Tíminn - 07.05.1971, Blaðsíða 1

Tíminn - 07.05.1971, Blaðsíða 1
jlERA 109 kæli- skápar MrTKXJUmÍV. KAIKAR3TIUCn 23, SH8 1KWS fOWWtt ALLT FYRIR BOLTAÍÞRÓTTIR Sportvöruverzlun INGÓLFS ÓSKARSSONAR Klapparstíg 44 - Simi 117 88. ian m — Föstudagur 7. maí 1971 55. árg. HVAÐ VILL GEIR REYNA AÐ DYLJA í UÓSASTAURAMÁLINU? EB—Reykjavík, fimmtudag. Heiftarlegar umræður urðu á fundi í borgarstjórn Reykjavíkur í kvöld, er þar var á dagskrá svo- hljóðandi tillaga frá Sigurjóni Pét- urssyni og Kristjáni Benediktssyni; Borgarstjórn Reykjavíkur sam- þykkir að kjósa nefnd, er rann- saki staðhæfingar Rafmagnsveitu og rafmagnsstjóra, sem fram hafa komið við afgreiðslu útboðs nr. 70032/RR,.götuljósastólpar, Sérstaklega verði eftirfarandi rannsakað: Sami seinagangurinn við björgun Cesars: Annaö björgunarskípið komiö og nú er beðið eftir hinu GS-ísafirði, OÓ-Reykjavík, fimmludag. Þá er loks komið björgunarskip að strandaða togaranum við Arn arnes, en seint ætlar björgunin að ganga eins og fyrri daginn. Annað norska björgunarskipið kom til fsafjarðar s. L nótt, er þetta dráttarbátur á stærð við varðskipið Albert. Skipið skildi eftir þessar tunnur, sem það dró hingað til lands frá Noregi, í ísafjarðarliöfn og fór í morgun út að Arnarnesi, og hefur verið að snudda kringum togarann í dag. Björgunaraðgerðir byrja ekki fyrr en síðara skipið kemur með tvo flotgeyma til viðbótar. Er það ekki væntanlegt fyrr eii aðra nótt. Hver þessara tanka tekur um 100 tonn, og verður að nota fjóra slíka til að ná togaranum upp. Verða tankarnir settir sitt hvoru megin við kjöl togarans og fylltir af lofti, og lyftist þá skipið upp ef allt gengur að óskum. Mönnum á ísaf. finnst í meira lagi einkennilegt af hverju íslenzk um aðilum er ekki íalið að ná brezka togaranum út og af hverju Landhelgisgæzlunni var ekki strax falið að taka skipið út. En ekki skilja menn af hverju ekki var haldið sjópróf í málinu. Menn af björgunarskipinu voru um borð í togaranum í dag og kafað var undir hann til að at- huga skemmdir. Voru dælur sett ar um borð og léttistv'npið nokk uð er dælt var v*W og er í ráði að setja fleiri dælur um borð. Stórt gat er á botninum í vélarrúminu og er verið að kanna möguleika á að þétta það. Finnur Guðmundsson, fugla- fræðingur, er nú fyrir vestan að kanna áhrif olfunnar á fuglalíf. Fór hann í dag inn í Álftafjörð og ,síðan til að athuga fuglinn. Sýnt er að mikið tjón er þegar orðið á fuglalífi vegna olíunnar sem runn ið hefur úr togaranum. Frá veizlormi i sendrráSi íslands i Osló. Forsetahjónin beilsa gestum. (Tímamynd IGÞ) Forseti íslands í viðtali við Tímann um móttokurnar í Svíþjóð: 0G í ÆVINTÝRI IGÞ—Stokkhólmi, fimmtudag. Forsetahjónin fóru í morg- un til Bjarkareyjar, Birka, og skoðuðu þar gamlar minjar frá víkingaöld undir leiðsögn kon- ungsins og fornleifafræðings staðarins. Þar lét forsetinn þau orð falla um heimsóknina til Svíþjóðar og móttökurnar, að þær væru stórkostlcgar, eins og í ævintýri. Veður var mjög gott, og vor sannarlega komið é þessum slóðum. Gustaf Adolf konungur mun sjálfur hafa unnið að samn- ingu dagskrárinnar í sambandi við heimsókn forsetahjónanna til Svíþjóðar. Tíminn hefur þetta eftir áreiðanlegum heim- ildum í Stokkhólmi. Jafnframt : lét konungur þau orð falla, að b£ð væri eðlilegt, þar sem hann og forsetinn væru starfs- bræður, og átti hann þar við fornleifafræðina. Þetta vakt- ist upp í dag, þegar farið var til Birka í Bjarkarey, úti í Skerjagarðinum, þar sem rann sakaðar hafa verið fornaldar- minjar frá því þær íundust fyr ir tilviljun haustið 