Tíminn - 15.10.1970, Blaðsíða 9

Tíminn - 15.10.1970, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 15. október 1970 TÍMINN 9 Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framtovæmdastjóri: Kristj án Benediktsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason o>g Tómas KarLsson. Auglýsingastjóri: Steingrímur Gíslason. Ritstjórnar- skrifstoíur í Edduhúsinu, símair 18300—18306. Skrifstofur Bankastræti 7 — Afgreiðslusími 12323. Auglýsingasími 19523. Aðrar slkrifsitofur sími 18300. Áskriftargjald kr. 165,00 á mánuði, innanlands — í lausaisölu kr. 10,00 eint. Prentsm. Edda hf. VADIM ARDATOVSKI, APN: Verða löndin í Vestur-Evrðpu óháð dollarnum í framtíðinni? Afnám söluskatts Athyglisverð athugun á vegum Efnahagsbandalagsins á nauðsynjavörum Þrír þingmenn Framsóknarílokksins, Halldór E. Sig- urðsson, Ingvar Gíslason og Ágúst Þorvaldsson, hafa end- urflutt á Alþingi frumvarp um afnám söiuskatts á smjöri, osti, skyri, kjötvörum, kaffi, sykri, kornvörum, raforku, heitu vatni og olíu. Þetta er eitt af þeim málum, sem Framsóknarflokkurinn flytur og miða að því að hamla gegn dýrtíðinni, sem afkomu atvinnuveganna og efnahag þjóðarinnar stafar nú mest hætta af. Framsóknarflokkurinn flutti frv. um þetta sama efni í fyrra, ásamt því að auka fjölskyldubætur. Hefði sú til- laga verið samþykkt þá, hefði hún komið í veg fyrir þriggja stiga hækkun á framfærsluvísitölunni. Stjórnar- flokkarnir felldu þessa tillögu og vísitalan hækkaði um sín þrjú stig. Kaupið hækkaði síðan tilsvarandi og sú kauphækkun leiddi aftur til verðhækkunar og nýrrar hækkunar á vísitölunni. Sennilega væri framfærsluvísi- talan nú 5—6 stigum lægri, ef farið hefði verið eftir þessari tillögu Framsóknarmanna á síðastl. vetri. At- vinnuvegirnir væru þá mun betur staddir og launþegar hefðu notið enn öruggari bóta en vísitöluuppbótarinnar, þar sem verð framangreindra nauðsynjavara hefði verið mun lægra, eða sem söluskattinum næmi, en hann er nú 11%. Þótt heppilegast hefði verið að fara eftir þessum til- lögum Framsóknarmanna í fyrra, kæmu þær eigi að síður að notum nú, þótt seint sé. Þær myndu sporna gegn nýrri hækkun á framfærsluvísitölunni og spara þannig atvinnuvegunum og ríkinu ný útgjöld, sem ella hlytust af þeirri hækkun og víxlhækkunum í kjölfar hennar. Bætt staða atvinnuveganna myndi bæta ríkinu upp það tekjutap, sem hlýzt af því að létta söluskattin- um af umræddum vörum. Til þess að sporna gegn vaxandi dýrtíð, er ekki til neitt eitt allsherjarráð. Þar verður að beita mörgum og mismunandi aðgerðum, sem eru þó samverkandi. Eitt þeirra úrræða, sem þar koma að fullum notum, er að fella niður söluskattinn á nauðsynjavörum, eins og lagt er til í framangreindu frumvarpi Framsóknar- manna. Námskostnaðarsjóður Þeir Sigurvin Einarsson og Ingvar Gíslason hafa nú endurflutt á Alþingi frumvarpið um námskostnaðarsjóð. Samkvæmt því skal stofna sérstakan sjóð, sem tryggð- ar eru allríflegar tekjur, til að veita styrki til nemenda,. er verða að dveljast fjarri heimilum sínum meðan á námi stendur. Tekjur sínar á sjóðurinn að fá með tvennum hætti: Gjaldi af tóbaki, áfengi og gosdrykkjum, og beinu framlagi úr ríkissjóði. í greinargerð frumvarpsins er lögð áherzla á, að þjóð- félaginu beri skylda til að nema brott það misrétti, sem af aðstöðumun nemenda stafar, og koma beri á sem jafnastri aðstöðu æskufólks til menntunar hvar sem það er búsett á landinu. Verði það ekki gert, stefni óðfluga í þá átt, að skólar verði aðallega fyrir þá, sem búa við skólaveggina. Þess verður að vænta, að þetta mikla jafnréttismál fái betri undirtektir nú en á síðasta þmgi Þ.Þ. Aðstöðumunur Bandaríkj anna og Sovétríkjanna e m.a. fólginn í því, að dollar- inn er alþjóðlegur gjaldmið iH, en hið sama verður ekki sagt um rúbluna. Þetta veit- ir Bandaríkjunum miklu traustari aðstöðu en Sovét- ríkjunum á sviði alþjóðlegra efnahagsmála. Af hálfu Rússa er því lögð áherzla á þanu málflutning, að doll- arinn sé ekki eins sterkur gjaldmiðill og álitið er. Eft- irfarandi grein er dæmi um þennan málflutning Sovét- manna. í SEPTEMBERBYRJUN hóf- ust í kauphöllunucn í Róm og Mílanó skyndilega óvenjulega mikil viðskipti með dollara. Framboð á hinum grænu, er- lendu seðlum fór fram úr eft- irspurn, og farið var að kaupa þá og selja á lægra verði en hin opinbera skráning segir til um, en samkvæmt henni eru þeir 624.725 lírur. Þá greip Miðbankinn til varnaraðgerða og kunngjörði að hann skipti dollurucn eins og hvep vildi á réttu gengi. Þá hjaðnáði þessi sölualda og dollarinn komst í örugga höfn hins opinbera gengis Það hefur sett svip sinn á undanfarandi tíma, að skyndi- lega kemur upp í Evrópu van- traust á dollaraaum og gengi hans fer að sveiflast til alveg fram að því að gripið er til sérstakra ráðstafana. I marz 1969 var verð á gull- únsu komið upp í 43.8 dollara, en var opinberlega skráð 35 dollarar. Nú er dollar metinn u.