Fréttablaðið - 04.04.2003, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 04.04.2003, Blaðsíða 33
■ ■ FUNDIR  10.00 Ragnarök og byzanskar dómsdagsmyndir með ormi er yfirskrift málþings í almennum trúarbragðafræð- um, sem haldið er í Skálholtsskóla í samstarfi Endurmenntunar HÍ og guð- fræðideildar HÍ. Fyrirlesarar eru Yury Bobrov, Gunnlaugur A. Jónasson, Dag- ur Þorleifsson, Tryggvi Gíslason, Pétur Pétursson og Hjalti Hugason.  12.00 Stígamót gangast fyrir opn- um fundi með frambjóðendum flokk- anna í Hlaðvarpanum föstudaginn 4. apríl kl.12. Á dagskrá verða málefni kynj- anna með sérstakri áherslu á kynferðis- ofbeldi í sinni víðustu mynd. Gestir verða Sólveig Pétursdóttir, Jónína Bjart- marz, Árni Magnússon, Þórunn Svein- bjarnardóttir, Ágúst Ólafur Ágústsson, Kolbrún Halldórsdóttir og Sigurður Ingi Jónsson.  12.15 Við friðarstund í Neskirkju munu Hrólfur Sæmundsson, baritón- söngvari, Dean Ferrel, kontrabassaleik- ari, og Steingrímur Þórhallsson org- anisti flyta veraldlega kantötu eftir Jo- hann Sebastian Bach. Séra Örn Bárður Jónsson les ritningarlestur og stýrir bænagjörð.  13.15 Ráðstefna um framtíð borga(r) verður haldin í Norræna húsinu og stendur hún til klukkan fjögur. Flutt verða fjögur erindi en að því búnu verða pallborðsumræður. Umræðustjóri verður Stefán Ólafs- son, forstöðumaður Borgarfræðaset- urs. Ráðstefnan er lokahnykkur á röð hádegisfyrirlestra sem haldnir hafa verið í Norræna húsinu í vetur á veg- um Sagnfræðingafélags Íslands og Borgarfræðaseturs undir yfirskriftinni „Hvað er borg?“.  14.00 Þorsteinn Þorsteinsson líf- efnafræðingur ver doktorsritgerð sína um um efnasmíði á fitusæknum forlyfj- um og mjúkum efnum. Athöfnin fer fram í Hátíðasal Háskólans og er öllum opin. ■ ■ OPNANIR  16.00 Finnur Arnar opnar mynd- listarsýningu í versluninni 12 Tónum að Skólavörðustíg í tilefni fimm ára af- mælist verslunarinnar. Sýningin ber yfir- skriftina Að vera eða að þykjast ekki vera.  17.00 Ilmur Stefánsdóttir mynd- listarmaður opnar sýningu á Kjarvals- stöðum. ■ ■ KVIKMYND  17.15 Heimildamyndin Dagsverk eftir Kára Schram verður sýnd í Nýlista- safninu á sýningu helgaðri Degi Sigurð- arsyni. ■ ■ TÓNLIST  20.00 Karlakórinn Fóstbræður heldur þriðju og næsti síðustu vortón- leika sína í Hafnarborg í Hafnarfirði. Efn- isskrá Fóstbræðra er fjölbreytt að vanda. Einsöngvarar eru allir úr röðum kórsins. Stjórnandi er sem fyrr Árni Harðarson.  20.30 Karlakór Keflavíkur syng- ur í Grindavíkurkirkju. Stjórnandi er Vilberg Viggósson og einsöngvarar á tónleikunum verða Steinn Erlings- son og Haukur Ingimarsson. Á þessu ári verður kórinn fimmtugur.  21.00 Eivør Pálsdóttir og hljóm- sveit eru með tónleika í Kaffileikhús- inu.  21.00 Karlakórinn Stefnir frá Mos- fellsbæ heldur vortónleika með Borgar- kvartettinum í Miðgarði í Skagafirði. Einsöngvarar innan kórsins og Borgar- kvartettsins eru í drjúgu hlutverki, þar á meðal hinn gamalkunni söngvari Þor- valdur Halldórsson. ■ ■ LEIKLIST  14.00 Leikfélagið Snúður og Snælda sýnir gamanleikritið „Forsetinn kemur í heimsókn“ í Ásgarði, Glæsibæ. Fáar sýningar eftir.  