Tíminn - 03.10.1970, Blaðsíða 16

Tíminn - 03.10.1970, Blaðsíða 16
fffl vS5^4Hwjp^qWPy“B Laugardagur 3. október 1970. Ingólfur Davfðsson Málshöfðun landeigenda gegn Laxárvirkjun tekin fyrir: KRAFIZT AÐ SETUDÚMARI VÍKIÚR SÆTI EJ-Reykjavík, 2. október. í fyrradag var þingað í máli því, sem Félac landeigenda á Laxársvæðinu hcfur höfðað gegn Laxxárvirkjun til að fá fram- kvæmdir hennar við 1. áfanga Gljúfurversvirkjunar dæmdar ólögmætar. Setudómarinn í málinu, Magnús Thoroddsen, lagði þár fram s'kip- unarbréf sitt, en honum var fengið málið til meðferðar, eftir að sýslu maður Þingeyinga hafði vikið sæti. Lbgð voru fram nökkur gögn í málinu, þar á meðal listi yfir tuttugu menn, sem lögmaður Fé- lags landeigenda, Sigurður Gizur- arson hdl. fór þess á leit við dóm- arann, að yrðu boðaðir fyrir dóm inn til að gefa skýrslu um málið. Auk þess lagði lögmaðurinn fram kröfu um, að setudómarinn, Magnús Thoroddsen, viki sæti í málinu, en hann hafði áður neitað að víkja sæti í fógetamáli til iög- banns, ;iem var undanfari þessa máls. Kröfu sína rökstuddi lögmað ur landeigenda á þann veg, að sýslumaður Þingeyinga, Jóhann Skaftason, hefði vikið sæti, án þess að honum væri það skylt, til þess að forðast að vekja tortryggni og vantraust á dómstólunum. Framhald á bls. 14. Aðalfundur FUF í Árnessýslu Aðalfundur Félags ungra Fram sóknarmanna í Árnessýslu ver'ður f Framsóknar- húsinu á Selfossi n.k. fimmtudag, 8. okt. Fundu:*- inn hefst kl. 21,30. Dagskrá: 1. Venjuleg aðal fundarstörf. 2. Kosning fulltrúa á Kjördæmisþing. 3. Önnur mál. Gestur fundarins verður Már Pétursson, formaður SUF. — Þýðingarmikið er að félagar fjöl- menni á fundinn. Stjórniu. Ingólfur Davíðsson: Efnafræðilegar rannsóknir sýndu fluormengun í gróðrinum: Trjágróður á íslandi þolir mengun verr en gróður veðursælli landa OÓ-Reykjavík, föstudag. Ingólfur Davíðsson, grasafræð- ingur, sendi í dag Tímanum grein argerð um athuganir sínar á gróðri í Hafnarfirði og þeirri flúormengun, sem hann telur að stafi frá álverksmiðjunni í Straumsvík. Segir hann að gerðar hafi verið efnafræðilegar rann- sóknir á gróðrinum á sínum veg-| megi við, að trjágróður hér áj um og niðurstöðurnar sýni, að um landi þoli niengun verr en trjá- talsverða flúormengun sé að gróður í veðursælli löndum. Tek- ræða. Segir Ingólfur að búast I ur Ingóifur það fram, að athug-1 Um mál þetta er einnig fjallað í þættinum Á víðavangi í dag — 3 Lovell og eiginkona hans heilsa upp á forseta íslands og forsetafrú að Bessastöðum í gær. (Tímam. Gunnar) DEILUR UM FUND MEÐ GEIMFÖRUM EJ-Reykjavík, föstudag. Þeir, sem skipuleggja heimsókn Appolo-13 geimfaranna hingað til lands, hafa átt í miklum erfið- leikum með þann opinbera fund, sem haldinn verður á morgun — en þar eiga geimfararnir að lýsa geimferð sinni og svara spurn- ingum. Stúdentafélag Háskóla ís- lands hafði fallizt á að taka að sér að halda fundinn, en gafst upp við það í dag. Var þá leita'ð til Blaðamannafélags, fslands, en í stjórn félagsins var ekki samkomu lag um málið. Meirihluti við- staddra stjómarmanna samþykkti þó að félagið skyldi gangast fyrir fundinum. í hinni opinberu dagskrá heim- sóknarinnar er gert ráð fyrir þess ari samkomu, og heitir það að geimfararnir muni hitta stúdenta og blaðaménn. Stúdentafélagið hafði tekið að sér að sjá um sam- komuna, en í dag tilkyimti stjórn þess, að hún gæti ekki haldið samkomuna, þar sem búast mætti við mótmælaaðgerðum á fundin- uc:. Leitað