Tíminn - 06.10.1970, Blaðsíða 1
Hrúturflúði 300
metra niður bjarg
SB—Reykjavík, mánudag.
Er gangnamenn úr Þing-
eyjarsýslu voru að leita fjár
í nágrenni viS Bláfjöll, sáu þeir
hrút stökkva uiður á bjarg-
syllu og var ekki hægt að ná
honum við svo búið. Ðaginn
eftir fóru þrír mannanna á
iframhaia a 14 siöu
Deilur á Fulítrúaráðsfundi Alþýðuflokksfélaganna í Reykjavík í gærkvöldi:
GYLFAGINNING" I
ff
PRÓFK JÖRSREGLU NUM
FuHhlaðinn strætisvagn og fullt af fólki, sem vill komast meS — alg eng sjón þessa dagana í Reykjavík.
(Tímamynd—Gunnar)
Vandræðaástand hjá SVR
EB—Reykjavík, mánudag.
Vandræði mikil eru nú hjá
Strætisvögnum Reykjavíkur.
Vagnaskortur, mikil aukning á
þörfum á vögnum í úthverf-
um borgarinnar, skortur á verk-
stæðisrúmi og varahlutum, mik-'
il umferð og hafið skólaár, var
þess valdandi í dag, að ekki
gátu allir, sem þess óskuðu,
tekið sér far með strætisvagni
á tilsettum tíma. Fólk í Breið-
holtshverfi þurfti t. d. í norðan-
garranum í morgun, að bíða í
allt að 20 mínútur eftir vagni,
vegna þess að sá vagn á leið 11,
sem það átti samkvæmt fyrir-
fram ákveðnum reglum, að fá
far með, ók yfirfullur fram-
hjá biðskýlinu.
Hjá SVR aka nú 36 vagnar á
föstum leiðum, en vegna þess-
arar mik'u eftirspurnar, hefur
þurft að fá aukavagna á ákveðn-
ar leiðir á mestu umferðartím-
um dagsins. Þannig var t. d. í
morgun aukavagn á leið 11 í
hálftíma. Hins vegar er mjög
erfitt að mæta átaginu á
þyngstu leiðunum, vegna þess
að aukavagnar eru ekki fyrir
hendi. Vagnaskortur hrjáir
mjög SVR og úr því verður ekki
bætt, fyrr en fimm nýir vagnar
koma til landsins, í byrjun des-
embermánaðar.
Þær i'eiðir, þar sem þetta
vandræðaástand er mest, eru
leið 2, Grandi-Vogar, leið 3,
Nes-Háaleiti og sú umrædda
leið 11 Hlemmur-Breiðholt.
Leið 2 hefur löngum, eða
frá því breytingarnar fræga
síðla vetrar tóku gildi, verið
vandræðaleið, og vagninn yfir-
leitt yfirfullur á mestu um-
ferðartímum dagsins. Eftir að
nýja tímaáætlunin tók gildi nú
um mánaðarmótin, þá var leið-
in, vegna þess að vagnstjórar
höfðu mjög knappan tíma til
að aka hana, stytt með því að
aka Gnoðavog í vesturátt frá
Langholtsvegi að Álfheimum.
Eru nú farnar sex ferðir á þess
ari leið á klukkustund í stað
fimm áður, en á kvöldin eru
farnar fjórar ferðir eins og var
fyrir mánaðarmót. Þrátt fyrir
þessar breytingar er þetta
sama vandræðaleiðia og áður.
Eru vagnar sem fara leiðina,
yfirfullir af fólki, á mestu um
ferðatímunum, og komust
færri en vildu með vögnunum
á tknanum milli kl. 5—6 í dag.
Framhald á bls. 3
Ályktun 20. þings Alþýðusamb Vestfjarða vekur athyggi:
TK—Reykjavík, mánudag.
í kvöld var haldinn fundur í
Fulltrúaráði Alþýðuflokksins í
Reykjavík. Á dagskrá fundarins
voru m. a. tillögur um prófkjörs
reglur og kosning uppstiUingar-
nefndar vegna alþingiskosning-
anna 1971. Búizt var við að þessi
fundur yrði fjölsóttur og aUir
kjörnir fulltrúar yrðu þar við-
staddir, því að búizt var við all
hörðum deilum þar sem stjórn
Fulltrúaráðsíns hafði klofnað í
afstöðunni t>l prófkjörsreglna.
