Tíminn - 08.05.1971, Blaðsíða 1
! 02. tbl.
ALLT FYRIR
BOLTAÍÞRÓTTIR
Sportvöruverzlun
INGÓLFS ÓSKARSSONAR
Klapparstíg 44 • Sími 11788.
— Laugardagur 8. maí 1971
55. árg.
Islenzk stálbræðsla tekur
til starfa í jiílí árið 1973
Hlutafé að upphæð 100 milljónir króna, boðið út meðal almennings
Stjórn Stálfélagsins hf. og framkvæmdastjóri þess á fundi me3 blaðamönnum í gœr. (Tímam. GE)
Afleiðing vegaskemmdanna:
OLÍULAUST HJÁ VERK-
TÖKUM VIÐ ÞÓRISVATN?
Forsetaheimsóknin:
Gamansamar
frásagnir
í sænskum
dagblöðum
IGÞ—Stokkliólmi, föstudag.
Blöðin í Svíþjóð hafa skrif-
að fremur mikið um heimsókn
forsetans til Svíþjóðar, og það
er flest í gamansömuin tón,
enda munu þau hafa það að sið
að fjalla þannig um hirðina og
konunginn. Nær þetta því út
yfir forsetann líka á margan
hátt.
Blöðin gera töluvert veður
út af þMí, í dag, og allt í fullri
vinsemd og eiginlega í gríni,
að forsetinn hafi orðið til
þess að brjóta sænsk lög á
Bjarkarey í gær.
Gerðist það með þeim hætti,
að þegar forsetinn var að
ganga inn í virkisgarðinn við
sjálft virkið á Bjarkarey, biðu
blaðaljósmyndarar þar eftir
honum og konunginum. Hugð-
ust þeir taka mynd af þeim,
þegar þeir gengu þarna í gegn.
Innan við virkisgarðinn vaxa
stórar bláklukkur, og var
þama blómabreiða mikiL
Báðu ljósmyndararnir forset-
ann að taka eitt blómið og
stinga því í barm sinn. Hann
gerði það, og þeir mynduðu
eins og þeir gátu á meðan.
Myndirnar birtust síðan í
blöðunum í morgun, t.d. í
Dagens Nyheter. Þá er fyrst
farið að skýra frá því, að þetta
varði við lög, því bannað sé að
tína þessi blóm í Svíþjóð. Gert
er gott úr öllu saman, enda var
forsetinn að gera þetta að til-
mælum Ijósmyndaranna, og
vissi ekki neitt bann við þessu.
Allir æðstu menn þjóðarinn-
ar voru auðvitað þama við-
staddir, og er því gert grín
Framhald á bls. 14.
KJ—Reykjavík, föstudag.
í dag voru horfur á því að verk
takar við Þórisvatn yrðu olíulaus
ir, og yrðu að leggja vinnuvólum
og bifnsiðum vegna skorts á olni.
Miklir olíuflutningar fara franr í
hverri viku til verktakanna, en
vegna þess að vegurinn austan
við brúna á Þjórsá hjá inntaks-
mannvirkjum Búrfellsvirkjunar,
cr í sunriur og þungatakmarkanir
á Landvegi, er ekki hægt að halda
uppi eðlilegum olíuflutningum.
í vorflóðunum er gert ráð fyrir
að Þjórsá fari yfir veginn austan
við brúna hjá inntaksmannvirkjun
um, og það hefur einmitt gerzt
núna. Er um 10 metra skarð í
veginn, og fossar Þjórsá þar
fram, en rennslið er um 1100 rúm-
metrar á sekúundu. Rennslið mun
hafa komizt upp í 2000 rúmmetra
í mestu vorleysingum, svo hér er
ekki um neitt ofsa flóð að ræða
I Þjórsá. Nokkur klakaburður er
í ánni innan af hálendinu.
Á Landvegi hefur verið leyfð
ur 5 tonna öxulþungi eins og á
öðrum hliðarvegum á Suðurlandi.
Eru slæmar vilpur í veginum, og
einkum hjá Martcinstungu, að
sagt er. Ef olíubílarnir fara eftir
þungatakmörkunum, geta þeir
varla flutt meira en ca. 500 lítra
í ferð, og er flutningskostnaður á
Framhald á bls. 14.
ET—Reykjavík, föstudag.
Nýstofnað hlutafélag, Stálfélag
ið h. f. hefur að undanförnu rann
sakað rekstrargrundvöll íslenzkrar
verksmiðju, er ynni steypustyrkt
arjárn úr innlendu brotajárni.
Þær athuganir hafa leitt í ljós, að
mögulcikar á rekstri slíkrar verk
smiðju eru fyllilega fyrir hendi,
ef nægilegt hlutafé fæst frá al-
mcnningi til rekstursins, en það
ætti að fást eftir lestur þessarar
greinar!