1871, er lif- eðlisfræðingurinn Iljalmar Stolpe var þar á ferð í leit að skordýrum. Þjóðminjavarzlan í Bjarkar- ey hefur haft hina mestu þýð- ingu fyrir Svíþjóð og Norður- lönd öll, enda hafa ógrynni fornleifa fundizt þar í jörð. Þarna hefur staðið sænskur vcrzlunarstaður á víkingaöld og Birka má með réttu kalla fyrsta höfuðstað Svíþjóðar, en síðar urðu þeir eins og kunn- ugt er Uppsalir og Stokkhólm- ur. Borgarsvæðið er kallað Svarta jörðin, en þar standa einir tvö þúsund haugar með brunnum, jarðneskum leifum íbúanna, sem voru brenndir í gröfum sínum, að sið þeirra tíma, þ.e. á 8. og 9. öld. Á síðustu árum hafa rannsóknir farið þarna fram á kostnað kon ungsins og hefur hafnarsvæðið einkum verið kannað. Lagt var af stað til Bjarkar- eyjar um kl. 10 í morgun. Auk forsetahjónanna og konungs voru með í förinni Karl Gustaf krónprins og Sibylla prinsessa, móðir hans, og fylgdarlið ís- lenzkt og sænskt. Þcgar til Birka kom tók á móti hópn- um m.a. gamall vinur forset- ans, Sven B. F. Jansson, forn- minjavörður og formaður Vís- indafélagsins sænska, sem gert hefur Kristján Eldjárn að heið ursfélaga sínum. Jansson er frægur maður og mikils met- inn i landi sínu, en landar hans kalla hann sin á milli Rúna-Janna, vegna færni hans í rúnalcstr.i. Jansson tók á móti forsetahjónunum, og mælti á íslenzku: „Herra for- seti,“ sagði hann, „það er alveg óþarfi að taka fram, að þetta cr mikil gleðistund. Ég hef boðið marga fína gesti vel- komna hingað, en enga jafn velkomna og þá, sem nú eru komnir til Birka frá íslandi, sem ég hef alltaf litið á sem mitt annað föðurland síðan ég í fyrsta sinn steig fæti á ís- Framhald á bls. 3 1. Staðhæfingar um að teikning ar lægstbjóðanda hafi ekki samrýmzt útboðslýsingu. 2.. Útreikningar R.R. á kostn- aði við málun stólpanna, sem lagðir voru til grundvallar útreiknings á árskostnaði. 3. Staðhæfingar um að á til- tekinn bjóðanda hafi sannazt vanefndir. 4. Hvort stjórn Innkaupastofn- unar Reykjavíkur, borgarráð og borgarstjóm hafi verið dulin staðreyndum um að hægt væri að framleiða hér- lendis stólpa af sömu gerð og þá, sem eru við Kringlumýr- arbraut og samþykkt var að kaupa frá Þýzkalandi vegna „fagurfræðilegra sjónar- miða.“ í nefndinni skulu eiga sæti 5 menn. Borgarstjórn kýs úr sínum hópi fjóra, og þess verði farið á Framhald á bls. 10. Gialdeyrismálm: fyrstum helgina NTB—Bonn, fimmtudag. Vestur-þýzka rfldsstjómin hef ur ákveðið að grípa ekki til einhliða aðgerða í gjaldeyris- málunum fyrr en reynt hefur verið til þrautar að ná sam- stöðu um sameiginlegar aðgerð ir EBE-rikjanna allra tíl að draga úr flóði bandariskra ðala til Evrópu. Hefur verið ákveð- ið, að halda sérstakan ráðherra fund Efnahagsbandalagsrikj- anna í Briissel á laugardaginn, og verður þar reynt að ná sam stöðu um aðgerðir. Náist hún ekki munu Vestur-Þjóðverjar grípa til einhliða aðgerða — hugsanlega gengishækkunar. Er því ljóst, að lausn á gjald eyrisvandamálunum verður ekki gerð opinber fyrr en um helgina. , f ýmsum Evrópurikjum, þar á meðal íslandi, hefur verzlun með vestur-þýzk mörk, belgíska og svissneska franka, hollenzk gyllini, ítalskar lírur og austur ríská shillinga verið hætt, og verður þar ekki breyting á fyrr en eftir helgina, að því er virðist. Efnahagssérfræðingar komu saman til fundar í dag til að undirbúa ráðherrafundinn á laugardaginn. Á morgun, föstu dag, mun vestur-þýzka ríkis stjórnin halda fund, þar sem Karl Schiller, efnahagsmála- ráðherra, mun fá nákvæm fyr Framhald á bls. 10.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.