20.00 Íslenski dansflokkurinn sýnir Lát hjartað ráða för, þrjú ný verk eftir Katrínu Hall, Itzik Galili og Ed Wubbe, á Stóra sviði Borgarleik- hússins. Þetta er síðasta sýningin.  20.00 Farsinn Allir á Svið eftir Michael Frayn er sýndur á Stóra sviði Þjóðleikhússins, þýddur og leikstýrður af Gísla Rúnari Jónssyni.  20.00 Rakstur eftir Ólaf Jóhann Ólafsson á Litla sviði Þjóðleikhússins.  20.00 Veislan eftir Thomas Vinter- berg og Mogens Rukov á Smíðaverk- stæði Þjóðleikhússins.  20.00 Maðurinn sem hélt að konan hans væri hattur eftir Peter Brook og Marie-Hélène Estienne á Nýja sviði Borgarleikhússins. 34 4. apríl 2003 FÖSTUDAGUR hvað?hvar?hvenær? 1 2 3 4 5 6 7 APRÍL Föstudagur Ilmur Stefánsdóttir smíðar far-artæki. Ekki þó beinlínis venju- leg farartæki. Þau jaðra við að vera ónothæf með öllu. Að minnsta kosti er eitthvað mót- sagnakennt við hjólaskauta með sæti, eða þrekhjól á hjólum. Ilmur er myndlistarmaður og opnar í dag sýningu á verkum sín- um í miðrýminu á Kjarvalsstöð- um. Hún hefur lengi verið að velta fyrir sér ofgnótt hlutanna í kring- um okkur, öllu því sem reynt er að selja okkur á hverjum degi. „Allt er þetta frekar tvíeggjað einhvern veginn,“ segir Ilmur. „Sum þessi farartæki á Kjar- valsstöðum hef ég sjálf gert frá grunni, eins og til dæmis göngu- grind fyrir fullorðna sem er alveg eins og göngugrindur fyrir börn. Annað eru fundnir hlutir eins og gamalt þrekhjól frá 1957, sem lít- ur út eins og reiðhjól.“ Ilmur tekur fram að fólki er frjálst að nota þessi farartæki og bruna eftir göngum safns- ins, svo fremi sem það kemst eitthvað áfram að gagni. „Það verða öryggis- hjálmar á staðnum,“ segir hún til hug- hreystingar. „Einnig er ég með vídeóverk þar sem ég sést sjálf ferðast um á þessum farar- tækjum. Þarna er ég að ferðast frá hvergi til hvergi, ef svo má segja. Ég er svolítið eins og manneskja á ferð í óbyggðum, sem lendir í vandræð- um og þarf að bjar- ga sér án þess að hafa neitt við hendina. Hug- myndin er fengin úr B u s t e r Keaton-mynd sem ég sá fyr- ir mörgum árum þar sem hann datt af lest og fann svo einhvern vagn á teinunum, sem hann gat notað til að halda áfram ferð- inni.“ Í gluggunum getur svo að líta litlar sögur tengdar farar- tækjum, sem Ilmur hefur rekist á í dag- blöðum eða b ó k u m . „Þarna er til dæmis sagan af manninum sem hafði þá áráttu að geta ekki hætt að stela jeppakerrum.“ Þessar sögur eru hver annarri kostulegri. Hér er ein: „Í desember 1969 tilkynnti Serbinn Milovjie Ristic að hann hygðist éta strætis- vagn. Sagðist hann hafa keypt sér gamlan strætis- vagn og hygðist éta hann í róleg- heitum næstu 2 árin.