Tíminn - 06.07.1971, Blaðsíða 1
148. fbL
ALLT FYRIR
BOLTAÍÞRÓTTIR
Sportvoruverzlun
INGÓLFS ÓSKARSSONAR
Klbjpparstíg 44 - Sími 11783.
— Þriðjudagur 6. júlí 1971
55. árg.
Nýr fundur
EJ-Reykjavík, mánudag. morgun. Ólafur Jóhannesson,
Fundur stjórnarandstöðu- formaður Framsóknarflokks-
flokkanna um nýja ríkisstjóm ins, lét í ljósi þá von í dag, að
stóð í rúma tvo tíma í dag. viðræðurnar færu að komast
Nýr fundur hefst kl. 17 á á lokastig.
Frjálslyndir og vinstri menn leggja til:
KOMIÐ VERÐI Á
FÓT SÉRSTÖKU
SAMEININGARRÁÐI
EJ—Reykjavík, mánudag.
Samtök frjálslyndra og vinstri
manna hafa nú svarað bréfi Al-
þýðuflokksins til stjórnarandstöðu
flokkanna þriggja, mcð því að
leggja til, að komið verði á fót
sérstöku sameiningarráði Alþýðu-
flokks, Framsóknarflokks og Sam-
taka frjálsiyndra og vinstri manna,
sem hafi það hhitverk, að viirna
að undirbúningi að stofnun nýs
sameinaðs flokks jafnaðar- eg
samvinnnmanna.
Hannibal Valdimansson, formað-
ur Samtaka frjálslyndra og vinstri
manna, sendi bréfið í daig tfl
flokksstjórnar Alþýðuflokksins.
Það er svohljóðandi:
„f framhaldi af fyrri tilraun-
um flokks okkar til sameiningar
lýðræðissinnaðra jafnaðar- og
samvinnumanna í einum flokki,
og með tilliti til samþykkta flokks
stjórnar Alþýðuflokksins frá 20.
júní s.l., þar sem m.a. segir, að
úrslit kosninganna hafi áréttað
mikilvægi sameiningarmálsins,
vill framkvæmdastjórn Samtaka
frjálslyndra og vinstri manna
leggja til eftirfarandi:
Að myndað verði nú þegar sam-
einingarráð Alþýðuflokks, Fram-
sóknarflokks og Samtaka frjáls-
lyndra og vinstri manna, sem skip
að yrði fulltrúum eldri sem yngri
hreyfinga flokkanna. Hlutverk
sameiningarráðsins verði að vinna
að hvers konar undirbúningi að
stofnun nýs sameinaðs flokks
jafnaðar- o» samvinnumanna, svo
sem með því að móta tillögur um
stefnuskrá og skipulag hans.
Framkvæmdastjórn Samtaka
frjálslyndra og vinstri manna lýs-
ir sig reiðubúna til viðræðna við
fulltrúa Alþýðuflokksins um fram
angreind málefni, og æskir þess
eindregið, að slíkar viðræður geti
hafizt hið fyrsta."
Sundlaug
vígö í
Þjórsárdal
OÓ-Reykjavík, miðvikudag.
f gær var vígð sundlaug sem
Landsvirkjun byggði í Þjórsárdal.
Er laugin á þeim stað sem gamli
Reykholtsbærinn stóð og er þar
hver, sem vatn er tekið úr í iaug-
ina. Sundlaugin er 12x25 metrar
að stærð. Er luin fullkomin að
öllum útbúnaði. Eru þar böð og
búningsklefar og kar með heitu
vatni við hlið laugarinnar. Er
laugin opin og er ekki enn full-
ráðið hvort liún verður opin allt
árið eða aðeins yfir sumarmán-
uðina. Sundlaugin hefur verið í
byggingu s.I. tvö ár. Auk Lands-
virkjunar lagði Gnúpverjahrepp-
ur nokkuð af mörkum til bygging-
ar laugarinnar.
í gær vígði Steinþór Gestsson,
oddviti laugina. Flutti hann ávarp
og synti að því loknu. Gísli Júlíus-
son, stöðvarstjóri Búrfellsvirkjun
ar, sagði í dag, að laugin væri
fyrst og fremst ætluð starfsfólk-
inu þar, en að sjálfsögðu hafa
hreppsbúar greiðan aðganga að
henni og svo og ferðamenn sem
leggja leið sína um Þjórsárdal.
UMHVERFIS
JÖRÐINA Á
HRAÐBÁTI?
Þ.Ó.-Reykjavík, mánudag.