Lagði meirihlutinn til, að farin
yrði sú nýstárlega leið við val
á mönnum á framboðslistann, að
menn skyldu hjóða sig fram tU
ákveðinna sæta á listanum. Er
sagt að þessi tillaga meirihlutans
sé runnin undan rifjum Gylfa
Þ. Gíslasonar, sem óttast mjög
afleiðingar prófkjörs fyrir stöðu
sína f flokknum. Mun ótti Gylfa
ekki ástæðulaus, því að við kosn
ingu fulltrúa á flokksþing fyrir
fáum dögum varð Eggert G- Þor
steinsson lang hæstur að atkvæð
um, en Björgvín Guðmundsson
kom fast á eftir Gylfa að atkvæða
magni. Gylfi telur sig geta nýtt
aðstöðu sína til að koma í veg fyr
ir að nokkur hættulegur keppi
nautur bjóði sig fram í 1. sæti
listans á móti sér. Af þeim rótum
er tillaga meirihluta Fulltrúaráðs
stjórnarinnar.
f auglýsingu í Alþýðubtaðinu í
dag er fulltrúaráðsfundurinn aug
lýstur með svofelldum orðum:
„Fundur verður haldinn í Full
trúaráði Alþýðuflokksfélaganna í
Reykjavík í Iðnó uppi í kvöld og
Framhald á b’.s. 3
Miðkvíslarmálið:
Koma í veg
fyrir viðgerð
stíflunnar
Mannslífum stohað / hættu
vegna vals óhæfra vélstjóra?
EJ—Reykjavík, mánudag.
20. þing Alþýðusambands Vest-
fjarða var haldið fyrir skömmu, og
þar voru gerðar margar ályktanir.
M. a. var gerð þar samþykkt, þar
sem þingið „átelur harðlega það
háttarlag Vélstjórafélags íslands,
að innheimta félagsgjöld af vél-
stjórum, sem félagar eru í stéttai-
félögum innan sambandsins og sem
önnur félög semja um kaup og
kjör fyrir“.
Síðar í þessari ályktun kemur þó
athyglisverðasti kaflinn, en þar
segir m. a.:
„Jafnframt harmar þingið það
sinnuleysi samgöngumálaráðuneyt-
isins, að svara í engu margítrekuð-
um kröfum þessara félaga og ann-
arra samtaka sjómanna, að til
þeirra sé leitað um undanþágur
fyrir véfstjóra á fiskiskipum og
láta þannig Vélstjórafélagið sjálf-
rátt um að selja í formi félags-
gjalda undanþágur til vélstjóra,
sem þeir í engu þekkja og hafa
engan samningsrétt fyrir. — Með
þessu háttalagi rænir ráðuneytið
ekki einungis viðkomandi stéttar-
féiög tekjum, sem þeim ber, held-
ur er þar mörgum mannslífum
stofnað í hættu veljist óhæfur vél-
stjóri.“
í lok ályktunarinnar er skorað á
ráðuneytið, ,,að virða án tafar þann
skýlausa rétt verkalýðsfélaganna á
sambandssvæðinu, að til þeirra sé
leitað urn a.lar undanþágur fyrir
vélstjóra á félagssvæðum þeirra.“
Blaðinu tókst ekki í dag að ná
í talsmann Vélstjórafélagsins til
að skýra málið frá sjónarmiði fé-
lagsins.
SB—Reykjavík, mánudag.
Eigendur eyjanna Helgey og
Geitey í Laxá, hafa nú auglýst
bann við allri umferð um eyjarnar.
Þannig háttar, að Miðkvíslarstífl-
an, sem sprengd var á dögunum,
er innan þess svæðis, sem þarna
er um að ræða.
Blaðinu tókst ekki í kvöld að ná
tali af landeigendum, en Rolf
Árnason í Laxárvirkjun sagði, að
að því er hann vissi, væri þessi
ráðstöfun gerð vegina mikiflar um-
ferðar óviðkomandi um svæðið
undanfarið. Hins vegar lægi í aug-
um uppi, að með því að setja um-
ferðarbann á svæðið lýstu bændur
því yfir, að þeir ætluðu ekki að
heimila viðgerð á Miðkvíslarstífl-
unni.