Fréttablaðið - 08.10.2002, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 08.10.2002, Blaðsíða 10
KÖRFUBOLTI Íslandsmót karla í körfubolta hefst næstkomandi fimmtudag með þremur leikjum. Svali Björgvinsson, fyrrverandi landsliðsmaður í körfubolta, hefur fylgst vel með und- irbúningstímabilinu og segir að liðin komi misvel undan sumri. „Það er klárt mál að deildin veik- ist eitthvað. Fólk er að leita eftir spenn- andi leikjum og þrátt fyrir að þetta verði ekki eins mikið hágæðamót og í fyrra þá held ég að það komi ekki niður á spennu leikjanna.“ Svali segir að deildin eigi ekki eftir að vera eins fyrirsjáanleg og oft áður. „Við eigum eftir að sjá afar fróðlega hluti. Haukarnir hafa verið að gera mjög góða hluti í haust. Þeir hafa leikið framar öll- um vonum og væntingum og koma vel þjálfaðir og skipulagðir til leiks. Keflvíkingar verða mjög sterkir og ef þeir halda þessum hópi þá ættu þeir að vinna, þ.e. ef leikmennirnir halda sér heilum. Það eru miklar breytingar hjá lið- um eins og KR og Njarðvík. Bæði Teitur Örlygsson og Logi Gunnars- son eru hættir í Njarðvík og nú þurfa ungu mennirnir hjá þeim að sanna sig. KR-ingarnir með gjör- breytt lið. Jón Arnór Stefánsson er farinn, Keith Vassell líka og Her- mann Hauksson er loksins farinn út. Auk þess virðist Ólafur Jón Ormsson ekki ætla að vera með þeim. Það verður mjög fróðlegt að fylgjast með ÍR-ingum. Þeir ættu að verða brattir og leggja mikið undir. Það verður einnig spennandi að fylgjast með Grindvíkingum en það voru vonbrigði hjá þeim í fyrra.“ Svali segist eiga von á harðri baráttu á botninum og telur að þar verði að öllum líkindum bæði Val- ur og Snæfell sem komu upp í úr- valsdeildina fyrir þetta tímabil og lið Skallagríms og Breiðabliks í mestu baráttunni. Að sögn Svala mun það koma dálítið niður á deildinni að missa sterka leikmenn út í atvinnu- mennskuna. Hann er samt sem áður ánægður fyrir þeirra hönd. „Blessunarlega eru þessir strákar að fara út og eru bara að spjara sig mjög vel. Ég held að það komi ekk- ert niður á spennunni. Það koma bara nýir og frískir strákar í stað- inn,“ segir Svali. freyr@frettabladid.is 10 8. október 2002 ÞRIÐJUDAGURFÓTBOLTI TVÖ MÖRK Í FYRSTA LEIK Brasilíska knattspyrnuhetjan Ronaldo skor- aði tvö mörk fyrir Real Madrid gegn Alavez um helgina. Þetta var fyrsti leikur kappans fyrir spænska liðið. ÍÞRÓTTIR Í DAG 18.30 Sýn Meistaradeild Evrópu 19.30 Sýn Heimsfótbolti með West Union 20.00 Sýn Íþróttir um allan heim 00.15 Sýn Íþróttir um allan heim BORÐTENNISBORÐ Verð frá 26.900.- S. V. Sverrisson Suðurlandsbraut 10 (2h) - Rvk. sími: 568 3920 - 897 1715 umboðið borðtennisvörur FÓTBOLTI Dominic Matteo, varn- armaðurinn í enska úrvalsdeild- arliðinu Leeds, og Scott Dobie, samherji Lárusar Orra Sigurðs- sonar hjá West Bromwich Al- bion, eru báðir meiddir og missa þar með af leik Skotlands gegn Íslandi næstkomandi laug- ardag í undankeppni EM. Barry Ferguson, miðjumaðurinn hjá Glasgow Rangers í Skotlandi er einnig tæpur vegna meiðsla og gæti misst af leiknum. Auk þessara leikmanna eru fjórir aðrir Skotar á sjúkralist- anum; þeir Neil Sullivan (Tottenham), David Weir (Ev- erton), Don Hutchison (West Ham) og Craig Burley (Derby County).  Skoska landsliðið í vandræðum: Matteo ekki með gegn Íslandi FERGUSON Barry Ferguson, til vinstri, fer upp í skallaeinvígi við Paul Lambert hjá Celtic í leik Rangers og Celtic um síðustu helgi. Óvíst er hvort Ferguson geti leikið með Skotum gegn Íslandi næsta laugardag. AP /M YN D Spennandi mót framundan Svali Björgvinsson, fyrrverandi landsliðsmaður í körfubolta, býst við jöfnu og spennandi Íslandsmóti karla í körfubolta. Deildin veikari en í fyrra. Keflvíkingar líklegastir til sigurs. SVALI BJÖRGVINSSON Svali á von á hrikalegri spennu á Íslandsmótinu í ár. Hann telur að Keflvíkingar séu með sterkasta liðið. „Keflvíkingar verða mjög sterkir og ef þeir halda þessum hópi þá ættu þeir að vinna“ FÓTBOLTI Stephane Henchoz, sviss- neski miðvörðurinn í liði Liverpool, verður frá næstu fimm vikurnar vegna meiðsla á kálfa. Hechoz, sem átt hefur í töluverðum meiðslum það sem af er tímabilinu, þurfti að fara af velli í fyrri hálfleik í leikn- um gegn Chelsea um síðustu helgi sem endaði með 1:0 sigri Liverpool. Henchoz mun því missa af næstu leikjum Liverpool í ensku úrvals- deildinni auk þess sem hann verður fjarri góðu gamni þegar svissneska landsliðið leikur gegn Albaníu næsta laugardag og gegn Írlandi á miðvikudaginn í næstu viku í und- ankeppni EM.  Stephane Henchoz undir hnífinn: Frá næstu fimm vikurnar LIVERPOOL Michael Owen, til vinstri, fagnar sigurmarki sínu gegn Chelsea um helgina ásamt John Arne Riise. Henhoz leikur ekki með Liver- pool næstu fimm vikurnar. AP /M YN D Meistarakeppni KKÍ: 880 þúsund söfnuðust KÖRFUBOLTI Alls söfnuðust 880 þús- und krónur í leikjum karla- og kvennaliða Njarðvíkur og KR í körfubolta á sunnudaginn, þar sem leikið var um tignina meist- ari meistaranna. Leikirnir í meist- arakeppni KKÍ eru góðgerðarleik- ir og að þessu sinni mun upphæð- in renna til Foreldrafélags geð- sjúkra barna og unglinga. Bæði karla- og kvennalið Njarð- víkur unnu leiki sína í keppninni. Karlalið Njarðvíkur, núverandi Íslandsmeistarar, unnu KR með 87 stigum gegn 82 og kvennalið Njarðvíkur vann Íslandsmeistara KR með 68 stigum gegn 66. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.