, cn enn
synjað af Iiálfu samninganefndar
Iðju. Sagði formaður samninga-
nefndarinnar, að Iðja mundi ekki
hefja sérviðræður við vinnumála
samband saanvinnufélaganna, en
Vinnumálasambandið lýsti því yfir
áður en viðræður hæfust, að það
gengi að öllum kröfum Iðju óskert
um.
Eftir að búið var að synja um
slíkar sérviðræður ðila til að
freista þess að finna launsn deil-
unnar í tvígang, var deilunni vís-
að til sáttasemjaira. Iðja á Akur-
eyri er stærsti samningsaðili Vinnu
málasambands samvinnufélaganna.
Ekkert verkalýðsfélag hér syðra
hefur farið fram á sérviðræður
við samvinnuhreyfinguna ti!l lausn
ar kjaradeilunni. Sfcaðfesti Harry
Fredereksen, aðalsamningiamaður
Vinnumálasambandsins, það í við-
fcali við blaðið í kvöld. er samn-
ingafundum hafði verið frestað,
að engin slik tilmæi- hefðu bor-
izt.
Sjá nánar ,,Á víða angi“ bls. 3.
HEFNDIN GEGN LAUNÞEGUM
ÁRIÐ 1961 - SJÁ BLS. 2