Hugmyndin að verksmiðju, er
framleiddi steypustyrktarjám úr
innlendu brotajárni, er nokkuð
gömul. Skriður komst þó fyrst á
málið í nóvember s. 1., er Stálfé
lagið h. f. var stofnað. Hluthafar
eru 50 og fyrstu stjórn félagsins
skipa: Sveinbjörn Jónsson, form.,
Bjarni Guðjónsson, Tómas Vigfús
son, Jóhann Jakobsson, og Magnús
Kristinsson. Framkvæmdastjóri fé
lagsins var ráðinn Haukur Þor-
valdsson, verkfr., og hefur hann
framar öðrum kannað rekstrar-
grundvöll verksmiðjunnar.
Fyrsta verkefni félagsins var
könnun _ á því, hve mikið brota-
járn félli til árlega hér á landi.
Niðurstöður þeirrar könnunar
leiddu í ljós, að verksmiðjan gæti
aflað um 13—14 þús. tonna af inn
lendu brotajárni á ári fyrst um
sinn. — Staðsetning verksmiðjunn
ar hefur verið áætluð í landi Hafn
arfjarðarkaupstaðar milli álverk
smiðjunnar og Hvaleyrarholts. —
Rafmargnsorkan er verksmiðjan
þarfnast til starfseminnar, verður
líklega tekin úr dreifikerfi ál-
verksmiðjunnar, þótt e.t.v. reyn
ist kostnaðarminna að leggja sér
staka rafmagnslínu til verksmiðj
unnar frá aðaldreifistöð við Geit
háls. — Þá þarf og hreint og ó-
mengað kælivatn til starfseminn
ar, en þess ætti að vera auðvelt
að afla með borunum á fyrirhug
uðum verksmiðjustað. Verksmiðju
húsið kemur til með að verða tvi
skipt, þ. e. verksmiðjubygging,
um 30 þús. rúmmetrar að stærð,
og svokölluð kranabygging,
nokkru minni.
Ferill framleiðslu steypustyrkt
arjárnsins úr brotajáminu er í
stórum dráttum á þessa leið:
Fyrst eru hráefnishlutirnir, bil-
eða skipsflök og alls kyns annað
málmrusl, bútað niður, ef þarf, og
síðan pressaðir í þar til gerðri
pressu. Þá er málmurinn brædd
ur í ljósbogaofni, settur í deiglur
og síðar í steypumót. Málmurinn
er svo valsaður, því næst kældur,
járnstangirnar búntaðar saman og
afgreiddar tilbúnar frá verksmiðj
unni.
Stofnkostnaður verksmiðjunnar
er í hæsta lagi áætlaður 410 millj.
kr. og er þá allur kostnaður inni-
Falinn. Skv. þessari frumáætlun á
ýerksmiðjan að taka til starfa í
júlí 1973. Miðað við að eigin f jár
Framhald á bls. 14.
gtutai
Forsetaheimsókninni lýkur í dag
IGÞ-Stokkhólmi, föstudag.
í morgun heimsóttu forseta-
hjónin þjóðminjasafn ríkisins í
Stokkhólmi. í samtali, sem
Tíminn átti við forsetann í
Konungshöllinni síðdegis, sagði
hann, að sér hefði þótt mjög
ánægjulcgt að koma í þctta
safn, sem væri helzta þjóð-
minjasafnið á Norðurlöndum.
Skoðuðu forsetahjónin og fylgd
arlið þeirra einkum það, sem
tilheyrði járnöld og allt til
seinni hluta miðalda. Eftir
heimsóknina í safnið liclt for-
setinn í fylgd með Bertil prins
til AGA-verksmiðjunnar, þar
sem unnið er að ýmsum nýjung
um á sviði rafeindatækni,
framleiðslu leisertækja og síð
ast hitamyndavélar. Voru tekn
ar myndir af forsetanum og
utanríkisráðherranum á þessa
vél á meðan á heimsókninni
stóð til að sýna þeim hvernig
hún starfaði. Sagði forsetinn á
eftir, að það væri sem sagt
komin vél til þess að taka mynd
ir af öllu, nema því sem maður
hugsaði.
Þessar hitaljósmyndavélar
munu þykja sérstaklega hand-
hægar við leit að krabbameini,
einkum í brjóstum á konum.
Þar sem vitað er, að meinið gef
ur frá sér hita, sýnir vélin, sem
einmitt er mjög næm fyrir hit
anum, hvar meinsemdin er, ef
um hana er að ræða, á mynd
inni, sem tekin er. Þannig er
þetta mjög fyrirhafnarlítil rann
sókn.
AGA er m. a. þekkt á ís-
landi fyrir eldavélar, en ein
slík AGA eldavél var á heimili
foreldra forsetans í Svarfaðar
dal. Þá hafði Emil Jónsson ut-
anríkisráðh. mikinn áhuga á
að koma þarna til verksmiðj-
unnar sem fyrrverandi vita-
málastjóri, en AGA hóf upp-
haflega að smíða vita og ann-
ast enn smíði á flóknum sjálf
virkum tækjabúnaði til þeirra
nota, en stofnandi verksmiðj
unnar mun hafa fengið Nobels
tarðlaun á sínum tíma fyrir
framleiðslu sína í þessari
grein.
Á meðan stóð á heimsókn
inni í AGA-verksmiðjuna fór
frú Halldóra Eldjárn á barna-
heimili hér í borginni, og sagði
Framhald á bls. 14.
aaaMsýcaas