Tíminn - 20.10.1970, Blaðsíða 11

Tíminn - 20.10.1970, Blaðsíða 11
ÞREÖJUDAGUR 20. október 1970. Bahá’íar fá umræðurátt hjá Sameinuðu þjóðunum Nefnd sú, er sinnir málefnum ópólitískra stofnana hjá Samein- uSu þjóðunum, samþykkti einu hljóSi að vísa umsókn Alþjóða Bahá’í Samfélagsins um utnræðu- rétt á fundum til Efnahags- og Félagsmálastofnunarinnar. Efnahags og Félagsmálaráðið saenþykkti tillögu undirnefndar- innar og veitti Alþjóða Bahá’í Samfélaginu usnræðurétt II. stigs á fundum ráðsins, hinn 26. maí s.l. Alþjóða Bahá’í Samfélagið er fulltrúi allra Bahá’ía í heiminum hjá S.'Þ., og lýtur stjóm Hins Al- þjóðlega Húss Réttvísinnar í Haifa, fsrael. Það hefur setið fundi Efnahags- og Félagsmála- ráðsins se*n áheymarfulltrúar frá 1948. Bahá’íar um víða veröld hafa stöðugt unnið að ikynningu mál- efna S.Þ. í heimalöndum sinum, piVki einungis í því skyni að efla í Mannkynssaga I Framhald af bls. 3. mönnum áhuga með lifandi yfir- sýn í samfelTdri frásögn, í stað þess að ofhlaða verkið með ártöl l um og nöfnum, sem einatt hægja I lesendum sjálfkrafa frá sams kon i ar bókum. i Fyrir 130 árum lét Tómas Sæ- mundsson svo um mælt. að mann 1 kynssagan væri ekki aðeins „ein- I hver hin indælasta vísindagrein,“ I heldur hverjum manni gagnleg, i því án þekkingar á fortíðinni gæti enginn skilið til hlítar sjálfan sig ' eða samtíðina. Það má því vera 1 fagnaðarefni, að hafin er útgáfa 1 hinnar veglegu Mannkynssögu i BSE, og takist svo til um fram i haTdið sem þetta fyrsta bindi gef i ur vonir um, má ætla, að þar eignist íslendingar loks það sögu lega yfirlitsverk, samstætt og læsi ' legt, sem svo lengi hefur vant- ' að. Mannkynssaga BSE er sett í ' Prentsmiðjunni Odda, en filmu- gerð og prentun annaðist Grafík : h. f. Bókband var unnið í Félags < bókbandinu. Torfi Jónsson teikn- 1 áði kápuna. Verð bókarinnar er i kr. 993,50 með söluskatti. íþróttir Framhala af bls. 8 maður, og hann varði hvað eftir annað vel og greip þar fyrir utan oft vel inn í. ER tókst ekki áð skora og ÍBV var® þar með Íslandsmeistari i þessum flokki eins og í 3. og 4. flokki, og eru því 3 bikarar komn ir tiT Eyja og möguleiki er á 3 í viðbót. 2. flokkur ÍBV er ekki skipað ur neinum „smákörlum“. Með lið inu leika tveir m.fl menn, Óskar Valtýsson og Ólafur Sigurvinsson. en hann hefur m. a. leikið með a- landsliðinu. Auk þeirra leika í þessu liði 3 leikmenn, sem hafa verið meira eða minna með í 1. deild í sumar. ER-liðið er mjög ungt en með því eru 7 leikmenn, sem Téku í 3. flokki í fyrra — efuilegt lið sem á létt með að leika góða knattspyrnu. Áuglýsið í Tímanum Sameinuðu þjóðirnar, heldur og einnig vegna þess, að kenningar Bahá’u’llash, sem settar voru fram fyrir tneira en hundrað ár- um, hafa að aðalinntaki þau vel ferðar- og meantunarmálefni, sem S.Þ. hafa sett fram sem aðalmark- mið sitt til eflingar friði og aukn- um mannréttindum í heiminum. Starfsemi Bahá’ía og Sameinuðu þjóðanna hefur því að mörgu leyti fylgt sama farvegi. Bahá’íar um allan heim fagna þessum áfanga sem náðst hefur í viðurkenningu heimsins á lífs- stefnu sinni. Greiðslur til lækna Framhald af bls. 3. hvert viðtal á lækningastofu og kr. 70.00 fyrir hverja vitj- un læknis til sjúklings. Þar sem samið er um greiðslu lækn ishjálpar miðað við hvert um- ið verk, dregst gjald þetta frá umsömdu gjaldi fyrir viðtöl og vitjanir. Reglugerð þessi er sett sam- kvæmt heimild í 49. gr. al- mannatryggingalaga nr. 40, 30. apríl 1963, sbr. löig nr. 94 20. desember 1966 