Tíminn - 22.07.1970, Blaðsíða 13

Tíminn - 22.07.1970, Blaðsíða 13
MŒÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1970. ÍÞRÓTTIR TIMINN IÞROTTIR 13 NORSKA LANDSLIÐID Á AKUREYRI I KVÖLD Mætir bikarmeisturunum ÍBA með Hermann og Kára í broddi fylkingar Klp-Reykjavík. Norska landsliðið í knattspyrnu leikur síðari leik sinn í íslands- fer'ðinni í kvöld, og fer sá leikur fram á grasvellinum á Akureyri. Mótherjinn í þetta sinn verður 1. deildarlið Akureyrar, með lands- li'ðsmennina Hermann Gunnarsson og Kára Ámason í broddi fylk- ingar. Akureyriagum var lofað í vor einum leik við eitthvert þeirra landsliða, sem hingað kæmu í sumar, og er verið að efna það Eyjamenn komnir í gang Sigruðu Víking í 1. deild á laugardaginn 2:0. Mp-Reykjavík, Vestmannaeyingar sigruðu Vík ing í 1. deildar keppninni í knatt spymu á laugard., með tveim mörkum gegn engu, í mjög þokka legum leik, sem fram fór í Eyj- Uffl. Sigur þeirra hefði geta'ð orðið enn stasrri, því yfírburðir þeirra á öllum sviðum voru ótvíræðir. Sá sem kom í veg fyrir það var markvörður Víkings, Sigfús Guð- mundsson, sem varði mjög vel frá upphafi til enda, og kom hrein lega í veg fyrir stór tap sinna manna. Eyjamenn léku undan vindi í fyrri háifleik, og hófu þegar sókn, sem stóð nær allan fyrri hálfleik inn ,en tkóst ekki að koma knett- inum fram hjá Sigfési. Það var ekki fyrr en á siðustu mín. hálfleiksins að það tókst, og þá úr vítaspyrnu, sem Sigmar Pálmason tók, eftir að Erni Ósk arssyni hafði verið brugðið ionan vítateigs. Pljótlega í síðari hálfleik skor uðu Eyjamenn aftur, og var Sæv ar Tryggvason þar að verki. Fleiri urðu mörkin ekki þrátt fyrir mörg góð tækifæri. Víkingar voru mjög daufír í þessum leik og áttu lítið í honum. Tækifæri þeirra voru sárafá, og þau léleg. Vestmannaeyingar hafa heldur betur rétt úr kútnum í síðustu tveim leikjum sínum, og eru nú allt aðrir og betri en í upphafi mótsins. Gamli krafturinn og dugnaður inn er kominn aftur, og þeir ekki búnir að segja sitt síðasta orð í deildinni í ár. loforð með þessum leik. Einhver meiðsli munu hafa háð nokkrum leikm'önnum ÍBA að undanförnu, og er blaðinu ekki kunnugt um hvernig liðið verður skipað í þesum leik. Þeir Skúli Ágústsson og Magnús Jónatanssoa hafa báðir verið frá, en ÍBA er mikill missir í þeim. Einhverjar breytingar verða gerðar á norska liðinu fró lands- leiknum, og varamennirnir settir inn, til að leita að betri kjarna fyrir næsta landsleik. Engin hætta er á að Norðmena imir reyni ekki að gera sitt bezta í þessum leik. Þeim þykir inóg skömmin að hafa tapað fyrir ís- landi — hvað þá ef þeir töpuðu eða gerðu jafntefli við 1. deildar lið þar að auki. Frá landsleiknum á mánudagskvöldlð. Hermann Gunnarsson og Kárl Árna son þjarma að norska markverðinum. — f kvöld mætast allir þesslr kappar aftur á Akureyri. (Tímamynd: Gunnar) Gamli ÍBA markvörðurinn innherji hjá Völsungum Fjórir leikir leiknir í 2. deild íslandsmótsins um helgina. Klp-Reykjavík, Um helgina voru leiknir, 4 leik ir í íslandsmótinu í 2. deild f knattspyrnu, og áttu öll liðin, sem þar leika nema Haukar, ■ aðild að þeim leikjum, þar af Völsungur frá Húsavík í tveim, báðum hér sunnanlands. Hinn góðkunni markvörður og þjálfari Akureyringa í mörg ár, Einar Helgason, hefur nú flutzt til Húsavíkur og þjálfar og leikur með Völsungum. Hann lék fyrstu leikj sína með nýja félaginu sínu nú um helg- inga, en ekki í marki, heldur setn innherji, og hann upplifði það í siðari