þ.b. á við gulltryggingu sína. En þessi gulltrygging er í raun og veru ekki fyrir hendi. BANDARÍKJUNUM tókst að fá aðildarríki að alþjóðagjald- eyrissjóðnum til þess að sam- þykkja ályktun í marz 1963, en samkvæmt henni geta hvorki einkabankar né einstakliagar krafizt þess að fá gull fyrir dollara. Slík forréttindi hafa nú aðeins Miðbankar aðildar- ríkja, og þeir færa sér þau tæp lega í nyt — en ef þeir gerðu það nú? í lok ársins 1969 námu skammtíma skuldþindingar Bandaríkjanna erlendis um þrisvar og hálfu sinni hærri upphæð en gullvarasjóður þeirra. í því tilviki að van- traust á dollarnum i Evrópn kæmi fram i kröfum um skipti á dollurum fyrir gull, yrði þetta volduga auðvaldsríki ann að hvort að grípa til mikillar gengislækkunar á gjaldmiðli sinum eða lýsa sig gjaldþrota. Dollarann skortir ekki aðeins gulltryggingu. hann hefur heldur ekki tryggingi i hióðar Kennedy, fjármálaráSherra Bandarikjanna. tekjum Bandaríkjanna. Vegna mikilla útgjalda til stríðsins 1 Vietnam og vígbúnaðar á ár- inu 1970 mun halli á fjárlög- um Bandaríkjanna nema um 7 til 8 milljörðum dollara. Hvernig er þessi halli jafnað- ur. sem er reyndar á síðast- liðnum árum orðinn hefðbund- inn? Með því að gefa út nýja pappírsdollara. En ef þeir eru settir í umferð, er verðbólga óhjákvæmileg. Oa dollarar era sendir frá Bandaríkjunum til útlanda og þ.á.m. til Evrópu. BANDARÍSK FJÁRPEST- ING í löndum Efnahagsbanda- lagsins nemur núna um 30 milljörðum dollara, og bráða- birgðaspár gera ráð fyrir að hún aukist um 25 prósent á þessu _ári. Og hvað þýðir þetta? í Vestur-Evrópu hlaðast upp dauðir pappírsdollarar og í stað þeirra eignast Banda- ríkjamenn miklar og verðmæt ar eignir svo sem verksmiðjur, iðnfyrirtæki o.fl. Það væri að grafa undan eigin efnahagslífi, ef þessir dollarar væru nýttir til þess að kaupa bandarískan varning. Og ekki er hægt að skipt.a þeim í gull vegna þeirra samþykkta, sem gerðar voru 1968. Á ÞEIM ÁRUM, þegar efna- hagslíf í Bandaríkjunum var stöðugt og blócnstraði í sam- anbarði við efnahagslíf í banda lagsríkjum þeirra, var það að minnsta kosti „de facto“ eðli legt að alþjóðagjaldeyriskerf- ið hvíldi á bandarískri mynt En n úer ástandið allt annað. — Bandaríkin eiga í æðis- gengnu vígbúnaðarkapphlaupi, sem ekk: sér fyrir endann á og hernaðarævintýrum sem þau kæra sig ekki um að hætta við Ríkið skelfur af félagslegum átökum. Út við sjóndeildar- hring er hráefnakreppa að koma í ljós. Hin tilbúna sam- svörun við gjaldmynt Vestur- Evrópuríkja, sem ekki eiga þátt í hernaðarævintýrunum með hinum ótrausta og yfir- gangssama dollara, vekur mikla gagnrýni. f Frakklandi Sviss og fleiri löndum eru ábyrgir aðilar sem berjast fyrir því grund- vallarsjónarmiði að gullfótui verið tekinn upp aftur, — t. c, franski hagfræðingurinn Jack Riuefe. Þetta óttast Bandaríkja menn mest. Sarokvæmt forspá Lundúnafirsnans Consolidated Goldfields Ltd. vérða 40 doll- arar gefnir fyrir gullúnsu um enitt ár 1971, 45 dollarar á ár- inu 1972 og 50 dollarar 1975 MJÖG athyglisverð er tiltölu lega nýleg hugmynd, sem fram er komin í sambandi við tii rauair raunsærra hagfræðinga í Vestur-Evrópu til að losna við hið ójafna og óhagkvæma „hjónaband“ dollarans 02 gjald miðils þeirra f löndum Efna- hagsbandalagsins er verið að athuga möguleika á því að koma á fót sjálfstæðu gjald- eyrissvæði, sem væri óháð doll aranum. örlögum hans og „heilsufari". Sérstök nefnd undir forustu fulltrúa Laxem- borgar, Verners, er nú að gera skýrslu um þetta mál. Framkvsctnd þessarar hug- myndar er varla möguleg á næstu árum En hún sýnir vax andi andstöðu Vestur-Evrópu- ríkja gegn yfirráðum dollarans og þar til heyrandi fjárfestingu bandarískra einokunarhringa. Æ oftar má nú heyra slagorð- ið: Dollar, go home, í Evrópu- löndum, og veldur það miklum áhyggjum meðal kaupsýslu- og stjórnmálamanna í Bandaríkj- unum. APN ÍT’ffiSgOl III Jliuallgllll——

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.