Tíminn - 15.10.1970, Blaðsíða 5

Tíminn - 15.10.1970, Blaðsíða 5
WMMTUDAGUR 15. október 1970 TIMINN 5 MEÐ MORGUN KAFFINU — Hver er bezti læknirinn í 'bænum? — Jörgensen, þegar hann er edrú. — En þá sá næst bezti? — Jörgensos, þaaar hann er fullur. — Borðaðu nú gulrætur. Þær eru hollar fyrir tennurnar. Hef- urðu nokkurntíma séð kanínu með falskar tennur? — Góðan daginn, læknir. Ég heiti Abraham Lincoln. Ég er hræddur um. að konan mín vilji losna við mig. — Nú, hvers vegna haldið þér það? — Hún er alltaf að biðja mig að koma í leikhúsið. Hermaður 67 var búinn að liggja í sjúkrahúsi í þrjár vik- ur og hafði liðið dásaml. Nú beið hann eftir að úrskrifast, en langaði alls ekkert til þt;3s. Tii að draga það svolítið, hitaði hann mælinn upp með eld- spýtu og það gekk vél í nokkra daga, en loks kom hjúkrunar- konan og skipa'ði honum upp úr rúminu. — Já, en ég var með hita ... byrjaði hann. — Já, 43,6. Þér eruð einfald- iega látinn. Kistan bíður niðri í kapellunni. — Já, en Inga. Hvers vegna eig- um við að vera að gifta okkur? Nú er komið sumar, og við get- um setið liér á bekknum okkar á hverju kvöldl. — Minnztu þess, hve margir milljónamæringar hafa byrjað scm uppvaskarar. — Hugsaðu þér, Ijósin í leik- húsinu fóru í hálftíma. — Var fóJk ekki hrætt? — Jú, þau komu aftur. — Lestarstjóri. Hef ég tima til að kveðja konuna mína, áð- ur en lestin fer? — Það fer nú talsvert eftir því, hvað þið hafið verið lengi gift. DENNI DÆMALAUSI — ... þá hrundi stafli af dós- um og verzlunarstjórinn heimt- aði að fá að vita, hver ætti mig, en ég kom ckki upp um þig! Lazenby var ekki fyrr búinn, að snúa sér við, en hann var orðinm heimsfrægur, stöðugt .umkringdur glæsilegum stú!k- um. stöðugt að lenda í spenn- andi ævintýrum — á hvíta tjald inu. En upphefðin steig pi.'ti svo rækilega til höfuðs, að hann hélt áfram að vera James Bond í frístu'ndunum — einkaiífinu. Þetta gekk svo langt, að allir samstarfsmenn hans fengu megnustu andúð á honum. Hann var ósvífinn og frekur, slóst og drakk og vissi afla hluti betur en a'ðrir. Hann hagaði sér í fá- um orðum sagt eins o» hann ætti all-t og alla skuldlaust. Þetta hia’Ut að enda með skelfingu fyrir hina nýkviknuðu kvikmyndastjörnu, því að þann- ig er ekki hægt að haga sér ti: lengdar án þess að koma sér alls staðar ut úr húsi. Eflir að hafa rifizl heiftarlcga við kvik- m y n d a f r am’. ei'ða n d a n n, s e m Og enn hefur Charles Man- son, ákærður ásamt þremur stúíkum fyrir morðið á ieikkon- unni Sharon Tate, látið til sín heyra. Ekki er þó neitt nýtt komið fram í máli hans, he.'dur beindist athyglin að honum á ný, er hann gerði tilraun til að myrða Oider dómara i réttar- saínum. Þetta atvikaðist þannig, að eftir ítrekaðar ávítur dómarans, en Manson hafði hvað eftir ann- að haft í frammi hávaða og tafið þannig störf réttarins, missti ákærði gjörsamlega vald á skapi sínu. — Ég ska,’ svo sannarlega þagga niður í þér, sagði hann, og leit heiftaraug- um til dómarans. Og fyrr en nokkurn varði hafði hann tekið undir sig heljarmiki'ð stökk, yfir borð vérjandans, og hafn- 'aðí éndnangur framán við dóm- arasætið. Réttarþjónarnir, sem gripu hann samstundis, áttu fullt í fangi með að hemja hann, og í ljós kom, að í hendinni hafði hann oddhvassan, nýyddaðan bfýant, sem hann ætlaði a'ð nota til verknaðarins. Síðar upplýstu lögfræðingar Mansons, að hann hefði tvisvar gert tiiraun til að ráðast á verjanda sinn, Irving Kanarek, með satnskonar vopni, þegar honum fannst verjandinn ekki fara aö óskuni sínum. Meðan á réttarhöldunum stendur, er Older dómari undir stöðugri lögreg.'uvernd, bæði í réttinum og utan hans. Þessi myndarlegi maður heit- ir George Lazenby, þekktur um allan heim sem James Bond II Hann var áður ofur venjuiegur bifvélavirki í heirnalandi sínu, Ástrafíu, en dag nokkurn var hann svo heppinn, að kvik- myndaframleiðandi nokkur rakst á hann á rakarastofu, og sannfærðist þegar í stað um að hann væri einmitt maðurinn, sem hann vantaði til að leika James Bond. reyndi að leiðbeina honum og gefa góð ráð, sagt einskukenn- aranum og leiklistarkennaran- um að fara fjandans til og móðg að meðleikara sína freklega, lýsti hann því yfir, að hann nennti ekki lengur að ieika í svo bjánalegum myndum og ætl aði að snúa sér að einhverju, sem betur hæfði slíkum hæfi- .’eikamanni. Lazenby til mestu sfurðu, en flestum öðrum til- léttis. tók leikstjórinn hann á orðinu. — Hann mátti sko hypja sig, og það sem lengst í burtu. Og nú býr þessi fyrrverandi stjarna, þótt skamma stund stæði, við sult og seyru á fá- tæk.'egu hóteli í London og ranglar um strætin í atvinnu- leit.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.