Tíminn - 30.05.1970, Blaðsíða 10

Tíminn - 30.05.1970, Blaðsíða 10
 ^&Si' ' ^ s* -.s’ I ^fíPlPlP Illli !;XjSí;Xs . ■■1 TIMINN LAUGARDAGUR 30. maí 1970. Það má líka hafa ísskápinn inni í stofunni S!B—Reykjavík, mánudag. í imyndarlegiri sýningardeild á heimilissýningunni sýna Rafiðjan Vesturgötu 11 og Raftorg, Kirkju- stræti 8. IG-NIS kæliskápa, elda- vélar, þvottavélar og frystikistu. Mest ber á litlu ísskápunum, sem mjög hentugir eru fyrir einstakl- inga og jafnvel hægt að hafa inni í stofu, því þeir eru teaklitaðir og sumar gerðirnar á háum fót- um, einna líkastir sjónvarpstæki að lögun. Skápurinn, setn sést fyr- ir miðri myndinni á bak við elda- vélina, opnast til beggja hliða og undir er lítil hurð, sem opnast fram og er þar ágætis geymsla við hliðina á mótornum, en hún er ekki köld. Innréttingin í Skáp um þessum er Ijósgrænt plast og þeir eru mjög smekklegir. Leagst til hægri sést viðarlitaður kæli- skápur, sitór í eldhús. Þeir eru til hrvitir lfka og þá uim 1000 krónum ódýrari, eða um 20 þúsund. TCHNIS vörurnar eru ítalskar og þykja ekki dýrar hér á markaðnum. Þvottavélarnar, sem sjást fremst á myndinni, taka 5 kíló og hita vatnið upp í 90° og þvo á 2 klukku stundum. Þessar vélar eru þannig úr garði gerðar, að mjög þægilegt er að byggja þær inn í innréttingu, því ofan á þeim er ekkert, sem þarf að nota. Þær kosta 24—25 búsund kr. Eldavélin er með 4 hellum, þar af einni pínulítilli, sem vafalaust kemur sér oft vel. Yfir hellun- um er svo lok. Gluggi er á bakara- ofninum og hægt er að fá grill- útbúnað í vélina. Hún kostar 17.200 krónur. Auk IGNIS-heimilistækja, selja Raftorg og Rafiðjan Castor-tæki, BTH þvottavélar, Aiwa útvarps- og segulbandstæki, Sylvanía og Auitovox sjónvarpstæki o. fl. IGNIS-vörurnar ítölsku. Aftast eru litlu viðarlitu ísskáparnir. Mánaðarbollapör og stjörnuspárglös SB—Reykjavík, mánudag. AMARO á Alkureyri á sennilega einn brothættasta básinn á sýning- unni í Laugardalshöllinni. Þar get ur að líta flesrt það, sem fólk punt- ar upp á borðin sín með, svo og ýmsa skrautgripi á veggi og í hill- ur. Allt er þetta svo fallegt og glitrandi, að við sjálft liggur, að gestir fái ofbirtu í augun. Vörurn- ar eru að mestu frá Japan, V,- Þýzkalandi, Bret.andi og Erakk- landi og lítið eitt er hollenzkt. Amaro flytur allar þessar vörur inn og helztu viðskiptavinir Amaro í Reykjavík eru Verzlunin Rósin, Kjörgarður, Liverpool og Ham- borg, og þar fæst nokkur hluti af vörunum, sem fólki gefst kostur á að sjá í Amaro-básnum. í hillunni fremst á myndinni sjást hin svokölluðu „mánaðar- bollapör" sem eru geysivinsæl núna. Þau eru þannig skreytt, að rósirnar eru mismunandi fyrir hvern mánuð og er mánáðamafnið stimplað neðan á bollann. Þá er einnig boðið upp á mánaðarengia, litlar styttur, hverja með sínu mán aðarnafni. Neðst í hillunni eru glös með stjörnumerkjum. Glös- iu eru úr reyklituðu gleri o'g stjörnumerkin eru gyllt. Þá eru líka stjörnu-spamönnur til. Fondue sett eru mikið notuð núna og Amaro býður upp á þau úr stáli,, en auk þess er þarna að sjá mik-. ið af stálvörum til ýmissa nota. Arinverkfæri og brennikönnur úr kopar, ásamt margs konar kopp- um og kirnum úr slegnum kopar, er að sjá uppi undir lofti í Amaro- básnum og forstofuspegla í skraut legum römmum. Öskubakkar og vasar úr lituðum kristal setja svip sinn á ella dýrðina og ótal margt fleira mætti upp telja, en sjón er. svo sannarlega sögu ríkari. ÞaS er margt fallegt aS sjá [ sýnlngarbás Amaro — en brothætt hlýtur það Ifka a5 vera. Hús og Skip bjóða gestum sínum inn í stofu SB—Reykjavík, þriðjudag. Þegar maður heimsækir Hús og Skip h.f. á sýningunni i Laugar- dalshöliinni kemur maður inn í vistlega nýtízku stofu. Þar getur að líta Píra hillur á heilum vegg og nú er kominn á þær nýr fót- ur.sem gerir það að verkum, að hilluveggurinn getur eins verið skilrúmsveggur. Annars konar skilrúmsveggur er þarna líka, en hann fæst smíð- aður eftir máli hjá fyrirtækinu. Öðrum megin við dyrnar á þess- um vegg er ný gerð ai hiilum, sem Þorkell G. Guðmundsson hef- ur teiknað. Þær eru svolítið frá- brugðnar þeim hillutegundum, sem algengastar hafa verið hér Fleira er „öðruvísi" þarna, til dæmip húsgögnin, sem Þorkell hefur einnig teiknað. Þau eru létt og lipur, úr furu. Gólfteppið er athyglisvert og við fengum að vita, að það er fengið hjá Gúmmibáta þjónustunni og er bara venjuleg- ur snærisdregill, en þetta er veru- lega skemmtilegt. Ljósin sem sjást til vinstri á myndinni, eru dönsk, Coronella og flutt inn af Raftækjastöðinni Laugavegi 64. í stofunni hjá Hús og Skip er puntað upp méð Mur- ano-krystal. Þetta eru styttur, vas- ar og lampafætur í ölium regn- bogans litum. Hús og Skip, leggur áherzlu a. að hafa á boðstól n eitthvað, sem er að nokkru frábrugðið. því venju lega, því það sé það, sem unga fólkið vilji helzt. Þarna sézt inn i hina vistlegu stofu hjá Hús og Skip. Ljtirnir eru djarfir og þetta er tiivalið fyrir ungt fólk.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.