Fréttablaðið - 11.04.2003, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 11.04.2003, Blaðsíða 18
EINKAVÆÐING Frá árinu 1992 hefur íslenska ríkið selt eignir fyrir 64,8 milljarða króna, á núgildandi verðlagi, samkvæmt samantekt frá Einkavæðingarnefnd ríkis- stjórnarinnar. Hæst ber sala á hlut ríkisins í bönkunum, en 100% hlutur í Fjárfestingarbanka at- vinnulífsins var seldur fyrir sam- tals 17,4 milljarða á árunum 1998 og 1999, 81,3% hlutur í Lands- banka Íslands fyrir tæpa 22 millj- arða á árabilinu 1999-2003 og á árunum 1999 og 2003 var 67,9% hlutur í Búnaðarbanka Íslands seldur fyrir rúma 17 milljarða. Samtals hefur því einkavæðing bankanna skilað 56,4 milljörðum í ríkiskassann á síðastliðnum fimm árum. Ljóst er að áframhaldandi einkavæðing á komandi kjör- tímabili verður háð pólitískri ákvörðun þeirrar ríkisstjórnar sem tekur við stjórnartaumun- um. Um þessar mundir stendur yfir sala á hlut ríkisins á Sem- entsverksmiðjunni og Íslenskum aðalverktökum. Ekki liggur fyrir hvert söluandvirðið verður. Ljóst er að næsta stórverkefni í einka- væðingarmálum, ef svo ber und- ir, er Landssími Íslands. Sjálfstæðisflokkurinn einn flokka minnist sérstaklega á áframhaldandi einkavæðingu í stefnuskrá eða ályktunum fyrir komandi kosningar. Í ályktun landsfundar Sjálfstæðisflokks- ins um viðskipta- og neytenda- mál er Íbúðalánasjóður tiltekinn sem dæmi um verkefni sem bet- ur eigi heima hjá einkaaðilum. Þá telur flokkurinn mikilvægt að ríkið dragi sig úr öllum verslun- arrekstri og leggur til að allur ríkisrekstur á verslunum í Flug- stöð Leifs Eiríkssonar verði seld- ur, sem og ÁTVR. Sjálfstæðis- 20 11. apríl 2003 FÖSTUDAGUR Ármúla 13, 108 Reykjavík sími 515 1500 www.kaupthing.is Stjórn Frjálsa lífeyrissjóðsins minnir á aðalfund sjóðsins í dag, föstudaginn 11. apríl, að Nordica Hótel (áður Hótel Esju), Suðurlandsbraut 2, Reykjavík. Fundurinn hefst kl 17.15. Dagskrá 1. Skýrsla stjórnar 2. Kynning ársreiknings 3. Tryggingafræðileg athugun 4. Fjárfestingarstefna sjóðsins 5. Kosning stjórnar og varamanna 6. Breytingartillögur á samþykktum sjóðsins 7. Laun stjórnarmanna 8. Kjör endurskoðanda 9. Önnur mál Sjóðfélagar og rétthafar eru hvattir til að mæta. Stjórnin Aðalfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins – fyrir þína hönd A B X 9 0 3 0 2 9 2 64,8 milljarða einkavæðing Ríkið selt hlut í 28 ríkisfyrirtækjum síðan 1992. Sala á hlut ríkis í bönkum nemur samtals 56,4 milljörðum á núgildandi verðlagi. Tvær einkavæð- ingar standa yfir en frekari stórverkefni eru háð pólitískri stefnumörkun. EINKAVÆÐING SÍÐAN 1992, RAÐAÐ EFTIR STÆRÐ Fyrirtæki: Söluár Hlutur Söluverð (í millj.)