“ gudsteinn@frettabladid.is ■ MYNDLIST JÓHANNA REYNISDÓTTIR Ég gæti nú valið meira enþrennt af því sem er í boði í dag,“ segir Jóhanna Reynisdóttir, sveitarstjóri í Vogum á Vatns- leysuströnd. „Ég myndi fara á Stígamótafundinn og friðarstund- ina í Neskirkju. Það er úr vöndu að ráða með hitt. Ég væri til í að sjá Íslenska dansflokkinn og svo væri ég til í að sjá Veisluna aftur. Ég hugsa að Veislan yrði ofan á.“ Jóhanna er dugleg að sækja list- viðburði. „Við erum saman í hópi tíu manns sem förum saman í leikhús, tónleika og listsýningar.“ Hún segir hópinn upphaflega hafa verið með áskrift í Þjóðleikhús- inu. Núna velja hver hjón einn viðburð. „Þetta tryggir það að við sjáum að minnsta kosti einn við- burð í mánuði yfir veturinn.“  Val Jóhönnu Þetta lístmér á! Maðurinn semhélt að kon- an hans væri hattur er sýning sem ég var mjög hrifinn af,“ segir Sigurður Guð- mundsson landlæknir. „Mér fannst það stórkostleg sýning, ekki bara vegna þess í hvaða fagi ég er, heldur hvernig tekið var á mannlegum vandamálum. Það skipti ekki meginmáli hver vandamálin voru, heldur var þetta gert af krafti, styrk og inn- sæi.“ Mittmat ✓ ✓ ✓ ✓ Tvíeggjuð farartæki ILMUR Á FERÐ OG FLUGI Ilmur Stefánsdóttir myndlistar- maður opnar sýningu á Kjar- valsstöðum í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Borgarskjalasafn Reykjavíkur www.rvk.is/borgarskjalasafn Sími: 563 1770 LESSTOFA OG AFGREIÐSLA opin alla virka daga kl. 10-16. www.ljosmyndasafnreykjavikur.is • 563 1790 Ljós-hraði – fjórir íslenskir samtímaljós- myndarar, 28. feb. - 4. maí 2003 Afgreiðsla og skrifstofa opin virka daga frá 10 - 16. Opnunartími sýninga virka daga 12 - 19 og 13 - 17 um helgar. Aðgangur ókeypis. www.listasafnreykjavikur.is Sími 590 1200 HAFNARHÚS Sovésk veggspjöld, Penetration, Erró Leiðsögn sunnud. kl. 15.00 KJARVALSSTAÐIR Helgi Þorgils, Mobiler (frá 4.4.), Kjarval Leiðsögn sunnud. kl. 15.00 ÁSMUNDARSAFN Ásmundur Sveinsson Minjasafn Reykjavíkur Árbæjarsafn - Viðey www.arbaejarsafn.is Safnhús Árbæjarsafns eru lokuð en boðið er upp á leiðsögn alla mánud., miðvikud. og föstudaga kl. 13. Einnig er tekið á móti hóp- um eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar í síma 577 1111. Upplýsingar um leiðsögn í Viðey í síma 568 0535. Menningarmiðstöðin Gerðuberg www.gerduberg.is • sími 575 7700. Þetta vil ég sjá! Ingibjörg Sólrún velur verk á sýninguna. Ríkarður Long Ingibergsson sýnir tréskurð í Félagsstarfi Gerðubergs. Leiðsögn um sýningu Ríkarðs um helgar. Sýningar opnar frá kl. 11-19 mán.-fös., kl. 13-17 lau.-sun. Tónleikar með Gunnari Kvaran og Elsu Waage sumardaginn fyrsta. s. 563 1717 Upplýsingar um afgreiðslutíma: s. 552 7545 og á heimasíðu www.bokasafn.is Nýtt í bókasafninu Gerðubergi Nettengdar tölvur fyrir almenning. Upplýsingar í síma 557 9122 Hefur þú kynnt þér Bókmenntavef Borgarbókasafns? www.bokmenntir.is Minjasafn Orkuveitunnar Minjasafn Orkuveitunnar í Elliðaárdal er opið sun. 15-17 og eftir samkomulagi í s. 567 9009

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.