var til Blaðamannafélags íslands um málið, og kom stjórn þess saman til fundar í dag. Stjórn in var ekki einhuga í málinu, en meirihluti viðstaddra stjórnar- manna samþykkti að lokum að ' Framhald á bls. 14. VY anir sínar hafi verið gerðar fyrir tilmæli héraðslæknisins 'íf' HáfJíar firði. Þá hefur Tímanujn borizt tilkynning frá iðnaðarráðuneytinu um þetta mái. Segir þar að ein- ungis vísindalegar rannsóknir geti skorið úr um hver áhrif mengun ar kunni að vera, en að miklar fullyrðingar hafi verið byggðar á staðhæfingum Ingólfs Davíðsson- ar. Greinargerð Ingó.fs er eftirfar- andi: Athuganir þær sem undirritað- ur hefur gert á skemmdum í trjá gróðri í Hafnarfirði í sumar, eru gerðar samkvæmt tilmælum- hér- aðslæknisins í Hafnarfirði. Skoð- aðir voru fjolmargir gárðar og fundust víða merki svíðnunar á laufi trjánaa. EnnfremUr felldu allmörg tré lauf snemma sumars, en það er óvenjulegt, aema hvass viðri með særoki gangi.' ýfír, -en slíku var ekki til að dreifa Í sum ar. Einkenni á laufi trjánna benda til flúormengunar. Ég tók 3 sýnishorn af trjálaufi og barri og efnagreindi þau Hörð ur Þormar efnafræðingur, að beiðni minni. Niðurstöður eru þessar: Fura 19 p. p. flúor Hlynur 49 ” ” ” Reynir 50 ” ” ” Þetta er talsverð flúormengun. Búast má við að trjágróður hér á landi þoli mengun verr en trjá- gróður í veðursælli löndum. Geta má þess, að furan stóð undir öðrum, hærri trjám, sem hafa hlíft henni. Að Hofi á Álfta nesi og víðar í grend, fell'di birki lauf snemma á sumri og stendur bert eftir. Ath.: Niðurstöður raansókna á flúormengun á öskufallssvæðun- um birtust jafnóðum, svo unnt væri að gera varúðarráðstafanir se . allra fyrst. Fréttatilkynning frá iðnaðarráðu- neytinu er þannig. Vegna endurtekinna ummæla og staðhæfinga í blöðum og út- varpi um mengun á gróðri af vödd- Framhald á bls. 14. Bæjarráð HafnarfjarSarum flúormengunina: Staðreyndirnar á borðið OÓ-Reykjavík, föstudag. Frétt Tímans um athuganir Ingólfs Davíðssonar, á gróðri í Hafnarfirði og í nágrenni Straumsvíkur og þær niður- stöður hans, að um talsverða flúormengun sé að ræða, og að mengunin stafi frá álverk- smiðjunni, hafa vakið mikla athygli. A furtdi bæjarráðs Hafnarfjarðar var samþykkt samhljóða eftirfarandi álykt- un: tilefni af frétt í dagblað- inu Tímanum í dag, um meinta alvarlega flúormeng- un af völdum álbræðslunnar « Straumsvík, óskar bæjarráð eftir við heilbrigðisráð. að það þegar í stað afli nauðsynlegra upplýsinga um raunverulegt ástand þessara mála. Sveinn Guðbjartsson, heilbrigð- isfulltrúi í Hafnarfirði, sagði Tím- anum. að sér kæmi ekki á óvart þótt um einhverja mengun frá álverksmiðjunni væri að ræða, en það ætti eftir að koma betur í liós hvort mengunin væri hættu- leg gróðri, þegar niðurstöður rann sókna lægju fyrir. Mengunin hef- ur vcrið lengi undir eftirliti sagði Sveinn. Af okkar hálfu hefur ver- ið fylgzt með vatni og tekið sýni af jarðvegi og fleira. Höfum við beðið Rannsóknarstofofnanir að taka sérstök sýni með þeim full- komnu tækjum ,sem það hefur yfir að ráða og hefur það verið gert, og ekki aðeins fyrir okkur Hafnfirðinga, heldur einnig fyrir mengunarnefnd sem er ríkisskip- uð og er þetta hennar -verkefni. — Okkur er tjáð að rannsókn- irnar séu að komast á lokastig. og þá verða niðurstöðurnar lagð- ar fyirir mengunarnefnd, sem ger- ir þær ráðstafanir sem rannsókn- irnar gefa tilefni til.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.