* Landsbanki Íslands 1999, 2001, 2003 81,3% 21,949.1 FBA 1998, 1999 100% 17,379.3 Búnaðarbanki Íslands 1999, 2003 67,9% 17,062.1 Áburðarverksmiðjan 1999 100% 1,503.0 Íslenska járnblendifélagið 1998, 2002 36,99% 1,393.7 Landssími Íslands 2001 2,69% 1,160.2 SR-mjöl 1993 100% 979.5 Lyfjaverslun Íslands 1994-95 100% 535.1 Ríkisskip (eignasala) 1992 100% 492.8 Íslenskir aðalverktakar 1998 10,7% 329.4 Stofnfiskur 1999, 2001 52% 300.1 Skýrr 1997, 1998 50% 275.7 Íslensk endurtrygging 1992 36,5% 227.8 Steinullarverksmiðjan 2002 30,11% 224.1 Þróunarfélag Íslands 1992 29% 182.8 Jarðboranir 1992-95 50% 130.8 Prentsmiðjan Gutenberg 1992 100% 120.4 Þormóður rammi 1994 16,6% 119.0 Bifreiðaskoðun 1997 50% 113.2 Intís 2000 22% 72.9 Kísiliðjan 2001 51% 66.2 Skólavörubúð Námsgagnast. 1999 100% 43.6 Menningarsjóður 1992 100% 36.6 Framleiðsludeild ÁTVR 1992 100% 26.6 Ferðaskrifstofa Íslands 1992 33.33% 26.3 Þörungaverksmiðjan 1995 67% 21.6 Hólalax 1999 33% 10.8 Rýni 1993 100% 5.4 Samtals 64,787.9 * Krónutölur á verðlagi dagsins í dag. LANDSSÍMI ÍSLANDS Næsta stórverkefni í einkavæðingu, að því tilskildu að komandi ríkisstjórn taki ákvörðun um að selja. EINKAVÆÐING Steingrímur J. Sigfús- son, formaður Vinstri grænna, segir að flokkurinn sé ekki alfarið á móti einkavæðingu. Hann sé op- inn fyrir því að einkavæða fyrir- tæki sem séu í almennum sam- keppnisrekstri, en hins vegar sé afar lítið eftir af slíkum fyrirtækj- um. „Við sláum hins vegar skjald- borg um velferðarþjónustuna og viljum ekki sjá einkavæðingu í t.d. heilbrigðis- og menntamálum,“ segir Steingrímur. „Þá kemur ekki til greina af okkar hálfu að einka- væða almennar þjónustustofnanir eins og þær sem starfa í fjar- skipta- og orkugeiranum.“ Steingrímur segir að flokkurinn sé því alfarið á móti einkavæðingu Landssímans því hann eigi grunn- fjarskiptanetið og sé algjörlega markaðsráðandi fyrirtæki á sínu sviði. Hann segist hafa sérstakar áhyggjur af því að næsta stóra lota í einkavæðingarferlinu verði í vel- ferðarþjónustunni. „Það skyldu þó aldrei vera tengsl á milli þessa og boðaðra skattalækkana Sjálfstæðisflokks- ins. Fyrst verður ákveðið að stór- lækka skattana þannig að ríkið eigi ekki fyrir útgjöldum. Þá eru komin rök fyrir því að segja að fólk verði bara að borga fyrir þessa þjónustu sjálft eða að það verði að einka- væða hana.“ Steingrímur segist vera alfarið á móti einkavæðingu ÁTVR. Vinstri grænir líti á núverandi sölufyrirkomulag sem hluta af heilbrigðisstefnu þjóðarinnar. ■ STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON Formaður Vinstri grænna segist hafa sérstakar áhyggjur af því að næsta stóra lota í einka- væðingarferlinu verði í velferðarþjónustunni. Steingrímur J. Sigfússon um einkavæðingu: Slær skjaldborg um velferðarkerfið VIÐ LEIFSSTÖÐ Sjálfstæðisflokkurinn vill að ríkið dragi sig úr öllum verslunar- rekstri og leggur til að allur ríkisrekstur á verslunum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar verði seldur.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.