Daninn Hans Tholstrup, sem
einn á báti ætlar sér að sigla
á hraðbáti sínum Eiríki rauða,
til Ameríku og jafnvel um-
hverfis jörðina, kom til Vest-
mannaeyja í dag, eftir hálfs-
mánaðar ferðalag frá Dan-
mörku. Tholstrup lagði af stað
frá Færeyjum til fslands í gær-
morgun og upphaflega bjóst
hann við því að hann kæmi til
Hornafjarðar eða Vestmanna-
eyja í gærkvöldi. Menn urðu
fyrst varir við hann um kl.
hálf tíu í morgun og hafði
hann valið að sigla alla leið til
Vestmannaeyja. Var hann þá
staddur við Portland.
Það var svo um klukkan hálf
tvö í dag, að hann kom inn á
Framhald á bls. 14.
Daninn Hans Tholstrup, kemur
á báti sínum Eiríki rauða, upp
að Skansmum í Eyjum.
(Tímamynd HE.)
•7
EBE viðurkennir
sérstöðu íslands
EJ—Reykjavík, mánudag.
Framkvæmdastjórn Efnaliags-
bandalags Evrópu hefur nýlega
lagt fyrir ráð bandalagsins skýrslu
um samband hins stækkaða banda
Iags við þau sex EFTA-lönd, scm
ekki hafa sótt um aðild að banda-
laginu. í frétt frá viðskiptaráðu-
neytinu um skýrsluna segir, að í
henni sé „sérstaða íslands viður-
kennd".
Skýrsla framkvæmdastjórnarinn-
ar er byggð á könnunarviðræðum
framkvæmdastjórnarinnar við full-
trúa þessara sex landa síðastliðinn
vetur.
í skýi-slunni bendir framkvæmda
stjórnin á tvo möguleika til að
leysa vandamál núverandi EFTA-
landa, ef þrjú þeirra, — Bretland,
Danmörk og Noregur, — ganga í
bandalagið án þess að samið sé
við hin EFTA-löndin. Fyrri mögu-
leikinn er, að hið stækkaða banda-
lag geri fríverzlunarsamning fyrir
iðnaðarvörur við hvert þessara
Ianda — Austurríki, Finnland, Is-
land, Portúgal, Sviss og Svíþjóð.
Seinni möguleikinn er, að fríverzl-
ÞÓ—Reykjavík, mánudag.
Rétt fyrir klukkan 4 í nótt,
barst Slysavarnafélaginu tilkynn-
ing þess efnis, að vélbáturinn Bára
RE 26, væri strandaður um það
un sú, sem gilt hefur á milli EFTA-
landanna, haldist óbreytt í tvö ár
eftir stækkun bandalagsins, 1973 og
1974, en á þeim tíma verði samið
um það fyrirkomulag, sem skuli
gilda til frambúðar. Innan EFTA
Fi imhald á bls. 14
bil 4 sjómílur vestan við Ingólfs
höfða. Björgunarsveitinni á Fag-
urhólsmýri var þegar gert við-
vart, og hélt hún á strandstað, en
Framhald á bls. 14.
Strönduðu og stigu
hjálparlaust á land
,•7
TURNINN
BLÍFUR!
OÓ—Reykjavík, tnánudag.
Jarðýta jafnaði hús Hreyfils
við Kalkofnsveg á nokkrum
klukkutímum í morgun. Varð
húsið að víkja þar sem gat-
an verður breikkuð: Á þá Lækj
argatan að breikka scm nem-
ur því er tekið var af Stjórn-
arráðstúninu, en stytturnar þar
eru nú aftur komnar á stalla
sína nær húsinu, en þær stóðu
áður.
En þótt flest verði að víkja
vegna breikkunar götunnar, þá
fær söluturninni, sem stendur
á horni Hverfisgötu og Kalk-
ofnsvegar að standa áfram.
Þessi "söluturn hefur lengi sett
sinn sérstæða svip á miðbæ-
inn, enda engri annarri bygg
ingu líkur. Turninn stóð áður á
miðju Lækjartorgi, þar sem
klukkan er nú, en var fluttur
á núverandi stað árið 1922, og
hefur ávallt verið verzlun í
honum, og á væntanlega eftir
að standa enn um hríð, þar
sem hann virðist ekki vera í
vegi fyrir síaukinni bílaum-
ferð í m.iðborginni. Turn þenn
an byggði Sveinn Gunnarsson
frá Mælifellsá.
Hreyfilshúsið varS aS víkja, eins og stytturnar viS Stiórnarráðið. En turninn, sem Sveinn á Mælifellsá
byggði fyrir 49 árum stendur enn af sér skipulagiS. (Tímnmynd GE)