Tíminn - 07.10.1970, Blaðsíða 1
ttWttlJ
226. tbl. — Miðvikudagur 7. okt. 1970. — 54. árg.
kæli-
skápar
BAMÆJUAOaUI,' KAfKARSTRÆTI 23, $ÍM 18395
Fleiri stúlkur
kæra árásar-
manninn á Skóla-
vörðuholti
OÓ—Reykjavík, þriðjudag.
Fleiri stú’kur en sú, sem
sagt var frá í Tímanum í dag,
hafa orðið fyrir árásum á Skóla
vörðuholti nýlega. Ber lýsing
um á manninum saman og tel
ur rannsóknarlögreglan fullvíst
að um sama mann sé að ræða.
Veit lögreglan um að
minnsta kosti tvær stúlkur
til viðbótar, sem maðurinn
róðst á um síðustu helgi. Var
árásarmaðurinn á ferli á svip
uðum slóðum. Hagaði hann sér
svipað í öllum. tilfellum. Hljóp
hanin að stúlkunum og réðst á
þær umsvifalaust og reyndi að
komast yfir bær, en tókst
afdrei. Engin stúlknanna
meiddist að ráði eir maðurinn
réðst á þær.
Framhald á 14. síðu
Mikið hvassviðri víða um landið:
Rafmagnsstaurar brotnuíu
og þak fauk austanfíalls
Þannig líta skuttogararnir út, sem smíöaðir ve ia fyrir íslendinga á Spáni.
Gengið frá samningum um
smíði 2 skuttogara á Spáni
OÓ—Reykjavík, þriðjudag.
Samningur um smíði tveggja
rúmlega 1000 lesta skuttogara var
í dag staðfestur af Eggert G.
Þ orsteinssyni, s j á var útvegsr áð-
herra og Magnúsi Jónssyni, fjár-
málaráðherra, fyrir hönd ríkis-
stjórnarinnar Togararnir verða
smíðaðir á Spáni fyrir Reykjavík-
urborg og Hafnarfjarðarbæ. Fyr-
ir hönd spænsku skipasmíðastöðv-
arinar staðfesti Conzalo Chausson,
aðalforstjóri, samninginn. Kaup
þessara togara eru gerð á grund-
velli laga um heimild ríkisstjórn-
arinnar til að láta smíða allt að
6 skuttogara til að selja útgerðar-
fyrirtækjum. Eru þetta fyrstu tog-
ararnir sem samið er um smíði á
samkvæmt skuttogaralögunum.
Vérð þeirra togara sem samið
hefur verið um smíði á er ekki gef
ið upp að svo stöddu, þar seen ekki
er lokij samaingum við aðrar
skipasmíðastöðvar um smíði fjög-
urra skuttogara af svipaðri stærð.
Ríkisstjórnin mun veita væntan-
legum kaupendum skuttogaranna
frekari lánafyrirgreiðslu, þannig
að kaupendur fá lengri frest til
þess að endurgr 80% af kaupverð
inu. Skulu 80% greiðast á 18 ár-
um, en 7.5% framlag rí'kisins að
þeim tíma liðnum, ef greiðslugeta
er fyrir hendi
Er málum því nú þannig háttað
um smíði skuttogara, að sam-
kvæmt heimild til ríkisstjórnarinn
ar í lögum frá síðasta Alþingi um
kaup á sex skuttogurum og fyrir-
greiðslum og yfirlýsingum, sem
ríkisstjórnin hefur gefið í því sam
bandi, ásamt fjárhagsstuðningi
Reykjavíkurborgar, Hafnarfjarðar- a°n
bæjar og Akureyrar, hafa tekizt
samaingar um smíði tveggja skut-
togara í Póllandi á vegum Ögur-
víkur, sem gerðir verða út frá
Reykjavík, enda hefur Reykjavík-
unborg samþykkt að veita lán til
kaupanna, sem nemur 7y2% af
andvirði skipanna. Samið hefur
verið um smíði tveggja skuttog-
ara á Spáni og eru væntanlegir
kaupendur þeirra Reykjavíkur-
borg og Hafnarfjarðarbær, er
leggja fram 15% af kaupverðinu
meðan skipin eru í smíðum, en
sæta að öðru leyti þeim lánakjör-
um sem að framan greinir.
Samningar standa yfir við Slipp-
stöðina á Akureyri um smíði
tveggja skuttogara á vegum Út-
gerðarfélags Akureyrar h.f. og
Súlna h.f. á Akureyri. Samningar
hafa staðið yfir við Centromor í
Framhald á 14 síðu
SB—Reykjavík. þriðjudag.