og öðlast gildi hinn 10. október 1970. Á VÍÐAVANGI Framhald af bls. 3. í meira en heilan áratug hefur Alþýðuflokkurinn staðið að stjórnarsamstarfi við íhalds flokk landsins. fhaldsúrræðum hefur verið beitt í efnahags- og atvinnumálum allan þennan tíma. Á sama tíma og hagur launþega hefur stórhatnað í ná- grannalöndum, hefur kaupmátt ur launa íslenzkra launþega nær staðið í stað fram til s.l. vors og á löngum tímabil- um var hann lakari á þessum áratug en í lok næsta áratugs þar á undan. Allan þcnnan tíma hefur Alþýðuflokkurinn haft það í hendi sér að segja skilið við íhaldsflokkinn og íhaldsúrræðin og ganga til sam starfs við vinstri flokkana í stjómarandstöðu um myndun stjómar á grandvelli „saimr- ar jafnaðarstefnu" eða með öðrum orðum að taka upp sams konar stefnu og svipuð vinnubrögð og jafnaðarmenn á Norðurlöndum hafa beitt. Þetta hefur ekki hvarflað að Alþýðuflokknum. f heilan ára- tug hefur hann þannig skipað sér hægra megin án nokkurrar nauðungar og tekið sér stöðu gegn vinstri öflunum. f næstu kosningum segist flokkurinn ætla að hafa óbundnar hendur. En eftir allt þetta, eftir 10 ára íhaldsþjónkun af frjálsum og fúsum vilja, eftir að hafa neit- að því í 10 ár að standa að myndun vinstri stjórnar, segist flokkurinn harma stundrungu vinstri manna, vill viðræður við Alþýðubandalagið og Hanni bal og formaðurinn skipar sér óhikað og með brosi á vör í sjónvarpi vinstra megin við stærsta stjórnarandstöðuflokk- inn, sitjandi í íhaldsstjórn, sem beitir íhaldsúrraéðum. Þetta tel ur hann sér fært þótt hann sé ’iýbúinn ai, neita kosningum í haust og hefur neitað að rjúfa íhaldsstjórnina. Samt ætlast hann víst til þess að vera tek- inn alvarlega! — TK TIMINN íi Z7 7C í BfflHl. Hespu-þyngd -verð Grettísgarn loogr. hr.42 griton merino ~ 38 grilon meríno sport 100 ~ grítongarn lOO ~ draton bahy 50 ~ draton sport lOO~ ~ 75 draton+utt 100 ~ ~ 75 beztu Framhald af bls 8 Hans hlutverk í leiknum var það eina secn hélt manni vakandi, þvi knattspyrnan var heldur þunn, enda bæði hávaða rnk og kuldi, en þá er ekkert varið í að horia á knattspymuleik eins og allir knattspymuunnendur vita, enda voru þeir líka innan við 100 á þess um leik. Rjúpnaskytta Framhald af bls. 1 ingar um mannaferðir í BláfjöTl um á laugardaginn. Eins og áður segir þá eru leit armenn hvaðanæva að, en aðallega úr þrem félagasamtökum, eða hjálparsveitum skáta, flugbjörgun arsveitum og hinum fjölmörgu björgunarsveitum Slysavarnafé- lagsins. Þá fóru félagar úir Skot félaginu til leitar í dag. og einnig nokkrir vinnufélagar Viktors úr STippnum í Reykjavík. Viktor er vanur fjallaferðum og rjúpnaskytteríi, og var vel út- búinn til eins dags. Niðurlagningarveksm. Framhald af bls. 1 tryggja hundrað Siglfirðingum örugga atvinnu allt árið, né auka verðmæti útflutningsvörunnar verulega. Verksmiðjan á 4000 síldartunn ur og er búið að flytja að minnsta kosti helming þeinra suður til að dreifa á söltunarstöðvarnar, en þegar til kom voru tómu tunnurn ar settar á aðeins tvær söltunar stöðvar, í stað þess að dreifa þeim sem viðast og þá meiri mögu Teiki á að fá sem mest af hráefni og sem fyrst. PL ASTPRENT h.f. GRENSÁSVEGl 7 SlMAR 38760/61 LÆKKIÐ ÚTSVÖRIN! PLASTSEKKIR í grindum rySja sorptunnum og pappírspokum hvarvetna úr vegi, vegna þess aS PLASTSEKKIR gera sama gagn og eru ÓDÝRARI. Sorphreinsun kostar sveitarfélög og útsvarsgreiðendur stórfé. Hvers vegna ekki aS lækka þó upphæS?

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.