Fréttablaðið - 18.11.2002, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 18.11.2002, Blaðsíða 4
4 18. nóvember 2002 MÁNUDAGUR Bókin sem slegið hefur í gegn hjá öllu áhugafólki um náttúru Íslands. „Mæla má eindregið með bók þessari handa þeim sem vilja kynnast öræfaslóðum.“ ÁHB í Mbl. JÓLAGJÖF JEPPAFÓLKSINS! Bókin í jeppann METSÖLUBÓK! Bílslys við Vík: Einn slasaðist UMFERÐ Kona var flutt á sjúkrahús eftir að bíll sem hún var farþegi í lenti utan vegar á laugardags- kvöld. Talið var að hún hefði fót- brotnað. Fimm manns voru í bíln- um, sem rann út af vegi við Gatnabrún, vestan við Vík. Bíl- stjóri bifreiðarinnar missti stjórn á bílnum í hálku og fór fram af fjögurra metra kanti. Bílinn valt ekki en endaði um 50 metra frá veginum. Ökuhraði bílsins var ekki mik- ill þegar hann fór fram af kantin- um. Farþegarnir voru á leið heim úr jarðarför. Bíllinn var ekki á nagladekkjum.  S-hópur kaupir Búnaðarbanka S-hópurinn hefur samið um kaup á 45,8% hlutabréfa í Búnaðarbankan- um fyrir 11,9 milljarða króna. Erlendur banki mun eiga þriðjung í hlut S-hópsins. Kaupandinn má ráða hvort hann greiðir 18,32% af hlutnum í dollurum eða krónum. 27,48% eru greidd í krónum. EINKAVÆÐING Nýtt eignarhaldsfé- lag svokallaðs S-hóps, Egla ehf., hefur samið um kaup 45,8% hlut ríkisins í Búnaðarbanka Íslands. Egla er í eigu Kers hf. (Esso), Sam- vinnutrygginga, ónefndrar útlendr- ar fjármálastofn- unar, Samvinnulíf- eyrissjóðsins og VÍS. Erlendi bankinn mun eiga að minnsta kosti þriðjung af hlut Eglu samkvæmt áreiðanlegum heimildum Fréttablaðsins. Ekki er gefið upp hver þessi útlendi banki er. Ástæða þess mun vera tæknilegs eðlis þar sem bankinn hefur ekki gert upp við sig hvern- ig hann kemur að málinu; hvort hann muni til dæmis eiga sjálfur beinan hlut eða í gegnum dóttur- félag. Þetta mál er sagt munu skýrast fljótlega í næsta mánuði. Kaupsamningur hefur ekki verið undirritaður en stefnt er að því að það verði gert fyrir áramót. Samkvæmt samkomulagi sem einkavæðingarnefnd náði við kaupendurna á laugardag mun Egla kaupa bankahlutinn í tveim- ur áföngum; 27,48% verða keypt á þessu ári en 18,32% fyrir 20. des- ember á næsta ári. Kaupendurnir ráða hvenær á tímabilinu þeir kaupa seinni hlutann. Þá þurfa þeir ekki að ákveða fyrr en kaup- samningur er undirritaður hvort síðari hlutinn er borgaður í dollur- um eða íslenskum krónum. Gengið sem keypt er á er 4,81. Það er eilítið hærra en gengi hlutabréfa Búnaðarbankans hefur verið að undanförnu. Lokagengi föstudagsins í Kauphöll Íslands var til dæmis 4,70. Eftir söluna til Eglu mun ríkis- sjóður áfram eiga 9% í Búnaðar- bankanum. S-hópurinn mun ekki sækjast eftir að eignast meiri- hluta í bankanum, meðal annars vegna þess að þá þyrfti hann að gera öðrum hluthöfum yfir- tökutilboð. Samkomulagið frá því á laugar- dag er með fyrirvara um áreiðan- leikakönnun á bankanum og kaup- endunum sjálfum. gar@frettabladid.is Sprengjuárásin á Balí: Rannsókninni miðar framar vonum JAKARTA, AP Rannsókninni á sprengjuárásinni á Bali, sem varð nærri 200 manns að bana 12. október síðastliðinn, hefur miðað mun hraðar en búist var við. Er- lendir stjórnarerindrekar og sér- fræðingar, sem hafa aðstoðað indónesísku lögregluna við rann- sóknina, hafa hælt henni fyrir vönduð vinnubrögð og góða sam- vinnu. Nú þegar hefur einn maður verið handtekinn, grunaður um aðild að verknaðinum. Þá hafa verið birtar myndir af sex grun- uðum mönnum í viðbót, sem tald- ir eru hafa framið ódæðið. Á meðal þeirra er maður sem talinn er vera leiðtogi hópsins, Imam Samudra að nafni. Hann er einnig grunaður um sprengjuárásir á kirkjur í Indónesíu. Allir eru mennirnir Indónesar. Hinn handtekni heitir Amrozi og hefur viðurkennt að vera eigandi bifreiðar sem notuð var í sprengjuárásinni 12. október. Hann lýsti í síðustu viku ánægju sinni með blóðbaðið. Það eina sem skyggði á ánægju hans var hversu fáir Bandaríkjamenn voru í hópi hinna látnu.  