leiknum hér á móti Ár- manni, að skora mark. Sá leikur fór fram á Melavelljn um á sunnudag, og lauk honum með sigri Ármanns 5:2 eftir að Völsungar höfðu komizt í 2:1. En í hálfleik var staðan 3:2 Ármanni i vil. Fyrir Ármann skoruðu ekki færri en 5 leikmenn, en fyrir Völs unga þeir Einar, og annar nýliði í liðinu, Eiður Guðjónsen. Leikurinn var fjörlega leikinn, en ekki þó glaesilega, og mikil harka var í honum. Ðómari leiks ins, Svejnbjörn Björnsson, sem var heldur slakur, varð t. d. að bóka 3 leifcmenn, 1 Ármenning og 2 Völsunga. Daginn áðyr léku Völsungar við Selfoss á Selfossi, og lauk þeirri viðureign með öruggum sigri heimamanna, 3:0 og voru öll mörk in skoruð í fyrri hálfleik. Selfyssingar eru heldur betur að ná sér á strik í keppninni, hafa hlotið 9 stig úr 6 leikjum, eða jafn mörg og Breiðablik. sem hefur leikið 5 leiki. Þessi lið mætast n. k. föstudag í Kópavogi, og verður það örugglega spennandi viðureign. Breiðablik lék við FH s. 1. föstudag í Hafmarfirði, og sigraði 2:0. Bæði mörkin voru skoruð í fyrri hálfleik, og var það lands liðsmaðurinn Guðmundur Þórð Framhald á bls. 14. Stúlkurnar sem léku á undan landsleiknum vlö Noreg, komu áhorfendum I gott skap, og sköpuöu stemningu á vellinum. Hér er ein þeirra í „baráttu viö boltann og jafnvægiö" og hefur hvorugt. Stúlkurnar slógu í gegn Reykjavík sigraði Keflavík í fyrsta kvennaknattspyrnuleiknum 1:0. Klp-Reykjavík, þriðjudag. Sjaldan hafa áhorfendur hlegið eins dátt og lengi að knattspyrnu- leik hér á landi, og þeir, sem sáu forleikinn að landsleiknum við Noreg í gærkvöldi, en þar áttust við úrval úr Reykjavík og Kefla- vík, skipað kvenfólki. Þetta var í fyrsta sinn, sem leikin var kvennakaattspyrna hér á landi, og tókst „fæðingin" mjög vel. Tilburðir beggja liða voru stór- kostlegir, enda fengu bæði liðin mikið og langt klapp í leikslok, frá hinum fjölmörgu áhorfendum. Reykjavík sigraði 1:0, og var sá sigur nokkuö sanngjarn, því reykvísku stúlkumar voru spark- vissari, hittu a.m.k. markið einu sinni. Dómari í leiknum var einnig kvenniaður, Sigrún Ingólfsdóttir, sem er eini kvenmaðurinn á ís- landi, sem hefur dómarapróf í knattspyrnu. Vonandi verður gert nieira að því að láta kvennalið leika á undan stórleikjum sem þessum, slíkt vekur kátínu og léttara verður yfir áhorfendum, eins og glögglega sást og heyrðist í leikn um við Noreg. Kærir ÍBK? Eins og menn muna töpuðu Keflvíkingar leiknum í Vest- mannaeyjum í 1. deild í síðustu viku, 2:1. Sá orðrómur hefur verið á kreiki síðan, að Keflvíkingar ætli að kæra leikinn, þar sem dómarinn, Ármann Pétursson úr Reykjavík, hafi ekki haft rétt til að dæma hann. Við bárum þennan orðróm undir Hafstein Guðmundsson, formann ÍBK í gær, en hann er hinn mesti „lagarefur" og þekkir manna bezt til allra laga og reglna í knattspyrnu hér á landi. Hann sagði að leikurinn nefði enn ekki verið kærður, og allt óákveðið með það ennþá. „Dómarimn, sem dæmdi leikinn hafði aðeins héraðsdóm araréttindi, og hann má ekki, samikvæmt lögum dæma í 1. deild eða leiki við erlenda að- ila“, sagði Hafsteinn. „Ef við kærum er þaS unnin kæra, og lei'kurinn verður leikinn upp aftur.“ Þess má geta, að Ármann tók að sér að dæma leikinn ó síðustu stundu, en hann átti að vera línuvörður í leiknum. Þegar flugvélin var komin á loft, á leið til Eyja, kom í Ijós, að dómarinn hafði ekki mætt, og tók hann því að sér að bjarga málunum. — Klp.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.