Mjög hvöss norðanátt var víða
á landinu í nótt og mun hafa orð
ið einna hvassast sunnanlands. í
veðrinu tók þak af hlöðu á bæn
um Þóroddsstöðum í Ölfusi og raf
magsstaurar brotnuðu víða austan
fjalls. Ekki var rafroagnið alls-
staðar komið á aftur, fyrr en síð
degis í dag.
Húsfreyjan á Þóroddsstöðum
sagði blaðinu í dag, að hún myndi
ekki eftlr öðru eins norðanveðri
þarna og væri hún þó búin að
vera þarna í 40 ár.
— Þakið fór af hlöðunni ein-
hvern tíma I nótt. Það lá úti í
garði í morgun í tvennu lagi. Svo
er rafmagnslaust hjá okkur núna,
en það er verið að gera við. Það
brotnaði staur hérna rétt við bæ-
inn.
Hey var í hlöðunni á ÞóroJds-
stöðum, en þáð var kyrrt á sín
um stað, þótt þakið fyki.
Ekki tókst að fá áreiðanlegar
upplýsingar um hve viðtæk raf
magnsbi'lunin varð af völdum
veðursins, en rafmagnið mun
víðast hafa verið komið á aftur
siðari hluta dagsins. Á nokkrum
stöðum munu hafa brotnað há-
spepnulínustaurar. Ekki er vitað,
til, að skemmdir hafi orðið á hús
urn á fleiri stöðum.
Þá var afar hvasst í Vest-
mannaeyjum í nótt, en þar er
er ekki vitað. að neitt hafi fokið
eða skemmzt-
Saniningurinn um smíöi 2 1000 I. skuttogara staðfestur. Sitjandi eru ráðherrarnir Magnús Jónsson og Eggert G.
porsteinsson og Gonznlo Chausson, aðalforstjóri. Aftan við þa standa skuttogaranefndarmenn. Vilhelm Þorsteins-
Jón Axei Pétursson, Sveinn Benedlktsson, formaður nefndarinnar, Þorsteinn Arnalds, Guðbjartur Ólafs-
Sæmundur Auðunsson og Pétur Gunnarsson. (Tímamynd Gunnar)
ASV gagnrýnir
Verðlagsráð
sjávarútvegsins
Skerðing á
hlut sjómanna
verði afnumin
EJ—Reykjavík, þriðjudag.
20. þing Alþýðusambands
Vestfjarða (ASV), sem haldið
var á dögunum, skoraði á rík-
isvaldið „að afnema með öllu
skerðingarlögin um hlutaskipti
sjómanna frá árinu 1968 og
sýna þannig í verki, að störf
þeirra fáu sem sjósókn stunda
ver'ði í framtíðinni metin að
verðleikxun“.
Þráigið gerði nokkrar álykt-
anir utn þetta mál, og um
„vinnubrögð Verðlagsráðs sjáv-
arútvegsins við ákvörðun fisk-
verðs“. M.a. er skorað „á al-
þingi og ríkisstjórn að þau
skili sjómönnuim aftur óskertu
skiptaverði þar sem forsend-
ur þær, sem fyrir ráðstöfunun-
um í sjávarútvegi voru færðar,
eru brostnar.“
I einni ályktuninni segir, að
þingið víti „harðlega yfirnefnd
í Verðlagsráði sjávarútvegsins
fyrir ákvörðun um aðeins
51/2% hækkun fiskverðs 9.
júní s.l. Telur þingið það óaf-
sakanlegt að skamthta fiski-
mönnum þessa smánarlegu
hækkun, þegar á sama tíma
stóðu yfir samningar milli land
verkafólks og atvinnurekenda
og þar gerðar almennar kröfur
um 25% kauphækkanir. Slíkt
vanmat og virðingarleysi fyrir
störfum fiskimana og þýðingar
útgerðar í landinu mótmælir
þingið harðlega og telur frek-
lega móðgandi."
Þá er sérstaklega skorað á
fultrúa sjómanna í Verðlags-
ráði að beita sér fyrir hækkun
á línu- og handfærafiski, og
jafnframt fáist rífleg verð-
hækkun á steinbít. Er m.a.
bent á yfirlýsingu „útflutnings
aðila fiskiðnaðarins um að verð
á steinbít og ýsu haldist í hend-
ur á erlendum mörkuðum.
Telur þingið því enga ástæðu
trl að verðmismunur á áður-
nefnducn fisktegundum sé
meiri en sem svarar mismun á
nýtingu. Þingið telur. að sú al-
menna verðhækkun fiskafurða
á erlenaum mörkuðum, sem
orðið hefur á síðustu árum,
eigi að koma íslenzkum sjó-
cnönnnm til góða við fiskverðs
ákvarðanir á næstunni.“
íslendinga-
þættir Tímans
fylgja blaðinu á morgun,
fimmtudag