Fulltrúi S-hópsins: Tókumst mest á um gengið EINKAVÆÐING Kristinn Hallgríms- son, fulltrúi Eglu ehf. sem keypt hefur tæpan helmings hlut í Bún- aðarbankanum, segir kaupend- urna sátta við verðið. „Gengið var það sem aðallega var tekist á um. En við erum sáttir,“ segir Krist- inn. Kristinn segir engin áform vera uppi á þessu stigi um breyt- ingar á stjórn bankans. Þess sé þó að vænta að breytingar verði á bankaráðinu í samræmi við breytt eignarhald. Það verði þó jafnvel ekki fyrr en á aðalfundi bankans eftir rúma þrjá mánuði. „Stjórnendur bankans eru öfl- ugir og við væntum mikils af sam- starfi við þá. Við væntum þess líka að eiga gott samstarf við aðra hluthafa bankans, bæði stóra og smáa,“ segir Kristinn. Í yfirlýsingu Eglu segir að um- breyting sé óumflýjanleg á ís- lenskum fjármálamarkaði. „Það er okkar mat að það hljóti að koma til þess að það verði byggð- ar upp færri og sterkari einingar á þessum markaði,“ segir Krist- inn. Hann útskýrir þetta ekki nán- ar en játar því að margir hafi áhuga á Sparisjóðunum: „Ég veit ekki til þess að sá áhugi hafi minnkað. En það er spurning hvaða svigrúm löggjafinn gefur að þessu leyti.“  HÖFUÐPAURINN NEFNDUR Lögregluforinginn I Made Mangku Pastika hefur umsjón með rannsókn sprengjuárásar- innar á diskótekið á Bali. AP /C H AR LE S D H AR AP AK BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS Egla kaupir 45,8% í Búnaðarbankanum í tveimur áföngum; 27,48% verða keypt á þessu ári en 18,32% fyrir 20. desember á næsta ári. Kaupendurnir ráða hvenær á tímabilinu þeir kaupa seinni hlutann og hvort þeir greiða hann í dollurum eða íslenskum krónum. Stefnt er að undirritun kaupsamnings fyrir áramót. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS Nýir eigendur hafa ekki áform um breytingar á stjórn Búnaðarbankans. „Stjórnendur bankans eru öflugir og við væntum mikils af samstarfi við þá,“ segir Kristinn Hallgrímsson, fulltrúi kaupendanna. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI KJÖRKASSINN Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is Á Ísland að samþykkja að borga meira til ESB vegna stækkunar þess til austurs? Spurning dagsins í dag: Ertu sátt(ur) við lögleiðingu hnefaleika á Íslandi? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is Já Nei BORGUM EKKI Fæstum líst á að leggja fram meira fé til Evrópusambandsins vegna stækkunar þess. 32,9% 20,3% 79,7% ÓLAFUR DAVÍÐSSON Fyrirsjáanlegt að bankarnir verði alfarið úr ríkiseigu á næsta ári. Ólafur Davíðsson: Náðum okkar takmarki VIÐSKIPTI Ólafur Davíðsson, for- maður framkvæmdanefndar um einkavæðingu, segir söluna á 45,8% hlut ríkisins til Eglu ehf. vera afar viðunandi. Takmarkið hafi verið að fá hærra verð en verið hefur á markaði að undan- förnu. Ekki hefur verið gefið upp hvaða erlendi banki það er sem stendur með Eglu ehf. að kaupun- um í Búnaðarbankanum. Sá banki mun eignast þriðjung af Eglu- hlutnum. Ólafur segir einkavæð- ingarnefndina ekki vita hver er- lendi bankinn sé: „Þeir hafa notið ráðgjafar er- lends banka en það liggur ekki fyrir hvort sá banki muni verða fjárfestir í Búnaðarbankanum. Það þarf hins vegar að liggja fyr- ir áður en kaupsamningur er und- irritaður. Þeir hafa því frest í nokkrar vikur til að ljúka því máli,“ segir Ólafur. Eftir söluna til Eglu á ríkið 9% í Búnaðarbankanum. Þá á ríkið 2,5% í Landsbankanum. „Ég á von á því að það verði farið í að undir- búa að selja það á næstu mánuð- um. Það er fyrirsjáanlegt að bank- arnir verði alfarið komnir úr eigu ríkisins á næsta ári. Það er ekki ákveðið hvernig þetta verður selt,“ segir Ólafur.  ERLENT KIRKJUR EYÐILAGÐAR Tvær serbneskar rétttrúnaðarkirkjur í Kosovo voru lagðar í rúst með sprengjum seint á laugardag og að morgni sunnudags. Þetta eru fyrstu árásir af þessu tagi í Kosovo í meira en ár. FISKIMENN FÓRUST Átján egypsk- ir sjómenn fórust þegar skip þeirra lenti í miklu hvassviðri í Miðjarðarhafi á laugardag. Lík nokkurra þeirra hefur rekið á land. MÓTMÆLI Í HVÍTA-RÚSSLANDI Um 1500 stjórnarandstæðingar í Hvíta-Rússlandi mættu á mót- mælafund í Minsk. Þeirri stefnu forsetans að tengjast Rússlandi æ nánari böndum var harðlega mót- mælt. KVÆNTI BISKUPINN MESSAR Páfagarður hefur skýrt frá því að Emmanuel Milingo, erkibiskupinn sem olli kaþólsku kirkjunni vand- ræðum með því að kvænast, muni messa í vikunni í fyrsta sinn frá því giftingin komst í hámæli.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.